DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7524.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Winter

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody með norrænu mynstri, hringlaga berustykki, háu hálsmáli og stroffi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-19
DROPS Design: Mynstur nr as-040
Garnflokkur C + C (eða D)
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-175 gr litur nr 03, grár
50-75-75-75-75-100 gr litur nr 01, natur
50-75-75-75-75-100 gr litur nr 08, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-75 gr litur nr 02, ljós grár

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
100-150-150-150-150-200 gr litur nr 04, grár
50-100-100-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-100 gr litur nr 10, ljós bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 03, perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7524.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið endann innan í dokkunni og utan með dokkunni. Þegar skipta á um dokku þá er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verða samskeytin ekki of þykk.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (= BAS) eða 1 þræði Melody (M).

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING:
Aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki.
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 96-100-104-108-112-120 á hringprjóna nr 5,5 með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) í 20-20-21-21-22-22 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 28-30-32-32-34-40 l jafnt yfir = 68-70-72-76-78-80 l. Prjónið 1 umf til viðbótar í sléttprjóni. Í næstu umf er aukið út um 18-20-26-30-36-38 l jafnt yfir = 86-90-98-106-114-118 l. Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 8-8-9-11-10-12 l, setjið prjónamerki, síðan eru 5 prjónamerki sett í með 14-15-16-17-19-19 l millibili, nú eru 8-7-9-10-9-11 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum til viðbótar, í annarri hverri umf 13-16-18-18-17-18 sinnum og í 3. hverri umf 3-2-0-0-0-0 sinnum = 188-204-218-238-258-274 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er haldið áfram þannig: Prjónið fyrstu 24-27-29-33-37-40 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 48-54-59-67-75-81 l (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið þær 24-27-30-34-38-41 l sem eftir eru í umf (= hálft bakstykki). Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 108-120-130-146-162-174 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hverja hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermum (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú 1-1-2-2-2-3 umf með grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 108-120-132-144-168-180 l. Prjónið nú mynstur A.1 (= 12 l) 9-10-11-12-14-15 sinnum á breiddina – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina þá er haldið áfram með A.2 (= 8 l) yfir allar l og aukið ut um 4-8-4-8-8-4 l í fyrstu umf í mynstri = 112-128-136-152-176-184 l. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 33-33-34-34-34-35 cm. Prjónið nú 1-2-2-2-3-3 umf sléttprjón með grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 20-20-24-24-28-28 l jafnt yfir = 132-148-160-176-204-212 l. Nú er prjónað stroff (2 l sl, 2 l br) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 46-48-50-52-54-56 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 6 og fitjið upp 6 nýjar l undir ermi = 52-54-56-58-60-62 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). ATH: Þetta er byrjun umf! Prjónið með 2 þráðum af grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður Melody) þannig: Prjónið fyrstu 25-26-27-28-29-30, setjið prjónamerki í næstu l, prjónið þær 26-27-28-29-30-31 l sem eftir eru. Í næstu umf er prjónað mynstur A.1 (= 12 l). ATH: Stillið af að 7. l í mynstri (sjá ör) passi við l með prjónamerki í miðju á ermi! ATH: Mynstureining gengur ekki jafnt upp undir ermi, en mynstrið er prjónað yfir allar l á ermi og mynstrið verður þess vegna samhverft undir ermi.
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 10-11-11-11-12-12 sinnum til viðbótar = 30-30-32-34-34-36 l. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2. ATH: Stillið af þannig að 5. l í mynstri (sjá ör) passar við l með prjónamerki í miðju á ermi! Þ.e.a.s. mynstureining gengur ekki jafnt upp undir ermi, en mynstrið er prjónað yfir allar l á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist ermin 33 cm í öllum stærðum. Haldið nú áfram með litnum grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður grár Melody) til loka. Prjónið 3-3-3-2-2-2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2-2-0-2-2-0 l jafnt yfir = 32-32-32-36-36-36 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) þar til ermin mælist alls 45-45-45-44-44-44 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2016
Leiðrétt hefur verið vídd í hálsmáli, mál í hálsi eru frá háa hálsmáli í stroffi

Mynstur

symbols = 2 þræðir ljós bleikfjólublár BAS eða 1 þráður ljós bleikvínrauður M
symbols = 2 þræðir ljós grár BAS eða 1 þráður ljós perlugrár M
symbols = 2 þræðir natur BAS eða 1 þráður natur M
symbols = 2 þræðir grár BAS eða 1 þráður grár M
symbols = útauknings umferð - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Winter

Hello_love_by_katie, Poland

Sweet Winter

Olga, Australia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Marie wrote:

Bonjour, je souhaite tricoter ce modèle uni sans jacquard, faut-il autant de quantité de laine dans un seul coloris ? C'est à dire 275 gr pour une taille L. Je vous remercie par avance pour votre réponse.

30.04.2021 - 09:02

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, comme ce pull a été tricoté en jacquard, nous n'avons pas la quantité exacte nécessaire en unie - et nous n'avons plus le modèle non plus. Additionnez la totalité des couleurs, autrement dit 275 g Brushed Alpaca Silk soit 11 pelotes, il est possible que vous en ayez besoin d'un peu moins. Votre magasin saura vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

30.04.2021 - 13:11

country flag Jolanda De Jonge wrote:

Bij het meerderen wordt aangegeven per markeerder 1 steek te meerderen, afwisselend voor en achter de markeerder. Mijn voorpand meerdert hierdoor; mijn mouw niet. Wat doe ik fout? Als ik bij de mouwen ook ga meerderen klopt het patroon niet meer%

18.10.2020 - 20:01

DROPS Design answered:

Dag Jolanda,

Als het goed is heb je verdeeld over de toer 6 markeerders geplaatst en meerder je afwisselend voor en na de markeerders. Je moet wel steeds bij alle markeerders meerderen, dus de ene keer dat je meerdert, meerder je voor alle 6 markeerders en de andere keer dat je moet meerderen, meerder je na alle 6 markeerders. Zo wissel je dit steeds af.

21.10.2020 - 11:56

country flag Heike wrote:

Was genau ist mit folgendem Satz gemeint (Abschnitt "Passe"): "Diese Zunahmen an jedem Markierer in jeder Rd noch weitere 0-0-1-3-6-7 x wdh, dann in jeder 2. Rd 13-16-18-18-17-18 x arb und danach in jeder 3. Rd 3-2-0-0-0-0 x (= 188-204-218-238-258-274 M)." Ist mit "in jeder 2. Rd 13-16-18-18-17-18 x arb" einfach nur zunehmen gemeint oder muss ich bei "arb" etwas besonderes beachten? Danke und viele Grüße!

17.05.2019 - 22:08

DROPS Design answered:

Liebe Heike, Sie sollen an jedem Markierer in jeder 2. Rd 13-16-18-18-17-18 x zunehmen = 6 Zunahmen in jeder 2. Rd 13-16-18-18-17-18 x. Viel Spaß beim stricken!

20.05.2019 - 09:47

country flag Ida Baas wrote:

Hallo...Ik ben begonnen met de Drops 164-19 en die wordt gebreid met alpaca silk of met Melody. Nu moet ik van alpaca silk dubbel draads en de melody enkel draads..ik brei de trui met de alpaca silk 2 draads...nu komt mijn vraag...hoe komt het dat ik van beide wolsoorten even veel lengte nodig heeft terwijl ik de alpaca dubbel draad moet breien...dan kom ik toch te kort als naar de lengte van melody kijkt want ze zijn allebei 140 mtr lang....wil wel graag antwoord hierop...d.j.w.

29.11.2018 - 13:47

DROPS Design answered:

Dag Ida,

Brushed Alpaca Silk heeft 25 gram per bol :)

06.12.2018 - 11:13

country flag Kirsten Maathuis wrote:

Kunt u me helpen met het volgende, heb de Col gebreid en 90 steken op de pen. Heb 6 markeerders geplaats maar kom uit het volgende stuk niet uit. Meerder in de volgende nld 1 st bij elke markeerder – zie TIP VOOR HET MEERDEREN. Herhaal dit meerderen bij elke markeerder elke nld nog 0 keer, om de nld 16 keer en elke 3e nld 2 keer = 204 Brei de trui in maat M alvast dank voor uw hulp

06.02.2017 - 16:21

DROPS Design answered:

Hoi Kirsten. Je meerdert 1 st bij elke markeerder = + 6 per keer. Je meerder 16 keer om de nld (in elke 2e nld) = + 6x16 st = 96 en 2 keer in elke 3e nld = 6x3 = 18 st: 92+96+2 = 206 st op de nld.

07.02.2017 - 13:47

country flag Carmen wrote:

Me gustaría saber si este patrón quedaría bien utilizando la lana Air y si esta hace muchas bolitas o suelta pelusa. Gracias

10.12.2016 - 02:49

DROPS Design answered:

Hola Carmen. Este modelo tiene hecho el cálculo para las lanas del grupo D. Air pertenece al grupo C lo cual significa que hay que hacer nuevos cálculos para trabajar con esta calidad. Air es una lana de muy alta calidad y ni forma bolitas ni suelta mucha pelusa.

10.12.2016 - 20:47

country flag Lotte wrote:

Bei der Maschenprobe habe ich immer die korrekte Breite aber nie die richtige Höhe, was muss ich verändern?

22.01.2016 - 21:47

DROPS Design answered:

Stricken Sie die Maschenprobe ausreichend groß? D.h. es sollte ein Probestück von mindestens ca. 13 x 13 cm sein, bei dem Sie dann die mittleren 10 cm ausmessen. Die Maschenprobe in der Breite ist meistens wichtiger als die in der Höhe, denn fehlende Höhe lässt sich dadurch ausgleichen, dass mehr R gestrickt werden und die Höhenangaben erfolgen sowieso meistens in cm. Bei diesem Modell müssen Sie darauf achten, dass die Passe hoch genug wird, ggf. müssen Sie noch Zwischenrunden einbauen, wenn die Maschenprobe in der Höhe nicht stimmt.

30.01.2016 - 11:25

country flag M.carmen Herranz Gimeno wrote:

El patrón está equivocado al principio. Una vez que se hace el cuello, pone aumentar, cuando lo que quiere decir es disminuir. Si tengo 104 y se queda en 72 digo yo que hay que restar, no sumar

08.12.2015 - 08:01

country flag ClaudiaCarolina wrote:

Delight e Alpaca! CHE FELICITA'!.... stampo subito il modello specialmente per la sezione del disegno con le misure in cm. per tenerlo tra le mie priorità 2016.... sicuramente mi piacerà tantissimo e mi divertirò tantissimo a farlo... non appena finisco 3 o 4 lavori in corso... GRAZIE MILLE PER LA RISPOSTA!

27.11.2015 - 16:13

country flag Claudia Carolina wrote:

Grazie Drops per tanti modelli fantastici. Mi piace tanto questo modello, vorrei farlo, con il relativo campione e calcolando le giuste proporzioni e aghi relativi 2,5 e 3: con un colore Delight al posto del grigio perché mi piace tantissimo usarlo e 3 colori di Alpaca al posto degli altri colori secondari. E' possibile o verrebbe male? Grazie di nuovo. cc.

06.11.2015 - 16:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia, Delight e Alpaca sono due filati che spesso vengono utilizzati insieme, però tutto il modello va riprogettato: sicuramente verrà benissimo anche il questa variante. Buon lavoro!

23.11.2015 - 13:50