DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-898
DROPS Design: Mynstur nr u-696
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
750-800-900-1000-1050-1150 g litur nr 69, ljós grágrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 35 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu verður að gera öll mál þegar flíkinni er haldið uppi.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 3 (= frá röngu): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar lykkjur eru taldar, er uppslátturinn ekki talin sem eigin lykkja.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið er út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón.

AFFELLING:
Þegar lykkjur eru felldar af er uppslátturinn og lyfta lykkjan prjónað slétt saman (= 1 lykkja slétt).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 82-90-96-106-118-128 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Karisma.
Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykju. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN að loka máli – lesið útskýringu að ofan. Prjónið stroff svona í 6 cm – lesið MÆLING. Aukið út um 1 lykkju í lok síðustu umferðar í stroffi (síðasta umferð = frá réttu) = 83-91-97-107-119-129 lykkjur. Síðan er prjónað KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 47-47-47-46-45-43 cm er prjónuð fölsk laskalína – 4 lykkjur klukkuprjón í hvorri hlið eiga að færast að hálsmáli.
Í hægri hlið (frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur á undan 4 lykkjum í klukkuprjóni og fækkað um 2 lykkjur á eftir 4 lykkjum í klukkuprjóni.
Í vinstri hlið er fækkað um 2 lykkjur á undan 4 lykkjum í klukkuprjóni og aukið út um 2 lykkjur á eftir 4 lykkjum í klukkuprjóni.
Lykkjufjöldinn á alltaf að vera sá sami. Þær 2 útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón.
Prjónað er frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, setjið 1 merki í stykkið, prjónið 4 lykkjur klukkuprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki talinn sem ný lykkja – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA), setjið 1 merki í stykkið, lyftið næsta uppslætti yfir lykkjuna (þannig að uppslátturinn kemur til með að liggja aftan við þessa lykkju, lyftið þessari lykkju af prjóni, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 7 lykkjur eru eftir í klukkuprjóni + 1 kantlykkju, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman, setjið 1 merki í stykkið, prjónið 4 lykkjur klukkuprjón eins og áður, setjið 1 merki í stykkið, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er nýi uppslátturinn prjónaður þannig:

Í byrjun umferðar (séð frá röngu): 1 kantlykkja, prjónið brugðið í aftari liðinn á fyrri uppslætti, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið slétt í aftari liðinn á seinni uppslætti, haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður.
Í lok umferðar (séð frá röngu): 1 lykkja slétt í aftari liðinn á fyrri uppslætti, 1 lykkja brugðið í aftari liðinn á seinni uppslætti, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Prjónið 4 umferðir klukkuprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er prjónað klukkuprjón, JAFNFRAMT því sem aukið er út á undan fyrsta merki, fækkið lykkjum á eftir öðru merki, fækkið lykkjum á undan þriðja merki og aukið út á eftir fjórða merki eins og útskýrt er að ofan. Aukið er út og lykkjum fækkað síðan í 6. Hverri umferð alls 11-12-13-15-17-19 sinnum. Prjónið síðan áfram í klukkuprjóni í 2 cm á eftir síðustu úrtöku/útaukningu. Nú eru felldar af miðju 27-31-33-35-39-41 lykkjur – lesið AFFELLING = 28-30-32-36-40-44 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er síðan prjónuð fyrir sig. Prjónið klukkuprjón í 2 cm, fellið af. Stykkið mælist alls ca 68-70-72-74-76-78 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á bakstykki 21-22-23-24-25-26 cm niður frá öxl.
Merkin sýna hvar sauma á ermar í.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.
Haldið áfram með útaukningu og úrtökur í 6. hverri umferð, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Setjið miðju 17-21-23-25-29-31 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, síðan er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og tilfærslu á lykkjum eins og áður, JAFNFRAM er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 28-30-32-36-40-44 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á stykkinu 21-22-23-24-25-26 cm niður frá öxl. Merkin sýna hvar sauma á ermar í.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið laust upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur með DROPS Karisma á hringprjón 4,5.
Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli.
Prjónið stroff í 6 cm – lesið MÆLING. Aukið út um 1 lykkju í lok síðustu umferðar í stroffi (síðasta umferð = frá réttu) = 45-47-49-51-53-55 lykkjur.
Síðan er prjónað klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 3-2 ½-2½-2½-2-2 cm millibili 15-16-16-17-18-18 sinnum til viðbótar (alls 16-17-17-18-19-19 útaukningar) = 77-81-83-87-91-93 lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í niður að merki á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við kantlykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 84-88-92-96-100-104 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-898

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Elisa wrote:

Buonasera. Non sono contenta di come è venuto il giro maniche, che mi risulta un po' "tirato", inoltre risultano troppo lunghe. Dovendo quindi disfarle, mi chiedo se una soluzione potrebbe essere tirare su i punti dal giro maniche e lavorare così le maniche dall'alto verso il polso. Cosa ne pensate? Grazie!

04.01.2024 - 22:50

DROPS Design answered:

Buonasera Elisa, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

10.01.2024 - 16:38

country flag Gisèle Allemand wrote:

Bonjour, les côtes anglaise de ce modèle ressembles beaucoup au point de brioche qui est plus rapide à tricoter car sans les jetés mais avec une maille double endroit et un maille endroit, quand pensez vous ? cela changerait il les mesures du modèle ?

28.08.2023 - 12:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Allemand, le point dit "brioche" en anglais correspond en général aux côtes anglaises avec jeté expliquées dans ce modèle. Si vous préférez tricoter les côtes anglaises différemment, pensez à bien tricoter un échantillon au préalable pour vérifier vos mesures (et les quantités peuvent en être affectées). Retrouvez ici une petite récap des différentes variations des côtes anglaises. Bon tricot!

28.08.2023 - 16:33

country flag Kerstin Fullerton wrote:

Hi. Is it possible to knit this in the round on circular needles up to the armholes? Do i need to make any adjustments for that? Thank you for your help.

14.03.2023 - 08:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fullerton, probably yes, you just have then to remove the edge stitches that you don't need in the round, but then cast them on when dividing piece to finish front and back pieces separately. Happy knitting!

14.03.2023 - 10:10

country flag Sue Whitehall wrote:

I’m knitting drops extra 0-898 and I’ve got to the false raglan. The pattern says k 2sts together at the start of the row and 3 sts together at the end of the row but the video seems to K 3 sts together at the start of the row and 4sts together at the end of the row. Can you advise p,ease?

15.01.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Whiteall, to shape the false raglan, you will increase before 1st marker = 2 yarn overs + decrease after 2nd marker (ses 01.10 in the video: slip 1, K2 tog, psso) (false raglan on the right side of piece) and decrease then before 3rd marker (03.14: K3 tog) + increase after 4th marker (04:10 in the video) (false raglan on the left side of piece) - you have now increase 2 sts on each side and decrease 2 sts inside the markers 2 and 3. Happy knitting!

16.01.2023 - 09:19

country flag Caitie Santo wrote:

I'm trying to knit english rib but confused about inc 1 st at last row of rib before english rib. I end up with 91 st and when i try row 2 of english rib, there is an extra st after I knit 1st in garter and before I k tog Yo and slipped. What am i supposed to do with the extra st in row 2 after I knit 1st stitch?

14.01.2023 - 17:41

DROPS Design answered:

Dear Caitie, the pattern is correct. You have 91 stitches. The uneven stitch is used to make the english rib symmetrical on both sides. You can see that at the end of the 1st row you have worked 1 yo, slip 1 stitch purlwise, (you don't knit 1 stitch), so you have uneven stitches. In the next row. You work in the next row the edge stitch, and the slipped stitch + the yo of the previous row are worked together (there shouldn't be any stitches in between). Happy knitting!

15.01.2023 - 12:24

country flag Caitie Santo wrote:

I'm trying to knit english rib but confused about inc 1 st at last row of rib before english rib. I end up with 91 st and when i try row 2 of english rib, there is an extra st after I knit 1st in garter and before I k tog Yo and slipped. What am i supposed to do with the extra st in row 2 after I knit 1st stitch?

14.01.2023 - 17:41

country flag Schrevens Arlette wrote:

Hallo,als je bij de schets de mouwen aftrekt van de totale lengte dan moet je toch meer cm breien dan in de beschrijving staat voor je aan de valse raglanmouwen begint of begrijp ik het verkeerd?Groetjes.

20.11.2022 - 12:48

DROPS Design answered:

Dag Arlette,

Dit kan per maat verschillend zijn (lees eerder beginnen dan dat het armsgat begint) om de schuine lijn goed te laten lopen en dus goed uit te komen met de hoogte en breedte die over is om de schuine lijn te maken bij de schouder. Hopelijk heb ik het zo goed uitgelegd. 🤔

20.11.2022 - 17:00

country flag Christiane wrote:

Bij patroon drops 0898 staat het aantal rijen in de patentsteek opgegeven als 35 rijen voor tien cm.\r\nwanneer ik het staal brei, het aantal steken klopt 18 st per 10 cm maar het aantal rijen niet, voor 10 cm in patentsteek kom ik aan 48 rijen wat natuurlijk het verschil gaat maken bij het breien van de valse raglan. Ik moet i.p.v. 4 naalden 6 naalden breien om aan de juiste hoogte van het armsgat te komen. Kan ik daar wat uitleg over krijgen aubl.

10.10.2022 - 10:40

DROPS Design answered:

Dag Christiane,

Dat is nogal een verschil in aantal naalden en ik vermoed dat dat misschien te maken heeft met de patensteek. Dit is nogal een rekbare steek in de breedte, dus misschien moet je het proeflapje ietsje uitrekken in de breedte, waarschijnlijk kom je dan wel op de juiste stekenverhouding. (Wellicht moet je daar dan een dunnere naald voor gebruiken.)

12.10.2022 - 20:13

country flag Mona wrote:

Ich verstehe irgendwie die abnehmen für den Halsausschnitt nicht ? Ich hab das so verstanden: 45 cm hochstricken Dann auf/abnahmen -> falsche raglanschräge beginnen dabei jede 6. Reihe Diese ab/Aufnahmen machen? Ab 66cm die Mittleren ma Abk.? Trotzdem mit der schräge fortfahren [halt separat weil ja das Teil geteilt ist ab da] Und... dann?? Am Hals in jeder raglanschrägenreihe 2ma Abk? Und am Rand 1 ma?

16.09.2022 - 20:41

DROPS Design answered:

Liebe Mona, stricken Sie die 5. Größe? Also ja beim 45 cm beginnen Sie die falsche Raglanabnahmen (mit Ab- bzw Zu-nahmen) 17 Mal insgesamt in jeder 6. Reihe; dann stricken Sie 2 cm Vollpatent und ketten Sie die mittleren Maschen für Halsausschnitt (= 45 cm + ca 28 cm = ca 74 cm), dann stricken Sie noch 2 weitere cm über jede Schulter = 76 cm von der Anschlagskante bis zur Schulter . Viel Spaß beim stricken!

11.10.2022 - 16:14

country flag Brigitte wrote:

Hallo, ich möchte diesen Pullover in Halbpatent stricken. Erste Frage: muss die Maschenprobe ebenfalls hängend ausgemessen werden? Zweite Frage: ist es überhaupt möglich diesen falschen Raglan trotzdem zu stricken? Gruß Brigitte

25.09.2021 - 20:31

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Aber stimmt ja, immer eine Maschenprobe zuerst stricken, um zu prüfen, wie Sie dieses Modell nach Ihrem Geschmack anpassen können. Wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

27.09.2021 - 08:15