DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Swing

Heklað pils úr DROPS Fabel með gatamynstri og stuðlum, heklað beggja vegna við heklaða ferninga. Stærð S-XXXL.

DROPS 164-17
DROPS Design: Mynstur nr fa-313
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 103, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm. 1 heklaður ferningur = 12 x 12 cm.
DROPS PERLUTALA: Hringlaga (blá), NR 621: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í umf með st er skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í umf.
Í umf með fl er byrjað á 1 ll (ll kemur ekki í stað fyrstu fl). Umf endar á 1 kl í 1. ll í umf.
Fyrsti hst í umf með hst er skipt út fyrir 2 ll. Umf endar á 1 kl í 2. ll í umf.
Fyrsti tbst í umf með tbst er skipt út fyrir 4 ll. Umf endar á 1 kl í 4. ll í umf.
Fyrsti þbst í umf með þbst er skipt út fyrir 5 ll. Umf endar á 1 kl í 5. ll í umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 st.

ST-HÓPUR MEÐ 2 ST:
Heklið 1 st um fyrsta/næsta ll/ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 uppslættir á heklunálinni), heklið síðan næsta st um sama ll/ll-boga en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

ST-HÓPUR MEÐ 4 TBST:
* Heklið 1 tbst, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar í sama st, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni.

LYKKJA:
Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir 8-9-10-11-12-13 ferningar sem saumaðir eru saman í hring. Síðan er heklað beggja vegna við hringinn með ferningum.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 3,5 með Fabel og tengið í hring með 1 kl. Heklið síðan í hring þannig (sjá mynsturteikningu A.1):
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 1 st um hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar í umf = 16 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið kl fram að fyrstu ll. * Heklið ST-HÓPUR MEÐ 2 ST – sjá útskýringu að ofan – umf fyrstu/næstu ll, 2 ll *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar = 16 ll-bogar og 16 st-hópar með 2 st.
UMFERÐ 3: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. * Heklið st-hóp með 2 st um fyrsta/næsta ll-boga, heklið 3 ll, heklið st-hóp með 2 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar = 16 ll-bogar og 32 st-hópar með 2 st.
UMFERÐ 4: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. * Heklið 2 fl um fyrsta/næsta ll-boga, 1 ll, 2 fl um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar.
UMFERÐ 5: Heklið kl fram að fyrstu ll. * Heklið 1 fl um fyrstu/næstu ll, 9 ll, heklið 1 fl um næstu ll, heklið 6 ll, 1 fl um næstu ll, 6 ll, 1 fl um næstu ll, 6 ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar í umf.
UMFERÐ 6: Heklið 1 kl í fyrstu fl og 1 kl í næstu ll. * Heklið (2 hst, 2 st, 1 tbst, 3 ll, 1 tbst, 2 st, 2 hst) um ll-bogann – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 5 ll, heklið 1 st um næsta ll-boga, 5 ll, heklið 1 st um næsta ll-boga, 5 ll, heklið 1 st um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar í umf, en endið á 1 kl í fyrsta hst í umf.
UMFERÐ 7: Heklið 1 kl í hverja l fram að 3 ll í fyrsta ll-boga. Heklið 1 ll * 3 st um ll-bogann, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, heklið síðan 5 st um hvern af 4 næstu ll-bogum, 1 ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið á 1 kl í fyrsta st í umf. Ferningurinn mælist 12 x 12 cm. Heklið 7-8-9-10-11-12 ferninga alveg eins = alls 8-9-10-11-12-13 ferningar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

FRÁGANGUR:
Saumið saman hekluðu ferningana þannig að þeir myndi eina langa lengju með 1 x 8-9-10-11-12-13 ferningum. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið fyrsta og síðasta ferninginn saman þannig að það myndist hringur.

FRÁ HEKLUÐUM FERNINGUM OG UPP AÐ MITTI:
STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st meðfram ferningum (= 26 st yfir hvern ferning) = 208-234-260-286-312-338 st.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st frá fyrri umf *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í hvern st, 1 st um hverja ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er fækkað um 8-10-12-14-16-10 st jafnt yfir – LESIÐ LEIÐBEININGAR = 200-224-248-272-296-328 st.
UMFERÐ 5-6: Heklið síðan A.2 (= 8 st) 25-28-31-34-37-41 sinnum í umf. Þegar allt A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru haldið áfram með 1 st í hvern st. Þegar heklaðar hafa verið 2 umf með st, setjið í næstu umf 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 17-19-21-23-25-26 st, setjið síðan 5 prjónamerki með 33-37-41-45-49-55 st millibili. Nú eru 18-20-22-24-26-27 st eftir í umf á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er fækkað um 1 st hægra megin við öll prjónamerkin. Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki í 3. hverri umf 4-3-3-3-1-1 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umf 2-4-5-5-8-9 sinnum = 158-176-194-218-236-262 st, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-22-23-23-24-24 cm heklið nú 12 umf fram og til baka frá byrjun umf, þannig að það verði opin klauf í hlið. Stykkið mælist ca 32-32-33-33-34-34 cm. Heklið eina umf með fl. Klippið frá og festið enda.

HNESLUR:
Meðfram hlið á opi sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur/lykkjur þannig (byrjið neðst niðri): 2 fl um fyrsta st, * heklið 2 fl um næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar og endið á 2 fl um síðasta st efst uppi, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

FALDUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hinni hliðinni á opinu eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka (í 1. umf eru heklaðar 2 fl um hvern st = 24 fl), klippið frá. Saumið tölur í faldinn.

FRÁ HEKLUÐUM FERNINGUM OG NIÐUR PILSIÐ:
Heklið nú í gangstæða átt frá hekluðum ferningunum.
SETJIÐ PRJÓNAMERKI HÉR! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Heklið 1 st í hvern st (= 26 st yfir hvern ferning), JAFNFRAMT er aukið út um 2-1-0-4-3-2 st jafnt yfir = 210-235-260-290-315-340 st.
Heklið nú A.3 (= 5 st) 42-47-52-58-63-68 sinnum í umf. ATH: Í hverri umf er endað á 1 kl í hvern tbst fram að fyrsta ll-boga í umf! Þegar 2. umf hefur verið hekluð til loka er 2. umf endurtekin þar til stykkið mælist ca 10-12-13-15-16-18 cm, heklið síðan umf 3 í A.3 þar til stykkið mælist ca 18-20-21-23-24-26 cm. Heklið 4. og 5. umf í A.3. Nú eru 294-329-364-406-441-476 st í umf. Haldið nú áfram þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 0-1-0-0-1-0 st, heklið síðan * 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, JAFNFRAMT er aukið út um 42-28-14-14-0-7 st jafnt yfir = 336-357-378-420-441-483 st. Heklið nú A.4 (= 7 st) 48-51-54-60-63-69 sinnum í umf. ATH: Hver umf endar á 1 kl í hvern þbst fram að fyrstu ll í umf.

KANTUR NEÐST:
Heklið nú kant þannig – sjá mynsturteikningu A.5.
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í hvern og einn af 4 þbst fram að fyrsta/næsta ll-boga. Heklið síðan frá ör í mynstri þannig: 1 ll, * 1 fl um fyrsta/næsta ll-boga, 5 ll, hoppið yfir 4 þbst, 1 tbst um bilið á milli næstu 2 þbst, 5 ll, hoppið yfir næstu 4 þbst *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf.
Endið á 1 kl í fyrstu fl í umf.
ATH: Frá umf 2-7 byrjar hver umf með 1 kl í hvora af fyrstu 2 ll í fyrsta ll-boga frá fyrri umf. Hver umf endar á 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 2: 1 ll, 1 fl um ll-bogann, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf.
UMFERÐ 3: 1 ll, * 1 fl um ll-bogann, (5 ll + 1 fl) um hvern af næstu 4 ll-bogum, 9 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 4: 1 ll, * 1 fl um ll-bogann, (5 ll + 1 fl) um hvern af næstu 3 ll-bogum, heklið (1 st + 1 ll) í hvern af næstu 8 tbst, 1 st í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 5: 1 ll, 1 fl um ll-bogann, (5 ll + 1 fl) um hvern af næstu 2 ll-bogum, heklið (1 st + 2 ll) í hvern af næstu 8 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 6: 1 ll, * 1 fl um ll-bogann, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga. Heklið ST-HÓPUR MEÐ 4 TBST – sjá útskýringu að ofan + 2 ll í hvern af næstu 8 st, heklið st-hóp með 4 tbst í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 7: 1 ll, * heklið LYKKJA – sjá útskýringu að ofan, 6 ll, hoppið yfir fyrsta st-hóp með 4 tbst, (1 fl + 4 ll) um hverja af næstu 7 ll, 1 fl um næstu ll, 6 ll, hoppið yfir næsta st-hóp með 4 tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl í fyrstu lykkju í umf. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 5 ll og tengið í hring með 1 kl
symbols = 1 ll
symbols = 1 fl um ll/ll-boga
symbols = umf byrjar á 3 ll, endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf
symbols = 1 st um ll-boga/á milli þbst-hóps
symbols = 1 st í st
symbols = st-hópur með 2 st: Heklið 1 st um næsta ll/ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st um sama ll/ll-boga en þegar draga á bandi í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = 1 tbst í st/um ll-boga/um ll
symbols = 1 þbst í st/um ll-boga
symbols = heklið um ll-boga þannig: 2 hst, 2 st, 1 tbst, 3 ll, 1 tbst, 2 st, 2 hst
symbols = heklið um ll-boga þannig: 3 st, 3 ll, 3 st
symbols = byrjið hér
symbols = heklstefna
symbols = Heklið st-hóp með 4 tbst: * Heklið 1 tbst, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar í sama st, bregðið bandinu um heklunálina og dragið bandið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = 1 lykkja: Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl
symbols = 5 ll
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Inge Blesinger wrote:

Müsste es in der Anleitung zu den Häkelquadraten in der 5. RD nicht immer 6 LM heißen? Das 1. Mal heißt es: 9 LM.

27.12.2017 - 16:27

country flag Betty Edwards wrote:

I don't understand how much yarn to order for a size large! Help! How many do I order...surely not 340 !

13.08.2016 - 17:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Edwards, for a large size you've to order 450g of Fabel, i.e. 9 skeins. Remember to check your tension! Happy crocheting!

13.08.2016 - 19:42

country flag Betty Edwards wrote:

I don't understand how much yarn to order for a size large! Help! How many do I order...surely not 340 !

13.08.2016 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Edwards, for a large size you've to order 450g of Fabel, i.e. 9 skeins. Remember to check your tension! Happy crocheting!

13.08.2016 - 19:47

country flag Ansa Grahn wrote:

Hameen virkkaamisen aloitus jäi epäselväksi. Nappilista? Voisi olla kuva nappilistastakin.

12.01.2016 - 10:36

DROPS Design answered:

Voit tuoda työsi lähimmälle DROPS jälleenmyyjälle, liikkeessä saat opastusta paikan päällä.

18.01.2016 - 17:46

country flag Lonca Mireille wrote:

Merci pour votre reponse rapide et les tres joli modeles

20.10.2015 - 19:55

country flag Lonca Mireille wrote:

En partant des carrés vers le bas de la jupe ,vous marquez :tour 1 :0-1-0-0-1-0 B Qu'entendez vous par là? Vous commencez le tour par rien?

20.10.2015 - 16:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lonca, chaque chiffre se réfère à la taille, ainsi en taille M et XXL (2ème et 5ème taille), on commence par 1B puis on répète de *-* - dans les autres tailles (S, L, XL, XXXL), on commence directement par crocheter de *-*. Bon crochet!

20.10.2015 - 17:25

Jennifer Barrett wrote:

I would really like to make this skirt but am unsure that your sizing is - what is the waist measure for the sizes L and XL or even XXL? Thanks Jennifer

11.08.2015 - 11:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Barrett, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measures taken flat from side to side (in cm). Compare these to a similar garment you have and like the shape, this is the most accurate way to find out the matching size. Happy crocheting!

11.08.2015 - 12:48

country flag Tina wrote:

I think I just died a little. Or maybe my heart skipped a couple of beats! Have to make this!!!

13.06.2015 - 14:46

country flag Débora wrote:

Es estupendo que incluyáis este tipo de faldas en vuestro catálogo ;)

12.06.2015 - 21:18

country flag Katrin wrote:

Hat für mich etwas von einer Gardine...

01.06.2015 - 13:47