DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Winter Hat

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody með norrænu mynstri, dúskum og kant í garðaprjóni og prjónuðu hálsskjóli í stroffprjóni.

DROPS 164-7
DROPS Design: Mynstur nr as - 042
Garnflokkur C + C (eða D)
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: 54/56 cm.

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
25 gr litur nr 03, grár
25 gr litur nr 02, ljós grár
25 gr litur nr 08, bleikfjólublár
25 gr litur nr 01, natur

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
50 gr litur nr 04, grár
50 gr litur nr 03, perlugrár
50 gr litur nr 10, ljós bleikvínrauður
50 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 5,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - L/XL
Mál:
Ummál: Ca 52-55 cm.
Hæð: 20-22 cm.

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 03, grár
Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 04, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 18 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Farið ef til vill upp í grófleik á prjóni þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið endann innan í dokkunni og utan með dokkunni. Þegar skipta á um dokku þá er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verða samskeytin ekki of þykk.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (= BAS) eða 1 þræði Melody (= M).

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjónað 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman við miðju að aftan – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR og LEIÐBEININGAR!
ATH: Þær 3 l garðaprjón í hvorri hlið eru alltaf prjónaðar með grunnlit í hverri umf í mynstri.

HÚFA:
Fitjið upp 73 l með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan og fækkið lykkjum í 5. hverri umf um 6 l jafnt yfir (en ekki yfir 3 síðustu l í hvorri hlið) – LESIÐ ÚRTAKA = 67 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og haldið áfram með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, prjónið A.1 (= 12 l) 5 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu l í A.1 þannig að mynstrið verði samhverfa í hvorri hlið, 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með litnum grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/ 1 þráð Melody) til loka. Þegar stykkið mælist 20 cm er prjónað þannig: Prjónið þar til 10 l eru eftir, snúið við og prjónið þar til 10 l eru eftir, snúið við og prjónið þar til 15 l eru eftir, snúið við og prjónið þar til 15 l eru eftir. Haldið áfram að prjóna yfir 5 l færri í hverri umf þar til stykkið mælist alls 25 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l og aukið út í fyrstu umf 6 l jafnt yfir = 73 l. Fellið af.

DÚSKAR:
Gerið 2 stóra dúska í litnum grár ca 7 cm að þvermáli. Festið einn dúsk í hvorn enda á uppfitjunarkantinn.

FRÁGANGUR:
Brjótið húfuna saman þannig að affellingarkanturinn liggi tvöfaldur. Byrjið saman yst í hvorri hlið og saumið l eina og eina fallega saman við miðju á affellingarkanti. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR!

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 76-84 l á hringprjóna nr 5,5 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Prjónið stroffprjón (2 l sl, 2 l br) í 20-22 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = 2 þræðir grár BAS eða 1 þráður grár M
symbols = 2 þræðir ljós bleikfjólublár BAS eða 1 þráður ljós bleikvínrauður M
symbols = 2 þræðir natur BAS eða 1 þráður natur M
symbols = 2 þræðir ljós grár BAS eða 1 þráður perlugrár M
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Marga Flaßwinkel wrote:

Eine sehr schöne Mütze, die ich gern stricken würde. Warum gibt es keine Angabe zur Maschenprobe, vor allem aber keine Maße in cm und keine graphische Abbildung?

10.04.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Flaßwinkel, Maschenprobe finden Sie unter die Kopfzeilen, zusammen mit den Größen, Garn, Garnmenge, Nadel usw... Skizze gibt es dazu keine, nur Diagram für das 2-Fädig Muster. Viel Spaß beim stricken!

11.04.2023 - 14:15

country flag Giliane wrote:

Bonjour, N’étant pas douée pour tricoter en jacquard, Je souhaite le faire en uni. Combien de pelotes dois-je utiliser ? Cordialement, Giliane

12.12.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Bonjour Giliane, comme ce modèle a été tricoté en jacquard, nous avons seulement cette quantité et n'avons plus le modèle pour le peser. Vous pouvez ajouter toutes les couleurs ensemble, il vous en faudra probablement un peu moins. Votre magasin DROPS saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

13.12.2022 - 08:04

country flag Maria wrote:

Per realizzare il cappello non è necessario usare i ferri circolari. Giusto? Non si vede il dietro del cappello. immagino che al centro del dietro si formi una motivo a legaccio di 6 maglie giusto?

06.10.2022 - 06:56

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, è corretto, non deve usare i ferri circolari e ci sono 3 maglie a legaccio a ogni lato. Buon lavoro!

07.10.2022 - 20:59

country flag Beatriz wrote:

Bonjour, c'est-ce que j'ai fait 13mx17rx 2 fils BAS = en double (pour avoir 10cm), aiguilles 6,5,5,5 mais je n'arrive pas à avoir le bon résultat pour commencer à tricoter. j'ai changé les aiguilles de plus grandes à plus petites jusqu'à 4.5 et cela me donne toujours 7 cm sur 10 cm. quoi faire d'autre

27.11.2020 - 17:02

DROPS Design answered:

Bonjour Beatriz, vous tricotez peut-être serré? Essayez de changer d'aiguilles - mais pas seulement la taille, également la matière si possible, ça joue parfois sur votre tension. Demandez conseil à votre magasin (même par mail ou téléphone), il aura peut-être des astuces pour vous. Bon tricot!

30.11.2020 - 07:51

country flag Beatriz wrote:

Bonjour, je n'arrive pas à faire un échantillon 2 mailles ensemble Brushed Alpaca Silk comme indiqué. J'ai pris des aiguilles plus petites et plus grandes et j'arrive au même résultat, cad. ça ne me donne que 7 mailles sur 10. quoi faire d'autre, j'ai hâte de commencer ce bonnet et je suis incapable de le faire, merci beaucoup si vous pouvez m'aider

27.11.2020 - 15:54

DROPS Design answered:

Bonjour Beatriz, je ne suis pas sûre de comprendre, votre échantillon doit être de 13 m x 17rangs pour le bonnet avec 2 fils Brushed Alpaca Silk tricotés ensemble (= en double) - je ne comprends pas vos "2 mailles ensemble". Si vous n'avez pas le bon échantillon, vous ne pourrez obtenir les bonnes mesures. Bon tricot!

27.11.2020 - 16:17

country flag Coraline wrote:

Bonjour , quand on fait les rangs raccourcis qu’est ce qu’on fait avec les mailles non tricotées de chaque côté ? Exemple les 10 mailles ou 5 mailles non tricoteées sont en attente sur l’aiguille .. elles ne sont pas encore rabattues . Merci de votre aide !

14.11.2019 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, on laisse les mailles de chaque côté en attente jusqu'à la fin des rangs raccourcis, on les reprendra ensuite quand on va tricoter la côte mousse sur toutes les mailles avec l'aiguille 5,5. Bon tricot!

14.11.2019 - 15:50

country flag Kathryn wrote:

Hi, the pattern says to use a40cm circular needle or long enough to cast on 13st but then it says cast on 73st which will not fit on a 40cm needle, but 14st would. ???

21.10.2019 - 17:07

DROPS Design answered:

Hi Kathryn, The 13 stitches mentioned after the needle size is for your knitting tension - so 13 stitches x 17 rows should give you 10 x 10 cm if your tension is right. If you find the length of the needle too short you could try 60 cm in length. Happy knitting!

22.10.2019 - 07:28

country flag Gwendoline HILLAIRET wrote:

Oui ça j\'avais compris mais le soucis quand on arrive a la fin des 15 mailles mais pour faire les mailles endroits ( point mousse) je me retrouve au milieu du travail et pas sur un côté du travail ?

13.12.2018 - 09:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hillairet, tout à fait, à la fin des rangs raccourcis, vous êtes au milieu du rang, vous pouvez couper le fil, glisser toutes les mailles sur la même aiguille et tricoter 1 rang sur l'endroit sur toutes les mailles en augmentant 6 mailles à intervalles réguliers. Bon tricot!

13.12.2018 - 12:35

Gwen wrote:

Bonjour Alors moi j'ai compris pour laisser les mailles 10 puis 15 puis 20 mais arrive a 30 mailles on arrive au milieu du travail du coup je ne sais pas quoi faire?

12.12.2018 - 23:00

DROPS Design answered:

Bonjour Gwen, les rangs raccourcis se tricotent sur 5 m en moins à chaque rang: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 10 m à la fin du rang sur l'endroit, tournez et tricotez jusqu'à ce qu'il reste 10 m à la fin du rang sur l'envers, tournez, tricotez 5 m en moins à la fin de chacun des rangs suivants de chaque côté (= on a 15 m non travaillées, puis 20 m, puis 25 m et ainsi de suite) jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 25 cm. En fonction de votre tension en hauteur, vous aurez besoin de plus ou moins de rangs pour atteindre cette hauteur. Tricotez ensuite 2 rangs endroit sur toutes les mailles en augmentant 6 m au 1er de ces rangs. Bon tricot!

13.12.2018 - 09:28

country flag Irene wrote:

Salve, per fare il pompon da 7 cm di diametro immagino che il disco di cartone per realizzarlo dovra' essere di diametro maggiore, di quanto? Grazie

21.08.2018 - 05:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Irene, il disco deve avere le stesse dimensioni del pom pom. Buon lavoro!

21.08.2018 - 07:42