DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Whisper Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-4
DROPS Design: Mynstur ai-462
Garnflokkur C + A + A eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 42, pistasíuís
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-225-250-275-300 g litur 47, pistasíuís

TÖLUR:
DROPS TALA NR 502: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 - 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með 1 þræði DROPS Air, 2 þráðum DROPS Kid-Silk og perluprjóni (A.1) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 lykkjum með prjónamerki í – síðar kallaðar laskalínulykkjur.
Laskalínulykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu / brugðið frá röngu.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan. Síðan eru nýjar lykkjru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig:
Á UNDAN laskalínulykkju:
Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið ef síðasta lykkjan á undan uppslætti er prjónuð slétt, eða prjónið uppsláttinn snúinn slétt ef síðasta lykkjan á undan uppslætti er prjónuð brugðið, það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR laskalínulykkju:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið ef prjóna á næstu lykkju slétt, eða prjónið uppsláttinn slétt ef prjóna á næstu lykkju brugðið, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING (þegar aukið er út jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA
Fækkið um 1 lykkju til skiptist á undan og á eftir lykkju með prjónamerki í. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman eða 2 lykkjur brugðið saman eftir því hvernig síðasta/næsta lykkja í A.1 er prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-7½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Síðan er prjónað hálsmál með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna.
Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykki fram og til baka frá miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið áður en hvert stykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er kantur í hálsmáli brotinn niður og saumaður niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 69-73-75-79-81-87 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir).
Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka.
Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanta að framan = 81-85-87-91-93-99 lykkjur.
Prjónið stroff eins og áður með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur en 7 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (kantar að framan).
Prjónið þar til kanturinn að framan mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
ATH: Í stærð S, M, L og XXL er hvert prjónamerki sett í brugðna lykkju séð frá réttu, í stærð XL og XXXL er hvert prjónamerki sett í slétta lykkju frá réttu – lykkjur með prjónamerki eru nú kallaðar laskalínulykkjur. Laskalínulykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu / brugðið frá röngu.

Teljið 14-14-16-17-16-19 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-17-19-17 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 15-19-21-19-19-23 lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 17-17-15-17-19-17 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 14-14-16-17-16-19 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (framstykki).

Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um 4-8-2-0-4-0 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram hjá 1. prjónamerki, fækkið 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 1. og 2. prjónamerkis (ekki fækka lykkjum í laskalínulykkjum), fækkið 0-4-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. prjónamerkis, fækkið 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 77-77-85-91-89-99 lykkjur í umferð.
Nú eru 15-15-15-17-17-17 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis (ermar) og 15-15-19-19-19-23 lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis (bakstykki).

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1, en munið eftir að 4 laskalínulykkjur eru núna prjónaðar slétt frá réttu / brugðið frá röngu. Prjónið þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 1. prjónamerki í (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er með réttuna út), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 4. prjónamerki (þ.e.a.s. í hægri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð = 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. prjónamerki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 1. prjónamerki, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið A.1 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem síðast var snúið við 4. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið A.1 út umferðina (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar brugðið frá röngu og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).

Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínulykkjur = 101-101-109-115-113-123 lykkjur.
Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá mitt að framan eins og útskýrt er að neðan. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGÖTUM í hægri kanti að framan – lesið HNAPPAGAT að ofan.

BERUSTYKKI:
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og laskalínulykkjur sem prjónaðar eru slétt frá réttu / brugðið frá röngu. JAFNFRAMT halda útaukningar áfram fyrir laskalínu þannig:

Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), nema í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-14-18-18-20-20 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 6-7-9-9-10-10 sinnum á ermum = 173-185-217-223-233-243 lykkjur.
Útaukning fyrir ermar hefur nú verið gerð til loka. Haldið áfram með útaukningu á framstykkjum/bakstykki 4-4-0-1-2-3 sinnum til viðbótar = 189-201-217-227-241-255 lykkjur.
Útaukning fyrir framstykkjum/bakstykki og ermar hefur nú verið gerð til loka.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-22-22-25-26 cm, mælt frá eftir stroffi mitt að aftan.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 34-36-38-40-42-46 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-59-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 33-35-39-41-43-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 34-36-38-40-42-46 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 137-145-153-163-177-195 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkin eru notuð þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-22-23 cm frá skiptingu, skiptist fram- og bakstykkið við bæði prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Lykkjur með prjónamerki í tilheyra framstykkjum.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 38-40-42-44-48-52 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 47-49-51-55-59-65 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu (frá hlið): 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af. Notið e.t.v. ítalska affellingu – sjá myndband undir Skýringar & Aðstoð á heimasíðunni okkar. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 38-40-42-44-48-52 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 47-49-51-55-59-65 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (frá miðju að framan): 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sama hætti og á vinstra framstykki.

BAKSTYKKI:
= 61-65-69-75-81-91 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 79-85-89-95-105-115 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af alveg eins og á framstykkjum.

ERMI:
Setjið 33-35-39-41-43-43 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-9-11-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-42-46-50-54-56 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-7-9-11-13 lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjurnar.
Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Þegar stykkið mælist 12-12-8-6½-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA.
Haldið áfram með úrtöku til skiptis á undan og á eftir prjónamerki með 8-8-4-3-2-2 cm millibili alls 4-4-8-10-14-14 sinnum (2-2-4-5-7-7 sinnum á undan prjónamerki og 2-2-4-5-7-7 sinnum á eftir prjónamerki) = 36-38-38-40-40-42 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 37-35-35-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-16-18-18 lykkjur jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af alveg eins og á fram- og bakstykki. Ermin mælist ca 47-45-45-46-44-42 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma i veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Viv McDade wrote:

Thank you so much for such speedy and helpful responses. I really appreciate it!

26.02.2024 - 15:37

country flag Viv McDade wrote:

Tx so much for such fast response - really appreciate 🙏\r\n2 more questions I’m afraid:\r\nDivide for body and sleeves: 40 (front) +65 (back) + 40 (front) = 145. But pattern BODY states 163 st!??\r\nLEFT AND RIGHT FRONT PIECES each states you’ll work on 44 st - but 40 st per front piece stated when dividing!??\r\nThanks again

26.02.2024 - 14:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs McDade, don't forget the 9 new stitches you will cast on under each sleeve when slipping the stitches on a thread, so that you will have: 40+9+65+9+40=163 sts. See also this lesson from picture 10 (slipping sts on a thread) / 11 (casting on new sts under sleeve). Happy knitting!

26.02.2024 - 15:03

country flag Viv wrote:

Green Whisper Cardigan 243-4. ai-462 1. Started yoke with 115 stitches as directed. Instruction is to now increase 4 sts on every 2nd row x 18 times & 8 sts every 4th row x 9 times. This means 4x18 + 8x9, which totals 144 sts. Add 115 at beginning of yoke = 259 sts. But pattern states 223 sts!?? 2. Divide for body and sleeves: 40 (front) +65 (back) + 40 (front) = 145. But pattern BODY states 163 st!?? LEFT AND RIGHT FRONT PIECES each 44 st - not 40 as stated when dividing!??

26.02.2024 - 12:32

country flag Viv McDade wrote:

Green Whisper Cardigan 243-4. ai-462 1. Started yoke with 115 stitches as directed. Instruction is to now increase 4 sts on every 2nd row x 18 times & 8 sts every 4th row x 9 times. This means 4x18 + 8x9, which totals 144 sts. Add 115 at beginning of yoke = 259 sts. But pattern states 223 sts!?? 2. Divide for body and sleeves: 40 (front) +65 (back) + 40 (front) = 145. But pattern BODY states 163 st!?? LEFT AND RIGHT FRONT PIECES each 44 st - not 40 as stated when dividing!??

26.02.2024 - 12:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs McDade, you will increase now 4 sts a total of 18 times for body (72 sts) and 4 sts a total of 9 times for sleeves (36 sts), so that you have: 115+72+36 = 223 sts. Hope it can help. Happy knitting!

26.02.2024 - 14:07

country flag Abélia wrote:

Bonjour, Je pense qu’il y a une erreur dans le paragraphe « col doublé « après le positionnement des marqueurs ? Il est écrit : tricoter un rang endroit sur l’endroit en augmentant 4-8-2-0-4-0 mailles à intervalles réguliers. Ne doit -on pas plutôt diminuer ?

26.10.2023 - 18:25

DROPS Design answered:

Bonjour Abélia, il y avait bien une erreur, on n'augmente pas, on doit diminuer à la place car il faut moins de mailles avec les aiguilles 7 au point de riz qu'avec les aiguilles 5,5 en côtes pour la largeur souhaitée. La correction a été faite, merci pour votre retour. Bon tricot!

27.10.2023 - 09:12

country flag Trine wrote:

Det finnes ikke noe diagram i oppskriften

23.10.2023 - 12:20

country flag Scsc wrote:

I modelli sono tantissimi e ben realizzati. Una sola osservazione: le foto vanno bene, ma sarebbe utile, visto che a volte ci sono più pose, vedere il capo di schiena e con le braccia sollevate per mostrare meglio le maniche e qualche dettaglio dello sprone, dello scollo, dei bordi.

07.09.2023 - 11:55

country flag Aniek De Vos wrote:

Is dit vest te veranderen naar gewoon tricot steek in plaats van gerstekorrel?

01.09.2023 - 10:31

DROPS Design answered:

Dag Aniek,

Ja, dat kan. Je zou gewoon tricotsteek kunnen brein in plaats van gerstekorrel. Maak wel altijd even een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan zodat de stekenverhouding overeen komt met die in het patroon.

04.09.2023 - 20:32

country flag Evelyne Alanio wrote:

En cours de réalisation, avec un fil fabel et alpaga, le motif facile mais beau

29.08.2023 - 15:27

country flag Danielle Llorens wrote:

Pipermint

06.08.2023 - 16:18