DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1020
DROPS Design: Mynstur nr x-032-bn
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/2 - 3/4 - 5/6 - 7/9 - 10/12 - ára
Höfuðmál: 49 - 51 - 52 - 53 - 54 cm

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
100-100-100-100-100 gr litur nr 58, sinnep
Og einnig afgangur af lit nr 02, natur fyrir dúsk

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

SPÍRALMYNSTUR:
Prjónið * 5-6-5-5-6 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* hringinn. Mynstrið nær yfir 7-8-7-7-8 l og lykkjufjöldinn í stykki er deilanlegur með 7-8-7-7-8 + 1. Þegar prjónað er í hring kemur mynstrið til með að færast sjálfkrafa til um 1 l til hægri í hverri umf og myndar spíralmynstur.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l á undan hverju prjónamerki. Prjónið þangað til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið næstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring í spíral.

HÚFA:
Fitjið upp 78-81-85-85-89 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum sinnep og prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka. Tengið nú stykkið saman og prjónið áfram í hring eftir SPÍRALMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú þar til stykkið mælist ca 11-13-13-14-16 cm. ATH! Teygið ekki á stykki þegar mælt er, húfan dregst aðeins saman á hæðina og á breiddina vegna mynsturs. Fækkið nú lykkjum jafnframt því sem spíralmynstur er prjónað þannig:
* Prjónið 1 l sl, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 2-3-2-2-3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 67-71-73-73-78 l.
Prjónið 2 umf spíralmynstur með 4-5-4-4-5 l sl, 2 l br.
* Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, 1-2-1-1-2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56-61-61-61-67 l.
Prjónið 2 umf spíralmynstur með 3-4-3-3-4 l sl og 2 l br.
* Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, 0-1-0-0-1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 45-51-49-49-56 l.
Prjónið 1 umf spíralmynstur með 2-3-2-2-3 l sl og 2 l br.
Í næstu umf eru allar umf prjóaðar slétt – JAFNFRAMT eru sett 5 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun umf, setjið síðan næstu 4 prjónamerki með 9-10-10-10-11 l millibili á milli prjónamerkja. Nú eru 9-11-9-9-12 l á milli fyrsta og síðasta prjónamerki. Prjónið nú sl JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á undan hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 3-4-4-4-4 sinnum = 30-31-29-29-36 l. Fækkið nú lykkjum í hverri umf 3-3-3-3-4 sinnum = 15-16-14-14-16 l. Í næstu umf er prjónað 1-0-0-0-0 l sl, síðan 2 og 2 l slétt saman umf hringinn = 8-8-7-7-8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel. Saumið saman garðaprjón í hlið neðst niðri á húfu, saumið yst í lykkjubogann.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 10 cm að þvermáli með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum sinnep sem vafið er saman. Saumið dúskinn á toppinn á húfunni.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1020

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Janice M Underwood wrote:

When you day displace a stitch do you mean you are actually moving the rib pattern over one stitch?

03.04.2024 - 14:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Underwood, by repeating the pattern in the round, the purl stitch will automatically move - in this video we show how to work such a spiral pattern with K4, P2, even if the number of K stitches is different, it can help you to understand how it works, but remember to follow the correct number of stitches stated for the size in the pattern. Happy knitting!

03.04.2024 - 15:58

country flag Janice M Underwood wrote:

I am working this pattern, and find errors. The rib is 5x2 but you say cast on 78. that is not divisible by 7. you do not indicate wrong side or right so I am working I believe on the wrong side. Also, what does "displace" a stitch mean, and where does this happen, in the decrease section? The order of steps is very confusing.

02.04.2024 - 22:51

DROPS Design answered:

Hi Janice, The rib is divisible by 7 + 1, as the spiral pattern consists of 7 stitches and the 1 stitch at the end is the stitch used when displacing. You are working in the round, so always from the right side. The displacement occurs when you begin the new round with the extra stitch at the end of the previous round. This is also the case when working decreases. Happy knitting!

03.04.2024 - 06:36

country flag Lori wrote:

Hi. Thank you for your reply on July 10, 23. I should have been clearer in my question. I was not suggesting a rib. Why do the instructions begin knitting flat & then require joining the edging when the hat is complete. Would the same affect be achieved with a Cast on & Knit 1 row, Purl 1 row until the desired rows prior to the start of the pattern? Thank you again for your time.

10.07.2023 - 17:28

DROPS Design answered:

Dear Lori, as explained in the previous response, working in the round in garter stitch will result in a slight misalignment at the end of the round. For that reason, we work it back and forth and then join the piece together and continue in the round. Happy knitting!

10.07.2023 - 17:40

country flag Lori wrote:

This pattern advises to Cast on and work 4 ridges in Garter Stitch (back & forth). Then place piece together and work in the round. Why do you instruct starting the hat using this method rather than Knit and Purl in the round after the desired number of stitches are Cast on? Thank you.

10.07.2023 - 02:01

DROPS Design answered:

Hi Lori, This pattern has a garter stitch bottom edge rather than rib. Garter stitch will have a slight 'jump' at the back if it is worked in the round (knit 1 round, purl 1 round), which is why it is worked back and forth before finishing the hat in the round. You can work a ribbed edge in the round if you wish, but this will not be quite so close-fitting as the garter stitch. Happy knitting!

10.07.2023 - 07:29

country flag Helene wrote:

How can I download this pattern?

01.01.2022 - 16:19

DROPS Design answered:

Dear Helene, Click on the Print icon, select Pattern, then save as PDF. Happy Knitting!

03.01.2022 - 01:58

country flag Batya wrote:

How do I convert Swirl N Twirl spiral pattern for baby\'s hat into straight needles?\r\nPattern no x-032-bn\r\n\r\nThank you

25.09.2021 - 16:29

DROPS Design answered:

Dear Batya, please understand, that we cannot modify our patterns for each individual request. In ur pattern library there are a large number of hats that are knitted on straight needles, pllease choose from those. Happy Stitching!

27.09.2021 - 03:12

country flag Viviane TERMOLLE wrote:

Bonjour je suis une fan de vos modèles mais le soucis c'est que je n'aime pas tricoter en aiguilles circulaires. Ce bonnet me plaît beaucoup, est-il possible de le réaliser en aiguilles normales. Que faire pour réaliser les modèles en aiguilles normales, un conseil. Un grand merci pour votre réponse à bientôt de vous lire

07.12.2020 - 17:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Termolle, vous trouverez ici comment adapter un modèle pour des aiguilles droites - dans un cas comme celui-ci, vous devez également adapter le point spirale pour que sur l'envers il se décale dans le bon sens. Bon tricot!

08.12.2020 - 08:25

country flag Fabienne FOURDIN wrote:

Bonjour, pourriez-vous me donner une idée de la hauteur totale du bonnet, en taille 3-4 ans, sans le pompon ? En vous remerciant, Bonne journée Fabienne FOURDIN

09.10.2020 - 10:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fourdin, le bonnet mesure environ 22 cm de hauteur totale en taille 3-4 ans sur la base de 23 rangs = 10 cm (soit 13 cm de hauteur + les 21 derniers rangs décrits). Bon tricot!

09.10.2020 - 10:58

country flag Ana wrote:

Hola buenas tardes, desearía saber si el modelo en espiral se puede realizar con dos agujas rectas, y si es así ¿podrían explicarlo? Muchas gracias

17.12.2019 - 19:03

DROPS Design answered:

Hola Ana, no es posible. Cada uno de nuestros patrones tiene videos tutoriales específicos para ayudarte. Buen trabajo!

30.12.2019 - 10:02

country flag Alessia Laudo wrote:

Scusate, correggo io uso il metodo con due ferri (vostro video avviare con un solo filo), non il Continental.

06.11.2019 - 18:30