DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS Extra 0-1572
DROPS Design: Mynstur r-802
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca 16 cm í ummáli.

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 08, natur
50 g litur 09, muskat
50 g litur 41, vínrauður
50 g litur 83, perla
50 g litur 86, bleikur sandur
50 g litur 87, granatepli
50 g litur 88, pistasía
50 g litur 89, ljós sægrænn
50 g litur 90, mosagrænn

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

1 jólakúla er ca 12 g án fyllingar.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 11 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið fyrsta stuðli út með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið fyrstu fastalykkju út með 1 loftlykkja.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu loftlykkju frá byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkju á heklunálinni.
Þegar heklað er með tveimur litum, skiptið yfir í nýjan lit þegar síðasti uppslátturinn er gerður og þráðurinn dreginn í gegnum síðasta stuðulinn fyrir næstu kúlu. Að auki leggst þráðurinn, á þeim lit sem ekki er heklað með, yfir lykkjur frá fyrri umferð. Heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn.

KÚLA:
Heklið 4 stuðla um loftlykkjubogann, skiptið yfir í grunnlit og heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður (herðið aðeins á þræði þannig að hann verði þéttur og fallegur og herðið aðeins á kúlunni þannig að hún standi út).

LITUR-1:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur
UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í bleikur sandur
UMFERÐ 3 og 4: bleikur sandur
UMFERÐ 5: natur
UMFERÐ 6: bleikur sandur

LITUR-2:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur
UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í ljós sægrænn
UMFERÐ 3 og 4: ljós sægrænn
UMFERÐ 5: natur
UMFERÐ 6: ljós sægrænn

LITUR-3:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: natur
UMFERÐ 2: kúlur í natur, stuðlar í pistasía
UMFERÐ 3 og 4: pistasía
UMFERÐ 5: natur
UMFERÐ 6: pistasía

LITUR-4:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla
UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í mosagrænn
UMFERÐ 3 og 4: mosagrænn
UMFERÐ 5: perla
UMFERÐ 6: mosagrænn

LITUR-5:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla
UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í muskat
UMFERÐ 3 og 4: muskat
UMFERÐ 5: perla
UMFERÐ 6: muskat

LITUR-6:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla
UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í granatepli
UMFERÐ 3 og 4: granatepli
UMFERÐ 5: perla
UMFERÐ 6: granatepli

LITUR-7:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: perla
UMFERÐ 2: kúlur í perla, stuðlar í vínrauður
UMFERÐ 3 og 4: vínrauður
UMFERÐ 5: perla
UMFERÐ 6: vínrauður

LITUR-8:
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: muskat
UMFERÐ 2: kúlur í muskat, stuðlar í perla
UMFERÐ 3 og 4: perla
UMFERÐ 5: muskat
UMFERÐ 6: perla

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

JÓLAKÚLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Jólakúlurnar eru heklaðar í mismunandi litasamsetningum. Allar kúlurnar eru heklaðar í hring frá miðju og út í tvær alveg eins hálfar kúlur. Hálfu kúlurnar eru saumaðar saman eins og útskýrt er í uppskrift og eru síðan fylltar með vatti. Að lokum er hekluð lykkja.

HÁLF KÚLA:
Lestu LITUR-1 til LITUR-8 í útskýringu að ofan.
Byrjið með heklunál 3 og uppfitjunarlit í DROPS Muskat.
Heklið 4 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Fylgdu litaröðinni fyrir hverja kúlu, lestu LITASKIPTI og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið mynsturteikningu A.1 hringinn eða fylgdu útskýringu að neðan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

UMFERÐ 1: 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju), 5 fastalykkjur um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2. * Heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu/næstu fastalykkju, skiptið yfir á grunnlit og heklið 2 stuðla í sömu fastalykkju *, herklið frá *-* alls 6 sinnum, endið með 1 keðjulykkju efst í kúlu í byrjun á umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul eftir fyrstu kúlu, 3 loftlykkjur (1 stuðull), heklið 1 stuðul í sama stuðul, * 2 stuðlar í næsta stuðul, heklið síðan 2 stuðla saman með því að hekla 1 stuðul í saman stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir kúlu, heklið 1 stuðul í næsta stuðul og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, heklið síðan 2 stuðla í sama stuðul *, heklið frá *-* alls 6 sinnum, en í síðustu endurtekningunni er endað á undan 2 síðustu stuðlunum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 30 stuðlar.
UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvern og einn af 4 fyrstu/næstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn og skiptið um lit þegar síðasta keðjulykkjan í umferð er hekluð = 36 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið 3 loftlykkjur (1 fastalykkja + 2 loftlykkjur), hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, skiptið til baka yfir í grunnlit og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju).
UMFERÐ 6: Heklið 1 keðjulykkju um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (1 stuðull), * heklið 2 stuðla saman með því að hekla 1 stuðul um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um næsta loftlykkjuboga, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í stuðulinn fyrir neðan loftlykkjuboga (stuðull frá 4. umferð) heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með að hekla 2 stuðla saman og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 36 stuðlar.

Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið.
Heklið aðra hálfa kúlu til viðbótar alveg eins, en þegar A.1 hefur verið heklað til loka er þráðurinn klipptur frá síðustu umferð ca 40 cm frá stykki, þannig að þráðarendinn sé nægilega langur til að sauma bæði stykkin saman með.

FRÁGANGUR:
Leggið báðar hálfu kúlurnar saman – passið uppá að byrjun á umferð mætist á báðum hálfu kúlunum. Byrjið sauminn við byrjun á umferð og saumið saman bæði stykkin með spori í aftari lykkjubogann í hverri lykkju umferðina hringinn – passið uppá að saumurinn sé ekki of stífur.
Skiljið eftir smá op í lok umferðar. Fyllið jólakúluna með vatti og saumið síðan opið saman. Byrjun á umferð er núna mitt undir jólakúlunni.

LYKKJA:
Haldið jólakúlunni þannig að byrjun á umferð sé mitt undir jólakúlunni.
Heklið 1 keðjulykkju mitt á jólakúlunni með sama lit og síðasta umferð á kúlunni, heklið 20 loftlykkjur og festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju mitt á jólakúlunni. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Byrjið við tákn yfir punkti á hring og heklið síðan til vinstri
symbols = heklið 1 loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn / 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = Kúla: Heklið 4 stuðla í lykkjuna fyrir neðan, skiptið um lit, heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul sem var heklaður, herðið á þræði og dragið aðeins í kúluna þannig að hún standi út (í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út í kúlunni með 3 loftlykkjum)
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 keðjulykkja í lykkjuna fyrir neðan / 1 keðjulykkja um loftlykkjuboga
symbols = heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = heklið 2 stuðla saman, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul í sama stuðul fyrir neðan, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir kúlu, heklið 1 stuðul í næsta stuðul frá fyrri umferð, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull í stuðulinn fyrir neðan – þ.e.a.s. í stuðul frá 4. umferð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1572

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Katarzyna Ziejewska wrote:

Cześć, moja bombka po zszyciu zamiast kuli przypomina jojo. Wygląda na to że po ostatnim okrążeniu połówki zaczęły się spłaszczać. Nie jestem pewna co zrobiłam źle i nie mogę doszukać się błędu. Proszę o pomoc.

07.12.2023 - 16:48

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, czy widziałaś nasz film instruktażowy TUTAJ. Pokazuje jak wykonać tą bombkę od początku do końca. Może być pomocy w znalezieniu błędu. Pozdrawiamy!

08.12.2023 - 08:33

country flag Danielle LONGCHAMPS wrote:

Bonjour, J aime ce que vous proposez j aimerais en faire chez moi. Que faut-il faire : commander ?

23.12.2022 - 20:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Longchamps, vous pouvez imprimer les explications gratuites à partir de notre site - retrouvez ici la liste des magasins DROPS en France pour commander les fournitures nécessaires (si vous n'avez pas de magasin près de chez vous). Bon crochet!

02.01.2023 - 08:46

country flag Anna wrote:

Mega cooler Weihnachtsschmuck - kann man natürlich auch in Frühlingsfarben für den Ostertisch häkeln, finde ich! Super toll :)

05.12.2022 - 11:26

country flag Gabriele Abb wrote:

Tolle Anleitung für die Weihnachtskugeln ,die mir gut gefallen und ich finde es super eine Anleitung für Weihnachtskugeln zu haben, wo man auch seine Fantasie spielen lassen kann und die Farben wählen kann die man selbst mag.

02.12.2022 - 17:45