DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Weekend

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Soft Tweed og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-2
DROPS Design: Mynstur st-026
Garnflokkur B + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 02, marsipan
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 40, perlubleikur
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 41, púður

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni og 3 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innanverðu við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-30-32-32-34 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 78-84-88-94-96-100 lykkjur í umferð.
Héðan er nú stykkið mælt!
Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið út á eftir 3 lykkjum, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan 3 lykkjum, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-20-20-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá vinstra framstykki = 78-84-88-94-96-100 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 23-25-26-27-28-29 cm, mælt yst meðfram handvegi.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjum frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjum frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 164-180-192-204-220-236 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir = 180-196-208-220-240-256 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm, mælt efst á öxl inn að hálsmáli.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 7 og 1 þráð DROPS Soft Tweed og 2 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir), prjónið upp frá réttu 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá öxl og niður að botni á handveg í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 54-56-58-62-64-68 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-2-3-3-4-6 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-5-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-4-3 cm millibili alls 6-6-6-7-7-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-34-34-33-33-33 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-44-44-43-43-43 cm frá prjónamerki.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur öfugt við vinstri ermi, þ.e.a.s. prjónaðar eru upp 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 68 til 84 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með 3 þráðum. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 22-22-22-24-24-24 cm. Fellið af aðeins laust.

Mynstur

symbols = botninn á handvegi er saumaður saman þannig: Saumið b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Weekend

Edyta, Poland

Sweet Weekend

Silke, Netherlands

Sweet Weekend

Clarissa

Sweet Weekend

knitwerka, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Mia wrote:

Haluaisin neuloa taman puseron vain yhdesta langasta. Mikä lanka Dropsin valikoimasta sopisi siihen?

27.02.2024 - 16:59

DROPS Design answered:

Hei, voit kokeilla DROPS Melody-lankaa, mutta tarkista tällöin neuletiheys!

04.03.2024 - 17:37

country flag Mia wrote:

Hei,

27.02.2024 - 16:57

country flag Lotta wrote:

Hej! Kan jag byta ut garnet till 1 tråd Drops Merino extra fine och 1 tråd Drops Big Merino istället?

11.02.2024 - 12:35

DROPS Design answered:

Hej Lotta, ja det kan du, men den vil nok blive lidt tung, og kan derfor vokse lidt i længden :)

22.02.2024 - 11:09

country flag Karin Ceylan wrote:

Ich bekomme die Anleitung nicht gedruckt. Passt da was in der Datei nicht? Alle anderen funktionieren immer einwandfrei.

17.01.2024 - 18:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ceylan, prüfen Sie mal die Ausstellungen von dem Drucker, damit alle Seiten ausgedruckt werden. Sie können auch mal versuchen, den Cache und die Cookies zu leeren, es hilft manchmal auch. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2024 - 08:41

country flag Gisela Hohn wrote:

Hallo, was bedeutet die Angabe RÜCKENTEIL: letzter Satz:" Nach der letzten Zunahme sind noch 78-84-88......Maschen übrig?

13.01.2024 - 16:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hohn, unter Rückenteil kann ich so lesen: Nach der letzten Zunahme sind 78-84-88-94-96-100 Maschen auf der Nadel., Misverstehe ich Ihre Frage?

15.01.2024 - 09:15

country flag Jutta wrote:

Ab wo wird denn die Länge des Ärmels der Vorderteile gemessen? Ich habe jetzt die Teile zusammengefügt. Wird ab da gemessen , wo ich die Maschen für die Vorderteile aufgenommen habe, oder ab da, wo die Vorderteile zusammengefügt sind?

12.01.2024 - 23:23

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, die Länge für das Armloch wird beim Vorderteil ab den aufgelassenen Maschen gemessen, wenn die Arbeit gefaltet wird, sind die Schulter etwas schräg, hinten. Dieses Video zeigt, wenn man Vorder- und Rückenteil zusammen strickt. und wie die Schulter dann aussehen. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2024 - 08:08

country flag Susann wrote:

Hallo, ich stricke den Pullover in Größe L, ich tue mich etwas schwer bei den Maßangaben bei Beendigung der Schulterpartie bis zum Beginn des Rumpfes. Nach Zunahme des Halsausschnittes wird weiter gestrickt bis zum Beginn des Rumpfes. Die Länge soll in L 26 cm betragen, ab wo messe ich tatsächlich? Der Armausschnitt vom Rücken sind 16 cm. Die Maßskizze zeigt eine Höhe von 21 cm. Bitte melden Sie sich bald- vielen Dank 🤔

07.01.2024 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Susan, die Höhe nach den Zunahmen am Anfang vom Rückenteil ist hier nicht inbegriffen, die Arbeit messen Sie für den Armausschnitt wenn die Zunahmen fertig sind, und genau nach der letzten Zunahmen - siehe Video. Viel Spaß beim stricken!

08.01.2024 - 10:30

country flag Jutta Meier-Wiedenbach wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum angegebenen Preis. In Der Anleitung steht, dass ich für die Größe L 350 Gramm Wolle benötige. Bei einem Preis von 3,05 netto pro 50 Gramm Knäuel, macht das einen Gesamtpreis von 21,35 Euro. Das kam mir sehr wenig vor und dann lese ich weiter unten, dass ich das benötigte Garn für einen Preis ab 55,10 Euro erhalten kann. Was stimmt denn jetzt? Wie viele Knäule Gran von dem Soft Tweed brauche ich für Größe L? Danke und viele Grüße Jutta

16.11.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, für dieses Modell werden nicht nur 350g Drops Soft Tweed, sondern auch Drops Kid-Silk benötigt. In Größe L braucht man 2 x 125 g, also 5 Knäuel pro Farbe. Der angegebene Preis ist der Gesamtpreis für alle Garne. Viel Spaß beim Stricken!

16.11.2023 - 19:04

country flag Karolin wrote:

Hallo, ich wollte mir diesen Pullover stricken, aber ich hatte wohl nicht richtig gelesen. Denn ich hab mir u.a. Fabel print dafür bestellt. Aber das haut mit der Anleitung nicht hin denk ich. Weil ja die Reihen sehr unterschiedlich lang werden. auch die Schulter klingt mir sehr kompliziert. Gibt es noch eine andere Anleitung mit B+A+A? (wollte Lima und Fabel und Fabel nehmen). Leider klappt es nicht wenn ich per Suche nach bestimmten Garngruppen suche wenn es mehrere Garngruppen sind. Danke

15.11.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Liebe Karolin, je nach Ihrer Maschenprobe können Sie dann ein Modell hier aussuchen - dieser Pullover ist 14 Masche, das kann Ihnen helfen, ein passendes Modell zu finden. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2023 - 10:13

country flag Lotta wrote:

Jag ska börja sticka armen och i st L så ska jag plocka upp 36 maskor från nedre delen av armhålan och upp mot axeln och min fråga är ska jag plocka upp 1 maska per varv och sluta vid 36 maskor eller ska jag sprida ut upptagningen på hrla framsidan så det blir 36 maskor? Jag har 42 varv från axeln till armhålan på framsidan så jag vet inte hur jag ska få ihop det:)

29.10.2023 - 12:26

DROPS Design answered:

Hei Lotta. Du må hopp over noen rader, ca hver 4. rad. Det viktigste er å plukke opp 36 masker fra midt under ermet og opp til skulderen og 22 masker fra skulderen og ned til ermhullet = 58 masker. mvh DROPS Design

30.10.2023 - 10:57