Feel the Beat Cardigan |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Það eru 4 lykkjur í sléttprjóni í hverri laskalínu. Prjónamerkin sitja mitt á milli þessa 4 lykkja. Aukið er út um 4 lykkjur í hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur til hægri á undan prjónamerki og 2 lykkjur til vinstri á eftir prjónamerki. Aukið út þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkja er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið, prjónið 1 lykkju slétt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt sama, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í garðaprjóni í hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-9-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Hvert stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir eins og útskýrt er í uppskrift. Það er klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 118-120-126-130-136-140 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið 12 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 6 lykkjur í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en ystu 6 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (kantur að framan). Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að lykkjurnar séu prjónaðar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja þannig: Teljið 22-22-24-24-26-26 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 34-36-38-38-40-44 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki. Það eru 22-22-24-24-26-26 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (framstykki). Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, A.2, aukið út fyrir LASKALÍNA á undan og á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (4 lykkjur fleiri), prjónið A.3 (ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.4, prjónið A.1 alls 13-14-15-15-16-18 sinnum, A.2, aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.3 (ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.4, prjónið A.1 alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, endið með 6 lykkjur í garðaprjóni = 134-136-142-146-152-156 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í 6. hverri umferð. Í hvert skipti sem aukið er út, þá kemur til með að myndast pláss fyrir eina mynstureiningu fleiri með A.1 á breiddina – þ.e.a.s. gatamynstrið kemur alltaf til með að vera prjónað alveg inn að 4 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina þá eru 230-248-254-274-280-300 lykkjur í umferð. Útaukning er nú lokið í stærð XS og S. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR í XS og S. Í hinum stærðunum heldur útaukning áfram þannig: STÆRÐ M: Útaukningu er nú lokið á framstykki/bakstykki. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Nú er aukið út alveg eins og áður, en einungis á ermum (8 lykkjur fleiri) = 262 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L, XL og XXL: Útaukningu er nú lokið á ermum. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Nú er aukið út alveg eins og áður, en einungis á framstykkjum og bakstykki (8 lykkjur fleiri) = 282-288-308 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 230-248-262-282-288-308 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, án útaukningar og með 4 lykkjur sléttprjón í hverri laskalínu og 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 19-20-21-22-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-42-46-48-50 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki), setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, setjið næstu 66-72-74-82-84-92 lykkjur á þráð fyrir bakstykki, setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi og setjið síðustu 38-40-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir hægra framstykki. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Það hafa verið prjónaðar 38-40-42-46-48-50 lykkjur frá réttu, fitjið síðan upp nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi) = 42-44-48-52-56-58 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 4 lykkjur í garðaprjóni að hlið og 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan – passið uppá að mynstrið haldið beint áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar framstykkið mælist 26-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 14-17-17-18-18-23 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kant að framan og lykkjur í garðaprjóni í hlið) = 56-61-65-70-74-81 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, síðan er mynstur prjónað eins og áður frá réttu yfir 38-40-42-46-48-50 lykkjur frá þræði í hægra framstykki (ystu 6 lykkjurnar við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni) = 42-44-48-52-56-58 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og 4 lykkjur í garðaprjóni að hlið – passið uppá að mynstrið haldi beint áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar framstykkið mælist 26-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 14-17-17-18-18-23 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 56-61-65-70-74-81 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, síðan er mynstrið prjónað eins og áður frá réttu yfir allar 66-72-74-82-84-92 lykkjur af þræði á bakstykki, fitjið að lokum upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-80-86-94-100-108 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka eins og áður með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar bakstykkið mælist 26-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 26-30-32-34-36-42 lykkjur jafnt yfir = 100-110-118-128-136-150 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður frá réttu yfir 44-48-52-54-54-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í lok umferðar = 52-56-64-66-70-74 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – passið uppá að mynstrið haldi beint áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar ermin mælist 38-39-38-38-36-35 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 22-22-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 74-78-90-92-98-102 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 40-41-40-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma alveg eins – byrjið efst við handveg og saumið þar til ca 16-16-18-18-20-20 cm eru eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf. Saumið saman op undir báðum ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Lucia wrote:
Avrei necessità di capire bene come fare gli aumenti del raglan. C'è per favore un video che spiega questo passaggio? Grazie!
07.01.2024 - 23:37DROPS Design answered:
Buonasera Lucia, non c'è un video specifico per questo passaggio: può spiegarci meglio cosa la mette in difficoltà? Buon lavoro!
09.01.2024 - 20:07Ania wrote:
De modellen op de foto's zijn altijd heel mooi maar waarom nooit een foto van de rugzijde/achterkant van het patroon. Soms is dat echt een must om te zien hoe het model achteraan valt.
23.07.2023 - 20:57Elena wrote:
Hallo, warum werden die vordere Teilen und der Rücken unter den Ärmeln getrennt gestrickt? Kann ich das nicht als ein Teil in hin und rück Reihen weiter Stricken? Danke
15.06.2023 - 22:00DROPS Design answered:
Liebe Elena, dies ist wahrscheinlich die Wahl der Designerin, einige Strickerinnen stricken lieber einzelne Teilen. Viel Spaß beim stricken!
16.06.2023 - 07:23Tanja wrote:
"Im Lochmuster in Hin- und Rück-Reihen weiterstricken, mit 6 Maschen kraus rechts am vorderen Rand und 4 Maschen kraus rechts an der Seite – darauf achten, dass das Muster passend über den Maschen der Passe fortgesetzt wird. " Hallo, heißt das, dass über die 4 Maschen der Raglanlinie weiterhin 4 M glatt rechts gestrickt wird oder wird nun das Lochmuster über diese 4 M gestrickt? Vielen Dank!
11.04.2023 - 20:05DROPS Design answered:
Liebe Tanja, die 4 Maschen gegen die Seite werden jetzt kraus rechts gestrickt, dh Sie stricken die 6 Blenden-Maschen und das Lochmuster wie zuvor und die 4 Maschen gegen die Seiten (am Ende der Hin-Reihe für das linke Vorderteil/Anfang der Hin-Reihe für das rechte Vorderteil) werden krausrechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
12.04.2023 - 08:26Inma wrote:
Las instrucciones del patrón dicen que se comienza realizando 6 surcos, y que un surco son dos vueltas, o sea, 12 vueltas para el borde del cuello. Parece un error y que fuesen 3 surcos. ¿Me lo podríais aclarar? Muchas gracias de antemano
06.04.2023 - 20:07DROPS Design answered:
Hola Inma, el patrón es correcto, el escote es bastante ancho, tal y como se ve en la foto. Así que son 6 surcos o 12 vueltas. Pero si prefieres puedes trabajar una cenefa más estrecha, con menos surcos.
07.04.2023 - 00:07Monica wrote:
Ich habe die Maschenzahl für die Jacke in Große S gesteickt, aber nach dem Passe und das Abzählen sind zu wenig Maschen übrig... was soll ich machen
02.04.2023 - 23:12DROPS Design answered:
Liebe Monica, beim Lochmuster sollen Sie beachten, daß es genauso viele Umschläge als Abnahme gibt (noch kommen die Raglanzunahmen dazu). Am besten benutzen Sie Markierer, es kann Ihnen helfen, die Diagramme zu folgen. Viel Spaß beim stricken!
11.04.2023 - 10:55Yelena Michel wrote:
Rhododendron
22.01.2023 - 21:56Ruth wrote:
Geranium
18.01.2023 - 13:54Marja Stoelwinder wrote:
Mooie rose luchtige vest
18.01.2023 - 09:01Anna wrote:
Netzjacke
17.01.2023 - 17:14