DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Warm Autumn Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með gatamynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-4
DROPS Design: Mynstur nr ee-532
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
550-650-700-750-850-900 gr litur nr 08, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 7 – fyrir stroff/hálsmál.
DROPS PERLUTALA BOGALAGA (hvít), NR 522: 7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (rétta): 1 l br, 1 l sl, 1 l br
UMFERÐ 2 (ranga): 1 l br, 1 l sl, 1 l br.
Endurtakið umf 1 og 2 uppúr.

PERLUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: 1 l br, 1 l sl, 1 l br.
UMFERÐ 2: 1 l sl, 1 l br, 1 l sl.
Endurtakið umf 1 og 2 uppúr.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 37, 45 og 53 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm.
STÆRÐ L: 3, 12, 21, 30, 39, 48 og 57 cm.
STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ XXL: 4, 14, 24, 34, 43, 52 og 61 cm.
STÆRÐ XXXL: 4, 14, 24, 34, 44, 54 og 63 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 119-125-131-149-161-179 l á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið stroff þannig (frá réttu): A.1 (= kantur að framan), * 3 l sl, 3 l PERLUPRJÓN prjónað fram og til baka – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, endið á 3 l sl, A.1 (= kantur að framan). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 7 umf. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 2 umf sléttprjón með A.1 í hvorri hlið, JAFNFRAMT í umf frá réttu er fækkað um 15-9-3-9-9-15 l jafnt yfir = 104-116-128-140-152-164 l. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.1. ATH: Þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í A.1 til loka! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-35-35-37-38-39 cm, prjónið þannig: Prjónið fyrstu 25-28-31-34-37-40 l, fellið af næstu 6 l (= handvegur), prjónið næstu 42-48-54-60-66-72 l, fellið af næstu 6 l (= handvegur), prjónið þær 25-28-31-34-37-40 l sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-30-30-30-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með Snow. Prjónið stroff þannig: * 3 l sl, 3 l PERLUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 7 umf, er skipt yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-32-32-36-36 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki, endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-5-5 cm millibili 3-3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar = 36-36-42-42-48-48 l. Þegar ermin mælist 41 cm í öllum stærðum eru felldar af 6 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 3 l á undan prjónamerki og næstu 3 l) = 30-30-36-36-42-42 l eftir á prjóni.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 8 og fram- og bakstykki = 152-164-186-200-224-236 l. Prjónið nú frá miðju að framan þannig: Prjónið 2-2-4-4-6-8 umf sléttprjón með A.1 í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 153-169-185-201-217-233 l, (en ekki yfir kantlykkjur að framan). Prjónið síðan mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2 (= 16 l) 9-10-11-12-13-14 sinnum á breiddina, 1 l sléttprjón, 4 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 72-79-86-93-100-107 l á prjóni. Nú eru prjónaðar 2 umf í sléttprjóni með A.1 í hvorri hlið, JAFNFRAMT í umf frá réttu er fækkað um 16-21-26-31-36-41 l jafnt yfir = 56-58-60-62-64-66 l.

HÁLSMÁL:
Skipti yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið kant í perluprjóni þannig: Prjónið l á kanti að framan og haldið áfram í perluprjón í A.1 út umf. Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 4 umf í perluprjóni. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur i vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Alison wrote:

I’m confused! I’ve knitted the body and both the sleeves but it seems a bit of the pattern is missing about where to place the sleeves when joining them to the body? The pattern just say ‘slip the sleeves onto the same circular needles size 8’ I would expect it to say knit (?) stitches for front , attach sleeve, knit (?) for back attach sleeve knit remaining stitches. Can you help please?

24.01.2023 - 15:29

DROPS Design answered:

Dear Allison, you slip the stitches before working them (just insert the sleeve over the space created by the stitches cast off on body) - and work in stocking stitch for 2,4,6 or 8 rows (see size). In this video, we show how to work a sleeve onto body, it might be helpful. Happy knitting!

24.01.2023 - 16:53

country flag Joëlle Weitel Munch wrote:

Merci beaucoup pour votre réactivité et votre professionnalisme, c'est top

05.01.2021 - 15:31

country flag Joëlle Weitel Munch wrote:

Bonjour, j'aimerais exécuter le modèle 164.4 avec des aiguilles droites, est ce possible ? Pourriez vous me donner le nombre de mailles pour les devants et pour le dis, je ne comprends pas le modèle en aiguilles circulaires, merci d'avance Bien cordialement

05.01.2021 - 13:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Weitel Munch, cette leçon explique comment adapter un modèle sur aiguilles droites et vous permettra ainsi de faire les ajustements souhaités. Bon tricot!

05.01.2021 - 14:45

country flag Combes wrote:

Bonjour, je ne comprends pas la logique pour les manches : monter 30 mailles. puis ajuster au premier tour à 28 mailles. Ca veut dire quoi car ensuite on doit ajouter 6 mailles et on me dit que je dois obtenir 36 mailles en taille S. Merci pour vos conseils.

13.11.2020 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combes, on monte d'abord 30 mailles pour le poignet, puis on diminue 2 mailles en taille S car on a besoin de davantage de mailles avec les aiguilles 7 qu'avec les aiguilles 8 pour la même largeur - à 10 cm de hauteur totale, on commence à augmenter 2 mailles au milieu sous la manche (= 1 m à la fin du tour + maille au début du tour) tous les 8 cm , et on aura 36 m quand toutes les augmentations seront faites. Bon tricot!

13.11.2020 - 15:32

country flag Nicoke wrote:

Ist es korrekt, dass die 3 M Re vor dem Perlmuster in der RR links gestrickt werden? Es sieht auf dem Bild so aus, aber es ist nicht ausdrücklich angegeben.

23.09.2019 - 16:33

DROPS Design answered:

Liebe Nicoke, Perlmuster wird bei den Rückreihe auch im Perlmuster gestrickt, aber Bündchen wird so gestrickt: *3 M re (bei der Hinreihe, dh links bei der Rückreihe), 3 M im Perlmuster*, und von *-* wiederholen, und mit 3 M re enden (mit A.1 beidseitig). Viel Spaß beim stricken!

24.09.2019 - 10:05

country flag Elisa wrote:

Merci beaucoup de votre retour, c’est exactement la question que je me posais ! Bonne journee

05.11.2018 - 10:55

country flag Elisa wrote:

Bonjour, Ma question concerne l’empiècement, pour le motif. Je vois qu’il faut ajouter une maille jersey à chaque rang en plus des motifs (et des bordures). Faut-il toujours faire cette maille après le motif ou un fois avant, une fois après ?? Merci de votre réponse

04.11.2018 - 14:38

DROPS Design answered:

Bonjour Elisa, vous allez toujours tricoter ainsi, vu sur l'endroit: 4 m de bordure devant, répétez A.2 en largeur et terminez par 1 m jersey (= à l'end sur l'end) et 4 m de bordure devant. Sur l'envers, tricotez les 4 m de bordure devant, 1 m jersey (= à l'env sur l'env) et répétez A.2 (en lisant de gauche à droite), 4 m de bordure devant. Ainsi, le motif sera symétrique de chaque côté. Bon tricot!

05.11.2018 - 09:41

country flag Eugenia Bordignon wrote:

Non esce la foto del modello nè il disegno con misure nè lo schema.

19.03.2018 - 12:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Eugenia. Sia la foto che lo schema sono caricati correttamente. Provi a svuotare la cache o a navigare usando un browser diverso. Buon lavoro!

19.03.2018 - 17:16

country flag Looten Marianne wrote:

Bonjour, Je n'ai pas la légende du diagramme. Les 3 premières cases ont des points d'interrogation. Pouvez-vous me renseigner svp ? (DROP164/4 - Warm Autumn cardigan). J'ai déjà acheté la laine. Merci d'avance. Marianne. Diagramme = 1 m end sur l'endroit, env sur l'envers = 1 m env sur l'endroit, end sur l'envers = 1 jeté entre 2 m

19.01.2018 - 21:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Looten, vous trouverez la légende du diagramme juste au-dessus de A.1/A.2. Bon tricot!

22.01.2018 - 08:58

country flag Emma wrote:

Hallo! Beim Ärmel heißt es "Bei einer Gesamtlänge von 10 cm..." erfolgt die erste Zunahme. Ist mit der Gesamtlänge die Länge inklusive der 4 cm Bündchen gemeint oder die Länge glatt rechts AB Bündchen. Irgendwie steh ich an der Stelle aufcdem Schlauch... Beste Grüße!

01.10.2017 - 11:50

DROPS Design answered:

Liebe Emma, die Gesamtlänge wird hier von der Anschlagskante gemessen, dh inklusive der 4 cm Bündchen. Viel Spaß beim stricken!

02.10.2017 - 09:58