DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Inverted Peaks Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-4
DROPS Design: Mynstur ml-090
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
150-150-150-200-200-200 g litur 15, beige
100-100-150-150-150-150 g litur 05, svartur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-72-76-84-84 lykkjur með litnum svartur í DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 6 sem er haldið saman.
Dragið út hringprjón 6 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjón 5 (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni jafnframt sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppiftjunarkanti. Nú er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-18-14-26-26 lykkjur jafnt yfir = 80-80-90-90-110-110 lykkjur. Prjónið 0-1-3-3-3-4 umferðir sléttprjón með litnum svartur. Prjónið síðan A.1 umferðina hringinn – sjá LEIÐBEININGAR!
Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 23-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Síðasta útaukningin hefur nú verið gerð til loka og það eru 208-208-234-234-286-286 lykkjur í umferð.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan – ATH: A.1 er ekki lokið, heldur er mynstrið prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Prjónið A.1 yfir fyrstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir næstu 65-65-78-78-91-91 lykkjur (framstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið A.1 yfir þær 26-26-39-39-39-39 lykkjur á bakstykki. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 138-150-176-178-198-206 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum beige. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-19-19-19-19 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 144-156-188-190-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 39-39-39-39-52-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-10-12-8-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-49-49-51-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-10-12-8-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í litnum beige. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 12-6-6-7-4-3 cm millibili alls 3-5-5-4-6-7 sinnum = 37-39-39-43-48-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-9-9-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = svartur
symbols = beige
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Marisa Fidalgo Benayas wrote:

Hola me podría decir como conseguir este patrón en azul que también tiene dibujo abajo. QueenVictoriaa Inverted Peaks Sweater gracias

17.04.2024 - 19:13

DROPS Design answered:

Hola Marisa, nosotros no hacemos patrones personalizados. Puedes modificar el dibujo a tu gusto y usar otros hilos para que el patrón quede en otros colores. Si te refieres a una foto de nuestra galería DROPS fan, puedes intentar ponerte en contacto con la diseñadora haciendo click en el proyecto concreto para consultar sus modificaciones.

21.04.2024 - 23:51

country flag Eugenia wrote:

Hola, quisiera saber cómo uno los 72 puntos al principio para tejer en redondo? Agrego uno más y los junto?? Gracias

27.03.2024 - 01:23

DROPS Design answered:

Hola Eugenia, puedes ver el siguiente vídeo para entender cómo montar, unir y continuar trabajando en redondo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=44&lang=es.

31.03.2024 - 23:18

country flag Myriem Leben wrote:

Bonjour Pour l empiècement de ce modèle taille L j'ai 90 mailles on dit de continuer avec le diagramme A1 en augmentant suivant le diagramme jusqu'à 26 cm le dernier tour d'augmentations tricoté on obtient 234 mailles. Combien de motif A1 on a sur tout l'empiècement

16.02.2024 - 22:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leben, au tout début de A.1 on a 5 mailles, autrement dit, vous allez répéter 18 fois les 5 mailles de A.1 et augmenter comme indiqué dans le diagramme; vous aurez 13 mailles dans chaque A.1 quand les augmentations seront terminées, soit 18 x 13 = 234 mailles. Bon tricot!

19.02.2024 - 07:43

country flag Clara wrote:

Hallo, ich möchte den Pullover gerne so stricken wie auf dem Foto abgebildet. Die Anleitung ist anders. Denn auf dem Bild ist das schwarz oben bestimmt 10cm lang. Mit der Anleitung komme ich aber auf höchstens auf 13 sichtbare Reihen. Auf dem Bild ist A1 bei der Teilung ca. Bei der vorletzten Zunahme, in der Anleitung soll die Teilung erst bei der letzten Zunahme sein. Wie kann ich die Anleitung anpassen, dass das Muster so platziert ist wie auf dem Bild? Vielen Dank!

12.02.2024 - 14:00

DROPS Design answered:

Liebe Clara, der Pullover auf dem Bild wird so gestrickt, dh zuerst Halsblende, dann je nach der Größe 1 bis 5 Runden glattrechts, dann A.1 (= 7 Runden mit schwarz am Anfang). Viel Spaß beim stricken!

13.02.2024 - 08:07

country flag Ingrid wrote:

Ich stricke den Pullover in Größe M. Bei derm Rumpfteil sind es wie in der Beschreibung 150 Maschen. Jedoch geht dann das Muster nicht mehr auf! Müssten es nicht 156 Maschen sein, um das Muster vorführen zu können? Also statt 10 neue Maschen 13 Maschen anschlagen? Liebe Grüße

01.01.2024 - 19:25

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, so können Sie machen, aber hier wird das Muster nicht an den Seiten passen, dh die letzten Reihen vom Diagram stricken Sie soviel Sie können, dann stricken Sie die übrigen Maschen unter den Ärmeln mit beige. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 12:09

country flag Martine wrote:

Bonjour je voulais savoir si les 10 mailles ajouter sous les bras se tricote dans la laine la plus claire ? Merci Martine 😁

08.12.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, tout à fait, on va relever les mailles sous la manche avec la laine claire (en beige ici) et les tricoter aussi avec la laine claire (et les autres comme avant). Bon tricot!

11.12.2023 - 07:37

country flag Strickfan wrote:

Hallo, ist Ihnen bewusst, dass der Shop "KnittingPatternWorld" auf Etsy Ihre Strickanleitungen (auch die Neuen als Vintage vor 2000) für 2,88 € verkauft? Viele Grüße

05.12.2023 - 23:15

DROPS Design answered:

Liebe Strickfan, danke für den Hinweis, gerne können Sie uns helfen, wenn Sie Etsy darauf hinweisen. Danke im voraus. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2023 - 16:01

country flag Angela wrote:

In welcher Farbe werden die Umschläge gearbeitet?

01.12.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Liebe Angela, bei der 1. Runde werden die Umschläge mit schwarz gestrickt, dann werden sie mit beige gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

04.12.2023 - 07:45

country flag Jeanne wrote:

Ik heb deze trui gebreid van het garen melody. De trui ziet er heel mooi uit. Alleen is de boord aan de onderkant nogal slap en is niet flexibel. De mouwen heb ik afgekant op z'n Italiaans, maar de onderkant niet. Kan ik hier nog iets aan veranderen? Ik heb nog garen over. Alvast bedankt voor het antwoord.

28.11.2023 - 16:01

DROPS Design answered:

Dag Jeanne,

Ja, je zou de afkantrand van de boord op het lijf uit kunnen hallen opnieuw afkanten, maar dan in Italiaans afkanten. Als je de boord te wijd vindt, zou je ook de hele boord uit kunnen halen en steken minderen vlak voor de boord en/of de boord met een dunnere naald breien.

29.11.2023 - 19:24

country flag Anette wrote:

The round starts in the middle of the neck, but we have placed the marker in the middle of the front. So do I knit half a round (from neck to front) before starting diagram A1?

05.10.2023 - 13:32

DROPS Design answered:

Dear Anette, the rounds start on mid back but you measure the piece from marker placed on mid front. Happy knitting!

06.10.2023 - 08:47