DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-10
DROPS Design: Mynstur nr mb-010
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL /XXXL
Yfirvídd: 88/96 – 104/114 – 126/138 cm

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
550-650-800 gr litur nr 09, fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 8 umf með st verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.
Hver umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, frá baki.

HRINGUR:
Heklið 4 ll með Big Merino á heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið nú í hring utan um hringinn.
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 ll + 11 st í hringinn = 12 st.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 5: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 st.
UMFERÐ 6: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 st.
UMFERÐ 7: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 84 st. Endið hér í stærð S/M.
UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hvern st.
UMFERÐ 9: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 6 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 st. Endið hér í stærð L/XL.
UMFERÐ 10: Heklið 1 st í hvern st.
UMFERÐ 11: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 7 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st. Hringurinn mælist nú ca 18-23-28 cm að þvermáli.

ALLAR STÆRÐIR (= 84-96-108 st):
UMFERÐ 12: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 42-48-54 ll-bogar.
UMFERÐ 13: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngildir 1 st), * 2 st + 2 ll + 2 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 2 st + 2 ll + 2 st um síðasta ll-bogann og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 21-24-27 st-hópar með 1 st á milli hverra.
UMFERÐ 14: Heklið 1 st í hvern st og 1 st-hóp eins og fyrri umf um ll-bogann í hverjum st-hóp.
UMFERÐ 15: Heklið 3 ll (= 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í st-hópinn, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í síðasta st-hópinn og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 16: Heklið 1 st í hvern st og 1 st-hóp eins og fyrri umf um ll-bogann í hverjum st-hóp.
UMFERÐ 17: Heklið 3 ll (= 1 st), * 4 st + 2 ll + 4 st um ll-bogann mitt í st-hópinn, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 st + 2 ll + 4 st um ll-bogann mitt í síðasta st-hóp og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 18: Heklið 1 st í hvern st og 1 st-hóp eins og fyrri umf um ll-bogann í hverjum st-hóp.
UMFERÐ 19: Heklið 4 ll (= 1 tbst), * 4 tbst + 2 ll + 4 tbst um ll-bogann mitt í st-hópinn, 1 tbst í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 tbst + 2 ll + 4 tbst um ll-bogann mitt í síðasta st-hópinn og 1 kl í 4. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 20: Heklið 1 tbst í hvern tbst og 1 st-hóp eins og fyrri umf um ll-bogann í hverjum st-hóp.
UMFERÐ 21: Heklið 8 ll, * heklið 1 fl um 2 ll mitt í næstu sólfjöður, 5 ll, 1 st í næsta tbst, 5 ll *, endurtakið frá *-* endið á 1 fl um 2 ll mitt í næstu sólfjöður, 5 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 42-48-54 ll-bogar.
UMFERÐ 22: Heklið 6 st um hvern ll-boga = 252-288-324 st.
UMFERÐ 23: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 30-36-42 st (= 1. handvegur), heklið 30-36-42 ll, hoppið yfir næstu 30-36-42 st (= 2. handvegur), heklið 1 st í hvern af næstu 132-144-156 st, heklið 30-36-42 ll, hoppið yfir næstu 30-36-42 st, heklið 1 st í hvern af síðustu 30-36-42 st, (Byrjun á umf = miðja aftan við hnakka).
UMFERÐ 24: Heklið 1 st í hvern st og 30-36-42 st í hvern ll-boga, JAFNFRAMT er aukið út um 28-20-12 st jafnt yfir í umf = 280-308-336 st. Stykkið mælist ca 56-61-66 cm að þvermáli.
UMFERÐ 25: Heklið 1 kl í fyrsta st, * 5 ll, hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl = 70-77-84 ll-bogar.
UMFERÐ 26: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 1 fl * heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl.
UMFERÐ 27: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 1 fl ** heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga, * heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 6 sinnum **, endurtakið frá **-** og endið á 1 kl í fyrstu fl = 80-88-96 bogar.
UMFERÐ 28: Heklið eins og umf 26.
UMFERÐ 29: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, 1 fl ** heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga, * heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 7 sinnum **, endurtakið frá **-** og endið á 1 kl í fyrstu fl = 90-99-108 bogar.
UMFERÐ 30: Heklið eins og umf 26.

Stykkið mælist nú ca 75-80-85 cm að þvermáli, klippið frá.
Heklið nú einungis yfir 26-28-30 ll-boga á hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 19-21-24 ll-boga efst í hnakka og 19-22-24 ll-boga neðst á baki. Haldið áfram eftir útskýringu að neðan á vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 26-28-30 ll-bogar. Haldið áfram þannig:
UMFERÐ 1: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 1 fl * heklið 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl um síðasta ll-bogann = 25-27-29 ll-bogar.
Endurtakið umf 1 alls 12-14-16 sinnum (= ca 12-14-16 cm). Nú eru 14 ll-bogar eftir neðst á framstykki. Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, yfir 26-28-30 ll-bogar á hægri hlið. Klippið frá.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allan hringinn þannig: Í hvern boga er heklað 4 tbst + 2 ll + 4 tbst. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð ofan frá og niður.
Heklið 45-53-65 ll með Big Merino með heklunál nr 5. Snúið við og heklið 1 fl í 9. ll frá heklunálinni, * 5 ll, hoppið yfir 3 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* = 10-12-15 ll-bogar.
UMFERÐ 1: Heklið 5 ll, 1 fl um fyrsta ll-bogann, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 5 ll, 1 fl um síðasta ll-bogann = 11-13-16 ll-bogar.
Endurtakið umf 1 4 sinnum til viðbótar = 15-17-20 ll-bogar.
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 6: Heklið 5 ll, 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 5 ll, 1 fl um síðasta ll-bogann = 15-17-20 ll-bogar.
UMFERÐ 7: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 5 ll, 1 fl um síðasta ll-boga = 14-16-19 ll-bogar.
UMFERÐ 8-11: Heklið eins og umf 6.
UMFERÐ 12: Heklið eins og umf 7 = 13-15-18 ll-bogar.
Endurtakið umf 8-12 – þ.e.a.s. að fækkað er um 1 ll-boga á hlið í 5. hverri umf – fækkað er í annað hvort skipti í hægri og vinstri hlið á ermi. Endurtakið þessar 5 umf 4-5-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-9 úrtökur) =9-10-11 ll-bogar í umf. Haldið áfram að hekla eins og umf 1 þar til stykkið mælist 56 cm í öllum stærðum. Leggið ermi tvöfalda og heklið hana saman við miðju undir ermi – heklið frá réttu í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið * 1 fl, 3 ll, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* , endið á 1 fl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Ermin er hekluð að handveg þannig: Heklið frá réttu í gegnum bæði stykkin: Heklið * 1 fl, 3 ll, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Vicki L wrote:

On the sleeve, after multiple rows 8-12 (9, 10, 11 ch spaces), the imstructions says to "work row 1 until piece measures 22 inches". Row 1 would cause every row to increase making for a very large sleeve. I believe the instructions should say to continue to "work row 6 until piece measures 22 inches."

13.06.2022 - 06:35

country flag Vicki L wrote:

Since there has been a problem with wording on rounds 14, 16, 18, and 20 as indicated multiple times but the pattern hasnt been fixed, this is how they should read... DC in each single DC between the chain spaces. In each chain space, repeat chain space DC pattern from previous round. For round 20, substitute TR for DC.

06.06.2022 - 03:57

country flag Vicki L wrote:

For round 27, the beginning of the ** should start with the second ch 5, not the first ch 5. The current instuctions causes 7 sc between each double sc. For the count to be acurate, there should only be 6 sc between each double sc.

06.06.2022 - 03:44

country flag Olivia Nolan wrote:

Row 14 doesn't make sense and is very confusing in directions. had to ask a friend and neither of us could figure it out. I ended up just going on to my next clusters (3dbl 2 ch 3 dbl) and back posting the single DC on it's own in between. it seemed to work but I think the pattern needs redoing at bit

10.01.2021 - 04:02

country flag Isolina Marchi wrote:

Per la giacchina a ruota mod 010 drops 155/10 il diametro del cerchio prima del motivo è 23cm però le maglie sono 136 invece che 108 uncinetto 2,5 il motivo viene lo stesso con questo uncinetto? Grazie mille ho difficoltà le maglie sono troppe perché dovrebbero essere 108

06.06.2019 - 18:18

DROPS Design answered:

Buongiorno Isolina. Molto probabilmente la tensione del suo lavoro è diversa da quella indicata nel testo. L’uncinetto è più piccolo e quindi avrà bisogno di un numero maggiore di maglie per ottenere le stesse misure. Purtroppo in questa sede non ci è possibile fornire un’assistenza così personalizzata. Può però rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia che saprà indicarle come proseguire con il lavoro. Buon lavoro!

06.06.2019 - 21:25

country flag Elma Beck wrote:

Rund 27 ist unklar gekennzeichnet mit den **von** und *von*. Ist unverständlich, bitte prüfen und mich informieren.

17.05.2019 - 12:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Beck, so sollen Sie häkeln: ** 5 Lm, 1 fM in den nächsten Lm-Bogen, 5 Lm, 1 fM in den gleichen Lm-Bogen (= 2 Luftmaschenbogen), dann häkeln Sie 6 Mal insgesamt: * 5 Lm, 1 fM in den nächsten Lm-Bogen(=6 Luftmaschenbogen) * = Sie haben jetzt 8 Luftmaschenbogen gehäkelt, 1 Rapport ist fertig **, jetzt wiederholen Sie das ganze Rapport von ** bis ** = dh 8 weitere Luftmaschenbogen wie zuvor, und so bis zur Ende der Runde arbeiten. Viel Spaß beim häkeln!

20.05.2019 - 08:48

Dotty Hazell wrote:

Hi again. I'm on row 27 and I think there is an error. On my first attempt at this row it didn't work out right. My interpretation on the *-* section is that you do a total of 7 x work ch 5, sc 1 in next ch space. This didn't work so I'm about to try to repeat this section 5 times instead of 6 (total of 6) the math suggests this will work evenly.

09.07.2018 - 05:18

Dotty Hazell wrote:

Hi I worked it out. It's the way the pattern is written that confused me. The alternate rows 14, 16, 18, 20 are repeats of the row above. Eg row 14 is the same as row 13

09.07.2018 - 05:06

Dotty wrote:

Hi I\'m in Australia.\r\nI\'ve just started this pattern for my daughter but I\'m a bit confused with row 14. Do you have a graph version of the pattern which might make it easier for me to follow please?

05.07.2018 - 04:34

DROPS Design answered:

Dear Dotty, unfortunately we do not have a charted pattern for this design, only the written out instructions. What is exactly that confuses you? Also, please do not forget, that you can always get help in person in the store you bought your DROPS yarn fom. happy Crafting!

05.07.2018 - 07:09

country flag Alison wrote:

I don't understand the instructions to join the sleeve seams

28.04.2017 - 09:18

DROPS Design answered:

Dear Alison, this video shows how to crochet 2 pieces tog, work the same way, crocheting alternately 1 dc in sleeve and 1 dc in edge around armhole. Happy crocheting!

28.04.2017 - 13:42