DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Elga

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og hálsskjóli úr 2 þráðum DROPS Alpaca með köðlum og áferðamynstri.

DROPS 164-35
DROPS Design: Mynstur nr z-723
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 7815, grænn/turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: ein stærð

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150 gr litur nr 7815, grænn/turkos

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.
DROPS HRINGPJÓNN (40 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 109-115 l á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum Alpaca.
Prjónið stroff hringinn þannig: A.1a (= 28 l), 1 l br, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir í umf, 1 l sl, 1 l br. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 5 umf í A.1a.
Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað þannig: Prjónið umf 6 í A.1a, 1 l br, * 1 l sl, prjónið næstu 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 l br.
Nú hefur fækkað um 26-28 l og það eru 83-87 l í umf.
Haldið áfram þannig: Prjónið A.1b (- finnið réttu stærð í mynstri), 1 l br, prjónið síðustu l í A.2, haldið áfram með A.2 þar til 1 l er eftir, 1 l br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18 cm er haldið áfram í stroffprjóni (sjá ör í mynstri), þ.e.a.s. br yfir 1. l í A.2 og sl yfir 2. l í A.2. ATH: A.1b og br hvoru megin við A.1b heldur áfram til loka. Þegar stroffprjónið hefur verið prjónað í 2 cm, prjónið aðra hverja l br slétt saman með sl eftir (= 13-14 l færri) = 42-45 l + A.1b. Þegar stykkið mælist 21-22 cm prjónið þær br l sem eftir eru slétt saman með sl eftir (= 13-14 l færri) = 29-31 l + A.1b. Síðan þegar stykkið mælist 23-24 m er fækkað um 13-14 l jafnt yfir l í mynstureiningu í sléttprjóni = 16-17 l + A.1b. Í næst síðustu umf í A.1b eru l prjónaðar 2 og 2 slétt saman yfir þær l sem eftir eru í umf (= 8-8 l færri) = alls 18-19 l eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Húfan mælist ca 26-27 cm. Festið enda vel.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 7 cm að þvermáli og festið á toppinn á húfunni.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 47 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þræði Alpaca.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í umf frá réttu er aukið út um 6 l jafnt yfir = 53 l. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3 (= 18 l), prjónið síðustu l í A.2, síðan er A.2 prjónað yfir næstu 14 l, A.4 (= 18 l), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið eitt prjónamerki í síðustu l í umf þegar stykkið mælist 25 cm.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 85 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Prjónið nú 2 umf sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í umf frá réttu er fækkað um 6 l jafnt yfir = 47 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið affellingarkantinn við langhlið á stykki, þ.e.a.s. á milli prjónamerkis sem sett var í fyrstu umf í garðaprjóni í byrjun á stykki (sjá mynsturteikningu). Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l br á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = 2 l slétt saman
symbols = 2 l brugðnar saman
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = A.1 er prjónað eins og áður, en prjónað er stroff yfir þær l sem eftir eru í umf (þ.e.a.s. yfir A.2) - sjá skýringu í texta
symbols = affellingarkantur
symbols = uppfitjunarkantur
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Sandra Walther wrote:

Ik heb geen flauw idee wat ik moet doen na 17-18 cm bij het breien van de muts. Ik begrijp dat ik patroon 1b gewoon moet afmaken, maar welk boordpatroon wordt bedoeld? A2? Maar dat deed ik al. Ik ga ervanuit dat ik over de eerste 28 steken gewoon A1b brei. Maar wat doe ik met de andere steken waar ik de ene naald alles recht en de andere naald 1av 1r heb gebreid. Het nordpatroon is 1r, 2av. Dat is toch heel wat anders

30.03.2022 - 20:16

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

Met de boorsteek wordt bedoeld dat je de eerste steek van A.2 nu steeds averecht breit en de tweede steek van A.2 steeds recht breit. (Eerst breide je de eerste steek van A.2 de ene naald recht en de andere naald averecht).

04.04.2022 - 13:27

country flag Florence wrote:

For the neck warmer, is it a rectangle that you attach the top end to the left side of the beginning?

28.04.2021 - 22:46

DROPS Design answered:

Dear Florence, correct, the neck warmer consists on a rectangle that is then sewn together afterwards. Happy knitting!

29.04.2021 - 08:06

country flag Ellen Weckx wrote:

Waar wordt de eerste en laatste steek van de muts aan elkaar gezet? Als dit in het rond gebreid wordt, moet toch de eerste en laatste steek aan elkaar gezet worden?

18.10.2020 - 21:42

DROPS Design answered:

Dag Ellen,

Je zet steken op , op de rondbreinaald en dan brei je de eerste naald gelijk verder met de draad waarmee je op hebt gezet, waardoor je de eerste en de laatste steek met elkaar verbindt. Zie ook onderstaande video waarin wordt uitgelegd hoe je opzet en in de rondte breit.

21.10.2020 - 11:41

country flag Astrid wrote:

Kan je deze modellen ook volledig met breinaalden zonder knop breien (15 of 20 cm)? Daar werk ik namelijk liever mee dan met rondbreinaalden :) Alvast bedankt!

08.09.2020 - 08:05

country flag Chantal wrote:

Désolé je fais le modèle petit et avec les diminutions de 13 m je n’arrive pas. Merci ā l’avance.

17.06.2019 - 16:31

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, quand vous avez tricoté en côtes pendant 2 cm, vous diminuez dans 1 section en mailles envers des côtes sur 2 en tricotant ensemble à l'endroit 1 m env (= la dernière m env de la section en mailles envers concernée) et la m end suivante = vous allez diminuer 13 m (il reste 42 m+ A.1b). Puis vous, diminuez les dernières mailles envers en les tricotant ensemble à l'endroit avec la m end suivante = 13 diminutions de nouveau (il reste 29 m + A.1b). Vous diminuez ensuite 13 m à intervalles réguliers (voir ici comment faire) = il reste 16 m + A.1b. Bon tricot!

18.06.2019 - 08:23

country flag Chantal wrote:

Je crois que j’ai trouvé ma réponse. Je tricote 1 envers 1 endroit je prend 2m que je traverse sur la broche de gauche et tricote 1 m et je passe les 2 m par dessus la tricoter.13 diminutions ensuite 1 m endroit 1 envers. Merci

15.06.2019 - 00:04

country flag Chantal wrote:

Si je comprend bien le tableau je tricote en rond A.1b le carré vide est à l’endroit et le carré avec un carré noir est à l’envers. Le tableau A.2 il y a un rang endroit et l’autre tour 1 maille envers et 1 maille endroit. Je vous remercie pour votre beau travail qui me sécurise. Bonne journée à vous .

08.06.2019 - 16:38

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, c'est tout à fait exact, comme on tricote en rond, on tricote sur l'endroit et les mailles comme elles doivent se présenter sur l'endroit, et donc toujours de droite à gauche tous les tours. Bon tricot!

11.06.2019 - 10:13

country flag Chantal wrote:

Combien de torsade sur La Tuque je vois une photo seulement.

05.06.2019 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, on a 3 torsades dans A.1b = celle du milieu (qui forme un croisillon) et 1 de chaque côté (sur 6 m= la 1ère avec les mailles de l'aiguille auxiliaire glissée derrière et la 2ème (que l'on ne voit pas sur la photo) avec les mailles de l'aiguille auxiliaire placées devant). Bon tricot!

05.06.2019 - 09:00

country flag Chatal wrote:

Ma petite fille veux un rebord sur La Tuque pour avoir les oreilles à chaleur.dois-je faire les 5 rangs plusieurs fois ou des côtés 2/2 2 endroits 2 envers et revenir sur le début de La Tuque . Merci hâte de commencer.

04.06.2019 - 22:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chatal, vous pouvez à priori répéter les 5 rangs de A.1a sur la longueur souhaitée (ils correspondent à la petite bordure en côtes que l'on voit sur la photo), puis, quand vous avez la hauteur souhaitée, tricotez le 6ème rang de A.1a et continuez ensuite comme les explications pour le reste du bonnet. Bon tricot!

05.06.2019 - 08:57

country flag Maryk wrote:

For the diagram-RS(row 1)- do we knit right to left, WS(row 2-do we knit right to left or left to right on the diagram. Thanks for your help

12.05.2019 - 12:36

DROPS Design answered:

Dear Mary, the hat is worked in the round, so you'll knit every round of diagram right to left, while the neckwarmer is knitted back and forth, so you'll knit right side rows right to left and wrong side rows left to right. Happy knitting!

12.05.2019 - 13:25