DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

June Gloom

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri. Prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-15
DROPS Design: Mynstur nr z-689
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
400-450-500-550 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
175-175-200-225 gr litur nr 06, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk = 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR-1:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 7-8: Prjónið slétt.

MYNSTUR-2:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 5-8: Prjónið slétt.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan (= 10 l) er prjónaður þannig:
UMFERÐ (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, í hinni hliðinni á stykki er prjónuð spegilmynd, þ.e.a.s: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar saman.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 7-8: Prjónið slétt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hlið.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 115-127-139-143 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 10 l KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 6 l) alls 1-2-2-2 sinnum, A.2 (= 28 l), A.3 alls 1-1-2-1 sinnum, A.1 (= 15 l) alls 1-1-1-2 sinnum, A.3 alls 1-1-2-1 sinnum, A.2, A.3 alls 1-2-2-2 sinnum, 10 kantlykkjur að framan JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-0-1 l = 115-127-139-142 l á prjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Endurtakið A.z til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 50-57-64-64 cm fellið af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 53-56-62-64 l, fellið af næstu 28-30-32-34 l, prjónið eins og áður yfir síðust 34-41-45-44 l. Í næstu umf eru fitjaðar upp 28-30-32-34 l yfir þær l sem felldar voru af og mynstur heldur áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 35-42-49-51 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir handveg, fellið af frá réttu fyrir öðrum handveg alveg eins. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 47-54-61-61 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir handveg er prjónað MYNSTUR-2 – sjá skýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1 l í fyrstu umf = 115-127-139-143 l. Fellið laust af.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 33-35-37-39 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið mynstur-1 og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar mynstur-1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm 13-13-14-15 sinnum til viðbótar = 61-63-67-71 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-54-57-58 cm. Fellið af kantlykkjur í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf = 59-61-65-69 l. Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum = 19-21-25-29 l. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57-59-62-63 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið saum undir ermum innan við kantlykkju.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = 3 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Monaco Marianna wrote:

Salve, non capisco perchè nel Motivo 1 manca il 3° ferro e nel 2 il 6°. Potete aiutarmi? Mi sfugge qualcosa.

07.12.2021 - 17:32

DROPS Design answered:

Buonasera Marianna, nel motivo 1 i ferri 2, 3 e 4 sono lavorati a diritto, e nel motivo 2 i ferri 5, 6, 7 e 8 sono lavorati a diritto. Buon lavoro!

07.12.2021 - 21:44

country flag Lorie wrote:

I would like to make this but I'd like to make the back length as long as the front, long enough to cover my butt. Can the pattern be easily modified to do this?

05.01.2018 - 21:18

DROPS Design answered:

Dear Lorie, having the front longer is the basic characteristic of this type (square) cardigans, so you can't really have the back side as long as the frint, without significantly changing the look. However, if you really want to cover your backside, you can make the entire piece wider, and having a kind of wrap with sleeves instead of a sweater. Or you can start with less stitches at the front and increase, then after knitting the bac decrease to the same number of stitches, but then again it will have a significantly different look, more like a wrap cardigan left open. I hope this helped. Happy Knitting!

06.01.2018 - 13:19

country flag Liliana wrote:

Buona sera sto facendo questo modello ma ho un dubbio devo fare ancora 4 ferri per terminare la prima ripetizione di AZ a2 devo ricominciare con AZ a1 o di questa sezione faccio 4 ferri a diritto per trovarmi pari con lo schema?Con la parte AZ a3 non ho problemi dato che A2 é un multiplo di a3 mentre non lo è di a1. Grazie della risposta spero di essermi spiegata .

27.11.2016 - 21:33

DROPS Design answered:

Buonasera Liliana, deve riprendere a lavorare A.z (A.1). Buon lavoro!

27.11.2016 - 22:49

country flag Luciana wrote:

Ho trovato il problema! Era un'errore mio: scusate!

29.10.2016 - 11:07

country flag Luciana wrote:

Buongiorno! Sto provando ad eseguire questo modello nella taglia XXL ed ho avviato le maglie come indicato (139) ma al primo giro, quando bisogna impostare la sequenza dei motivi, il conto delle maglie non torna! Risultano 133 anziché le 139 avviate. Per essere sicura di non sbagliare ho anche trascritto lo schema sulla carta millimetrata ma niente, le maglie non coincidono! Cosa manca? Grazie!

29.10.2016 - 11:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Luciana. Le confermiamo che il numero delle m e la distribuzione dei diagrammi sono corretti. Buon lavoro!

29.10.2016 - 13:04

country flag Atty wrote:

Voorkant vind ik erg mooi, achterkant jammer genoeg niet. Ik weet dus niet of ik hem ga maken.

25.04.2016 - 09:55

country flag LN wrote:

Bonsoir j'ai commandé la laine pour faire ce modèle mais je ne comprends pas comment commencer! Sur la photo, on voit les 1ers rangs ajourés, merci de me donner la solution

12.02.2016 - 21:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme LN, quand vous avez monté le nbe de mailles indiqué pour votre taille, tricotez en point fantaisie-1 (= 8 rangs donc 1 rang de jours), puis continuez dans les différents points fantaisie en suivant les diagrammes avec 10 m de bordure de chaque côté tricotées comme pour le point fantaisie 1. Bon tricot!

15.02.2016 - 10:00

country flag Lorella Sorrenti wrote:

Ti ringrazio tanto per la risposta, sei veramente gentile. secondo te è possibile i ferri normali per questo modello.? i ferri circolari li ho comprati ma sono ancora un po' impacciata! grazie ancora

16.10.2015 - 21:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Lorella. Vengono suggeriti i ferri circolari per avere maggiore spazio per le maglie; sui ferri dritti potrebbero risultare un po' più fitte. Il capo è lavorato avanti e indietro sui ferri, quindi può usare i ferri dritti e seguire le spiegazioni così come riportate. Buon lavoro!

17.10.2015 - 08:25

country flag Lorella Sorrenti wrote:

In questo modello quando si dice "lavorare tutte le maglie a diritto, non lavorare i gettati a ritorto, devono fare i buchi" vuol dire che il gettato lo lasciò cadere o che lo passo senza lavorarlo?

15.10.2015 - 21:04

DROPS Design answered:

Buonasera Lorella, si intende che deve lavorare i gettati a diritto come le altre maglie, non a diritto ritorto. Buon lavoro!

15.10.2015 - 21:24

country flag Andrea Schöttler wrote:

Hallo! Würde die Jacke auch in der Kombination Alpaka und Lace so schön wirken? Ich möchte sie gerne in Alpaka 2918 stricken und finde in dem Farbton bei Kid Silk keine Entsprechung.

09.10.2015 - 11:21

DROPS Design answered:

Mit Kid-Silk wird die Jacke flauschiger, weil es ja ein Flauschgarn mit losen Fasern ist, Lace ist glatt, aber grundsätzlich können Sie auch Lace verwenden. Als Farbton könnte ich mir bei Kid-Silk petrol vorstellen, zu Alpaca 2918. Aber das ist natürlich Geschmackssache, es hebt den Farbton dann etwas ins Dunklere und die Jacke bekommt einen etwas "melierteren" Charakter.

13.10.2015 - 12:55