DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Keel Over

Hekluð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 233-25
DROPS Design: mynstur ai-440
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 10, þoka

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.
Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 69 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 6,27.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 6. hverja lykkju.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR-1 (heklað í hring):
Það á að hekla í hring án þess að enda umferðina, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð þannig að auðvelt sé að sjá hvar umferðin byrjar.
Í 2. umferð er fyrsti stuðullinn heklaður í 2. loftlykkju frá byrjun á 1. umferð, heklið eins og útskýrt er í uppskrift þar til heklað hefur verið í alla hálfa stuðla frá 1. umferð.
Umferðin endar ekki eins og venjulega, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Síðan er heklað í hring með 1 stuðul í hvern stuðul.
Í síðustu umferð neðst á fram- og bakstykki og ermum er heklað þannig til að koma í veg fyrir skarð / hak í skiptingunni: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um kant í hálsmáli):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Þegar heklað er í hring kemur umferðin til með að færast til eftir því sem er heklað áfram. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þetta prjónamerki fylgja með lóðrétti mitt undir ermi – það verður að færa prjónamerkið til þannig að það verði lóðrétt undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að prjónamerkið sé mitt undir ermi þegar fækka á lykkjum. Þegar fækka á lykkjum þá á að fækka lykkjum hvoru megin við 2 stuðla við prjónamerkið þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir að prjónamerki, heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). Heklið 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (prjónamerkið situr á milli þessa 2 stuðla) og endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og heldur síðan áfram í hring hvort fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli neðan frá og upp efst á berustykki, hálsmálið er brotið saman tvöfalt og saumað niður að innanverðu á stykki.

BERUSTYKKI:
Heklið 67-70-73-77-80-84 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (kemur í stað 1. hálfa stuðul), heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju þar til heklað hefur verið í allar loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun á umferð = 69-72-75-79-82-86 hálfir stuðlar.
Setjið eitt prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt héðan!
Nú á að hekla stuðla, lestu HEKLLEIÐBEININGAR-1 í útskýringu að ofan, áður en þú heklar áfram!
UMFERÐ 2: Heklið stuðla (1 stuðul í hvern hálfan stuðul) og aukið út 11-18-25-31-38-44 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-90-100-110-120-130 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 4: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 112-126-140-154-168-182 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 128-144-160-176-192-208 stuðlar.
Nú er heklað áfram mismunandi eftir stærðum:

STÆRÐ S, M, L og XL:
= 128-144-160-176 stuðlar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 8: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22 stuðla jafnt yfir.
Heklið eins og 7. og 8. umferð alls 3-3-3-3 sinnum. Það eru 176-198-220-242 stuðlar í umferð.

STÆRÐ XXL og XXXL:
= 192-208 stuðlar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 8: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 9: Heklið stuðla og aukið út 24-26 stuðla jafnt yfir.
Heklið eins og 7. og 9. umferð alls 3-3 sinnum. Það eru 264-286 stuðlar í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
= 176-198-220-242-264-286 stuðlar.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá prjónamerki, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 26-28-31-35-39-43 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 stuðla fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 hálfan stuðul, heklið 52-57-63-70-79-87 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 hálfan stuðul, heklið 26-29-32-35-40-44 stuðla. Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 130-140-152-166-184-200 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju (í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja og eina af 11 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum) þar til stykkið mælist 35-36-37-38-38-38 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar enda á síðustu umferðina. Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Nú er heklað í 34-40-45-49-51-54 lykkjurnar sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 6. loftlykkju af 11 loftlykkjum sem heklaðar voru mitt undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum, heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins um hálfa stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Þetta er gert til að það verði eins lítið gat í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum í hinni hliðinni á ermi, heklið 2 stuðla saman alveg eins í skiptingunni og heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu loftlykkjum = 45-51-56-60-62-65 lykkjur.
Það á að hekla í hring án þess að enda umferðina eins og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð – nú er heklað í hring.
Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla undir ermi – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með ca 13-8-5½-4-4-3 cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 3-5-7-9-9-10 sinnum = 39-41-42-42-44-45 lykkjur.
Heklið þar til ermin mælist ca 41-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu (nú eru eftir 8 cm að loknu máli). Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann í hvern stuðul umferðina hringinn. Heklið hverja umferð svona þar til ermin mælist 49-48-48-47-46-44 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar enda á síðustu umferðina. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið heklunál 5 og DROPS Air, festið þráðinn með 1 keðjulykkju ca mitt að aftan.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2 í útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul á milli hverra hálfra stuðla frá 1. umferð = 67-70-73-77-80-84 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli.
UMFERÐ 7-9: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana).
Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Brjótið kantinn í hálsmáli niður að innanverðu á stykkinu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Saumið niður með nokkrum smáum sporum.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Chenebeau wrote:

Bonjour, je suis en train de réaliser ce pull. Mais je suis au tour 8 et par acquis de conscience je le fais essayer à mon fils catastrophe Il ne passe pas sa tête !! Je précise que j'ai fait 3 ou 4 échantillons et soit avec le crochet 5 l'échantillon faisait 8,5 de large soit avec le 4,5 , c'était trop large et trop long... J'ai donc finalement opté pour le 5 comme vous préconisez. Merci de votre aide !!

13.04.2024 - 19:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chenebeau, la taille du crochet importe peu, ce qui compte c'est que vous ayez bien les 14 brides = 10 cm de large; ainsi, les 70 mailles en l'air en taille M vont mesurer 50 cm; si votre chaînette de base est trop serrée, essayez de les monter avec un crochet plus gros pour garder de l'élasticité au 1er rang et pensez à bien conserver votre tension au fur et à mesure que vous crochetez. Bon crochet!

15.04.2024 - 07:31

country flag LACCHIA wrote:

Bonjour, j'ai commencé le pull en taille M. J'en suis à la partie "toutes tailles" pour la taille M "198". En contrôlant les mesures il me manque 5 cm (mesure du col). Je crochète serré ; mon échantillon était bon ; mais je pense que j'ai du tendre plus. Comment puis je rattraper cela sans devoir tout défaire la partie déjà crochetée. Merci de vos précieux conseils

09.04.2024 - 08:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacchia, si vous avez besoin de davantage de rangs pour les 10 cm de hauteur, ce n'est pas grave (il est toutefois possible que vous manquiez de laine s'il vous faut plus de rangs), lorsque vous avez vos 198 mailles continuez simplement sans augmenter jusqu'à ce que l'empiècement mesure 24 cm. Bon crochet!

09.04.2024 - 09:05

country flag Laura wrote:

Buonasera, purtroppo la parte posteriore rimane troppo larga e rende brutto il maglione.

09.03.2024 - 16:02

country flag Raeph wrote:

Is the neck also worked in the same direction each round or back and forth with a turn each row?

02.01.2024 - 18:51

DROPS Design answered:

Dear Raeph, the neck is worked in the round, starting with 3 chains to replace 2st stitch and ending with 1 slip stitch in the 3rd chain ,at the beg of round; see CROCHET INFORMATION-2 (neck):: at the beginning of pattern. Happy crocheting!

03.01.2024 - 08:20

country flag Erin wrote:

Hello, I was wondering if this sweater could be done joining each round with a slip stitch and then chaining for the first stitch. I would like to add color strips on my next go around. The no join method makes it a bit harder to add different colors. Thank you!

29.11.2023 - 04:43

DROPS Design answered:

Dear Erin, yes probably, then maybe just adjust pattern to work back and forth (alternately from right side and from wrong side ) to avoid getting the beginning of the round going diagonnally. Happy crocheting!

29.11.2023 - 08:26

country flag Julia wrote:

Ich verstehe leider den Punkt unter „alle Größen“ nicht in dem es heißt, 45 Ständchen für den Ärmel überspringen, 11 luftmaschen. Wie überspringt man die Maschen - abnehmen? Ich bin etwas verwirrt. Danke für die Hilfe im Voraus!

01.09.2023 - 21:18

DROPS Design answered:

Liebe Julia, diese 45 Stäbchen häkeln Sie einfach nicht (sie werden später für den Ärmel gehäkelt), und stattessen häkeln Sie 11 Luftmaschen (diese Luftmaschen "ersetzen" die 45 Stäbchen vom Ärmel). Viel Spaß beim häkeln!

04.09.2023 - 09:34

country flag Declerck wrote:

Help mij. Ben begonnen aan gehaakte trui voor mannen van 233-25. Kan niet aan de uitleg aan uit, Ben aan rij 5. Hoeveel moet ik meerderen om de hoeveel steken, is niet juist volgens mij.

26.08.2023 - 10:40

DROPS Design answered:

Dag Declerck,

Welke maat ben je aan het haken?Als ik de aangegeven aantal meerderingen optel bij het aantal steken, kom ik wel uit op de steken die je moet hebben aan het eind van toer 5.

27.08.2023 - 17:01

country flag Fanny Gunawan wrote:

Beste, Met hoofdomvang 58cm is 73 lossen (maat L) nog steeds te klein. Hoewel ik die lossen los gehaakt heb (met wat grotere haaknaald). Hoe kan ik deze oplossen? Overigens, zijn er niet zoveel haakpatronen voor herentrui die geschikt voor beginner.

04.08.2023 - 08:41

DROPS Design answered:

Dag Fanny,

Wat je ook nog zou kunnen proberen is 11 stokjes meer opzettenen het meerderen in toer 2 overslaan. Dus je haakt wel toer 2, alleen meerder je dan niet.

05.08.2023 - 07:28

country flag Fanny Gunawan wrote:

Beste, De pas voor maat L is gehaakt uit 73 lossen. Dit is echt te klein als een hoofd erin moet. De pas is toch voor de hals? Of begrijp ik het verkeerd? Groeten, Fanny

02.08.2023 - 22:39

DROPS Design answered:

Dag Fanny,

Ja dat klopt, die 73 lossen is voor de hals. Het is belangrijk dat je de lossen niet te strak haakt, dus neem eventueel voor deze lossen voor de hals een naald groter en/of zorg ervoor dat je niet op het uiteinde van de haaknaald haakt

03.08.2023 - 21:05

country flag Berenike Wannenmacher- Ginter wrote:

Hallo, endlich mal eine Häkelpullover für Männer! Vielen Dank! Ich werde ihn auf jeden Fall häkeln. Aber warum gebt Ihr dem Pullover so einen schrecklich negativen Namen?\r\nLiebe Grüße von Berenike Wannenmacher\r\nP.s ich beschenke regelmäßig alle Bekannten mit Häkelsachen aus Euren Mustern und alle sind immer begeistert!

26.05.2023 - 12:37