DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Red Mistery

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 240-26
DROPS Design: Mynstur cl-129
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 17, karminrauður

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 45 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með gatamynstri = 10 x 10 cm.
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæg með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Það eru 4 lykkjur í sléttprjóni í hverri laskalínu. Prjónamerkin sitja mitt á milli þessa 4 lykkja. Aukið er út um 4 lykkjur í hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur til hægri á undan prjónamerki og 2 lykkjur til vinstri á eftir prjónamerki. Aukið út þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkja er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið, prjónið 1 lykkju slétt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Hvert stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Að lokum eru stykkið saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Það er klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Cotton Light.
Prjónið 12 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 1 umferð slétt.
Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að lykkjur séu prjónaðar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja þannig:
Teljið 16-18-18-18-20-22 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 34-36-38-38-40-44 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki. Það eru 18-18-20-20-20-22 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki).

Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið A.2 alls 6-7-7-7-8-9 sinnum, A.3, aukið út fyrir LASKALÍNA á undan og á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (4 lykkjur fleiri), A.1, prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum, A.3 (ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 13-14-15-15-16-18 sinnum, A.3, aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum, A.3, aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 7-7-8-8-8-9 sinnum = 124-128-132-136-140-148 lykkjur.

Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í 6. hverri umferð.
Í hvert skipti sem aukið er út, þá kemur til með að myndast pláss fyrir tvær mynstureiningu fleiri með A.2 á breiddina – þ.e.a.s. gatamynstrið kemur alltaf til með að vera prjónað alveg inn að 4 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina þá eru 220-240-244-264-268-292 lykkjur í umferð. Útaukning er nú lokið í stærð XS og S. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR í XS og S. Í hinum stærðunum heldur útaukning áfram þannig:

STÆRÐ M:
Útaukning er nú lokið á framstykki/bakstykki. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu. Nú er aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og áður, en einungis á ermum (8 lykkjur fleiri) = 252 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ L, XL og XXL:
Útaukningu er nú lokið á ermum. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu. Nú er aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og áður, en einungis á framstykki/bakstykki (8 lykkjur fleiri) = 272-276-300 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 220-240-252-272-276-300 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur hringinn án útaukninga þar til stykkið mælist 19-20-21-22-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál – endið þegar næsta umferð sem á að prjóna er umferð með mynstri.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Haldið eftir fyrstu 32-36-36-40-42-46 lykkjum á hringprjóni 4 (hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, setjið næstu 66-72-74-82-84-92 lykkjur á þráð fyrir framstykki, setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi og haldið síðustu 34-36-38-42-42-46 lykkjum á prjóni (hálft bakstykki).
Bakstykkið, framstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt.

BAKSTYKKI:
= 66-72-74-82-84-92 lykkjur. Byrjið frá réttu, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður yfir 66-72-74-82-84-92 lykkjur í umferð og fitjið í lokin upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-80-86-94-100-108 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka eins og áður með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar bakstykkið mælist 26-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 26-30-32-34-36-42 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 100-110-118-128-136-150 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður yfir 66-72-74-82-84-92 lykkjur af þræði á framstykki, fitjið að lokum upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-80-86-94-100-108 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Byrjið frá réttu, fitjið 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður frá réttu yfir 44-48-52-54-54-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í lok umferðar = 52-56-64-66-70-74 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – passið uppá að mynstrið haldi beint áfram yfir lykkjur frá berustykki.
Þegar ermin mælist 38-38-38-37-36-34 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 22-22-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 74-78-90-92-98-102 lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 40-41-40-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur.
Saumið hliðarsauma alveg eins – byrjið efst við handveg og saumið þar til ca 16-16-18-18-20-20 cm eru eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf.
Saumið saman op undir báðum ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Kaisa wrote:

Voisitteko selventää miten kohdassa ”KOKO M” lisätään silmikoita. Siinä vaiheessa on siis M-koossa 244 silmukkaa ja ohje sanoo ”Tee sitten hihojen lisäykset kuten aiemmin (työhön lisättiin 8 silmukkaa) = 252 silmukkaa.”. Miten tuo lisäys tapahtuu? Raglanlisäyksissä kun tulee 16 uutta silmukkaa.

04.01.2024 - 21:41

DROPS Design answered:

Raglanlisäykset tehdään kuten aiemmin, mutta vain hihojen puolella. Eli etukappaleen ja takakappaleen lisäykset jätetään tekemättä.

08.01.2024 - 16:51

country flag Henrietta wrote:

Hej! Jag har en till fråga. När man stickar oket och är på de varven där man inte ska öka med raglan, ska man fortfarande, innan de två maskorna innan och efter de två maskorna efter markören, sticka två maskor tillsammans och göra ett omslag (alltså A1 eller A3)? Allt gott

25.12.2023 - 19:07

DROPS Design answered:

Hej Henrietta, ja du fortsætter mönstret precis som tidiagare :)

02.01.2024 - 10:11

country flag Henrietta wrote:

Hej! När man stickar oket, och är på de varven man inte ska öka med raglan, ska man sticka de två maskorna före markören och de två maskorna efter markören i slätstickning? Bästa hälsningar

25.12.2023 - 17:38

DROPS Design answered:

För varje gång det ökas, kommer det att bli plats för 2 rapporter mer med A.2 på bredden – det vill säga hålmönstret kommer alltid att stickas ända intill de 4 maskorna i slätstickning i varje övergång mellan framstycke/bakstycke och ärmar.

02.01.2024 - 10:09

country flag Gudrun wrote:

Hej, ska det verkligen vara rätstickning i de 4 maskorna i sidorna, från delningen och nedåt? Det står att man ska fortsätta som förut med rätstickning, men i raglan har det ju varit 4 masmor slätstickning.

22.09.2023 - 21:37

DROPS Design answered:

Hej Gudrun, vi har strikket de 4 masker i hver side i rätstickning :)

05.10.2023 - 08:25

country flag Gudrun wrote:

Hej, jag lyckas inte förstå raglan-beslrivningen.. Det står att man på varv 1 i stlk S ska göra A2 7 ggr och då är det dags för raglan-ökning. Men det är då 4 maskor kvar till markören, och i raglan-beskrivningen står det att det ska vara 2 maskor kvar före markören när det är dags för raglan. Eftersom raglanfältet ska bestå av 4 maskor slätstickning totalt på varje ställe får jag inte ihop det. Vad gör jag för fel?

26.08.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Hei Gudrun Har du glemt A.3 etter A.2? Du har 18 masker før 1. merketråd og du skal strikke A.2 (2 masker) 7 ganger = 14 masker, så skal du strikke A.3 (2 masker), du har nå strikket over 16 masker og det er 2 masker igjen før merketråden. Så strikker du raglan slik det er beskrevet i oppskriften. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 12:18

country flag Kim wrote:

Hello. Quick question about the amount of times we’re supposed to increase. At one point(for size XL)there’s 140 st and then the it says that after 9 rounds of increasing, there should be 268 st. However 140+(9x16)=284 so should I only inc 8 times? Also, at this point in the recipe, one sleeve side has 30 st and one has 22. Is this intentional or have I made a mistake? I used a drawing to follow where we’re supposed to inc up till now and it seems like I’ve followed it accurately

22.08.2023 - 13:34

DROPS Design answered:

Dear Kim, you increase for raglan 4 sts at each of the 4 marker, this means 16 sts in total - see RAGLAN at the beginning of the pattern, (on every 6th round) so that you start with 140 sts + 16 sts increased a total of 9 times = 140+144=284 sts. Happy knitting!

22.08.2023 - 14:21

country flag Lily wrote:

Hello! after finishing the yoke and ending in the middle of the back, how do i begin the back piece starting from the centre? (since there is 4 cast on stitches on both ends)

16.08.2023 - 19:21

DROPS Design answered:

Dear Lily after dividing piece at the end of the yoke, cut the yarn, slip the stitches on a thread for both sleeves, slip also the stitches for front piece on a thread and continue working now back piece: cast on new stitches for armhole, work all stitches of back piec and cast on new stitches for armhole, now continue working back piece back and forth with lace pattern and 4 stitches in garter stitch on each side. Happy knitting!

17.08.2023 - 09:39

country flag Laerke wrote:

Hi. This might be a dumb question, but I'm wondering what kind of lace pattern it is, and if there is a tutorial for it somewhere? I've been trying to find ones that look like it, but I haven't been able to. Most of the tutorials I've been able to find are for flat needles, and it doesn't seem like they can be converted to circular ones.

16.08.2023 - 15:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Laerke, in this video we show from time code 06:26 how to work such a lace pattern (straight, ie without the increases, which is matching 2 repeats of A.2 in width in this pattern. At the same time, you will increase 2 stitches at each raglan line (before A.1 and After A.3) and these new stitches will be worked on next row from RS as shown in diagram. Happy knitting!

16.08.2023 - 16:12

country flag Catalina wrote:

Hola. Podría hacer este patrón en redondo? Me resulta más fácil. Gracias.

13.07.2023 - 14:30

DROPS Design answered:

Hola Catalina, este patrón se trabaja en redondo, hasta el final del canesú. El resto de la prenda se trabaja por separado para poder ajustar el patrón y permitir desajustes en la parte de la costura. Puedes trabajarlo en redondo pero vas a tener que ir ajustando el dibujo del patrón.

17.07.2023 - 13:42

country flag Patrizia Speranza wrote:

Buongiorno nella traduzione italiana c\'è un errore. Nel passaggio per le taglie L XL XXL la corretta traduzione sarebbe \"ora gli aumenti per le maniche sono finiti \" visto che poi gli aumenti si fanno solo sul davanti e dietro. Invece c\'è scritto il contrario.

17.04.2023 - 23:37

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il modello. Buon lavoro!

18.04.2023 - 22:18