DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 96-3
DROPS Design: Mynstur nr Z-230
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500-550-600-700-750 gr nr 7139 grágrænn

--------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:
DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 –
eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með stroffi aðeins strekkt verði 10 cm á breidd.

DROPS HORNATALA NR 536: 4 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

--------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR (á við um mynstur á ermi):
Til þess að kaðallinn snúi í sömu átt allan tímann verður að prjóna M.1 á bakhlið á hægri ermi og á framhlið á vinstri ermi gagnstætt við það sem stendur í mynsturteikningu.
Þ.e.a.s. Það stendur að setja eigi lykkjurnar á hjálparprjón framan við stykkið, þá verður að setja aftan við og þegar stendur að setja eigi lykkjurnar aftan við, verður að setja þær að framan. Ef þetta er ekki gert þá kemur kaðallinn að snúa gagnstætt á þessum tveimur stöðum.

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

----------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð á lengdina. Byrjað er við miðju framan á hægra framstykki, prjónið að hlið, setjið lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið síðan yfir bakstykki fram að hinni hliðinni, setjið lykkjur á band fyrir ermi, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið fram að miðju að framan á vinstra framstykki.

PEYSA:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-94-98-102-106 lykkjur með 2 þráðum á prjón 4,5. Prjónið þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja sem er prjónuð slétt í öllum umferðum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* yfir 12 lykkjur, M.1 (= 8 lykkjur), * 2 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju sem er prjónuð slétt í öllum umferðum.
Prjónið svona þar til stykkið mælist 16-16-18-18-20 cm, fitjið nú upp 12-12-14-14-16 nýjar lykkjur efst á öxl – þær eru síðan prjónaðar brugðnar (séð frá réttu) með 1 kantlykkju yst = 102-106-112-116-122 lykkjur. Síðan eiga þessar nýju lykkjur að fækka aftur inn þannig að það myndast fleygur á öxlinni til að flíkin passi betur. JAFNFRAMT eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar áfram eins og áður eru 2 ystu brugðnu lykkjurnar á hvorri hlið við fleyginn prjónaðar saman í 8. hverri umferð 6-6-7-7-8 sinnum, þar til 2 lykkjur brugðnar eru eftir. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-31-34-37-41 cm er einungis prjónað yfir neðstu 57-57-61-61-65 lykkjurnar – aðrar lykkjur eru settar á 1 band fyrir ermi. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki (= hægri hlið), prjónið 1 cm til viðbótar. Fitjið nú upp 33-37-37-41-41 nýjar lykkjur yfir þær sem sitja á 1 band fyrir ermi = 90-94-98-102-106 lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-47-51-57-63 cm frá prjónamerki í hlið og einungis eru prjónaðar neðstu 57-57-61-61-65 lykkjurnar – setjið þær lykkjur sem eftir eru á 1 band fyrir ermi. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki (= vinstri hlið), prjónið 1 cm til viðbótar. Fitjið síðan upp 37-41-41-45-45 lykkjur yfir lykkjur sem sitja á bandi fyrir ermi = 94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan frá öxl þannig: 1 kantlykkja, 4 lykkjur brugðnar, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* yfir 12 lykkjur, M.1 (= 8 lykkjur), * 2 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram – jafnframt er aukið út fyrir fleyg á öxl með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju brugðna á öxl í 8. hverri umferð 6-6-7-7-8 sinnum (=12-12-14-14-16 lykkjur fleiri) = 102-106-112-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-16-17-20-22 cm frá prjónamerki á vinstri hlið eru felldar af efstu 12-12-14-14-16 lykkjur brugðnar fyrir hálsmáli = 90-94-98-102-106 lykkjur. Prjónið síðan mynstur – JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum efst frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 9 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið út umferðina. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af. Haldið áfram með mynstur. Fellið af fyrir 2 nýjum hnappagötum alveg eins og þegar stykkið mælist 28-30-33-36-40 cm frá prjónamerki á vinstri hlið. Prjónið 2 cm til viðbótar, fellið af allar lykkjur.

HÆGRI ERMI:
Setjið lykkjur af bandi yfir ermi á framstykki á hægri hlið á sokkaprjón 4,5.
Takið upp 6 lykkjur mitt undir ermi og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af lykkjum sem fitjaðar voru upp yfir ermi á bakstykki. Prjónið mynstur eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR – með 6 lykkjum brugðnum mitt undir. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað til loka fyrir fleyg mitt ofan á ermi og 6 lykkjur brugðnar mitt undir ermi eru fækkaðar í 2 lykkjur brugðnar með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman í öðrum hverjum cm 4 sinnum = 70-78-78-86-86 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 65-66-66-67-67 cm frá hálsmáli. Fellið af.

VINSTRI ERMI:
Setjið lykkjur af bandi yfir ermi á bakstykki á vinstri hlið á sokkaprjón 4,5. Takið upp 1 lykkju í hverja og eina af lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi á framstykki og takið upp 6 lykkjur mitt undir ermi. Prjónið eins og hægri ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið niður fleyg á öxlum að bakstykki. Leggið vinstra framstykki yfir hægra – leggið stykkin þannig að þau verði aðeins á ská, ca 3-4 cm frá hálsmáli – saumið tölur í þannig að þær passi við hnappagötin.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.08.2018
Uppskriftin hefur verið skrifuð uppá nýtt til að auðvelda hana

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = flíkin er prjónuð í eitt stykki. Örvar sýna prjónstefnu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 96-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (128)

country flag Roos wrote:

Speels Lijkt me een leuke naam

14.04.2024 - 18:49

country flag Roos wrote:

Speels Lijkt me een leuke naam

14.04.2024 - 18:47

country flag Ma Tbs wrote:

Bonjour, Je viens de mettre en attente les mailles pour la 1e manche (droite) et de remonter les 37m (taille M) au-dessus de celles en attente (soit 94m au total actuellement). Que dois-je comprendre par "continuer comme avant" ? Faut-il reprendre M1 à partir de la 14e maille (si torsade dans le dos) ? Ou faut-il reprendre simplement avec 1 m lisière puis côtes 2/2 (sans faire M1) ? Merci d'avance pour vos explications. Cordialement

04.02.2024 - 18:00

country flag Florence wrote:

Bonjour, je trouve ce modèle fort joli. Malheureusement les explications manquent beaucoup de clarté. Je pense que je vais avoir besoin d'explications supplémentaires.

08.03.2023 - 13:30

country flag Marion TREBOS wrote:

Bonjour, J'ai du mal à comprendre l'astuce qui est expliquée et du coup ce qu'il faut faire au niveau des manches. Les torsades du "buste" ne vont pas dans le même sens que celles des manches ? Je suis preneuse d'explications plus précises... Merci pour vos éclaircissements! Cordialement, Marion

20.10.2022 - 21:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Trebos, pour que la torsade continue sur la manche droite, vous tricotez celle côté devant comme avant, mais celle du côté dos en sens inverse (car elle a été faite du devant droit vers le devant gauche), autrement dit côté dos, tricotez la torsade en mettant d'abord 2m derrière puis 2 m devant pour la 2ème torsade; pour la manche gauche, ce sera pareil mais cette fois vous continuerez celle du côté dos et tricoterez celle côté devant en sens inverse. Bon tricot!

21.10.2022 - 09:30

country flag Diny Kelder wrote:

Ik heb het vest gebreid en het is echt prachtig geworden. Nu viel mij op dat er bij staat dat het links over rechts sluit, maar dan is het toch een herensluiting? Of geld dat tegenwoordig niet meer? In ieder geval bedankt voor het mooie patroon. Hartelijke groet, Diny

07.10.2021 - 11:02

country flag Diny Kelder wrote:

Bij het minderen van de spie moet ik iedere 8e naald dan 2 steken per keer minderen? Is mij niet helemaal duidelijk. Diny

28.03.2021 - 22:38

DROPS Design answered:

Dag Diny,

Ja, dat klopt; je mindert iedere 8e naald 2 averechte steken.

03.04.2021 - 11:28

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, credo ci sia un errore nelle spiegazioni, oppure sono io che non capisco. Le spiegazioni del primo ferro dicono di fare 2 dritti e 2 rovesci per 12 maglie, poi lavorare la treccia, e poi ripartire con 2 dritti e 2 rovesci. Ma, guardando la foto, per far risaltare la treccia, dopo aver lavorato le 8 maglie dello schema M1 bisognerebbe ripartire con 2 rovesci e non 2 dritti, finendo poi il ferro con 2 dritti. È corretto? Grazie.

13.12.2020 - 22:15

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, abbiamo inoltrato la sua segnalazione al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni verranno effettuate direttamente online. Buon lavoro!

16.12.2020 - 22:25

country flag Cathrine Säll wrote:

Jag tolkar att M1 flätan återkommer vart 8:de varv enligt mönstret. Men när jag stickar så ser det mycket glesare ut än på mönstrets foto. Använder stl 4 på stickorna för att hålla stickfastheten, kan det vara orsaken till skillnaden?

23.11.2020 - 11:44

DROPS Design answered:

Hei Cathrine. Nei, det vil jeg ikke mene. Men prøv å stramme tråden når du strikker flettene, mulig det vil hjelpe. mvh DROPS design

24.11.2020 - 14:09

country flag Eulalia-Frederike wrote:

Hallo, ich habe heute mit der Jacke begonnen und mir stellt sich nun folgendes Problem: wenn ich in der ersten Reihe nach 13 Maschen das Muster stricke, ist der Zopfstreifen doch im unteren Jackenbereich, wenn ich die Zeichnung mit der Strickrichtung richtig verstehe. Anders wäre es, wenn nach dem Maschenanschlag erst einmal eine Reihe Rippenmuster oder glatt rechts gestrickt werden würde. Wo ist mein Fehler? Danke und sonnige Grüße aus Berlin

25.02.2019 - 13:27

DROPS Design answered:

Liebe Eulalia-Frederike, die Jacke wird mit dem rechten Vorderteil angefangen, die Skizze zeigt die Arbeit von der Innenseite (das Teil mit dem Stern wird dan über dem Rückenteil (am Armloch) gefaltet. Schauen Sie mal das Foto: Rechtes Vorderteil beginnt oben (am Hals) bis zur unteren Kante, deshalb beginnt man mit M.1 oben. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2019 - 08:42