DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-986
DROPS Design: Mynstur nr u-721
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Hæð á sokk: ca 35 cm
Lend á fæti: ca 25 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150 gr litur nr 48, vínrauður
100 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 32 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir kant.
FYLGIHLUTIR: 1 m af rauðum silkiborða til þess að hengja sokkinn upp.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni.

HÆLL:
Prjónað er fram og til baka í sléttprjóni.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, herðið á bandi og prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eig hana sl, herðið á bandi og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, herðið á bandi og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
Haldið áfram þar til 18 l eru eftir á prjóni. Prjónið áfram fram og til baka en nú er prjónuð 1 l fleiri í hverri umf yfir hæl. Til þess að koma í veg fyrir gati í skiptingunum er þræðinum lyfti upp á undan l sem á að prjóna og þráðurinn settur snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn með l. Prjónið svona þar til allar l hafa verið prjónaðar yfir hælinn.

ÚRTAKA:
Fækkið um 3 l á undan prjónamerki þannig. Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

JÓLASOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

JÓLASOKKUR:
Fitjið upp 80 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður DROPS Karisma.
Prjónið sléttprjón í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf þannig: Prjónið 2 l slétt saman og sláið uppá prjóninn. Prjónið 3 umf slétt. Skiptið l þannig að það verða 20 l á hverjum prjóni (= 4 prjónar). Prjónið A.1, prjónið síðan áfram A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 29 cm), klippið frá. Prjónið nú hæl yfir l frá prjóni 1 og 4 (= 40 l), aðrar 40 l (= ofan á fæti) eru settar á þráð. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umf með litnum vínrauður og 1 umf með litnum natur yfir 40 hæl-l JAFNFRAMT er prjónaður HÆLL – sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka með litnum vínrauður JAFNFRAMT er prjónaður hæll. Prjónið þar til 2 umf eru eftir af hæl. Prjóni nú 1 umf í litnum natur og 1 umf í litnum vínrauður. Setjið nú 40 l af þræði til baka á prjóninn og prjóni síðan í hring yfir allar 80 l með litnum vínrauður þannig (byrjið umf á 2. sokkaprjóni, þ.e.a.s. á eftir hæl): Prjónið A.2 eins og áður yfir 40 l ofan á fæti, prjónið 1 l með litnum vínrauður, 1 l með litnum natur, prjónið A.3 (= 6 l) yfir næstu 36 l JAFNFRAMT er aukið út um 1 l (á eftir fyrstu 18 l) þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið og endar á 1 l í litnum natur og 1 l í litnum vínrauður. Prjónið mynsturteikningu A.2 2 sinnum á hæðina eftir hæl og endið á næst síðustu umf í mynsturteikningu A.2 (nú er eftir ca 4,5 cm að loka máli).
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 40 l ofan á fæti og 41 l undir fæti. Haldið áfram með 1 umf í litnum vínrauður og 1 umf í litnum natur, prjónið síðan sléttprjón með litnum vínrauður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækki lykkjum í annarri hverri umf alls 6 sinnum og síðan í hverri umf alls 4 sinnum.
Leggið sokkinn saman og saumið saman efri hluta af tá með l frá neðri hluta með lykkjuspori. Klippið frá og festið enda.
Uppfitjunarkanturinn er brotinn niður við gataumferð, saumið niður með smáu spori að innanverðu án þess að saumurinn verði of stífur.
Þræðið silkiborða í gegnum gataumferðirnar efst á bakhlið á sokknum til að hengja sokkinn upp.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = natur
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Another Stocking

Victoria, United States

Christmas stockings for us

Elizabeth, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-986

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Sandy Petterson wrote:

Hi, I love this pattern but have a question concerning the A-3 pattern section. This section originally has 40 stitches which seems to work out fine in theory when you are starting this section with 1 st red and 1 st white, then 6 repeats of A-3 (36 stitches) and then ending it with 1 st white and 1 stitch red. When I increase a an extra stitch after the 18th stitch I end up with an extra stitch at the end of this section. What do I do with it? What color should it be? Thanks for your help.

02.11.2021 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Petterson, work the 40 sts as follows: 1 st red, 1 st off white, A.3 over the next 36 sts increasing 1 st = repeat 6 times the 6 sts in A.3 and increase 1 st worked as the first st in A.3 so that the pattern starts and ends the same way (= there are now 37 sts), 1 st off white, 1 st red = 2+37+2=41 sts for under foot. Happy knitting!

03.11.2021 - 07:57

country flag Sandrine wrote:

Bonjour, Aurait-on le même modèle avec des aiguilles circulaires au lieu des doubles pointes ? Eventuellement pourrait-on la faire avec 2 aiguilles normales ? Merci de me répondre à ces deux questions

22.08.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, vous pouvez tricoter ce modele avec des aiguilles circulaires en utilisant la technique MAGIC LOOP (a voir ICI). Deuxieme question: la reponse est non. Bon tricot!

22.08.2021 - 20:17

country flag Amy Lee wrote:

I was struggling with the video for the heel and my first attempt was a disaster - but found this one was great: chilly dog yarn over short row heels video

26.01.2021 - 14:52

country flag Amy wrote:

Hi, I am really confused about the increased stitch to the underside foot after 18 stitches as this makes it 41 stitches. I can't work out what the extra stitch should be. There is a stitch of white and a stitch of red either side of the 6 stitch repeat, which makes 40 stitches, what do I do with the additional stitch each round - sorry if I am missing the obvious.

03.01.2021 - 20:52

DROPS Design answered:

Dear Amy, when working heel you are supposed to get back to the 40 sts after 2nd part of heel (see the technique for this heel in video there), so that there are again a total of 80 stitches on needle. Happy knitting!

05.01.2021 - 09:35

country flag Renee wrote:

For the heel after the 4th needle, should I repeat needles 3 and 4. Or needle 1-4. And in the exemplary video, the first stitches are knitted. While the pattern states you have to slip them. Is that correct? After reaching the 18 stitches in the middle and going back, do you then knit the first stitch of each needles or do you slip that first stitch

07.10.2020 - 20:37

DROPS Design answered:

Dear Renee, heel is worked over stitches which are on 4th + on 1st needle - the stitches on 2nd and 3rd needles won't be worked until heel is done. Work heel as explained in the pattern - video shows the technique but there always might be some variations. You first work 1 st less at the end of every row until 18 sts remain on needle, then work 1 st more at the end of every row until all the 40 sts have been worked again. Happy knitting!

08.10.2020 - 10:20

country flag Veronika wrote:

Forstår jeg det riktig at denne strikkes ovenfra og ned?

21.01.2020 - 09:16

DROPS Design answered:

Hei Veronika, Ja det er strikket ovenfra og ned. God fornøyelse!

22.01.2020 - 07:49

country flag Guillermina Bejarano wrote:

Buenas tardes. Es posible tejerlo todo con agujas circulares sin usar las de doble punta? Gracias

20.08.2017 - 18:59

DROPS Design answered:

Hola Guillermina. Puedes trabajar el patrón con una aguja circular corta o con dos agujas circulares

22.08.2017 - 20:26

country flag Emily wrote:

After working the first 1" in red, I am confused by the next set of instructions. Is it Row 1: K2tog, YO Row 2-4: K Or is it K2tog, YO, K I'm a newbie to fair isle and reading patterns like this.

16.01.2016 - 23:31

DROPS Design answered:

Dear Emily, on 1st round after the 1" stocking, change to larger needle size and work (K2 tog, YO), then work 3 rounds K - see video below for this picot edge. Happy knitting!

18.01.2016 - 14:08

country flag Katharina Louise Williamsen wrote:

Ser her flere som sliter me hælen, det gjør nå også jeg... Har kommet dit hvor jeg skal begynne å strikke flere masker igjen, og ser at oppskrifta og videoen dere har lagt ut her viser to forskjellige ting.. har prøvd begge, plukke opp to masker før den nye, for så å strikke 3 sammen og løfte tråden før masken, sette den vridd på pinnen og strikke 2 sammen...men får hull uansett....hva gjør æ galt?

03.10.2015 - 19:00

DROPS Design answered:

Hej, Jo men det er helt rigtigt som du gør, men sørg for at stramme tråden. God fornøjelse!

06.10.2015 - 14:44

country flag Katharina Louise Williamsen wrote:

Hei! Lurer på hullmønsteret... Om det strikkes på settp, og annenhver 2r sm, 1 kast, ender jeg opp med at siste maske på pinnen er ei kast maske? den holder seg jo ikke der uten at det strikkes ei maske utafor? Jeg får det i allefall ikke til. Gjør jeg noe feil? Enkleste ville jo vært å strikke det på rundpinner, hadde jeg hatt det, men har brukt settp hele veien.. Men dette kan ikke være feilen heller, for oppskriften sier jo at man skal bytte fra rundp til settp FØR hullene..

28.09.2015 - 05:11

DROPS Design answered:

Jo men du strikker også rundt på settp, så du fortsætter bare rundt rundt, så stemmer det! God fornøjelse!

01.10.2015 - 17:00