DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Falling Leaves

Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og garðaprjóni, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 164-3
DROPS Design: Mynstur nr z-719
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 2020, ljós camel
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
175-175-200-225-250-275 gr litur nr 20, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 301-301-349-349-397-397 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.1 (= 16 l ), A.2 (= 16 l) yfir næstu 256-256-304-304-352-352 l, A.3 (= 17 l) yfir næstu 17 l, endið á 6 l garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229-229-265-265-301-301 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.4 (= 12 l) yfir næstu 204-204-240-240-276-276 l, A.5 (= 13 l), endið á 6 l garðaprjón. Þegar A.4-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 22 cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.6 (= 12 l), A.7 (= 12 l) yfir næstu 48-48-60-60-72-72 l, A.8 (= 13 l), 11 l garðaprjóni, A.6, A.7 yfir næstu 24-24-36-36-48-48 l, A.8, 11 l garðaprjón, A.6, A.7 yfir næstu 48-48-60-60-72-72 l, A.8, 6 l garðaprjón.

Prjónið í 4 umf JAFNFRAMT í síðustu umferð er miðjulykkja af 11 lykkjum garðaprjón felld af í hvorri hlið = 227-227-263-263-299-299 l.

Nú skiptist stykkið og prjónað er op fyrir handveg:

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið síðustu 143-143-167-167-191-191 l á prjón (séð frá réttu) á þráð, prjónið einungis yfir fyrstu 84-84-96-96-108-108 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.6 - A.8 eins og áður, endið á 5 l garðaprjón. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þeim stað sem stykkið skiptist upp. ATH: Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka síðustu 84-84-96-96-108-108 l á prjóni (= 59-59-71-71-83-83 l eftir á þræði), prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. Setjið l á þráð og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 59-59-71-71-83-83 l sem eftir eru af þræði á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar bakstykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm setjið stykkin til baka á sama hringprjón nr 5. ATH: Stillið mynstrið af eftir framstykki (síðasta umf er frá röngu). Prjónið síðan frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.6, A.7 yfir næstu 48-48-60-60-72-72 l, A.8, 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, A.6, A.7 yfir næstu 24-24-36-36-48-48 l, A.8, 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, A.6, A.7 yfir næstu 48-48-60-60-72-72 l, A.8, 6 l garðaprjón = 229-229-265-265-301-301 l á prjóni. Nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið 4 umf svona. Prjónið nú mynstur þannig (frá réttu): 6 l garðaprjóni, A.6, A.7 yfir næstu 192-192-228-228-264-264 l, A.8, endið á 6 l garðaprjón.
Þegar A.6-A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 204-204-240-240-276-276 l, A.5, endið á 6 l garðaprjón. Þegar A.4-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.6-A.8 endurtekið þar til stykkið mælist alls 74-76-78-80-82-84 cm, stillið fallega af og miðið við mynstur. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-50-50-56-56-56 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5.

STÆRÐ S-M-L:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 yfir næstu 48 l, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 38 l og stykkið mælist ca 12 cm.
STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.9 (= 18 l) yfir næstu 54 l, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 44 l á prjóni og stykkið mælist ca 14 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni, kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni til loka.
Þegar stykkið mælist 14-14-14-16-16-16 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtekið útaukningu með 3½-3-3-3- 2½-2½ cm millibili 10-12-13-12-14-15 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-76 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm. Fellið af kantlykkju í hvorri hlið á stykkið í byrjun á 2 næstu umf = 58-62-64-68-72-74 l. Fellið nú af fyrir ermakúpu í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum í hvorri hlið = 18-22-24-28-32-34 l. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 58-59-60-61-62-63 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Patricia wrote:

Bonjour je ne comprend pas le symbole du rang 11 du diagramme A6-A7-A8 faut il supprimer des mailles et comment rajouter le surjet double merci de votre réponse

25.11.2019 - 23:40

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, aux rangs 11 et 17, le surjet double va se tricoter à cheval sur 2 diagrammes: à la fin de A.6, faites 1 jeté (= dernière m de A.6), tricotez le surjet double sur la dernière m de A.6 + les 2 premières m de A.7 = 1ère m de A.7 + 1 jeté = 2ème m de A.7. Continuez ainsi en tricotant la dernière m de A.7 avec les 2 premières m du A.7 suivant/de A.8. Pensez à vérifier que vous avez bien le bon nombre de mailles dans chaque diagramme. Bon tricot!

26.11.2019 - 09:52

country flag Nathalie Deleysses wrote:

Bonjour au niveau des diagrammes les rangs pairs sont tricotés en rangs envers ?

28.05.2018 - 17:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deleysses, tous les rangs figurent dans le diagramme, ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers. Tricotez les rangs envers soit à l'envers (= case blanches) soit à l'endroit (cases avec un rond noir) en fonction des diagrammes. Bon tricot!

29.05.2018 - 08:42

Jackie wrote:

Hi I have tried this section which starts with "NOW MEASURE PIECE FROM HERE" ans ends with 6 sts in garter sts numerous times but ends each time with 31 sts that does not fit in the patter. I am knitting the S size starting with 301 sts. Please Help. Thank you

31.01.2018 - 14:21

DROPS Design answered:

Dear Jackie, in size S you should have 229 sts after A.1-A.3 has been worked 1 time in height, then work A.4-A.5 and then (measure from here) work: 6 sts in garter st, A.6 (= 12 sts), A.7 (= 12 sts) over the next 48 sts, A.8 (= 13 sts), 11 sts in garter st, A.6, A.7 over the next 24 sts, A.8, 11 sts in garter st, A.6, A.7 over the next 48 sts, A.8, 6 sts in garter st = 6 + 12+48+13 + 11 + 12+24+13 + 11 + 12+48+13 + 6= 229 sts. Happy knitting!

31.01.2018 - 15:47

Valeriya wrote:

Hi! Sorry to ask again about dividing the work for armholes. Where exactly do I have to divide? 11 stitches /2 and between them (5,1,5) after 4 raw done? or 72/2 -the length of A8/7/6 after 11 sts? I am doing the M size. Are you planning your website in Russian? A bit hard to translate your patterns ))))

14.11.2017 - 05:58

DROPS Design answered:

Dear Vaelriya, in size M you should have: 6 sts in garter st, A.6, A.7 over the next 48, A.8, 5 sts in garter st, bind off 1 st for armhole, 5 sts in garter st, A.6, A.7 over the next 24 sts, A.8, 11 sts in garter st, A.6, A.7 over the next 48 sts, A.8, 6 sts in garter st. For any individual assistance in Russian you are welcome to contact your DROPS store. Happy knitting!

14.11.2017 - 09:27

country flag Francesca wrote:

Salve ho bisogno di aiuto per continuare la lavorazione. Sono arrivata a lavorare il davanti sinistro, per passare al davanti destro devo tagliare il filo quando metto le maglie in attesa? Come faccio a iniziare a lavorare il dietro?

08.09.2017 - 15:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Per il davanti destro deve lavorare le ultime maglie messe in attesa sul ferma maglie. Sarebbe meglio iniziare un nuovo gomitolo. Le maglie che restano sul ferma maglie, sono le maglie del dietro che lavorerà dopo aver completato il davanti destro. Buon lavoro!

08.09.2017 - 17:04

country flag Claire wrote:

Beautiful pattern! Do you have any recommendations for using a single yarn instead of two types of yarn? Weight or ply would be very helpful. Thanks in advance!

01.03.2017 - 15:00

DROPS Design answered:

Dear Claire, 2 strands yarn group A = 1 strand yarn group C, read more about alternatives here. Happy knitting!

01.03.2017 - 17:16

country flag Biggi wrote:

Jetzt habe ich es verstanden. Hatte voll den Denkfehler. Jetzt is der Groschen gefallen. Sorry LG

12.01.2017 - 14:08

country flag Biggi wrote:

Liebes Team Ich verstehe den Anfang nicht. Da steht über 256 machen die A3 weiter Stricken. Aber muss ich nicht im Wechsel A1 A2 A3 A1 A2 A3 usw. Stricken ? Ich komme nicht auf die 301 Maschen. Irgendwie stehe ich auf der Leitung 😅 LG

12.01.2017 - 10:25

DROPS Design answered:

Liebe Biggi, so sollen Sie die 301 M stricken: 6 M Kraus re, A.1 (= 16 M), A.2 über die nächsten 256 M stricken dh 16 x die 16 M in A.2, dann stricken Sie A.3 (= 17 M) und 6 M Kraus re = 6+16+256 (= 16x16) + 17+6=301. Viel Spaß beim stricken!

12.01.2017 - 16:55

country flag Michela wrote:

Salve vorrei realizzarlo ma liscio senza trafori.tra l altro temo di non capire bene le indicazioni visto che sono una principiante.e se posso usare i ferri normali invece dei circolari?uso lavorare tenendo il ferro sotto l ascella.adoro lavorare voglio imparare mi aiutate?grazie

16.12.2016 - 18:54

DROPS Design answered:

Buonasera Michela. Generalmente i cardigan aperti si riescono a lavorare con i ferri dritti senza modificare le istruzioni. In questo modello particolare vengono consigliati i ferri circolari per il numero molto alto di m da avviare e con i ferri dritti potrebbe risultare difficile. Buon lavoro!

16.12.2016 - 19:49

country flag Monika wrote:

Miten tuo oikea etukappale neulotaan peilikuvana? Senhän täytyy kumminkin mennä niin, että 6s ainaoikean edessä on kaavio A8. Eli 5s ainaoikein, A6, A7, A8 ja 6s ainaoikein. Muutenhan se ei toimi, kun kaikki kappaleet yhdistetään ja aletaan neuloo helmaa kohden.

10.10.2016 - 23:00