DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Early Autumn

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með A-formi, hringlaga berustykki, köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-9
DROPS Design: Mynstur nr ne-180
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
550-650-700-750-850-900 gr litur nr 2923, skærgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 4 l á undan prjónamerki: 2 l sl saman, 2 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

MYNSTUR:
Sjá ynsturteikningu A.1-A.2 – sjá útskýringu fyrir þína stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-158-178-192-208-226 l á hringprjóna nr 4 með Nepal.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og eitt eftir 72-79-89-96-104-113 l (= hliðar). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 8-9-10-9-10-10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 128-142-162-176-192-210 l. Þegar stykkið mælist 36-38-40-38-40-42 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 4 l í umf, prjónið þar til 4 l eru eftir að hinu prjónamerkinu, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir í umf, fellið af þessar 4 l = 56-63-73-80-88-97 l eftir á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á sokkaprjóna nr 4 með Nepal. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 9-10-10-11-12-12 sinnum til viðbótar (= alls 10-11-11-12-13-13 sinnum) = 56-60-62-66-70-72 l. Þegar stykkið mælist 44-45-45-42-42-43 cm fellið af 8 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 48-52-54-58-62-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón nr 5 og fram- og bakstykki, JAFNFRAMT er fækkað um 1-0-1-0-1-0 l í umf = 207-230-253-276-299-322 l. Prjónið síðan þannig: * A.1, A.2 *, endurtakið frá *-* 9-10-11-12-13-14 sinnum. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð! Eftir fyrsta kaðal í A.1 eru 225-250-275-300-325-350 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur og úrtöku í A.2, þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 117-130-143-156-169-182 l á prjóni. Prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 27-34-41-48-55-62 l jafnt yfir = 90-96-102-108-114-120 l. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan, klippið frá og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf fram að miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, prjónið 2 l sl í fyrstu l af hjálparprjóni, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni = 8 l
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman af hjálparprjóni, 2 l sl af hjálparprjóni = 6 l
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Early Autumn

Gabriela, Romania

Early Autumn

Monika Martinson, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Martina Giers wrote:

Hallo, wenn die Ärmel wieder auf der Nadel sind und die Passe begonnen wird, wo soll dann der Rundenbeginn sein, damit das Muster korrekt aufgeht? Viele Grüße

12.12.2023 - 07:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Giers, die Runden beginnen zwischen Rückenteil und Ärmel, wenn Sie das Muster A.1 oder A.2) in der Mitte wollen, dann sollen Sie vielleicht kalkulieren, wie Sie am besten beginnen sollen. Viel Spaß beim stricken!

12.12.2023 - 09:39

country flag Ann wrote:

I dont understand where are decreases in a yoke? in a diagram is not visible...

27.04.2023 - 03:36

DROPS Design answered:

Hi Ann, The decreases are in A.2 on the yoke. The filled in triangles decrease 2 stitches on each repeat of the diagram in width and you decrease 4-5 times in height in each repeat, depending on which size you are working. Happy knitting!

27.04.2023 - 06:46

country flag Rachel Forder wrote:

When the sleeves have been slipped back on to the needle where does the row commence to start the yolk? I assume that is important to get the pattern in the correct position?

09.04.2023 - 23:02

DROPS Design answered:

Dear Rachel, the round begins in the transition between the sleeve and the back, continuing over the sleeve, the front, e.t.c. Happy knitting!

10.04.2023 - 16:54

country flag Judit Rubio Mulet wrote:

Buenos días, me encantan todos vuestros patrones. Pero tengo el problema de que mi talla es muy pequeña, y la S me queda grande. Me gustaría saber si es posible adaptar este patrón para una talla XS. Muchas gracias por vuestro tiempo, un saludo. Good morning, I love all your patterns. But I have the problem that my size is too small, and the S is too big for me. I would like to know if it is possible to adapt this pattern for a size XS. Thank you very much for your time, regards.

11.01.2023 - 10:39

DROPS Design answered:

Hola Judit, no hacemos patrones personalizados, pero puedes adaptar el patrón para la talla XS tú misma. Puedes probar a trabajar con agujas más pequeñas la talla S, pero tienes que calcular la tensión del tejido necesaria en ese caso. También puedes hacer una regla de tres para calcular los puntos necesarios para tus medidas. Puedes obtener más información en la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23

15.01.2023 - 11:26

country flag Dede wrote:

Regarding the "elevation" -- do you know the name of this short row method? I need to study some tutorials. Thank you!

14.07.2021 - 14:53

DROPS Design answered:

Dear Dede, it is a simple short ro method, the pattern does not even ask you to wrap and turn, only to thighten the yarn when you turn (which does not mean you cannot use wrap and turn if that makes you more comfortable.) Happy Knitting!

14.07.2021 - 15:10

country flag Marcia Brown wrote:

Hi I'm struggling with the instructions on the final section of the yoke "work elevation at the back". What happens to the rest of the stitches on the circular needles whilst the elevation is being worked? Advice would be much appreciated. Thanks

18.06.2021 - 08:54

DROPS Design answered:

Dear marcia, when you do the elevation on the back of the sweater, you only working on part of the stitches, back and forth, the rest of the stitches are left on the needle until you finish these short rows, and then countinue with all the stitches again. Happy Stitching!

18.06.2021 - 12:45

country flag Magda Elhamamy wrote:

Are ther short row in the end

27.03.2021 - 22:48

DROPS Design answered:

Dear Magda, the very last part of the description for youke tells you how to knit a few short rows, to raise the neckline on the back. Happy Knitting!

28.03.2021 - 12:01

country flag Karin Bjelkenäs wrote:

Enligt beskrivningen ska man i storlek M sticka A1-A2 en gång på höjden, vilket innebär att det blir 4 triangulära toppar och 6 vridningar på flötan i A2. Om man tittar på fotona så är det 6 st triangulära toppar och 7 vridningar på flätan. Om man följer mönstret och enbart gör A1 och A2 enligt diagrammet blir väl tröjan jättestor i halsringningen. Bilderna stämmer inte med någon storlek!! Ska man improvisera när man närmar sig halsringningen??

23.03.2021 - 19:10

DROPS Design answered:

Hej Karin, ifølge opskriften har du 96 masker tilbage til hals så halsen bliver ca 57 cm i omkreds :)

24.03.2021 - 16:01

country flag Karin Bjelkenäs wrote:

Min fråga gäller texten under OK. Vad menar ni med att man ska sticka en "förhöjning" bak i nacken? Är det för att tröjan inte ska bli lika djupt ringad bak som fram??

08.03.2021 - 19:11

DROPS Design answered:

Hej Karin, ja det stemmer :)

09.03.2021 - 12:06

country flag Kristyann wrote:

In the pattern it says to Slip sleeves on to same circular needle size 5 mm. The video tutorial shows to knit the sleeves on. Which should I do?

23.12.2020 - 02:34

DROPS Design answered:

Dear Kristyann, this video is showing (time code 00:32) how the stitches of the sleeve will be added (you can work them as in the video or slip them first on the same needle, then work next row, your choice) over the cast off sts for armhole. Happy knitting!

23.12.2020 - 07:17