DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 136-1
DROPS Design: Mynstur nr BS-011
Garnflokkur A + A eða C
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
Yfirvídd: 80/88 – 92/100 – 110/118 cm

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
150-200-200 gr litur nr 7402, ljós sægrænn
200-250-250 gr litur nr 7219, ljós grænn
150-200-200 gr litur nr 1760, ljós gráfjólublár
100-100-100 gr litur nr 3250, ljós bleikfjólublár
100-100-100 gr litur nr 4314, gráfjólublár

DROPS HEKLUNÁL nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 tbst á breiddina x 5½ umf með tbst á hæðina með tveimur þráðum verða 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn,
Heklið 3-3-4 umf með hverjum og einum af eftirfarandi litum:
1. rönd: 2 þræðir ljós sægrænn
2. rönd: 1 þráður ljós sægrænn og 1 þráður ljós grænn
3. rönd: 2 þræðir ljós grænn
4. rönd: 1 þráður ljós grænn og 1 þráður ljós gráfjólublár
5. rönd: 2 þræðir ljós gráfjólublár
6. rönd: 1 þráður gráfjólublár og 1 þráður ljós bleikfjólublár
7. rönd: 2 þræðir ljós bleikfjólublár
8. rönd: 1 þráður gráfjólublár og 1 þráður ljós bleikfjólublár
9. rönd til loka: 2 þræðir gráfjólublár

ERMI:
Ermin er hekluð í röndum. Ermakúpa er hekluð eins og 5.- 5.- 4. rönd, heklið nú 12 cm eins og rönd 4-4-3, 12 cm eins og rönd 3-3-2, 12 cm eins og rönd 2-2-1, og heklið stykkið til loka eins og rönd 1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta tbst í hverri umf er skipt út fyrir 4 ll.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum þannig: Heklið tbst þar til 3 tbst eru eftir, * í þann fyrsta af þessum er heklaður 1 st, í næsta 1 hst og í þann síðasta 1 fl, snúið með 1 ll, hoppið yfir fl, heklið 1 kl í hst og 1 kl í st, síðan 1 fl í fyrsta tbst, 1 hst í næsta tbst og 1 st í næsta tbst, heklið tbst þar til 3 tbst eru eftir í lok umf * , endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-12 umf.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið lykkjum í byrjun umf með því að hekla kl yfir þann tbst sem fella á af.
Fækkið lykkjum í lok umf með því að hekla þar til eftir er einn tbst, snúið stykkinu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan með 2 þráðum af BabyAlpaca Silk og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 8 ll með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 12 fl um hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngildir 1 st + 2 ll), * 1 st í næstu fl, 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st með 2 ll á milli hverra.
UMFERÐ 3: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið 1 tbst, 2 tbst í sama st, * 1 tbst um ll-boga, 3 tbst í næsta st *, endið með 1 tbst um síðasta ll-boga og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 48 tbst.
UMFERÐ 4: Heklið 1 tbst, * 2 tbst í næsta tbst, 1 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* og endið með 2 tbst í næsta tbst og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 72 tbst.
UMFERÐ 5: Heklið 1 tbst, * 2 tbst í næsta tbst, 1 tbst í hvorn af næstu 2 tbst *, endurtakið frá *-* og endið umf með 2 tbst í næsta tbst, 1 tbst í næsta tbst og 1 kl í 4. ll = 96 tbst.
UMFERÐ 6: Heklið 5 ll (= 1 st + 2 ll), * hoppið yfir 1 tbst, 1 st í næsta tbst, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 ll-bogar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 tbst í hvern st og í annað hvert skipti 1 og 2 tbst í hvern ll-boga umf hringinn = 120 tbst.
UMFERÐ 8: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 10. tbst eru heklaðir 2 tbst = 132 tbst.
UMFERÐ 9: Heklið 5 ll (= 1 st + 2 ll), * hoppið yfir 1 tbst, 1 st í næsta tbst, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 66 ll-bogar.
UMFERÐ 10: Heklið 1 tbst í hvern st og í annað hvert skipti 1 og 2 tbst í hvern ll-boga umf hringinn = 165 tbst.
UMFERÐ 11: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 15. tbst eru heklaðir 2 tbst = 176 tbst.
UMFERÐ 12: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 16. tbst eru heklaðir 2 tbst = 187 tbst.
Stykkið mælist nú ca 20 cm frá miðju og út.

STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 13: Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 45 tbst (= upp við háls), heklið 30 lausar ll, hoppið yfir næstu 27 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern og einn af næstu 88 tbst (= niðri við bak), heklið 30 lausar ll, hoppið yfir næstu 27 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 14: Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 2 tbst jafnt yfir þær fyrstu 45 fl (= 47 tbst), síðan eru heklaðir 30 tbst um loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 88 fl (= 91 tbst), heklið 30 tbst um loftlykkju umferðir yfir handveg, festið með 1 kl í 4. ll = 198 tbst.
UMFERÐ 15 til 19: Haldið áfram með tbst – jafnframt sem aukið er út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 19 eru 228 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 33 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 79 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 35 tbst efst við hnakka og 35 tbst neðst á baki. Klippið frá.
Haldið áfram frá framstykki að neðan.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 13: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 17. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 198 tbst.
UMFERÐ 14: Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 50 tbst (= upp við hálsmál), heklið 32 lausar ll, hoppið yfir næstu 29 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern af næstu 90 tbst (= niðri við bak), heklið 32 lausar ll, hoppið yfir næstu 29 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 15: Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 3 tbst jafnt yfir þær fyrstu 50 fl (= 53 tbst), síðan eru heklaðir 32 tbst um loftlykkju umferðir yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 90 fl (= 93 tbst), heklið 32 tbst um loftlykkju umferðir yfir handveg, festið með 1 kl í 4. ll = 210 tbst.
UMFERÐ 16 til 20: Haldið áfram með tbst – jafnframt er aukið út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 20 eru 240 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 35 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 81 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 39 tbst efst við hnakka og 39 tbst neðst að aftan. Klippið frá.
Haldið áfram frá framstykki að neðan.

STÆRÐ XXL/XXXL:
UMFERÐ 13: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 17. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 198 tbst.
UMFERÐ 14: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 18. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 209 tbst.
UMFERÐ 15: Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 54 tbst (= upp við hálsmál), heklið 36 lausar ll, hoppið yfir næstu 32 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern af næstu 91 tbst (= niðri við bak), heklið 36 lausar ll, hoppið yfir næstu 32 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 16: Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 2 tbst jafnt yfir þær fyrstu 54 fl (= 56 tbst), síðan eru heklaðir 36 tbst um loftlykkjuumferðir yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 91 fl (= 94 tbst), heklið 36 tbst um loftlykkjuumferðir yfir handveg = 222 tbst.
UMFERÐ 17 til 22: Haldið áfram með tbst – jafnframt er aukið út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 22 eru 258 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 37 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 89 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 40 tbst efst við hnakka og 40 tbst neðst á baki. Klippið frá.
Haldið áfram frá framstykki að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI – ALLAR STÆRÐIR:
= 79-81-89 tbst. Setjið prjónamerki eftir 23-24-27 l inn frá hvorri hlið (= 33-33-35 l milli prjónamerkja). Heklið nú tbst fram og til baka yfir þessar l jafnframt er aukið út um 1 l við hvort prjónamerki í hverri umf (þ.e.a.s. að aukið er út um 2 l í umf, aukið út í annað hvort skipti á undan og eftir hvoru prjónamerki) og fellið af 3 l í lokin og byrjun á hverri umf í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA-1 þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-12 umf fram og til baka = 55-49-41 tbst.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og vinstra framstykki yfir 79-81-89 tbst í hægri hlið.

ERMI:
Heklið fram og til baka, frá ermakúpu og niður, með 2 þráðum af BabyAlpaca Silk og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Heklið 28-34-38 ll með rönd 5-5-4. Snúið og heklið 1 tbst í 5. ll frá nálinni (= 2 tbst), síðan er heklaður 1 tbst í hverja ll = 25-31-35 tbst.
UMFERÐ 2:
Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern af næstu 23-29-33 tbst, 4 tbst í síðasta tbst = 31-37-41 tbst. Snúið.
UMFERÐ 3, 4 og 5:
Heklið 4 ll, 2 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern tbst þar til eftir er einn tbst, 3 tbst í síðasta tbst = 43-49-53 tbst. Snúið.
UMFERÐ 6:
Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern af næstu 41-47-51 tbst, 4 tbst í síðasta tbst = 49-55-59 tbst. Snúið. Héðan er skipt yfir í rönd 4-4-3.
Heklið nú tbst í öllum umf þar til stykkið mælist 17-15-15 cm. Haldið áfram með tbst JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið:

STÆRÐ S/M:
* Heklið 1 umf þar sem fækkað er um 1 tbst í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Heklið 1 umf án úrtöku. Heklið 1 umf þar sem fækkað er um 1 tbst í hvorri hlið. Heklið 2 umf án úrtöku *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 12 úrtökur = 37 tbst.
STÆRÐ L/XL + XXL/XXXL:
* Heklið 1 umf þar sem fækkað er um 1 tbst í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Heklið 1 umf án úrtöku *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum = 16 úrtökur = 39-43 tbst.

Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 tbst í hvern tbst.
UMFERÐ 2: Heklið 6 ll (= 1 tbst + 2 ll), hoppið yfir 1 tbst í næsta tbst, * 2 ll, hoppið yfir 1 tbst, 1 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* út umf = 18-19-21 ll-bogar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 tbst í hvern tbst og 1 tbst í hvern ll-boga = 37-39-43 tbst.
Endurtakið umf 1 til 3 alls 3 sinnum, ermin mælist ca 61-61-61 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Heklið 1 umf kringum allt fram- og bakstykki og neðst niðri á ermum með 2 þráðum í litnum gráfjólublár þannig: Heklið 1 kl, * 5 ll, 1 st í fyrstu ll, hoppið yfir 1 l, festið með 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í fyrstu ll. Saumið ermar í fram- og bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.01.2012
ERMI: Ermin er hekluð í röndum. Ermakúpa er hekluð eins og 5.- 5.- 4. rönd, heklið nú 12 cm eins og rönd 4-4-3, 12 cm eins og rönd 3-3-2, 12 cm eins og rönd 2-2-1, og heklið stykkið til loka eins og rönd 1.
Yfirfarið á vefsvæði: 17.02.2012
ERMI:...UMFERÐ 6: Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern og einn af þeim 41-47-51 næstu tbst, 4 tbst í síðasta tbst = 49-55-59 tbst. Snúið. Héðan er skipt yfir í rönd 4-4-3.
Yfirfarið á vefsvæði: 12.03.2012
Efni: DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio150-200-200 gr litur nr 7402, ljós sægrænn, 200-250-250 gr litur nr 7219, ljós grænn, 150-200-200 gr litur nr 1760, ljós gráfjólublár, 100-100-100 gr litur nr 3250, ljós bleikfjólublár, 100-100-100 gr litur nr 4314, gráfjólublár
Yfirfarið á vefsvæði: 27.03.2012
8. rönd: 1 þráður gráfjólublár og 1 þráður ljós bleikfjólublár

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Frühlingsgefühle

Strickmieze21, Germany

Summer Circle Jacket

Valentina, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (191)

country flag Johannah wrote:

Vedr forstykkerne: Jeg skal nu hækle over de 81 masker samtidig med ind-og udtagning. Jeg starter med udtagning i 1. række, men skal jeg også tage ind i 1. række? I så fald arbejder jeg jo ikke over de 81 masker.

28.03.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Hej Johannah, det stemmer, du tager ind og ud ifølge opskriften og får da49 dbl-st når du er klar med de 8 rækker :)

12.04.2023 - 15:20

country flag Johannah Mingdal wrote:

Ja, jeg bruger garnet i opskriften og hækle fastheden passer ret godt. Efter 13. Omgang hvor arbejdet skulle måle 20 cm fra midten af ringen, har jeg 19,5 cm. Herfra skal hækles yderligere 7 omgange, hvorefter arbejdet skal måle 35 cm. Dvs at 7 omgange efter planen skulle måle 15 cm. Det hænger ikke sammen, da 1 række ifølge fastheden fylder 1,8 cm. Derfor lander jeg på Ca 32 cm og mangler 3 cm. Og hvis jeg tager 2 omgange mere, så bliver der jo rod i striberne?

08.03.2023 - 13:47

country flag Johannah Mingdal wrote:

Vedr ærmer. Skal de hækles for sig selv og efterfølgende syes på i ærmegabet? Og skal der hækles 2 stykker med start oppefra på 34 lm til hvert ærme, som syes sammen efterfølgende? Det er meget svært at forstå 😳

06.03.2023 - 23:48

DROPS Design answered:

Hej igen, ja ærmerne hækles for sig og sys i ærmegabet bagefter :)

08.03.2023 - 09:41

country flag Johannah Mingdal wrote:

Jeg hækler str. L/XL og er færdig med 20.omgang af ryggen. Nu skulle arbejdet måle Ca 35 cm fra midten, men det måler kun Ca 32 cm. Efter 14. række målte det fint de 20 cm som angivet, men der går noget galt på de resterende 5 rækker. De kan umuligt nå at komme op på 15 cm. Måler Ca 12 cm hos mig. Hvad gør jeg nu? 🤔

06.03.2023 - 22:47

DROPS Design answered:

Hej Johannah, hækler du i 2 tråde DROPS Baby Alpaca Silk? Du skal have 5½ række med dbl-st i højden på 10 cm for at få målene til at passe :)

08.03.2023 - 09:39

country flag Anette Mjøen wrote:

Det er feil i oppgitt garnmengde. Jeg skal begynne på det første forstykket nå og har allerede for lite av lys gammelrosa. Når jeg gjør en beregning er jeg ganske sikker på at det også blir for lite av grålilla. Ser av kommentarene det også er meldt tidligere (i 2018 av Sophie Kling). Hun heklet i str. S, jeg hekler L/XL. Vær så snill og rett oppskriften, slik at ikke flere bestiller for lite garn

17.01.2022 - 15:22

country flag Joyce Klerkx wrote:

Ik snap even niet hoe ik het linker voorpand moet beginnen. Het staat heel onduidelijk omschreven, ik snap er niks van. Er staat " fa verder en haak alleen 81 dstk aan iedere kant, dus haak niet over de 39 dstklangs de hals, etc etc. Vanaf waar is dit gerekend. Hoe ik ook tel ik kom er niet uit.....

21.05.2021 - 11:15

DROPS Design answered:

Dag Joyce,

Het werk wordt vanaf midden achter gehaakt. Als je klaar bent met de cirkel voor het achterpand, kun je afhechten en steken tellen zodat je aan de bovenkant (halskant) het benodigde aantal steken overslaat.

26.05.2021 - 14:31

country flag Joyce Klerkx wrote:

Ik snap even niet hoe ik het linker voorpand moet beginnen. Het staat heel onduidelijk omschreven, ik snap er niks van.

21.05.2021 - 09:24

DROPS Design answered:

Dag Joyce,

Nadat je de cirkel voor het achterpand hebt gehaakt, haak je alleen over beide zijkanten en niet meer over de steken aan de bovenkant bij de hals en ook niet aan de onderkant. (Dit staat aangegeven bij de laatste toeren van het achterpand). Bij het gedeelte wat over het linker voorpand gaat, haak je verder over deze steken van de zijkanten en plaats je vanaf beide zijden van deze steken markeerdraden. Bij de markeerdraden meerder je steeds steken (om de cirkelvorm als het ware voort te zetten). Tegelijkertijd minder je steeds 3 steken aan het begin en einde van de toer.

26.05.2021 - 14:29

country flag Karin wrote:

Ich bin verwirrt bei der Anleitung für die Ärmel: häkel ich pro Ärmel 2×die Anleitung? Das heißt 2 armnahten pro Ärmel?

01.01.2021 - 16:18

DROPS Design answered:

Liebe Karin, ich verstehe Ihre Frage leider nicht - es sind insgesamt 2 Armlöcher beim Kreis und 2 Ärmel separat gehäkelt und zusammengenäht. Viel Spaß beim häkeln!

04.01.2021 - 14:25

country flag Nikki wrote:

What are the yarn quantities for the Small/1st size please as I do not want to purchase the total quantity for the XXL? Thanks.

08.06.2019 - 19:17

DROPS Design answered:

Dear Nikki, yarn amount for the Small size is the first number in material list, so you need: 200 g colour no 7219, pistachio; 150 g colour no 7402, light sea green; 150 g colour no 1760, light grey purple; 100 g colour no 3250, light old pink; 100 g colour no 4314, grey purple. Happy crocheting!

08.06.2019 - 19:44

country flag Gilda wrote:

Salve, ho un problema con le due parti del davanti, sinistro e destro. Come si fa ad individuare precise le rispettive 79 maglie sulle quali lavorare. Oppure le precise metà del collo, 35 mad, e le 35 della parte di sotto? In particolare, da dove iniziare per trovare la metà?

29.01.2019 - 03:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Gilda, abbiamo leggermente modificato il testo, comunque deve lasciare da parte le 35 maglie alte doppie del collo e le 35 maglie alte doppie della parte inferiore del dietro. Buon lavoro!

29.01.2019 - 10:57