DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lines in the Sand

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 246-12
DROPS Design: Mynstur x-488
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
850-950-1050-1150-1250-1350 g litur 69, perluhvítur

Eða notið:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
800-900-1000-1100-1200-1300 g litur 19, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón (1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman / brugðið saman sem fer eftir mynstri, merkiþráður, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman / 2 lykkjur snúnar brugðið saman sem fer eftir mynstri (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli.
Axlasaumar eru saumaðir saman. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handvegi og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 196-212-224-248-272-296 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 28-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn á fram- og bakstykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið A.2 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 168-180-192-213-231-252 lykkjur.
Í síðustu umferð í A.2 er aukið út 0-4-0-3-1-4 lykkjur jafnt yfir = 168-184-192-216-232-256 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli. Nú er A.3 prjónað hringinn á fram- og bakstykki. A.3 er endurtekið alls 2 sinnum á hæðina. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 36-37-38-39-40-41 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur.

Nú er settur 1 merkiþráður mitt að framan og 1 merkiþráður mitt að aftan, að auki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – þetta er gert þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (mitt að aftan). Það eru 42-45-48-53-58-63 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði.
Prjónið A.4 þannig: Teljið út frá tákni sem merkir miðju í mynsturteikningu og merkiþræði mitt að framan hvar mynstrið eigi að byrja í hlið, prjónið A.4 eins langt og hægt er að prjónamerki í hlið (merkiþráður mitt að framan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4), síðan byrjar A.4 uppá nýtt á sama hátt og í byrjun á umferð og A.4 er prjónað eins langt og hægt er fram að prjónamerki í byrjun á umferð (merkiþráður mitt að aftan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4). Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-2-5-6-7-8 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina.
Bakstykkið og framstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 78-86-86-94-102-110 lykkjur.
Byrjið frá röngu og haldið áfram með A.4 með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Í síðustu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 80-88-88-96-104-112 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.1 er endurtekið á hæðina að loka máli.
Síðan er lykkjum fækkað fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn):
Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-6 lykkjur 4 sinnum og síðan síðustu 9-11-11-11-13-13 lykkjur að hálsmáli.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð eru lykkjurnar settar til baka yfir á prjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, fellið af miðju 24-28-28-28-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1, haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og prjónið að auki ystu 3 lykkjur við hálsmál í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 62-64-66-68-70-72 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 78-86-86-94-102-110 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 56-57-59-60-62-63 cm, setjið miðju 20-24-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1, en ystu 3 lykkjur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 4-4-4-5-5-6 lykkjur á þráð 4 sinnum og eftir það síðustu 9-11-11-11-13-13 lykkjur við hálsmál.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð er prjónuð 1 umferð sléttprjón eins og á bakstykki, áður en fellt er af. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Notið hringprjón 5 og DROPS Alaska eða DROPS Big Merino, prjónið upp frá réttu 36-37-39-41-43-44 lykkjur frá botni í handvegi og upp að öxl og 36-37-39-41-43-44 lykkjur frá öxl og niður að botni í handvegi í hinni hliðinni = 72-74-78-82-86-88 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – það á að mæla ermina frá þessu prjónamerki og prjónamerkið er notað þegar telja á út hvar mynstrið eigi að byrja.
Byrjið frá röngu og prjónið A.5 þannig: Teljið út frá tákni sem merkir miðju í mynsturteikningu og prjónamerki á ermi hvar mynstrið eigi að byrja og prjónið A.5 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 1-1-2-3-4-4 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, setjið stykkið saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn (tákn í miðju í mynsturteikningu á enn að passa við prjónamerki mitt ofan á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi).
Þegar ermin mælist 5-3-4-5-6-8 cm frá þar sem prjónamerki var sett mitt á ermi, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3.-3.-3.-2½.-2½.-2½. cm millibili alls 14-15-15-17-17-18 sinnum = 44-44-48-48-52-52 lykkjur.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.1 hringinn.
Prjónið þar til ermin mælist 52-50-51-50-49-48 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 57-55-56-55-54-53 cm frá prjónamerki mitt ofan á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 80-96-96-104-112-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (ásamt lykkjum á þræði).
Prjónið stroffprjón hringinn (4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið – stillið stroffið af þannig að það koma 4 lykkjur brugðið eða 4 lykkjur slétt mitt að framan). Setjið 1 prjónamerki í umferð þegar stroffið mælist 4 cm, prjónamerkið er notað til að mæla frá.
Síðan eru prjónaðar 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 9 cm frá prjónamerki, skiptið yfir í stuttan hringprjón 5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4 cm. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.12.2023
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting í öllum stærðum á skáhallandi öxl á framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónamerki
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Iain wrote:

Hi Drops Team, Can you please share some clarification on how to knit the diagonal shoulders, not understanding the instructions, which stitches are to be placed on a thread? Thanks

31.03.2024 - 11:27

DROPS Design answered:

Dear Iain, HERE you can find some videos that can help you understand, how to knit diagonal shoulders. I hope this helps. Happy Knitting!

31.03.2024 - 19:43

country flag Martine Van Herck wrote:

Ik begrijp de uitleg voor de diagonale schouders niet. Ik heb al de drie filmpje i.v.m. diagonale schouders bezien, maar die helpen mij niet echt voort.

05.02.2024 - 10:54

DROPS Design answered:

Dag Martine,

Je plaatst steeds een aantal steken op de hulpdraad en dan brei je de naald verder uit. Op de volgende naald plaats je weer een aantal (afhankelijk van je maat) steken op de hulpdraad en je doet dit in totaal 4 keer. Tot slot zet je de laatste steken bij de hals ook op de hulpdraad. Door steeds een aantal steken op de hulpdraad te zetten en de rest van de naald te breien, krijg je een schuine schouder.

07.02.2024 - 19:35

country flag Christof wrote:

Für welche Nadelstärke gelten die Angaben zur Maschenprobe Nr. 3,5 oder Nr. 5?

13.01.2024 - 18:49

DROPS Design answered:

Lieber Christof, Maschenprobe wird mit Nadeln Nr 5 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2024 - 09:18

country flag Alison Kent wrote:

Hi, this is a beautiful pattern and I think I mostly understand it. What I'm not sure about is why there are so many more stitches in the hem than in the body, and the massive increases/decreases in the chest? The schematic shows this all as a straight line -- are there some patterns that really pull in/flare out that much? (I'm doing a very large swatch with all the patterns and so far (bottom of A5) I'm not finding a lot of variation...)

13.01.2024 - 04:44

DROPS Design answered:

Dear Alison, the difference between the hem and the body is because you work a rib with a smaller needle. So you will have more stitches in the same amount of cm and allow the hem to be elastic but straight. Then, you change to a larger needle, so the gauge changes and you will need quite less stitches to have keep the correct width of the piece. That is why you decrease so many stitches at the beginning. Which massive increases/ decreases in the chest do you mean? You only increase a maximum of 8 stitches at a time, which may be to adjust for the pattern. Happy knitting!

14.01.2024 - 19:26

country flag Loredana wrote:

Buongiorno. Sto lavorando il modello Lines in the Sand, ma al punto delle spalle non capisco cosa significa mettere in sospeso per 4 volte 4 maglie (dal margine esterno del lavoro? Consecutivamente? Ovvero 16 maglie in sospeso tutte insieme?) e poi lavoro fino al punto vicino al collo (ma qual è? ) Devo contare tutte le 24 maglie, sottrarne 9 che metto in sospeso e poi continuare lavorando fino in fondo, ma come? Non ho capito… grazie mille

12.01.2024 - 19:00

DROPS Design answered:

Buonasera Loredana, deve mettere in sospeso 4 maglie dal lato per 4 volte, quindi su ferri diversi, non tutte e 16 insieme, e poi le 9 maglie vicine al collo: lavorerà poi sulle maglie rimaste. Buon lavoro!

17.03.2024 - 17:53

country flag Irena wrote:

Zamykanie oczek na rękawy: „przerabiać aż zostaje 2 oczka przed nitką markerem, przerobić 2 oczka razem na prawo lub 2 oczka razem na lewo, w zależności od miejsca w ściegu fantazyjnym, przerobić 1 oczko prawe, nitka marker”. Jeżeli zostają 2 oczka przed markerem i te oczka przerabiam razem, to nie mam już oczka przed markerem, które mam według opisu przerobić na prawo. Gdzie jest mój błąd w myśleniu?

03.01.2024 - 18:16

DROPS Design answered:

Witaj Ireno, wydaje mi się, że jest zbędne to 1 oczko prawe, zakładając, że nitka marker na środku pod spodem rękawa znajduje się między 2 oczkami (a nie w oczku jak to ma miejsce w przypadku markera na górze rękawa). Zadałam pytanie i czekam na odpowiedź. Jeśli błąd się potwierdzi, we wzorze zostanie dodana korekta. Pozdrawiamy!

04.01.2024 - 08:46

country flag Anke wrote:

Guten Tag, ist es richtig, dass die Schulterschrägung im Rückenteil einen Zentimeter früher beginnt als im Vorderteil? Für Größe L wird beim Rückenteil Start bei 62 cm genannt, beim Vorderteil bei 63 cm. Trotzdem soll aber aus beiden Seiten des Armausschnittes die gleiche Anzahl Maschen für den Ärmel aufgenommen werden?

12.12.2023 - 17:26

DROPS Design answered:

Liebe Anke, danke für den Hinweis, unser Designteam wird das sicher bald korrigieren; um die richtige Länge für den Armausschnitt zu haben, stricken Sie die Schulterschrägung beim Vorderteil wie beim Rückenteil. Viel Spaß beim stricken!

13.12.2023 - 07:41

country flag Kathryn Baine wrote:

I have been following a pattern that has now left your site. How do I find it again?

24.10.2023 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baine, you might use its number / name / our search engine / tags to find it back. Happy knitting!

25.10.2023 - 07:43

country flag Susi wrote:

Warum gibt es diesen tollen Herrenpullover nicht auch als Topdown Modell?

24.10.2023 - 11:46

country flag Susanne Isaksen wrote:

Diagrammet er forsvundet. Kommer det igen??

19.10.2023 - 14:58

DROPS Design answered:

Hej Susanne, jo diagrammet er nederst i opskriften :)

20.10.2023 - 10:52