DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS SS24

Diamonds And Pearls

Prjónaður bolero úr DROPS BabyAlpaca Silk, DROPS Kid-Silk og DROPS Glitter með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-12
DROPS Design: Mynstur nr bs-070
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 8465, milligrár
og notið:
DROPS KID- SILK frá Garnstudio
75-75-100-100-100-125 gr litur nr 10, grár
og notið:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
2 rúllur í allar stærðir litur nr 02, silfur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm og 40 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hverri tegund verði 10 x 10 cm.
HEKLUNÁL NR 5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í ölum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Þegar lykkjum er fækkað fyrir laskalínu er l fækkað í mynstri A.1. ATH: Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.

ÚRAUKNING-1 (á við miðju að framan):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á hliðum + ermum):
Öll útaukning er ger frá réttu.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið / slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA-1 (á við um laskalínu):
Fækkið um 1 l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.2, 3 l slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 1 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2).
Fækkið um 2 l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan A.2, prjónið 4 l slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 2 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2).
Fækkið um 2 l á eftir A.2 þannig: Prjónið 4 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 2 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2).

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 2 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum að framan þannig: 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 7, 13 og 19 cm.
STÆRÐ M: 8, 14 og 20 cm.
STÆRÐ L: 7, 14 og 21 cm.
STÆRÐ XL: 8, 15 og 22 cm.
STÆRÐ XXL: 7, 15 og 23 cm.
STÆRÐ XXXL: 8, 16 og 24 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 105-117-129-149-169-189 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf br frá röngu með 2 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið nú frá réttu þannig: 2 l garðaprjón (= kantlykkja að framan), 21-24-27-32-37-42 l sléttprjón (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki, 1-4-7-12-17-22 l sléttprjón, A.1 (= 57 l), 1-4-7-12-17-22 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 21-24-27-32-37-42 l sléttprjón, endið á 2 l garðaprjón (= kantlykkja að framan). Kantlykkja að framan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Prjónið 2 umf í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! AUKIÐ ER ÚT VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN OG Í HLIÐUM SAMTÍMIS ÞANNIG:

AUKIÐ ÚT VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Aukið út 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 2 kantlykkjur að framan – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
AUKIÐ ÚT Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar útaukningu er lokið eru 141-153-165-185-205-225 l.

Haldið áfram í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1 þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm. Fellið síðan af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir ermi = 129-141-153-173-193-213 l (= 33-36-39-44-49-54 l á hvoru framstykki og 63-69-75-85-95-105 l á bakstykki). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki í kantlykkjur við miðju að framan. Síðar á að prjóna kant í garðaprjóni á milli prjónamerkja. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Munið eftir ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 4-4-3½-3-2½-2½ cm millibili 6-6-7-8-9-9 sinnum til viðbótar. Skiptið yfir á hringprjóna þegar nægilega margar l eru á prjóni. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf alls 13 sinnum = 72-74-78-82-86-88 l. Prjónið þar til stykkið mælist 45-45-44½-44½-44-44 cm. Fellið síðan af með 6 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg = 66-68-72-76-80-82 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 261-277-297-325-353-377 l.
Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), 31-34-37-42-47-52 l sléttprjón (= vinstra framstykki), A.2 (= 2 l), 62-64-68-72-76-78 l sléttprjón, A.2 (= vinstri ermi), sléttprjón og A.1 eins og áður yfir bakstykki (= 63-69-75-85-95-105 l), A.2, 62-64-68-72-76-78 l sléttprjón, A.2 (= hægri ermi), 31-34-37-42-47-52 l sléttprjón, endið á 2 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan). Haldið áfram eins og áður í garðaprjóni, sléttprjóni, A.1 og A.2 JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA-1. Lykkjum er fækkað mismunandi á ermum/bakstykki og framstykki.

ERMI / BAKSTYKKI: Fækkið um 1 l í hverri umf frá réttu 21-22-23-24-26-27 sinnum = 24-24-26-28-28-28 l á hvorri ermi og 21-25-29-37-43-51 l á bakstykki.

FRAMSTYKKI: Fækkið um 1 l í hverri umf frá réttu 19-19-19-16-16-13 sinnum, síðan 2 l í hverri umf frá réttu 2-3-4-8-10-14 sinnum, þ.e.a.s. í síðustu úrtöku er felld af 1 kantlykkja að framan.
JAFNFRAMT í 6. umf í úrtöku fyrir laskalínu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við 2 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-2, endurtakið eftir 6. umf 1 sinni til viðbótar, fækkið síðan lykkjum í 4. hverri umf 7-7-7-8-9-10 sinnum, síðan í annarri hverri umf 0-1-2-1-1-0 sinnum.
Eftir alla úrtöku á framstykki er 1 kantlykkja eftir framan á framstykki. Í næstu 2 umf eru kantlykkjurnar felldar af og A.2 (= 2 l) í hvorri hlið á stykki.

Eftir alla úrtöku / affellingu eru 65-69-77-89-95-103 l á prjóni. Prjónið nú upphækkun í hnakka þannig:
Stærð S-M-L: Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-18 l jafnt yfir = 53-55-59 l. Prjónið 26-27-29 l (= miðja að aftan), snúið við. Prjónið 15-16-20 l, snúið við og prjónið 30-32-40 l, snúið við. Prjónið 24-26-32 l, snúið við og prjónið 18-20-24 l, snúið við. Prjónið 14-15-17 l, snúið við og prjónið 10 l. Klippið frá og setjið l á þráð.
Stærð XL-XXL-XXXL: Haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu þar til l eru settar á þráð (fækkið um 1 l hvoru megin við A.2 ef það er mögulegt). JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun þannig: * Prjónið yfir fyrstu 6 l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Gerið alveg það saman í gagnstæðri hlið á stykki *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Klippið frá og setjið þær l sem eftir eru á þráð.

Prjónið síðan upp ca 60-90 l (meðtaldar l af þræði) á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 60-62-70-74-82-82 l. Fellið af.

KANTUR:
Kanturinn er heklaður í kringum framstykki, hálsmál og neðri kant á bakstykki og á ermum með heklunál nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk.
Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 l/umf, 1 fl yst í lykkjubogann á næst síðustu l/umf *, endurtakið frá *-* í kringum allt opið. Endið á 1 kl í fyrstu fl. Gerið alveg það sama á neðri kanti á ermi. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.08.2014
Nýr texti og fjöldi undir FRAMSTYKKI og stærð XL-XXL-XXXL: Haldið áfram með laskaúrtöku þar til l eru settar á band (fellið af 1 l hvoru megin við A.2 ef það er mögulegt). JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun þannig: * Prjónið yfir fyrstu 6 l, setjið þær síðan á band, prjónið út umf. Gerið alveg það saman á gagnstæðri hlið á stykki *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Klippið frá og setjið þær l sem eftir eru á band. Prjónið síðan upp ca 60-90 l (meðtaldar l af bandi) á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 60-62-70-74-82-82 l. Fellið af.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2014
Eftir alla úrtöku eru 65-69-77-89-95-103 l á prjóni. Nú er prjónuð upphækkun við hnakka þannig: Stærð S-M-L: Stykkið er nú prjónað áfram með sléttprjóni

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = 2 l br saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l br saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (107)

country flag Scottelubs wrote:

로드스탁과의 레버리지 방식의 스탁: 투자법의 신규 영역 로드스탁에서 제공되는 레버리지 스탁은 주식 투자법의 한 방법으로, 높은 수익률을 목ᔼ

28.04.2024 - 10:20

country flag Scottelubs wrote:

En Son Dönemin En Beğenilen Bahis Platformu: Casibom Casino oyunlarını sevenlerin artık duymuş olduğu Casibom, nihai dönemde adından sıkça söz ettiren bir iddia ve kumarhane platformu haline geldi. Türkiye'nin en iyi bahis web sitelerinden biri olarak tanınan Casibom'un haftalık göre değişen giriş adresi, sektörde oldukça yenilikçi olmasına rağmen itimat edilir ve k

25.04.2024 - 11:44

country flag Scottelubs wrote:

網上賭場

24.04.2024 - 13:29

country flag Waltercem wrote:

App cá độ:Hướng dẫn tải app cá cược uy tín RG777 đúng cách Bạn có biết? Tải app cá độ đúng cách sẽ giúp tiết kiệm thời gian đăng nhập, tăng tính an toàn và bảo mật cho tài khoản của bạn! Vậy đâu là cách để tải m&

13.04.2024 - 12:42

country flag KevinGap wrote:

Elementor elementor

29.03.2024 - 18:57

country flag KevinGap wrote:

Hoki1881

28.03.2024 - 10:27

country flag Tetaud Christine wrote:

Je ne comprends pas le diagramme. Le motif A1 est tronqué par le bas et je ne trouve pas le diagramme A2

13.03.2024 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tetaud, attention lors de l'impression des explications à ce que le diagramme A.1 se trouve bien sur une seule page -ajustez les paramètres de votre imprimante si besoin. Le diagramme A.2 est un tout petit diagramme sur 2 mailles x 2 rangs, juste à droite, en haut de A.1, sous la légende. Bon tricot!

13.03.2024 - 13:25

country flag JamesItape wrote:

戰神賽特老虎機 2024全新上線❰戰神賽特老虎機❱ - ATG賽特玩法說明介紹 ❰戰神賽特老虎機❱是由ATG電子獨家開發的古埃及風格線上老虎&#

27.01.2024 - 04:05

country flag BernardGer wrote:

Dubai, a city known for its opulence and modernity, demands a mode of transportation that reflects its grandeur. For those seeking a cost-effective and reliable long-term solution, Somonion Rent Car LLC emerges as the premier choice for monthly car rentals in Dubai. With a diverse fleet ranging from compact cars to premium vehicles, the company promises an unmatched blend of affordability, flexibility, and personalized service. Favorable Rental Conditions: Understanding the po

22.01.2024 - 08:02

country flag BernardGer wrote:

Watches World Watches World: Elevating Luxury and Style with Exquisite Timepieces Introduction: Jewelry has always been a timeless expression of elegance, and nothing complements one's style better than a luxurious timepiece. At Watches World, we bring you an exclusive collection of coveted luxury watches that not only tell time but also serve as a testament to your refined taste. Explore our curated selection featuring iconic brands like Rol

22.01.2024 - 06:57