DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wave Breaker

Hekluð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-2
DROPS Design: Mynstur fl-082
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 22, hvít þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 01, natur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir með stuðlum á hæðina með 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.
Þegar heklað er í hring (á við um ermar og kant í hálsmáli):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvort fyrir sig. Það er heklað gatamynstur. Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að í annarri hverri umferð er heklað frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin á fram- og bakstykki og ermum verði alveg eins. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Heklið 67-75-79-87-95-103 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru = 65-73-77-85-93-101 stuðlar. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið A.1 út umferðina. Endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1 þar til stykkið mælist 6 cm – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu, síðan er hekluð 1 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul í hverja lykkju frá fyrri umferð).

Nú er mynstur heklað þannig: Heklið A.2C, heklið A.2B þar til 5 stuðlar eru eftir, heklið A.2A. Haldið svona áfram fram og til baka, A.2 er endurtekið á hæðina.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

STÆRÐ M- L- XL- XXL-XXL:
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41 cm (stillið af að næsta umferð sé ekki umferð 2 í mynsturteikningu), fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig (lykkjum er ekki fækkað í stærð S):
Heklið 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 4-4-8-8-12 stuðlum, heklið stuðla eins og áður yfir næstu 65-69-69-77-77 lykkjur (nú eru eftir 4-4-8-8-12 lykkjur í umferð).

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið fram og til baka með mynstur eins og áður yfir 65-65-69-69-77-77 lykkjur. Heklið gatamynstur þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, heklið síðan til loka einungis með stuðlum (það eru heklaðar minnst 2 umferðir með stuðlum á eftir umferð með gatamynstri áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar).
Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Nú er heklað yfir fyrstu 19-19-19-19-23-23 stuðla fyrir hægri öxl, heklið næstu 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA, snúið og heklið til baka yfir 20-20-20-20-24-24 stuðla. Stykkið mælist nú ca 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þræðina og festið.
Hoppið yfir miðju 23-23-27-27-27-27 stuðla á bakstykki, byrjið í 24.-24.-28.-28.-28.-28. stuðli og heklið yfir síðustu 21-21-21-21-25-25 stuðla fyrir vinstri öxl, með byrjun frá réttu og frá hálsmáli þannig:
Heklið fyrstu 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 19-19-19-19-23-23 stuðlum sem eftir eru. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern af 20-20-20-20-24-24 stuðlum. Klippið þræðina frá og festið.
STÆRÐ S: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 20 cm niður frá öxl. Prjónamerkin sýna hvar sauma á ermina við fram- og bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 49-51-52-54-55-57 cm. Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli, en passið uppá að það séu heklaðar minnst 2 umferðir með stuðlum á eftir umferð með gatamynstri áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Nú er heklað til loka einungis með stuðlum.

HÆGRI OG VINSTRI ÖXL:
Heklið eins og áður yfir fyrstu 22-22-22-22-26-26 stuðla, 2 stuðlar saman (1 stuðull færri), snúið og heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina. Heklið yfir fyrstu 20-20-20-24-24-24 stuðla, 2 stuðlar saman (1 stuðull færri), snúið og heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina = 20-20-20-20-24-24 stuðlar fyrir öxl.
Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið.
Hoppið yfir næstu 17-17-21-21-21-21 stuðla fyrir hálsmáli, byrjið í 18.-18.-22.-22.-22.-22. stuðli frá réttu og heklið vinstri öxl þannig:
Heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið fyrstu 21-21-21-21-25-25 stuðla, heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri). Heklið 2 stuðla saman (= 1 stuðull færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið fyrstu 19-19-19-19-23-23 stuðla, heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri) = 20-20-20-20-24-24 stuðlar fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið.
STÆRÐ S: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 20 cm niður frá öxl. Prjónamerkið sýnir hver sauma á ermina við fram- og bakstykkið.

ERMI:
Heklið 45-45-45-49-49-49 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 45-45-45-49-49-49 stuðlar.

Heklið 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið A.3 út umferðina. Endurtakið 1. umferð þar til stykkið mælist 8 cm. Heklið 2. umferð í A.3. Heklið síðan þannig:
Heklið A.4A, endurtakið A.4B og endið með 1 keðjulykkju í byrjun á umferð.
Heklað er í hring (en snúið er við eftir hverja umferð) og A.4 er endurtekið á hæðina. Passið uppá að umferðir með tvíbrugðnum stuðlum og loftlykkjum séu heklaðar frá réttu, þannig að áferðin verði alveg eins á fram- og bakstykki og ermum.

Þegar stykkið mælist ca 13 cm (stillið af að aukið sé út í umferð með stuðlum), byrjar útaukning undir ermi. Aukið út um 1 stuðul í fyrsta og síðasta stuðul í umferð með því að hekla 2 stuðla í einn stuðul. Aukið svona út með ca 8-6-5-4½-3½-3 cm millibili alls 5-7-8-8-9-10 sinnum, stillið af að aukið sé út í umferð með stuðlum = 55-59-61-65-67-69 stuðlar. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.4 þegar aukið er út, eru heklaðar í stuðlum. Heklið áfram þar til ermin mælist ca 53-51-50-48-46-44 cm. Ermin er nú tilbúin í stærð S.
Heklið hina ermina á sama hátt í stærð S.

STÆRÐ M- L-XL-XXL-XXXL:
Nú er heklað fram og til baka frá byrjun á umferð, þannig að það verði lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 54-53-54-52-53 cm, er ermin tilbúin. Klippið þræðina og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt í stærð M-L-XL-XXL-XXXL.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki eins og útskýring á teikningu sýnir. Saumið hliðarsauminn niður frá handvegi. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju í axlasauminn, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls ca 24-24-26-26-26-26 sinnum hringinn í umferð, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga = 72-72-78-78-78-78 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram hringinn með A.3. Endurtakið 1. umferð í A.3 þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 5 cm (meðtalin fyrsta umferð með stuðlum). Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð – byrjið við ör

symbols = byrjið hér
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL: Heklaður er 1 tvíbrugðinn stuðull um stuðul/stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð (ekki er heklað í lykkjubogana heldur í kringum sjálfan stuðulinn/stuðlakrókinn-tvíbrugðna stuðul). Í A.1 er heklað um 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá 2 umferð að neðan
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan / um loftlykkjuboga / á milli 2 tvíbrugðna stuðla
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Wave Breaker

pantarejka, Poland

Wave Breaker

Elina, Estonia

Wave Breaker

Elina, Estonia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Fernanda Martins wrote:

Boa tarde . Adoro os vossos modelos , parabens pelo site. Comprei drops flora + drops kid silk para fazer este modelo, mas nao gosto do toque do fio drops kid silk, tem muitos pelos e nao era o eu pretendia. Pois na foto nao se vêem tantos pelos. Gostaria de saber que fio me aconselham para subtituir o kid silk? Ou se posso fazer so com drops flora e que agulha recomenda ? Muito obrigada . Cumprimentos

15.09.2023 - 16:02

DROPS Design answered:

Bom dia, Muito obrigado pelo seu comentário. Trabalhamos muito para poder trazer novos modelos gratuitos. Pode, em alternativa, dobrar o Flora (=usar 2 fios) ou combinar o Flora com o Alpaca (que tem muit menos pêlo do que o Kid.Silk). Bons crochés!

19.09.2023 - 10:19

country flag Myrèle wrote:

Bonjour Pour la mamche ; vois mentionnez de ceocheter en rond mais de tourner à chaque tour? Autrement dit nous fesons jn rang à l’endroit et un rang sur l’envers toujours en continue au lieu d’être toujours sur l’endroit ???? Merci

04.04.2023 - 18:28

DROPS Design answered:

Bonjour Myrèle, tout à fait, pensez à bien fermer vos rangs par 1 maille coulée dans la 1ère maille du début du tour pour éviter une couture. Bon crochet!

11.04.2023 - 11:17

country flag Blandine wrote:

Modèle attaqué ce soir. Les points sont un régal pour les yeux. Il me tarde de le finir pour le porter.

14.02.2023 - 00:51

country flag Eimante wrote:

Will there be more crochet patterns available for the SS2023 collection?

08.02.2023 - 13:23

country flag Laura wrote:

Hello, How do I find the measurements for each size, so I can choose the best one for me? It's the first time I try one of your patterns but I can't seem to find this info anywhere on the page. This collection looks so beautiful! Can't wait to start! Thank you very much! Laura

07.02.2023 - 12:26

DROPS Design answered:

Dear Laura, thank you very much! Measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to those in the chart, this will be the best way to find your size for each garment; read even more here. Happy crocheting!

07.02.2023 - 13:22

country flag Ana Oliveira wrote:

Hallo Drobs Team! Habe mich direkt in den Pulli verliebt! Habe aber festgestellt, dass sich beim Rückenteil in Größe L bei der Angabe zur Abnahme für den Armausschnitt ein rechnerischer Fehler eingeschlichen hat. 77 - 8 = 69 .Aber man sollte dann nach der Abnahme am Anfang der Reihe nur noch 61 M häkeln um den 2. Armausschnitt zu haben. Hoffentlich ist das hier die richtige Adresse um Korrekturanregungen zu tätigen 🤣 Gruß Ana

04.02.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Oliveira, beachten Sie, daß unter GRÖSSE M- L- XL- XXL-XXL: wird dann die Größe L die 2. Größe so werden nur 4 Maschen beidseitig abgenommen, so sind es 77-8= 69 Maschen übrig. Viel Spaß beim häkeln!

06.02.2023 - 11:03

country flag Rebecca Gibbs wrote:

I just wanted to say thank you for putting a crochet 🧶 pattern out so soon with the other new patterns. It’s always so exciting to look at and read the new patterns. Can’t wait to get the summer crochet idea’s flowing. Thank you for all the wonderful patterns Garnstudio has provided for years of fabulous enjoyment. 💖💖💖

04.02.2023 - 07:10

country flag Trude Jacobsen wrote:

Veldig fin heklegenser. Super til våren ! Lagt til i favoritter :-)

03.02.2023 - 13:31

country flag Simone wrote:

Summer cloude

21.01.2023 - 22:46

country flag Pirjo wrote:

White lightness

21.01.2023 - 12:08