DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-985
DROPS Design: Mynstur nr as-001
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 19 cm hæð x 11 cm lengd

Efni:
DROPS Brushed Alpaca Silk frá Garnstudio
50 gr litur nr 05, beige
+ afgangur af litnum svartur fyrir augu og nef

Vatt til fyllingar, t.d. Alpaca Silk þannig að fyllingin er í sama lit og Alpackan.

DROPS HEKLUNÁL NR 3.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

FYLLING:
Fyllt með vatti/Alpaca Silk í dýrið jafn óðum og heklað er.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll (þetta kemur ekki í stað fyrstu fl) og enda á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 fl með því að hekla 2 l saman.
Þetta er gert þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPACKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá á höfði, niður yfir háls og að búknum. Fætur, skott og eyru eru hekluð fyrir sig og saumað á í lokin. LESIÐ FYLLING!

HÖFUÐ, HÁLS OG BÚKUR:
Heklið 4 ll með litnum beige með heklunál nr 3 og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. Snúið við með 1 ll, heklið nú aðeins fram og til baka.
UMFERÐ 3-7: Heklið 1 fl í hverja fl fram og til baka (= op þar sem nefið á að heklast á í lokin).
UMERÐ 8-20: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn án þess að enda hverja umf, að lokum er heklað upp að miðju ofan á hnakka.
UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 4 fl = 12 fl.
UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í hvora af næstu 2 fl og 1 fl í hverja af síðustu 5 fl = 14 fl.
UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12 fl, snúið við með 1 ll, heðan er heklað fram og til baka smá bút að brjóstkassa.
UMFERÐ 24 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 25 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 26 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 27 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 28 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 29: (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 4 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 30: (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 6 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 31: (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 8 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 32: (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 10 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 33: (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 12 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 34: (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 14 fl, snúið við með 1 ll. Haldið nú aftur áfram í hring.
UMFERÐ 35: Heklið fl í kringum allt opið – aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 22 fl.
UMFERÐ 36-45: Haldið áfram hringinn með 10 umf fl.
UMFERÐ 46: Heklið fl, jafnframt er fækkað um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman – SJÁ ÚRTAKA = 18 fl.
UMFERÐ 47: Heklið fl jafnframt er fækkað um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 14 fl – SJÁ FYLLING.
UMFERÐ 48: Heklið fl, jafnframt er fækkað um 4 fl jafnt yfir með því að hekla 2 og 2 fl saman = 10 fl.
UMFERÐ 49: Heklið allar fl saman 2 og 2 = 5 fl.
Klippið frá, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið vel.

NEF:
Heklið 14 fl með litnum beige með heklunál nr 3 í kringum opið framan á höfði. Setjið 1 prjónamerki ofan á höfuðið. Haldið áfram með 4 umf með 1 fl í hverja fl jafnframt eru 2 fl ofan á höfði heklaðar saman í hverri umf = 10 fl. Heklið nú 1 umf þar sem allar fl eru heklaðar saman 2 og 2 = 5 fl, klippið frá. Troðið inn smá vatti í nefið, þræðið þráðinn í kringum opið, herðið að og festið vel.

FÓTUR:
Heklið 4 ll með litnum beig og heklunál nr 3 og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 9 fl.
UMFERÐ 3-12: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn, klippið frá.
Heklið 3 fætur til viðbótar á sama hátt. Troðið smá vatti í þær og saumið þær neðan á búkinn.

SKOTT:
Heklið 7 ll með tveimur þráðum af litnum beige og heklunál nr 3, heklið nú 2 tbst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 hst í hvern af síðustu 5 ll, klippið frá og saumið skottið á bakhlutann þannig að það lafi.

EYRA:
Heklið 6 ll með tveimur þráðum af litnum beige og heklunál nr 3, heklið nú 2 hst í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af síðustu 4 ll, klippið frá.
Heklið annað eyra til viðbótar á sama hátt og saumið eyrun niður ofan á höfuðið.

HÁR/KÖGUR:
Klippið 8 þræði af litnum beige ca 8 cm langa. Leggið þræðina saman tvo og tvo, stingið heklunálinni í l ofan á höfði við annað eyrað og dragið heklunálina í gegnum þráðinn hálfa leið, þannig að það myndist lykkja. Dragið endana í gegnum þessa lykkju og herðið að. Endurtakið þetta þrisvar sinnum þannig að hárið verði á milli eyrna. Klippið hárið til að óskaðri lengd.

Saumið út augu, nef og munn með litnum svartur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Tiny Alpacas

Lori, Canada

Roger - the lovely one

cherry tree in june, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-985

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Anne wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas, pour les rangs 8 à 20 de la tête, cou et corps : "sans joindre à la fin de chaque tour". Pouvez-vous m'expliquer? Merci

18.10.2021 - 19:57

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, bien volontiers: crochetez 1 maille serrée dans chaque maille serrée tout le tour, à la fin du tour, au lieu de terminer par 1 maille coulée dans la première maille serrée du tour, mettez un marqueur pour repérer la fin/le début du tour et crochetez simplement 1 maille serrée dans la 1ère maille serrée du tour suivant, et continuez ainsi, en faisant bien suivre votre marqueur pour repérer le début des tours, vous crochetez ainsi en spirale. Bon crochet!

19.10.2021 - 07:49

country flag Gabriela María Sanmarti wrote:

Could you please send me the pattern to knit a panda toy of about 60 cm? Thank you very much. In spanglish much better

19.12.2020 - 02:08

DROPS Design answered:

Hola Gabriela. No hacemos patrones personalizados. Puedes ver en el apartado Mascotas & Juguetes todos los patrones disponibles.

20.12.2020 - 12:24

country flag Herma Van Der Moolen wrote:

Hoe haak ik verder na toer 29???????

02.01.2019 - 12:20

country flag Erika Procter wrote:

Hello, where it says 'ROUND 8 to 20: Work 1 dc in every dc in the round without finishing every round, then work up to the middle on top of neck', how do you crochet in the round and not finish every round?

27.03.2018 - 15:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Procter, just work 1 dc in each dc without joining at the end of round with a sl st, insert a marker at the beg of each row and move it upwards so that you can count the number of rounds worked. Happy crocheting!

28.03.2018 - 15:09

country flag Kristin wrote:

Hallo, das Problem ist, wie man ab der 35. Runde weiterhäkelt. An den Seiten befinden sich ja dann so große Löcher.... Danke für die Hilfe! Viele Grüße, Kristin

03.10.2017 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Kristin, bei der 35. Runde werden Sie um herum die ganze "Öffnung" arbeiten, dh in die Maschen der vorrigen Reihe sowie entlang den Reihen 24 bis 35 so daß keinen Loch mehr gibt. Dann in der Runde weiter häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

03.10.2017 - 15:37

country flag Alicia wrote:

I'm very confused at row 34/round 35 - how should I work around the opening? My current attempt has two holes where the precious row ends are, but I can't see any mention of sewing them up later. What forms the opening? Thanks for any help you can offer!

23.02.2015 - 21:45

DROPS Design answered:

Dear Alicia, after row 34, turn to work next round from RS, then work 1 dc in each st around the opening created by the rows worked back and forth, working 2 dc in the same dc to get a total of 22 dc at the end of the 35th round. You continue then body in the round to back. Happy crocheting!

24.02.2015 - 09:10

country flag Rob wrote:

I've asked my wife to make me one of these as a present for a friend. She is confused by the instructions at ROUND 2 - Work 2 dc in every dc = 10 dc. Turn with 1 ch, then work back and forth in one." What does the last sentence mean?

28.11.2014 - 16:43

DROPS Design answered:

Dear Rob, you first have to work 2 first rounds in the round, but then after round 2, you have to turn and work in rows from row 3 to row 7 (ie for 5 rows), this creates the opening for snout worked later (see in pattern below "SNOUT"). Afterwards, you continue from round 8 in the round again. Happy crocheting to your wife!

28.11.2014 - 17:47

country flag Elisabeth wrote:

Combien de temps faut-il pour réaliser ce modèle ? D'avance merci

17.09.2014 - 21:18

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, le temps de réalisation dépend notamment de l'expérience de chacune. Bon crochet!

18.09.2014 - 08:53

country flag DROPS Design wrote:

Liebe Abc, das ist 0-1001.

10.01.2014 - 15:04

country flag Abc wrote:

Wie häkelt man die Mütze und den Schal?

21.12.2013 - 11:36