Perfectly Provence Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, V-hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkað er um 4 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið síðan úrtöku við merkiþráðinn í hinni hliðinni. ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6 kantlykkjur að framan eins og áður (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 4 lykkjur í umferð með því að auka út hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 10 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: RÉTTA: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, prjónið uppsláttinn og síðustu lykkju slétt saman. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN. RÉTTA: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. RANGA: Prjónið fyrstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 6 lykkjur): UMFERÐ 1: Prjónið 2 fyrstu kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3. Og 4. Kantlykkjur að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 10, 18, 26 og 33 cm M: 2, 10, 18, 26 og 34 cm L: 3, 11, 19, 27 og 35 cm XL: 3, 11, 19, 27 og 36 cm XXL: 3, 11, 20, 28 og 37 cm XXXL: 3, 12, 21, 30 og 38 cm (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli framstykkis og V-hálsmáls). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Saumið axlasauma. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er ermakúpan prjónuð fram og til baka, síðan eru ermar prjónaðar niður á við á hringprjóna / sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 183-199-211-227-247-267 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROP Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN – lesið útskýringu að ofan, prjónið A.1 alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, prjónið A.2, prjónið 18-22-17-21-18-23 lykkjur sléttprjón, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið 18-22-17-21-18-23 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 5-5-7-7-9-9 sinnum, prjónið A.2, prjónið 18-22-17-21-18-23 lykkjur sléttprjón, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið 18-22-17-21-18-23 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, prjónið A.2, prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN. Haldið svona áfram með mynstur og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar lykkjum er fækkað og aukið út í hliðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan! Þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið um 2 lykkjur við hvorn merkiþráð – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 5,5 cm alls 4 sinnum = 167-183-195-211-231-251 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28 cm, aukið út 2 lykkjur við hvorn merkiþráð – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út á sama hátt þegar stykkið mælist 32-32-33-33-34-34 cm = 175-191-203-219-239-259 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið hægri kant að framan eins og áður, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið næstu lykkju eins og fyrsta lykkja í A.3 (í umferð 5 er lykkjan prjónuð slétt), prjónið vinstri kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 34-35-36-37-38-39 cm. Stykkið skiptist nú fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið hægri kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 2-2-3-6-9-12 lykkjur á undan fyrri merkiþræði (= hægra framstykki ásamt kanti að framan), fellið af 4-4-6-12-18-24 lykkjur fyrir handveg, prjónið 77-85-89-91-95-99 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af 4-4-6-12-18-24 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið vinstri kant að framan eins og áður (= vinstra framstykki ásamt kanti að framan). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 45-49-51-52-54-56 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón fram og til baka og prjónið kant að framan eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli – lestu ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum í lok annarrar hverrar umferðar þannig: Fækkið um 1 lykkju alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju alls 4-4-4-4-4-4 sinnum = 33-37-38-39-40-42 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – endið með umferð frá röngu. Í næstu umferð (= rétta) eru felldar af fyrstu 27-31-32-33-34-36 lykkjur fyrir öxl = 6 kantlykkjur að framan eftir í umferð. Prjónið fram og til baka yfir kant að framan eins og áður í 8-8-8-8-9-9 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 45-49-51-52-54-56 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón fram og til baka og prjónið kant að framan eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli – lestu ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum í byrjun annarrar hverrar umferðar þannig: Fækkið um 1 lykkju alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju alls 4-4-4-4-4-4 sinnum = 33-37-38-39-40-42 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – endið með umferð frá röngu. Í næstu umferð (= ranga) eru felldar af fyrstu 27-31-32-33-34-36 lykkjur fyrir öxl = 6 kantlykkjur að framan eftir í umferð. Prjónið fram og til baka yfir kant að framan eins og áður í 8-8-8-8-9-9 cm, fellið af. BAKSTYKKI: = 77-85-89-91-95-99 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun næstu umferðar frá hálsmáli = 27-31-32-33-34-36 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður á við á hringprjón 5. Frá réttu eru prjónaðar upp 62-64-68-72-74-78 lykkjur meðfram handvegi – byrjið í horni í botni á handvegi og prjónið fram að horni í botni á handvegi í hinni hliðinni. Setjið 2 merki mitt í umferð = mitt ofan á öxl – ermin núna mælt frá þessu merki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-4-5-7 cm, þetta mál passar við handveg á fram- og bakstykki. Nú er prjónað í sléttprjóni í hring JAFNFRAMT er settur 1 merkiþráður í byrjun umferðar (= mitt undir ermi – hér byrjar umferðin), látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn á að nota þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 4-4-4-6-7-9 cm frá merki, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-4-3½-3-3-2½ cm alls 9-9-10-11-11-12 lykkjur = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-40-40-40-40 cm frá merki. Prjónið A.3 í kringum ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 45-43-43-43-43-43 cm frá merki. FRÁGANGUR-2: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið affellingarkantinn saman við kantlykkjur að framan mitt að aftan og látið sauminn snúa inn að röngu á stykkinu. Saumið kantinn við hálsmál aftan í hnakka. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Annie Puigrenier wrote:
Merci pour votre aide . Cordialement
05.03.2024 - 00:01Bing wrote:
Annie, you have to knit both bands (Left & right) too.
03.03.2024 - 06:03Puigrenier Annie wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas la répartition s des motifs pour démarrer mon tricot . Je fais la taille S. je démarre donc avec 183 mailles mais je n’arrive pas à placer tous les motifs , il me reste des mailles Bordure 5 + (2x A1)= 16, + A2 =9 + 18 jersey+ (5x A1)= 40,+A2= 9 + 18 jersey, +18 jersey ,+(2x A1) = 16,+A2= 9, + bordure 5. Merci à vous Cordialement Annie
03.03.2024 - 03:19DROPS Design answered:
Bonjour Annie, la bordure devant se tricote sur 6 mailles (5 m point mousse, 1 jeté, 1 m point mousse en début de rang et 5 m point mousse, 1 jeté, 1 m point mousse en fin de rang), vous aurez ainsi: 6+16+9+18+18+40+9+18+18+16+9+6=183 mailles. Bon tricot!
04.03.2024 - 08:52Lajla wrote:
Är koftan på bilden stickad i kidsilk eller brushed alpaca silk?
28.02.2024 - 17:05DROPS Design answered:
Hei Laila. Den er strikket med 2 tråder DROPS Kid-Silk. mvh DROPS Design
04.03.2024 - 13:09Viviana wrote:
Angelic breath
20.01.2024 - 15:17Paulina wrote:
Cornflower Nostalgia
20.01.2024 - 08:13Angelique wrote:
Lavander ice cream
19.01.2024 - 04:07Marlies Van Dijk wrote:
Koele zomeravond
18.01.2024 - 21:53