DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mint Romance

Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 249-12
DROPS Design: Mynstur da-009
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-750-800-900 g litur 08, pistasíuís

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

I-CORD:
FYRSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
SÍÐUSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR:
Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem lykkjum er aukið út hvoru megin á stykkið þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni.
Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið.
Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna.
Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 35-35-37-37-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy.
UMFERÐ 1 (= ranga):
Prjónið brugðið,
UMFERÐ 2 (= rétta):
Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga):
Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur brugðið.
Síðan er prjónuð UMFERÐ 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 30-35-39-39-43-48 sinnum í hvorir hlið, á eftir síðustu útaukningu eru = 95-105-115-115-125-135 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt!
Prjónið síðan í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – þar til stykkið mælist 2-3-4-4-4-5 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi.
Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 0-1-1-1-0-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-1-2-2-2-1 lykkjur í umferð, prjónið 0-0-1-1-0-0 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið A.2C, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT þegar eftir eru 6-6-6-10-10-10 umferðir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stykkið mælist ca 12-13-14-13-13-14 cm frá merki.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið mynstur eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-5-5-5 sinnum (= 6-6-6-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 101-111-121-125-135-145 lykkjur á prjóni.
Á eftir síðustu umferð frá röngu mælist stykkið ca 13-14-15-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram öxl – lesið útskýringu að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Legið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snýr að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-35-39-39-43-48 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-39-43-43-47-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu).
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram hægri öxl – lesið útskýringu að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-35-39-39-43-48 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-12-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-39-43-43-47-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu).
Síðan eru framstykkin sett saman – lestu því leiðbeiningar að neðan.

FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki saman):
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 34-39-43-43-47-52 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 34-39-43-43-47-52 lykkjur frá vinstra framstykki = 95-105-115-115-125-135 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-15-16-18-18 cm.
Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 0-1-1-1-0-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 1-1-2-2-2-1 lykkjur í umferð, prjónið 0-0-1-1-0-0 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B alls 9-10-11-11-12-13 sinnum, prjónið A.2C, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT þegar eftir eru 6-6-6-10-10-10 umferðir í A.2 og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stykkið mælist ca 23-24-25-23-25-26 cm.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta):
Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið mynstur eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-5-5-5 sinnum (= 6-6-6-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 101-111-121-125-135-145 lykkjur í umferð.
Á eftir síðustu umferð frá röngu mælist stykkið ca 25-26-27-27-29-30 cm. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Stykkið er mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 101-111-121-125-135-145 lykkjur frá framstykki eins og fyrsta umferð í A.3, fitjið upp 4-4-4-10-10-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur), prjónið síðan 101-111-121-125-135-145 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4-4-4-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur) = 210-230-250-270-290-310 lykkjur í umferð.
Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram að fyrri merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónið mynstur þannig:

A.3:
Prjónið A.3 alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-231-252-270-291-312 lykkjur.

A.1:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-230-250-270-290-310 lykkjur.

A.2B:
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2B alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og baksykki.

A.3:
Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 21-23-25-27-29-31 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-231-252-270-291-312 lykkjur.

A.1:
Þegar A.3 hefur veirð prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 210-230-250-270-290-310 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 28-29-29-31-31-31 cm, mælt frá handvegi.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki í smá stund og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka – lesið útskýringu að neðan.

FRAMSTYKKI:
= 105-115-125-135-145-155 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 33-39-41-43-45-55 lykkjur jafnt yfir í umferð = 138-154-166-178-190-210 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á prjón 3, prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur I-cord.
Þegar stroffið mælist 8-8-9-9-9-10 cm, fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 80-84-88-98-102-106 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10-10-11-11-12-13 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10-10-11-11-12-13 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-5-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-5-4-4-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við 6-6-6-8-8-10 sinnum í hvorri hlið.
Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Áfram er prjónað í hring í sléttprjóni og mynstur yfir allar lykkjur jafnframt því sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið kaflann að neðan og prjónið þannig:
ÚRTAKA:
Þegar ermin mælist 2 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-5-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-4½-3½-3-2½-2 cm alls 8-8-9-10-11-12 sinnum = 60-64-66-68-70-72 lykkjur í umferð.
MYNSTUR:
Þegar ermin mælist 9-9-8-8-8-8 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (mælt frá öxl mitt ofan á ermi), prjónið mynstur þannig: * Prjónið A.1 hringinn á ermi eins langt og hægt er fram að merkiþræði mitt undir ermi (lykkjur sem e.t.v. ganga ekki upp í mynstri á undan merkiþræði eru prjónaðar í sléttprjóni), prjónið 9-9-8-8-8-7 cm sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum á hæðina, eftir það er prjónað A.1 hringinn á ermi 1 sinni til viðbótar (= alls 4 gataumferðir á erminni hringinn).
Prjónið sléttprjón áfram þar til ermin mælist 43-42-40-40-39-37 cmfrá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-10-12-14-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-76-80-84-88 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 8-8-9-9-9-10 cm, fellið af. Ermin mælist ca 51-50-49-49-48-47 cm frá miðju ofan á öxl.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna, prjónið upp ca 116-116-120-124-128-128 lykkjur innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af aðeins laust.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.03.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á gatamynstri á ermum - í öllum stærðum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það á að myndast gat)

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Lila Matz wrote:

Hallo liebes drops Team!\r\nIn welchem Reihenabstand, werden bei den Ärmeln, die Lochreihen gestrickt?\r\nVielen Dank \r\nMartina

22.03.2024 - 20:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Matz, A.1 stricken Sie das erste Mal wenn die Ärmel 9 bzw 8 cm misst (siehe Größe), dann stricken Sie jeweils 9-9-8-8-8-7 cm glatt rechts zwischen jedem A.1 - siehe Abschnitt MUSTER. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 08:10

country flag Katie wrote:

Hi, I have some confusion about when to start A.1 on the front piece. For size M both front sides are worked for 11 cm, then 8 rows of increases are done, which by the gauge will get the piece to about 14cm. Then once you join the two front pieces it says to work until it measures 15cm then start A.1. which would mean only another 3 rows. However, in the photo it looks like there’s quite a few more rows between the joining of the front pieces and the beginning of the pattern. Why is that?

19.03.2024 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Katie, to get the pattern working on both front and back piece when working them together, you will have to start A.1 after 15 cm in size M; depending on your tension in height you might need more or less row, measure these 15 cm along armhole, from where stitches were picked up for one of the shoulders. Happy knitting!

20.03.2024 - 08:07

country flag Beata wrote:

Dlaczego w opisie rękawa brakuje zaznaczenia, że można go robić z wykorzystaniem A1 (tak jest w,sweterku na zdjęciu)? Mniej więcej, co ile centymetrów należy go robić?

05.03.2024 - 01:24

DROPS Design answered:

Witaj Beato, rzeczywiście ta informacja została pominięta. Korekta już została zgłoszona i wkrótce zostanie naniesiona. Prosimy o chwilkę cierpliwości. Pozdrawiamy!

05.03.2024 - 15:55

country flag Eveli wrote:

Mint'n'honey

21.01.2024 - 14:23

country flag Aurore wrote:

Tilleul

20.01.2024 - 14:52

country flag Lynda Kuit wrote:

Wings of Spring

19.01.2024 - 10:02

country flag Angelique wrote:

Dram come true

19.01.2024 - 04:04

country flag Beate Junker wrote:

Luftige Struktur

18.01.2024 - 19:50

country flag Fleur wrote:

Lovers dream jumper

18.01.2024 - 18:46

country flag Sarinna wrote:

Looks a lot like Fabled Harbor design, so new name: Fabled Gateway

18.01.2024 - 18:43