DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ballerina's Dream

Prjónuð vafningspeysa / peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með vafningi, I-cord, ísettum ermum og bandi um mittið. Stærð S - XXXL.

DROPS 248-2
DROPS Design: Mynstur ai-480
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

I-CORD (kantur að framan):
FYRSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af þræði eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
SÍÐUSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

I-CORD AFFELLING (ermi):
Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð:
Fitjið upp 4 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund.
Lyftið 4 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 4 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 4 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord.

I-CORD AFFELLING (kantur í hálsmáli):
Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund.
Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.

I-CORD (band í mitti)
Lyftið 6 lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 6 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 6 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 6 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, herðið á þræði, prjónið 6 lykkjur slétt.
Endurtakið UMFERÐ 2 að réttu máli. Fellið af.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 4 ystu lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (handvegur og hálsmál aftan í hnakka):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (úrtaka í vafningsstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur I-cord eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur I-cord eins og áður (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring og prjónað er ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hálsmáli aftan í hnakka, síðan er prjónaður kantur í hálsmáli í I-cord. Í lokin eru prjónuð 2 bönd með I-cord sem saumuð eru við fram- og bakstykki. Öll mál á lengdina eru tekin frá uppfitjunarkanti.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 65-69-77-83-93-101 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem fækkað er um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-62-68-74-82-90 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm, er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm = 62-66-72-78-86-94 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu 2 umferða = 56-60-66-70-76-82 lykkjur.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA-1.
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 52-54-58-60-62-66 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 10-12-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-1 = 20-20-22-23-23-25 lykkjur á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 48-50-56-62-66-74 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið), þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 2 lykkjur I-cord við miðju að framan og 1 lykkju í garðaprjóni að hlið jafnframt því sem fækkað er um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 42-44-50-54-58-64 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur).

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Síðan er lykkjum fækkað í vafningsstykki, aukið út í hliðum og fellt af í handvegi. Lestu því kaflann ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI, ÚTAUKNING Í HLIÐ og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm, fækkið um 1 lykkju innan við I-cord lykkjur – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-13-14-15-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 10-10-8-8-8-8 sinnum (= 17-18-21-22-23-25 lykkjur færri).
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm (= 2 lykkjur fleiri).
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun fyrstu umferðar frá röngu. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir úrtöku og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum.

Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 22-22-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= 2 lykkjur fleiri en á öxl á bakstykki). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 48-50-56-62-66-74 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið og 2 lykkjur I-cord við miðju að framan jafnframt því sem fækkað er um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 42-44-50-54-58-64 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur).

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Síðan er lykkjum fækkað í vafningsstykki, aukið út í hliðum og fellt af í handvegi. Lestu því kaflann ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI, ÚTAUKNING Í HLIÐ og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

ÚRTAKA Í VAFNINGSSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm, fækkið um 1 lykkju innan við I-cord lykkjur – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-8-13-14-15-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 10-10-8-8-8-8 sinnum (= 17-18-21-22-23-25 lykkjur færri).
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Jafnframt þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm (= 2 lykkjur fleiri).
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun fyrstu umferðar frá réttu. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir úrtöku og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum.

Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 22-22-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= 2 lykkjur fleiri en á öxl á bakstykki). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af.

ERMAR:
Fitjið upp 24-26-26-24-24-22 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og í lokin 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni = 50-52-56-58-62-64 lykkjur. Ermin mælist ca 7-7-8-9-11-12 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú er stykkið sett saman og ermin er síðan prjónuð í hring í sléttprjóni. Setjið 1 merkiþráði í byrjun umferðar (= mitt undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Þegar ermin mælist 9-9-10-11-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 11-11-12-13-15-16 cm = 46-48-52-54-58-60 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 51 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum og fækkið jafnframt um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN:
Notið hringprjón 7 og prjónið upp frá réttu ca 24-26-26-26-28-28 lykkjur meðfram hálsmáli á bakstykki. Klippið þráðinn. Fellið síðan af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn, byrjið sauminn yst við handveg og saumið lykkju í lykkju inn við hálsmál, í lokin eru saumaðar 2 síðustu lykkjur frá framstykki við I-cord kanta frá bakstykki.
Saumið hliðarsaum, saumið innan við 1 lykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir op ca 3 cm til að þræða band til að hnýta stykkið saman í gegnum hægri hlið á stykki, ca 10-10-11-11-12-12 cm upp frá uppfitjunarkanti. Saumið ermar í innan við 1 lykkju í garðaprjóni meðfram handvegi.

BAND:
Fitjið upp 6 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið I-CORD – lesið útskýringu að ofan í 100-110-120-130-140-150 cm – eða óskaðri lengd. Fellið af. Prjónið annað band á sama hátt.
Saumið hvort bandið í röngu á hvoru framstykki í skiptinguna á milli sléttprjóns og I-cord, ca 10-10-11-11-12-12 cm upp frá uppfitjunarkanti.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Renate Holden Søgaard wrote:

Økingene på ermene går ikke opp, strikker str S og får ikke tallet til å bli 50. Er det feil i oppskriften?

26.03.2024 - 15:02

DROPS Design answered:

Hej Renate, du starter med 24 masker, legger opp 3+3+2+2+3=13x2 (da det er i begge sider) =26 = totalt 50 masker :)

05.04.2024 - 08:59

country flag Jennifer Raymont wrote:

Hi, just wanted to double check the sleeves are meant to be knitted in 5.5 mm circle needles as opposed to 7mm as I would’ve thought this would make more sense as the body is mainly knitted on 7mm. Some of my measurements in the sleeve have been slightly off but for the body my knitting tension matched the measurements on the pattern. Is this intentional or a mistake in the pattern?

04.03.2024 - 16:29

DROPS Design answered:

Hi Jennifer, The sleeves are worked with needle size 7 mm, top down. Happy knitting!

05.03.2024 - 08:21

country flag Cornélie wrote:

Hallo ! Leider lassen sich die Seiten 4-6 der deutschen Anleitung nicht ausdrucken Bitte um Überprüfen

20.02.2024 - 06:55

DROPS Design answered:

Liebe Cornelie, wir konnten alle Seite ausdrucken, schauen Sie mal die Druckereinstellungen, vielleicht wurden vorigen Einstellungen gespeichert. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2024 - 08:21

country flag Tina Burgdorff wrote:

Sød trøje, men havde jeg vidt den blev strikket nedefra, havde den ikke fået min stemme

06.02.2024 - 07:31

country flag Luise wrote:

Spring Bolero

22.01.2024 - 10:16

country flag Ma Boule De Crochet wrote:

Ballerine

21.01.2024 - 22:29

country flag Hanna wrote:

First days of spring

21.01.2024 - 16:04

country flag Maria wrote:

Name suggestion: Wrap me up top

20.01.2024 - 17:33

country flag Sara wrote:

Caché cœur nuage

20.01.2024 - 10:11

country flag Paulina Krol wrote:

Summer breeze

20.01.2024 - 08:10