DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 160-25
DROPS Design: Mynstur nr e-225
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
200-250-250-300 gr litur nr 17, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) nr 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er prjónaður ferhyrningur, síðan er prjónað út og hvor ermin er prjónuð fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna þegar aukið hefur verið út nægilega margar l. Fitjið upp 12 l með Safran og skiptið l niður á 4 sokkaprjóna nr 3,5 (= 3 l á hverjum prjóni). Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki á milli 3. og 4. l, 2. prjónamerki á milli 6. og 7. l, 3. prjónamerki á milli 9. og 10. l og 4. prjónamerki á milli 12. og 1. prjónamerki. Prjónið síðan A.1 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 4 sinnum). Prjónamerki merkja hornin, látið prjónamerkin fylgja með í stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (sjá ör fyrir rétta stærð) prjónið hvora hlið áfram hvora fyrri sig = 63-67-71-75 l meðfram hverri hlið og alls 252-268-284-300 l á prjóni. Prjónið síðan einungis yfir fyrstu 63-67-71-75 l (= ein hlið, l á milli 4. og 1. prjónamerki), setjið aðrar hliðar sitt hvorn þráðinn, síðar á að prjóna yfir l á milli 2. og 3. prjónamerkis.
Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, 0-2-4-6 l sl, A.2 (= 61 l), 0-2-4-6 l sl, prjónið 2 l í síðustu l á prjóni = 65-69-73-77 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1-3-5-7 l sléttprjón, A.2, 1-3-5-7 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni til loka.

STÆRÐ L/XL-XXL-XXXL:
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorir hlið á stykki innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 2-4-8 sinnum til viðbótar = 75-83-95 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ALLAR STÆRÐIR:
= 65-75-83-95 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 27-32-36-42 l sléttprjón, A.3 (= 9 l), 27-32-36-42 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðin. Prjónið 0-6-0-4 umf sléttprjón. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 3-1-1-3 l jafnt yfir = 62-74-82-92 l. Prjónið br til baka frá röngu. Prjónið A.4 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 12-12-10-10 l) 5-6-8-9 sinnum á breiddina. Prjónið A.4 alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.5 (= 6 l) 10-12-13-15 sinnum, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 0-0-2-0 l jafnt yfir = 62-74-80-92 l. Fellið af þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.

Prjónið lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerki á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hlið innan við 1 kantlykkju, 27 cm upp frá stað neðst niðri á ermi og upp. Gerið alveg eins í hinni hliðinni.

KANTUR:
Kanturinn er prjónaður í hring á hringprjóna.
Byrjið við annan sauminn við ermi og prjónið með hringprjóni nr 3,5 með Safran frá réttu þannig: Prjónið upp 20-25-28-30 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sl yfir 63-67-71-75 l af þræði, prjónið upp 40-50-56-60 l innan við 1 kantlykkju, prjónið sl yfir 63-67-71-75 l af þræði, prjónið upp 20-25-28-30 l = 206-234-254-270 l. Prjónið 1 umf br JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 40-47-52-56 l br, setjið 1. prjónamerki, prjónið 23 l br, setjið 2. prjónamerki, prjónið 80-94-104-112 l br, setjið 3. prjónamerki, prjónið 23 l br, setjið 4. prjónamerki, prjónið út umf (= 40-47-52-56 l br). Þegar auknar eru út l er ekki aukið út á milli 1. og 2. prjónamerkis (merki við hnakka) og á milli 3. og 4. prjónamerkis (merkir miðju að aftan). Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 14-15-18-22 l jafnt yfir = 220-249-272-292 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan A.6 (= 6 l) JAFNFRAMT er aukið út í fyrstu umf 14-15-16-20 l jafnt yfir = 234-264-288-312 l. A.6 er nú prjónað 39-44-48-52 sinnum á breidd. Endurtakið A.6 1 sinni til viðbótar á hæðina JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 24-30-36-36 l jafnt yfir = 258-294-324-348 l. A.6 prjónið nú 43-49-54-58 sinnum hringinn. Þegar A.6 hefur verið prjónað er fellt laust af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Irene Dickinson wrote:

Is it possible to print the pattern for ease of use?

13.03.2024 - 12:25

DROPS Design answered:

Sure Mrs Dickinson, just click on the icon "printer" to open the dialog window of your printer and launch printing. Happy knitting!

13.03.2024 - 13:23

country flag Pirkko wrote:

I just finished the back square and I am in the part that you go to knitting 1 garter sts,k5,A2,k5,1garter.The instructions then say until finished measurement. How long is that finished measurement?

26.01.2024 - 19:29

country flag Jeeva wrote:

Hi, thank you so much for the pattern, as a beginner, this pattern is my first attempt at an apparel. And i got to learn many new techniques and tips. But i only had 1 problem and that was the size. I did a xxl but it looks smaller than the mentioned dimensions, not sure why. Though i made sure the stitches and tension were correctly managed. Any suggestions for improvement?

04.12.2023 - 15:51

country flag Lorraine Stephens wrote:

Drops 160-25 pattern to finish edge it says to pick up 20 stitches, then knit 63 stitches from holder, then pick up 40 stitches and knit next 63 stitches from holder and finally pick up 20 more stitches. I am so confused. Where do you pick up the 20,40 and 20 stitches from?

13.06.2023 - 04:30

DROPS Design answered:

See answer below :)

13.06.2023 - 08:40

country flag Lorraine New Stephens wrote:

On the drops 160-25 pattern for the edge instructions it says to pick up 20 stitches then knit the 63 stitches then pick up 40 stitches and knit next 63 stitches then pick up another 20 stitches. Where do you pick up the 20, then 40 then another 20 from?

13.06.2023 - 04:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs New Stephens, start picking up stitches straight after the seam on the sleeve (you left 9 cm left on sleeve seam - see chart), pick up 20 sts along these 9 cm, then work the 63 sts, pick up 40 sts along the 9 cm x 2 sides on top of next sleeve, pick up 63 sts along the other side of square and finish picking up 20 sts along the 9 cm on top of sleeve. Happy knitting!

13.06.2023 - 08:39

country flag Fanni wrote:

Hi, I think you have an error on the A1 diagrom for size xxl-xxxl. In the last 4 row on the left side a yarn over and a decrease is missing. Otherwise, it's a nice pattern, thank you.

24.04.2023 - 18:03

country flag Vania Monaco wrote:

Thank you for this great design and for your website full of tips. Unfortunately it appears that the schemes A3 to A6 have disappeared from this page. Could you please have a look? Thanks!

06.10.2022 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Monaco, you should find diagrams A.3 to A.6 just above the measurement chart (below A.1 in size S/M -LXL). Happy knitting!

06.10.2022 - 09:06

country flag Isabelle REYT wrote:

Merci pour le retour mais cela ne répond pas à ma question. Sur le premier tour de AU, il ne faut pas augmenter entre les marqueurs. Est que quand on tricote A6, une deuxième fois est qu'il ne faut pas augmenter entre les marqueurs également ? Ce n'est pas précisé. Merci

07.09.2022 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Reyt, effectivement, quand vous augmentez dans A.6 vous ne devez pas augmenter entre le 1er et le 2ème marqueur ni entre le 3ème et le 4ème marqueur - les augmentations doivent donc être réparties entre le 2ème et le 3ème marqueur et entre le 4ème et le 1er marqueur. Bon tricot!

07.09.2022 - 09:55

country flag Isabelle wrote:

Bonjour\r\nConcernant les dernières augmentations sur A6. Dois je aussi ne pas augmenter sur les mailles milieu dos du haut et bas ? Merci

06.09.2022 - 09:02

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, les augmentations de la bordure dans A.6 se font à intervalles réguliers réparties sur tout le tour, pas uniquement à quelques endroits du tour. Découvrez ici comment répartir des augmentations régulièrement. Bon tricot!

06.09.2022 - 09:32

country flag Amal wrote:

Hi this a follow up to my previous question about the A 6 chart. Unless I misunderstood the directions for the edge border I am knitting in the round so it’s impossible to get the garter stitch ridge by knitting all the rows. Please recheck the edge directions and clarify if you can. I purled the rows 10 and 12 to get the ridge effect. Thank you

30.05.2022 - 17:38

DROPS Design answered:

Dear Amal, to work garter stitch in the round you will have to work 2 rounds (knit 1 round, purl 1 round), see video; that's what you have to work in A.6, ie knit (including lace pattern) rows 1 to 9, then Purl 1 round, K1 round and P 1 round = there are now 2 ridges in garter stitch. Can this help? Happy knitting!

31.05.2022 - 08:31