DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cherry Soda

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og blöðruermum. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 47-9
DROPS Design: Mynstur ai-050-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-200-250-250 g litur 39, magenta

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Það er aukin út 1 lykkja hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna og ermar er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 54-54-58-62-64-68 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 með DROPS Air. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-16 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-68-72-84 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, héðan er nú stykkið mælt.
Nú eru sett 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 merkiþráð eftir 21-21-23-25-25-31 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merkiþráð eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð eftir 21-21-23-25-25-31 lykkjur (framstykki), það eru eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur að fyrsta merkiþræði (ermi).
Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Prjónið næstu umferð þannig:
Umferðin byrjar við fyrsta merkiþráð, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-17 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan).
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 164-172-184-196-208-220 lykkjur. Haldið áfram án útaukninga, þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki.

Nú er berustykkinu skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar, byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði í byrjun umferðar. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig og héðan er nú mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 106-110-118-130-134-146 lykkjur.
Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-14-17-20-23-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 114-120-128-140-144-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragi stykkið saman, er hægt að fella af með prjónum 5,5.
Peysan mælist 33-36-40-44-48-52 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 5,5 = 33-35-37-39-43-43 lykkjur. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-39-41-45-49-49 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur og byrjið umferð hér.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælis 2 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 2.-2½.-3.-4.-5.-6. hverjum cm alls 8-8-8-7-6-6 sinnum = 53-55-57-59-61-61 lykkjur. Prjónið slétt þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-3-1-3-1-1 lykkjur = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og prjónið allar lykkjur saman 2 og 2 = 26-26-28-28-30-30 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn dragi stykkið saman, er hægt að fella af með prjónum 5,5. Ermin mælist 21-25-29-33-37-41 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Cathrine wrote:

Hei, Er det en oppskrift som ligner denne til voksen? Datteren min har en og jeg vil gjerne ha en lik

19.03.2024 - 15:16

DROPS Design answered:

Hej Cathrine, ja her finder du samme type af model: dame - ovenfra og ned - Rundt bærestykke - DROPS Air

19.03.2024 - 15:22

country flag Liza wrote:

Hi! I‘m knitting this sweater for my 8-year old sister, wearing a European size 146/152. I‘m using Drops Air knitting with 5.5 needles. However, this sweater turned out so so big, even too big for me, a women’s size S. I am unsure which size to take for my sister? Please help me!

16.03.2024 - 11:32

DROPS Design answered:

Dear Lisa, we suggest that you take an existing piece (sweater in this case) that has a similar style you want to knit and compare its measurements to those that are given on the shcematic drawing at the bottom of the piece, and make sure you do keep the knitting tension. Happy Knitting!

17.03.2024 - 10:39

country flag Caroline wrote:

Hei! Finnes denne genseren til voksen?

10.02.2024 - 20:11

country flag Cathrine Søftestad wrote:

Hei! I oppskriften står det at en skal øke i bunnen av bolen før vrangbord, kan det stemme? Ville jo være naturlig å tenke at det skal felles noen masker før vrangbord.

01.02.2024 - 06:57

DROPS Design answered:

Hei Cathrine, Vi anbefaler å øke masker før vrangborden, slik at den ikke blir stram. God fornøyelse!

02.02.2024 - 08:10

country flag Pia wrote:

På fram/bakstycket, ökar man maskor precis innan resår eller direkt efter delningen? /pia

31.01.2024 - 16:44

DROPS Design answered:

Hei Pia. Rett før vrangborden. Strikk til arbeidet måler 12-14-17-20-23-26 cm etter delingen. Strikk 1 omgang rett der det økes 8-10-10-10-10-10 masker jevnt fordelt = 114-120-128-140-144-156 masker. Bytt til rundpinne 4,5 og strikk vrangbord (1 rett / 1 vrang) i 4 cm. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 10:58

country flag Annabelle wrote:

Me again! I am presuming that for the sleeves where it says ‘increase like this every 5 a total of 6 times’ it means every 5cm?

07.01.2024 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Annabelle, yes, it's a typo; it should be every 5cm. Happy knitting!

08.01.2024 - 00:39

country flag Julia wrote:

Hallo, Ich habe eine Frage zur ZUNAHME unter dem Arm. In der Anleitung steht 4 M unter dem Arm zunehmen, in der Erklärung am Anfang ist eine Beschreibung , wie man 2 M zunimmt. Wie bekomme ich die anderen 2 M zugenommen? Vielen Dank!

30.12.2023 - 10:27

DROPS Design answered:

Liebe Julia, meinen Sie die 4 aufgefassenen Maschen am Anfang vom Ärmel? Die werden wie beim Foto 18B in dieser Lektion aufgefassen, dann wird man 2 Maschen genauso wie unter ZUNAHMETIPP (gilt für die untere Ärmelmitte): zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 10:39

country flag Annabelle wrote:

Just realised the tension square must be on the larger (5.5) needles. Correct?

30.12.2023 - 08:52

DROPS Design answered:

Hi Annabelle ! Yes, the tension square is always worked with the "main" needles/hook, i.e. the ones used for the body of the sweater. Happy knitting!

30.12.2023 - 09:21

country flag Annabelle wrote:

Can you confirm that the tension square is to be knitted with the smaller of the two needle sizes, ie 4.5?

29.12.2023 - 23:26

country flag Annabelle Mottram wrote:

Hello, my granddaughter has chosen this pattern but it needs to be knitted in machine washable yarn so the lovely looking drops air would, I guess, not be suitable. I note that to knit it in big merino requires double to amount of yarn which makes it much more costly. Am I right? I want to knit it for 9/10 year old size.

05.12.2023 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mottram, use the yarn converter to get the new amount of yarn in all alternatives, including Big Merino. Happy knitting!

06.12.2023 - 08:06