DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Woodland Pixie

Prjónuð peysa með hettu úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni með klauf í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-5
DROPS Design: Mynstur no-063
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-500 g litur 22, kastanía
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 42, mandla

DROPS TALA NR 525: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 5.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 33 umferðir á hæð með garðaprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÁL:
Vegna áferðarmynsturs, eru öll mál tekin þegar flíkinni er haldið uppi.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan meðfram klauf í hálsmáli – frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar klauf í hálsmáli mælist:
S - M: 2, 6, 10 og 14 cm.
L - XL: 3, 7, 11 og 15 cm
XXL - XXXL: 1, 6, 11 og 16 cm

ÚRTAKA (á við um efst á hettu):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Framstykkið skiptist fyrir klauf í hálsmáli, hvort stykkið er prjónað til loka fyrir sig. Stykkið er saumað saman á öxlum. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman í hliðum og undir ermum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónið er hetta.

BAKSTYKKI:
Fitjið aðeins laust upp 81-89-95-103-113-123 lykkjur á prjón 5 með 2 þráðum úr DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræði). Takið frá 1 þráð DROPS Nord – afgangur af bakstykki er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræði).
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – sjá MÆLING, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 87-95-101-109-119-129 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 31-35-37-41-45-50 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – munið eftir MÆLING. Fellið af aðeins laust með 2 þráðum DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir).

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 33-35-35-37-37-39 cm.

HÁLSMÁL:
Nú skiptist stykkið mitt að framan fyrir klauf í hálsmáli og næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-49-54-59 lykkjur slétt, setjið síðan lykkjur á þráð (vinstra framstykki).
Prjónið 5 næstu lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 43-47-50-54-59-64 lykkjur á prjóni (hægra framstykki).
Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan:

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið garðaprjón fram og til baka, en 6. lykkja frá miðju að framan er prjónuð brugðið frá röngu/brugðið frá réttu í hverri umferð (gagnstætt garðaprjón = merktur kantur). Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar að hlið = 46-50-53-57-62-67 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm (1 cm eftir síðasta hnappagatið), setjið ystu 8-8-9-9-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 31-35-37-41-45-50 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – munið eftir MÆLING. Fellið aðeins laust af með 2 þráðum DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 38-42-45-49-54-59 lykkjur af þræði frá vinstra framstykki á prjón 5 (án þess að prjóna lykkjurnar), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 kantlykkjum að framan á hægra framstykki, en prjónið upp á bakhlið á 5 kantlykkjum að framan þannig að vinstra framstykkið liggi aftan við hægra framstykki = 43-47-50-54-59-64 lykkjur.
Prjónið síðan alveg eins og hægra framstykki, nema spegilmynd (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan).
Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm og síðasta umferðin er prjónuð frá réttu, klippið þráðinn frá. Snúið stykkinu, setjið fyrstu 8-8-9-9-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðan áfram eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru.
JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverir umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 31-35-37-41-45-50 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – munið eftir MÆLING. Fellið af aðeins laust með 2 þráðum DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir).

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju, 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram öðrum handveginum á prjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki.
Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við ystu lykkju í garðaprjóni). Fellið svona af með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum í hvorri hlið = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-30-28-26 cm frá prjónamerki – munið eftir MÆLING. Prjónið nú A.1. Eftir A.1 er prjónað garðaprjón að loknu máli. Prjónið þar til ermin mælist 48-46-46-44-42-40 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd). Fellið af aðeins laust með 2 þráðum DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR-2:
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana, en endið sauminn þegar ca 8 cm eru eftir neðst í hvorri hlið á framstykki/bakstykki (klauf).
Saumið tölur í vinstri kant að framan meðfram klauf í hálsmáli.

HETTA:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir), prjónið síðan upp frá réttu ca 62 til 72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum að framan), fitjið að lokum upp 5 lykkjur í lok umferðar = ca 72 til 82 lykkjur.
Prjónið garðaprjón fram og til baka, en 6. lykkja inn frá hvorri hlið er prjónuð brugðið frá röngu/brugðið frá réttu í hverri umferð.
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón, aukið út jafnt yfir til 94-98-102-106-108-112 lykkjur (ekki er aukið út yfir ystu 6 lykkjur í hvorri hlið).
Haldið áfram í garðaprjóni og 6. lykkja inn frá hvorri hlið í gagnstæðu garðaprjóni.
Þegar hettan mælist 31-32-33-34-35-36 cm, setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum = 84-88-92-96-98-102 lykkjur.
Fellið síðan af allar lykkjur með 2 þráðum DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Hettan mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm.
Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið hana saman á toppnum. Brjótið út ystu 5 lykkjurnar meðfram kanti á hettu að röngu og saumið kantinn fallega niður neðst í hvorri hlið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Gisèle wrote:

Bonjour, Ne tenez pas compte de ma demande précédente. En lisant toutes les explications du modèle et notamment celles relatives au "devant gauche", j'ai compris vos instructions. Tout est clair, il fallait tout simplement tout lire. Mille excuses.

21.10.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

aucun souci :) la réponse à votre question se trouve ci-dessous, elle pourra peut-être aider quelqu'un d'autre. Bonne continuation et n'hésitez pas à revenir si vous avez d'autres questions.

23.10.2023 - 09:52

country flag Gisèle wrote:

Bonjour, J'ai divisé au milieu du devant l'ouvrage pour réaliser la fente d'encolure mais ne doit on pas monter des mailles pour réaliser une pate d'encolure avec ses boutonnières? Cette pate se superpose ainsi sur le devant gauche sur lequel on fixe les boutons. Il me semble que les 2 devants doivent se superposer au niveau de l'encolure . Pouvez vous m'aider? Merci.

21.10.2023 - 18:32

DROPS Design answered:

Bonjour Gisèle, on ne divise pas directement au milieu du devant mais on va avoir 5 mailles en plus pour le devant droit (ex en S: 38 pour le devant gauche que l'on met en attente et 43 pour le devant droit); lorsque le devant droit est terminé, on va (sur l'envers) relever 1 maille derrière chacune des 5 mailles de la bordure du devant droit et tricoter les 38 m en attente). Ainsi on a bien les 2 bordures qui vont pouvoir se superposer l'une au-dessus de l'autre (la droite au-dessus de la gauche). Bon tricot!

23.10.2023 - 09:49

country flag Hetty wrote:

Can you just use mohair and how many strands would you use ty

11.08.2023 - 21:11

DROPS Design answered:

Dear Hetty, you could use 2 strands DROPS Kid-Silk only, just use the yarn converter to get the new amount of yarn, if you like to work size S you will then need 250 g Kid-Silk in total (10 balls), either same color or 2 different colors (then 125 g each). Happy knitting!

14.08.2023 - 08:45

country flag Momo wrote:

Bonjour, je veux remplacer ces 2 qualités différentes par une seule : la Brushed Alpaca Silk Combien de pelotes dois je commander pour une taille L SVP ; Merci

26.07.2023 - 09:56

DROPS Design answered:

Bonjour Momo, vous avez besoin d'env. 9 pelotes de DROPS Brushed Alpaca Silk. Vous pouvez le calculer vous-meme en regardant la lecon DROPS ICI. Bon tricot!

26.07.2023 - 10:17

country flag Tal wrote:

Can I use a single strand of sport weight yarn for this sweater?

13.06.2023 - 04:01

DROPS Design answered:

Hi Tal, You can use a single strand of any yarn from group C and use the same stitch count and knitting tension. Happy crafting!

13.06.2023 - 06:43

country flag Marina wrote:

You understood my question and in reviewing the pattern I can see how it looks like a "drop" sleeve. I know what to do now. Thank you.

30.11.2022 - 18:39

country flag Marina Pezzotti wrote:

From the picture the sleeve seems to have a sort of a bell, but nothing is mentioned in the instructions. Could you please clarify?

30.11.2022 - 00:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pezzoti, the jumper on the picture has been worked following the written pattern, on both front and back piece, you will cast on new stitches for shoulders, and sleeves are worked without sleeve cap (like a "drop" sleeve). Hope I didn't misunderstood your question. Happy knitting!

30.11.2022 - 08:53

country flag Hilde wrote:

Kan ik dit breien met soft tweed en kid silk ?

19.11.2022 - 17:15

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Soft Tweed valt onder garencategorie B en Kid Silk onder garencategorie A. Je hebt dan A + B en in het patroon staat A + A aangegeven, waardoor de stekenverhouding van jouw combinatie anders kan zijn. Je zou een proeflapje kunnen maken om te kijken of je op dezelfde stekenverhouding komt. Dan zou het wel kunnen.

20.11.2022 - 17:14

country flag Anna wrote:

I need clarification for this pattern. For a size small it requires 7x50gm balls (350gm total) of Drops Nord and 5x25gm (125gm total) of Drops Kid-Silk. I don' t see anywhere in the pattern where Drops Kid-Silk is not used. I'm confused because if I'm using Kid-Silk for all the pieces, I have 225gms less than Drops Nord. Shouldn't the yarn requirements be the same for both types of yarn?

23.09.2022 - 16:48

DROPS Design answered:

Dear Anna, the important part is not the weight but the yardage. DROPS Nord has 170 meters in each ball of 50gr, while Kid-Silk has 210 meters in each ball of 25 gr. So, 7 balls of Nord have 1190 meters in total, while 5 balls of Kid-Silk has 1050 meters in total. So the yardage is pretty similar and there will be some leftovers of DROPS Nord. Happy knitting!

25.09.2022 - 20:52

country flag Flo wrote:

Could I make this with 1 strand Safran 1 strand kid silk? I'm struggling to find non-itchy yarns for these beautiful patterns! Or could you recommend a C yarn that would work? The colour ranges are not so full in some non-itchy yarns (so many discontinued in baby alpaca silk for example). Can you offer any hope?

22.09.2022 - 15:53

DROPS Design answered:

Dear Flo, you can replace Nord with any other yarn group A, ie Safran for example would work - or you can also use any yarn group C, just remember the texture will be different depending on the yarn chosen - and always check tension as usual. Contact your DROPS Store for any individual assistance choosing the best matching combination, they will help you even per mail or telephone. Happy knitting!

23.09.2022 - 08:04