DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24

Arabica

Hekluð peysa úr DROPS Delight, DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk með ömmuferningum. Stærð S - XXXL.

DROPS 143-22
DROPS Design: Mynstur nr de-085
Garnflokkur A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
250-250-300-300-350-400 gr litur nr 02, plóma/beige/ fjólublár
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 400, svartur
50-50-100-100-100-100 gr litur nr 300, brúnn
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-200-200-200-250 gr litur nr 15, dökk brúnn
25-25-25-50-50-50 gr litur nr 20, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 5 st-hópar á breiddina með 1 ll á milli hverra og 9 umf á hæðina með 1 þræði af Fabel/Delight + 1 þræði af Kid-Silk verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 540: 1 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
DE = Delight, F = Fabel, KS = Kid-Silk
UMFERÐ 1: 1 þráður brúnn F + 1 þráður dökk brúnn KS
UMFERÐ 2: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS
UMFERÐ 3: 1 þráður DE + 1 þráður ljós beige KS
UMFERÐ 4: 1 þráður brúnn F + 1 þráður dökk brúnn KS
UMFERÐ 5-6: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS
UMFERÐ 7: 1 þráður svartur F + 1 þráður dökk brúnn KS
Endurtakið umf 1-7.

RENDUR Á ERMI:
UMFERÐ 1: 1 þráður DE + 1 þráður ljós beige KS
UMFERÐ 2-3: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS
UMFERÐ 4: 1 þráður svartur + 1 þráður dökk brúnn KS
Endurtakið umf 1-4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklaðir eru 2 stórir ömmuferningar fyrir framstykki sem síðan eru lengdir að bakstykki. Heklaðið eru 4 ömmuferningar fyrir ermar sem síðan eru lengdir áður en þeir eru heklaðir saman 2 og 2 á upphandlegg. Að lokum er berustykkið heklað uppúr með st-hópum fram og til baka áður en öll stykkin eru hekluð saman.

HÆGRA FRAMSTYKKI + BAKSTYKKI:
Heklið 6 ll með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum brúnn Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um hringinn, 3 ll, 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúið við (= 4 st-hópar með 3 ll á milli hverra).
Heklið nú RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT þar sem haldið er áfram hringinn eftir útskýringum að neðan.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um fyrsta ll-boga, 3 ll, 3 st um saman ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúð við.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st-hópar um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúið við.
Haldið svona áfram hringinn fyrir hverja umf sem er hekluð verður 1 st-hóp fleiri á milli horna), þar til ferningurinn mælist ca 36-38-38-40-40-42 cm meðfram hvorri hlið (= ca 18-19-19-20-20-21 umf hringinn). Klippið frá og festið enda.
Nú er ferningurinn lengdur og heklaðir eru st-hópar fram og til baka meðfram annarri hlið ferningsins þannig (RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI halda áfram eins og áður – passið uppá að þegar 1 umf er eftir til loka er síðasta umf hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk):
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl um ll-boga í hornið á ferningnum, 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðasta ll-boga (= horn) og endið með 3 st um ll-boga í horni, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðasta ll-boga og endið með 3 st um síðasta ll-boga.
Endurtakið umf 2 þar til ferningurinn mælist ca 24-27-31-36-42-47 cm frá miðju og út (þ.e.a.s. 42-46-50-56-62-68 cm frá frá hlið að hlið mælið þar sem stykkið er breiðast). Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI + BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki.

Heklið ferningana 2 saman við miðju að aftan þannig að umf sem heklaðar voru fram og til baka mætast – sjá mynsturteikningu A.1. Heklið með 1 þræði með svartur Fabel + 1 þræði með dökk brúnn Kid-Silk þannig: Heklið 1 fl í síðasta st í horninu á öðrum ferningnum, 1 ll, 1 fl um ll-boga í horninu á hinum ferningnum, * 3 ll, 1 fl um ll-boga á fyrri ferningnum, 1 ll, 1 fl um ll-boga á seinni ferningnum *, endurtakið frá *-* og endið með 3 ll, 1 fl í st á fyrri ferningnum, 1 ll og 1 kl á seinni ferningnum.

ERMI:
Byrjið á sama hátt og hægra framstykki, nema frá og með umf 2 eru heklaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar 1 umf er eftir að ferningnum mælist 18-18-20-20-22-22 cm er síðasta umf hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk. Heklið nú fram og til baka meðfram annarri hlið á ferningnum á sama hátt eins og á bakstykki (rendur halda áfram eins og áður - stillið af þannig að 1 umf er eftir til loka og síðasta umf er hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk). Þegar ferningurinn mælist 24-24-26-26-28-28 cm þar sem hann er breiðastur, klippið frá og festið enda. Ermi að framan er nú tilbúin. Heklið nú annan hluta eins (= aftari hluti á ermi). Heklið nú ferningana 2 saman á upphandlegg eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2 – heklið þá saman á sama hátt og stykkið var heklað saman við miðju að aftan.

Heklið 2 ferninga með lengingu alveg eins og hin ermin og heklið þá saman á upphandlegg eins og útskýrt er að ofan.

BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki við miðju á öðru framstykkinu svo að það verða 21-23-25-28-31-34 cm frá miðju að aftan að prjónamerki og 21-23-25-28-31-34 cm frá prjónamerki að miðju að framan – prjónamerkið er sett á milli 2 st-hópa. Setjið prjónamerki á sama stað á hitt framstykkið. Nú eru ca 42-46-50-56-62-68 cm á milli 2 prjónamerkja á bakstykki og ca 21-23-25-28-31-34 st-hópar á milli prjónamerka. Heklið nú st-hópa fram og til baka á milli 2 prjónamerkja með 1 þræði af Delight + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk (= 2 þræðir – ATH: Heklað er með þessum 2 þráðum til loka) þannig: Heklið 1 kl um ll-boga milli 2 st-hópa, 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið með 3 st um ll-boga við prjónamerkið, snúið við.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (= 1 st + l ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið með 3 st um síðasta ll-boga, snúið við. Heklið svona fram og til baka þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá neðri kanti og upp (þ.e.a.s. stykkið mælist ca 22-22-24-24-26-26 cm þar sem bakstykki byrjar). Nú eru heklaðar 2 umf með st-hópum, fram og til baka yfir síðustu 16-18-20-22-24-26 cm frá annarri öxlinni (þ.e.a.s. ca 8-9-10-11-12-13 st-hópa). Klippið frá og heklið 2 umf með st-hópum yfir síðustu 16-18-20-22-24-26 cm frá hinni öxlinni (passið uppá að heklaðir eru jafnmargir st-hópar á báðum öxlum = ca 5-5-5-6-7-8 st-hópar fyrir miðju að aftan við hnakka). Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og að neðri kanti og 24-24-26-26-28-28 cm frá öxl og niður þar sem bakstykkið byrjar.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið st-hópa á sama hátt og fram og til baka yfir hægra framstykki, frá miðju að framan og fram að prjónamerki í hlið með 1 þræði af Delight + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk (= 2 þræðir – ATH: Heklað er með þessum 2 þráðum til loka). Þegar framstykkið er jafn langt og bakstykkið, er heklaður kantur við háls með st-hópum fram og til baka yfir þá st-hópa sem eftir eru við miðju að framan (ekki er heklað yfir st-hópa á öxl og hafið jafn marga st-hópa á öxl að framan og að aftan). Heklið fram og til baka þar til kanturinn við hálsinn mælist ca 7-7-7-8-9-10 cm, klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Heklið axlir saman eins og hin stykkin voru hekluð saman.
Saumið kant við hálsmál að aftan í hnakka án þess að sauma hann saman við miðju að aftan (svo að það verði opin klauf við miðju að aftan).
Heklið ermar í við handveg og heklið saman opið undir ermum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðan á báðum ermum og í kringum allt opið á peysunni með 1 þræði af svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið innst í horninu á kanti við hálsmál aftan við hnakka, heklið að framstykki, utan um alla peysuna og að horni á kanti við hálsmál aftan við hnakka í hinni hliðinni, með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk þannig: Heklið 1 kl í síðustu l í horni á kanti við hálsmál, 4 ll (= 1 st + 1 ll), heklið nú 3 st um hverja ll eða ll-boga og 1 ll milli hverra st-hópa, endið með 1 st í síðustu l yst í horninu á kanti við háls.
UMFERÐ 2: Heklið í kringum opið á allri peysunni (einnig meðfram vikinu aftan í hálsmáli): Heklið 1 kl í fyrstu l, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið með 4 ll og 1 kl í kl í byrjun umf.
Klippið frá og festið enda.

Heklið 1 lykkju/hneslu fyrir hnappagat ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður á vinstra framstykki (mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu). Heklið með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði Kid-Silk þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, 7 ll, 1 fl í sömu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölu í hægra framstykki.

Mynstur

symbols = heklstefna
symbols = upphandleggur
symbols = miðja að aftan
symbols = vinstra framstykki
symbols = hægra framstykki
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Edith wrote:

Ik kom nog even terug op de fout in dit patroon. Het grote oma- vierkant wordt voor 2/3 gebruikt voor het voorpand en voor 1/3 voor het achterpand. De eerste regel onder ACHTERPAND klopt echt niet: je moet de markeerder niet op de helft maar op een derde van de zijkant zetten. Zó sneu als mensen uw verkeerde instructie opvolgen en er dan pas achterkomen dat dit een te smal voorpand en een te breed achterpand bewerkstelligt!

15.12.2023 - 15:48

country flag Edith Hoekstra wrote:

In de eerste regel van HET ACHTERPAND staat dat je de markeerder op DE HELFT van het voorpand moet zetten om vanaf daar het achterpand te haken. Moet dit niet EEN DERDE zijn?

12.12.2023 - 10:48

DROPS Design answered:

Dag Edith,

De markeerders moeten in de zijnaad komen, zodat je vanaf midden voor tot de zijnaad en vanaf middenachter tot de zijnaad dezelfde lengte hebt.

13.12.2023 - 21:16

country flag Manoli wrote:

Los patrones para mi poco entender no son muy explicativos. Me gustaría si pudieran que me mandaran otros y foto parte trasera de la labor. Soy principiante. Un saludo. Gracias

27.09.2021 - 18:52

country flag Simonetta wrote:

Vorrei cortesemente avere spiegazioni più dettagliate sul davanti destro. Non capisco il centro davanti dov'è. Forse ho sbagliato tutto dalla inizio. Mi servirebbero spiegazioni più facili sui diagrammi. Grazie

16.04.2021 - 19:28

DROPS Design answered:

Buonasera Simonetta, per centro davanti si intende l'inizio del cardigan sul davanti. Buon lavoro!

17.04.2021 - 11:48

country flag Sarah wrote:

I am trying to work the neck edge, and it is all very confusing. Under the "Right front piece" section, it tells me to "work neck edge with dc-groups back and forth over the other dc-groups mid front". Am I working horizontally or vertically, and is the neck edge the dc-groups that will be left when I work the shoulders together, or is it the mid front, above where the button will eventually be? Thanks!

20.03.2020 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Sarah, when right front piece has been worked until height to shoulder (as on back piece), you will continue working only over the dc-groups towards mid-front (toward opening, not towards shoulder) as before until neck edge measures 7 to 10 cm. Happy crocheting!

20.03.2020 - 16:04

country flag Connie wrote:

Uhm, I can't download this. I do this everyday and it's not my fault.

16.09.2018 - 04:23

DROPS Design answered:

Dear Connie, our pattern can only be print, but you can use a virtual printer to save them as a .PDF file. Happy crocheting!

17.09.2018 - 08:59

Dalene wrote:

Is the neck edge (yoke) worked as one piece (i.e. from mid-front A around the neck to mid-front B)?

06.07.2018 - 16:08

DROPS Design answered:

Dear Dalene, back and each front pieces are worked separately from armholes to shoulders. Shawl collar is shaped working over the outermost sts towards front edge remaining after sts for shoulders. Happy crocheting!

09.07.2018 - 07:34

country flag Susan Sullivan wrote:

I love this pattern and possibly will be leading my crochet class through the construction as a class project. I have a suggestion that I think would help everyone a lot. If you would show additional shots of the garment - from the back - and then some detail shots of the areas like the armhole, seaming, neckline - the places where people always ask questions - it would so helpful. Thank you for all that you are now doing - your designs are lovely!

15.04.2018 - 22:37

country flag Canadinhas wrote:

Bonjour, ça fait combien de pelotes en tout car je voudrais le faire uni....? merci!

16.09.2017 - 17:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Canadinhas, en fonction de la qualité choisie, vous pourrez recalculer ici la quantité nécessaire pour votre taille. Bon crochet!

18.09.2017 - 09:14

country flag Wia wrote:

Schitterend vest.Jammer dat er geen foto van de achterkant bij zit.

05.06.2015 - 14:25