Rudolf |
|
|
|
Heklað hreindýr úr DROPS Safran. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-858 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú 7 fl utan um galdrahringinn, dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Haldið áfram að hekla í hring samkvæmt uppskrift. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. 3 FL HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* 2 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. LITASKIPTI -FL Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta fl í umf hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. Haldið áfram með nýja litnum í næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÖFUÐ: Stykkið er heklað í hring með beige og heklunál nr 3. Byrjið neðst niðri á höfðinu með því að hekla GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING að ofan. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl. UMFERÐ 9-15: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl í umf. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, síðan eru 2 FL HEKLAÐAR SAMAN * - sjá skýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 17-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl í umf. UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, síðan eru 2 fl heklaðar saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 20-21: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl í umf. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 23-26: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl í umf. UMFERÐ 27: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, síðan eru 2 fl heklaðar saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 28: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 29: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, síðan eru 2 fl heklaðar saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 30: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 31: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 2 fl, síðan eru 2 fl heklaðar saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 32: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 33: * Heklið 1 fl í næstu fl, síðan eru 2 fl heklaðar saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Fyllið höfuðið með vatti. UMFERÐ 34: Heklið allar fl 2 og 2 saman = 6 fl. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l. EYRA: Stykkið er heklað fram og til baka. Byrjið efst uppi á eyranu, hekið 6 ll með litnum beige, síðan 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll = 5 fl. Heklið 3 umf til viðbótar með 1 fl í hverja fl (allar umf byrja með 1 ll). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 3 fl. Í næstu umf eru 3 FL HEKLAÐAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið annað eyra á sama hátt. HORN: Stykkið er heklað í hring. Byrjið efst á horninu, heklið 6 ll með litnum brúnn. Heklið 1 fl í 1. ll sem hekluð var, 1 fl í hverja ll = 6 fl. Síðan 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 2½ cm. Heklið nú þannig: * Heklið 2 ll, hoppið yfir næstu 2 fl (= op fyrir anga), haldið áfram með 1 fl í hverja fl, í næstu umf er 1 fl hekluð í hvora af 2 ll *. Aukið síðan út um 1 fl í næstu umf = 7 fl í umf. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 5 cm, síðan er endurtekið frá *-* 1 sinni til viðbótar (heklið 2 ll í hliðina á horninu). Aukið nú út um 1 l í næstu umf = 8 fl í umf. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 6½ cm alls. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið þannig kringum opið efst: Heklið 6 fl kringum allt opið, haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til greinin mælist ca 1½ cm, síðan eru heklaðar 6 fl í umf 2 og 2 saman = 3 fl eftir, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum allar l. Heklið annað horn á sama hátt. NEF: Stykkið er heklað í hring. Byrjið með að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. AUGA: Stykkið er heklað í hring. Byrjið með að gera galdrahring með litnum svartur. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn. Skiptið yfir í litinn natur í síðustu fl – sjá LITASKIPTI – FL að ofan. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 fl. Endið með 1 kl í næstu fl. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið annað auga á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hornið fast efst á höfðinu, brjótið eyrun tvöföld og saumið þau föst eitt í hvora hlið. Saumið augun í og nefið að framan. Saumið út munninn með litnum svartur. Heklið loftlykkjuumferðir með litnum rauður í ca 15 cm, saumið loftlykkjuumferðirnar fastar við höfuðið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Wioletta wrote:
W opisie są oczka ścisłe a na filmie półsłupki, więc jak robić tułów?
16.12.2022 - 12:36DROPS Design answered:
Witaj Wioletto, w języku polskim funkcjonują równolegle obie terminologie. Tłumacząc musieliśmy wybrać jedną wersję i jej się trzymać. Zawsze patrz video i przerabiaj zgodnie z nim. Pozdrawiamy!
16.12.2022 - 15:28Wioletta wrote:
Nie rozumiem opisu jak zrobić aby wyszły w sumie te cztery rogi, co to znaczy ominąć dwa oczka? Czy jest jakiś filmik jak wykonać te dodatkowe rogi bo wychodzi mi tylko jeden rulon
16.12.2022 - 11:42DROPS Design answered:
Witaj Wioletto, wykonujesz 1 tubę do której później dołączysz 2 odnogi (w miejscu dziurek powstałych przez ominięcie oczek: czyli tam gdzie przerabiasz: 2 oł, omijasz 2 kolejne oś poprzedniego okrążenia i przerabiasz 1 oś w kolejne oczko ścisłe). Dziurki będą po przeciwnych stronach tuby, a po wykonaniu 2 odnóg otrzymasz pożądany kształt. Pozdrawiamy!
20.12.2022 - 08:20Dea wrote:
Grazie, con la vostra spiegazione ho già risolto e attaccato le orecchie. Potete inserire ciò che avete detto a me nella spiegazione? Sarebbe utile per chi vuole realizzarlo. :)
10.12.2014 - 12:29Dea wrote:
Ciao. Ho problemi con l'attaccatura delle orecchie alla testa. Quando dice di piegarle in due, in che verso?Da una parte mi trovo, le catenelle iniziale e dall'altro il filo di chiusura... Non riesco a capire bene che forma avranno...e dalla foto non si capisce granchè, non è possibile un video che spiega la costruzione? Grazie
09.12.2014 - 22:45DROPS Design answered:
Buongiorno Dea! Le catenelle di avvio corrispondono alla punta delle orecchie. L’estremità del filo lasciato alla fine del lavoro è quello che servirà per la cucitura. Per piegare: bisognerebbe avvicinare tra loro le due estremità, quella destra e quella sinistra, della parte finale dell’orecchio, e cucirle all’ultima riga, in modo da dare una forma un po’ curva. Nella foto di questo modello si vede un po’ meglio il risultato finale, anche se le orecchie sono lavorate in modo diverso. Possiamo inoltrare la richiesta del video. Buon lavoro!
10.12.2014 - 10:33Yanne Cantin wrote:
Merci ! il est très mignon ce petit renne et je vais le faire pour mon petit fils de 10 mois !
02.12.2013 - 16:16Yanne Cantin wrote:
Merci ! je trouve ce petit cerf très mignon et je vais le faire pour mon petit fils de 10 mois !
02.12.2013 - 16:15Levering wrote:
Patroonrudolf
17.12.2012 - 19:09Wilck wrote:
Bitte Kontrolle ab Runde 22 falsche maschenanzahl
05.12.2012 - 12:44Barbara Schraga wrote:
22. RD: * je 1 fM in die nächsten 7 fM, die nächsten 2 fM zusammenhäkeln *, von *-* bis Rd-Ende wdh (= 36 fM)." Hier müssten es nicht zusammenhäkeln heißen sondern 2 fM in die nächste fM. Sonst würde die MZ am Ende nicht 36 lauten.
05.12.2012 - 11:48DROPS Design answered:
Liebe Barbara, danke für den Hinweis, die Anleitung ist nun korrigiert!
06.12.2012 - 12:08