DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lady Lace

Heklað pils úr DROPS Merino Extra Fine með stuðlum og gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL

DROPS 165-33
DROPS Design: Mynstur nr me-084
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
550-650-700-750-850-900 gr litur nr 07, ljós brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm. A.2 = ca 3 cm á breiddina.
DROPS TALA NR 531: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5.
Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ATH: Aukið út til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerki (séð frá réttu)!

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður eftir klauf í hlið, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 153-169-190-211-227-248 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4 með Merino Extra Fine. Fyrsta umf er hekluð þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 2-4-4-4-6-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 20-22-25-28-30-33 sinnum til viðbótar = 130-144-162-180-194-212 st.
Heklið síðan fram og til baka með 1 st í hvern st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið alls 4 umf á hæðina eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 10-12-13-15-17-19 st, setjið eitt prjónamerki í stykkið, setjið síðan 5 prjónamerki með 22-24-27-30-32-35 st millibili. Nú eru 10-12-14-15-17-18 st eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er aukið út um 1 st á undan öllum prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 2-3-4-4-6-6 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið alls 9 umf á hæðina endar klaufin í hlið og stykkið er heklað í hring með byrjun umf í hlið. Aukið síðan út í 3. hverri umf 2 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 160-180-204-222-248-266 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st.
Þegar stykkið mælist alls 30-31-32-33-34-35 cm heklið 1 umf með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-2-2-0-6 st jafnt yfir = 164-182-206-224-248-272 st. Haldið nú áfram með mynstur þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 5 st, heklið síðan A.2 25-28-32-35-39-43 sinnum á breiddina, A.3 yfir þá 9 st sem eftir eru. Í umf 8 í A.Z (= st-umf) er aukið út um 18-18-18-24-24-24 st jafnt yfir = 182-200-224-248-272-296 st. Haldið áfram að hekla A.Z eins og áður, en A.2 er nú heklað 28-31-35-39-43-47 sinnum á breiddina. Þegar A.Z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.Y heklaði yfir A.Z. Heklið síðan A.X yfir A.Y. Í 2. umf í A.X er aukið út um 18 st jafnt yfir í öllum stærðum = 200-218-242-266-290-314 st. Haldið áfram að hekla A.X eins og áður, en A.2 er nú heklað 31-34-38-42-46-50 sinnum á breiddina. Heklið nú A.Z yfir A.X. Í umf 8 í A.Z er aukið út um 18 st jafnt yfir í öllum stærðum = 218-236-260-284-308-332 st. Haldið áfram að hekla A.Z eins og áður, en A.2 er nú heklað 34-37-41-45-49-53 sinnum á breiddina. Þegar A.Z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.Y heklað yfir A.Z alls 2-2-3-3-4-4 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.X yfir A.Y. Í síðustu umf í A.X er aukið út um 23-21-13-21-13-5 st jafnt yfir = 241-257-273-305-321-337 st.
Heklið nú kant þannig: Heklið A.5 alls 15-16-17-19-20-21 sinnum á breiddina (A.4 útskýrir hvernig umf byrjar og endar). Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er klippt frá og þráðurinn festur. Stykkið mælist ca 75-76-79-80-83-84 cm.

HNESLUR / LYKKJA:
Meðfram annarri hlið á opi sem er staðsett á framstykki eru heklaðar hneslur/lykkjur þannig (byrjið neðst): 2 fl um fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, * heklið 2 fl um næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið á 2 fl um síðasta st efst, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

FALDUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hinni hliðinni á opi eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka (í umf 1 eru heklaðar 2 fl um hvern st = 18 fl), klippið frá. Saumið tölur í faldinn.

KANTUR:
Heklið kant efst í mittinu á pilsinu frá réttu þannig: Festið þráðinn með 1 kl yst í fald fyrir tölur, 1 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* með fram öllum kantinum í mitti. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 7 m. Tvinni þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á annan endann þannig að snúran haldist tvinnuð saman. Þræðið snúruna upp og niður í annan hvern st í fyrstu umf með st í mitti, (þræðið e.t.v. perlur á snúruna). Síðan er gerður dúskur í hvorn enda með því að hnýta hnút ca 12 cm frá hvorum enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2015
Leiðrétting: Leiðrétting á mynsturtákni í röð 4 í A.3

Mynstur

symbols = fl í l
symbols = st í l
symbols = ll
symbols = st um ll
symbols = 1 kúla með 4 tbst: Heklið 1 tbst í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern af næstu 3 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni
symbols = umf með útaukningu - sjá skýringu í uppskrift
symbols = 1 fl um ll
symbols = 2 st í sömu l
symbols = heklið 1 st í næsta st - en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í hvern af næstu 2 st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni
symbols = 7 st í sömu ll/st
symbols = umf byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf
symbols = umf byrjar á 1 ll og endar á 1 kl í 1. ll frá umf
symbols = umf byrjar á 4 ll og endar á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Aderonke Uwechue wrote:

Thank You for this pattern so beautiful it took a week to complete

03.05.2023 - 22:29

country flag Anita wrote:

W opisie wzoru jest informacja o pęknięciu na początku , czy to oznacza że po zrobieniu 4 rzędów ,przerabiając kolejne rzędy nie łączymy ich ze sobą i powstaje otwór ? Czy jest możliwe dodanie zdjęcia z tym pęknięciem ?

01.05.2022 - 15:47

DROPS Design answered:

Witaj Anito, na początku (przez 9 rzędów) przerabiasz robótkę w tę i z powrotem. Od 10-tego rzędu (okrążenia) łączysz i przerabiasz już na okrągło. Na górze jest pęknięcie z boku, tak jak w zwykłej spódnicy np. na zamek. Na boku naszej spódnicy będą guziki (patrz niżej części DZIURKI NA GUZIKI i BRZEG NA DOSZYCIE GUZIKÓW). Pozdrawiamy!

03.05.2022 - 07:49

country flag Aurelia wrote:

Hola, acabo de terminar la falda. Ha quedado preciosa y me ha encantado seguir las instrucciones de vuestro patrón porque eran muy claras y concisas. Mi pregunta es ¿es recomendable planchar la prenda ? ¿Con o sin vapor?. Muchas gracias

22.08.2021 - 08:48

DROPS Design answered:

Hola Aurelia, en principio, recomendamos planchar la prenda con vapor con temperatura baja y siempre por el lado revés y con un trapo por encima, evitando que haya contacto directo entre la plancha y la prenda.

23.08.2021 - 13:13

country flag MRay wrote:

How can I lengthen a skirt crochet pattern to be a longer (maxi) skirt?

24.03.2020 - 18:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs MRay, you can probably lengthen the part before lace pattern - we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you are welcome to contact your DROPS store - even per mail or telephone - for every individual assistance. Happy crocheting!

25.03.2020 - 09:29

country flag Maj-Britt Larsen wrote:

Hvordan ved jeg om jeg skal hækle en S eller L ? jeg kan ikke hitte str. guide. :-)

07.07.2018 - 17:01

country flag Karin Bachert-Sedlak wrote:

In der Anleitung heißt es noch vor dem Muster: \"wenn insgesamt 4 R gehäkelt....\" , bzw. \"Nach insgesamt 9 R...\" Worauf bezieht sich insgesamt? Sollen im ersten Fall 4R hin- und zurück gehäkelt werden oder zähle ich die R von Beginn weg? Dh nur jeweils eine R hin und zurück? Im zweiten Fall: 9 R ab der ersten Zunahme? \r\nVielen lieben Dank für die Hilfe!\r\nKarin

28.05.2018 - 17:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bachert-Sedlak, sie zahlen die Reihen von Anfang an, dh nach 4 Reihen bzw 9 Reihen von der Anschlagskante. Viel Spaß beim häkeln!

28.05.2018 - 17:07

country flag Sofia wrote:

Förstår inte början /slutet av varven i diagrammet. Det känns som mönstret får ett "stopp" istället för att det flyter runt

13.09.2017 - 20:24

DROPS Design answered:

Hej Sofia, jo det stämmer, man börjar om för varje varv, annars kan mönstret hamna lite snett. Lycka till!

14.09.2017 - 09:14

country flag Elin wrote:

Jag skulle vilja göra den här kjolen men så att slutlängden är 60 cm. Går det att anpassa mönstret?

06.01.2017 - 16:03

DROPS Design answered:

Hej Elin. Ja, det tror jeg sagtens kan lade sig göre. Jeg ville saa haekle delen överst (efter mönstret) laengere, men det er selvfölgelig op til dig og hvad du foretraekker :) God fornöjelse.

09.01.2017 - 15:09

Irena P wrote:

Please recommend alternative cotton mix yarns so the skirt can be made for warmer countries . Thank you.

19.08.2016 - 08:59

DROPS Design answered:

Dear Irena P, click here for all alternative yarns. You'll find here more informations about alternative yarns. Remember your DROPS store will help you choosing a yarn, even per mail, telephone or on social media. Happy knitting!

19.08.2016 - 10:10

Maria wrote:

A very nice skirt, easy to make, the only problem was that the model is too large. I have crocheted size S, I wear size L and when I was almost done, I have tried the skirt and it has fallen off me. So actually I had to crochet it twice, but it was worth it! :)

06.04.2016 - 09:32