DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lost in Summer Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-50
DROPS Design: Mynstur r-797
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 18, hvítur

DROPS TALA NR 541: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1d og A.1e). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8½-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsimáliog berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 115-121-125-129-133-137 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff fram og til baka svona í 3 cm.
Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 13-7-3-16-12-8 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 128-128-128-145-145-145 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni).
Setjið 1 prjónamerki innan við kant að framan í byrjun á umferð frá réttu. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 22-22-22-26-26-26 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur ( ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-34-34-43-43-43 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir á eftir síðasta prjónamerki (framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert prjónamerki.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að prjóna mynstur og auka út fyrir laskalínu. Lesið MYNSTUR og LASKALÍNA áður en prjónað er áfram!

MYNSTUR:
Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1d, A.1c, 2 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1a, prjónið A.1b alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, A.1c, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1a, A.1e, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Prjónamerkin 4 sitja á milli 2 lykkja í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1a /A.1c og A.2 á sama hátt og útskýrt er í mynsturteikningu.
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 23-26-30-32-37-41 sinnum = 312-336-368-401-441-473 lykkjur.

Prjónið mynstur án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu.
Skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 48-52-56-60-67-73 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 86-94-102-111-125-137 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 48-52-56-60-67-73 lykkjur eins og áður (framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 194-210-226-247-275-299 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, en yfir 2 lykkjur frá hverri gataumferð á berustykki, prjónið A.3, þ.e.a.s. í 4. hverri umferð fléttast lykkjurnar, sem áður voru í gataumferð, í línu beint yfir hverri gataumferð, þannig að það myndast línur á fram- og bakstykki eftir berustykki.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 63-69-73-80-88-96 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 257-279-299-327-363-395 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 65-69-77-85-91-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-93-99-103 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 yfir lykkjur frá berustykki og prjónið 3-3-3-4-4-4 síðustu lykkjur í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 67-71-79-87-93-97 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 15-13-12-10-9-7 cm frá skiptingu, prjónið 2 lykkjur í hverri gataumferð slétt saman, að auki er fyrsta og síðasta lykkja í umferð prjónuð slétt saman (= alls 9-9-9-11-11-11 lykkjur færri) = 58-62-72-76-82-86 lykkjur.
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en lykkjan sem stendur ein mitt undir ermi er prjónuð brugðið í stærð S og XXL og hún er prjónuð slétt í stærð M, L, XL og XXXL.
Prjónið þar til ermin mælist 19-17-16-14-13-11 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð í stærð M, L og XXXL eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman hvoru megin við lykkju mitt undir ermi = 58-60-70-76-82-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að stroffið passi við lykkjurnar út umferðina.
Prjónið þar til ermin mælist 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Fellið aðeins laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Vien Tran wrote:

I am working on the body of the cardigan but I don\'t understand the meaning of \"over the 2 stitches from each row of holes on the yoke, work A.3; you are cabling stitches every 4th row creating lines on the body under each row of holes.\". Could you explain more on how to do it? \r\nThank you

26.11.2023 - 04:02

country flag Alisa wrote:

Maybe I don\'t understand something, but the describtion seems to be wrong. It says that after increase I\'m supposed to have 336 stitches (size M). Then I should divide them 52 + 69 + 6 + 94 + 69 + 6 + 52. But it\'s 348 stitches????

17.08.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Dear Alisa, the 6 sts x 2 are to cast on, they are not on needle including in the 336 sts but coming extra, see description of a top down jumper from picture 9 in this lesson. Happy knitting!

18.08.2023 - 08:46

country flag Alisa wrote:

Hi, what happened with website? Diagrams don't load.

11.08.2023 - 21:29

DROPS Design answered:

Dear Alisa, this might have been a temporary bug since all diagrams can be now visible. Happy knitting!

14.08.2023 - 08:46

country flag Sabine wrote:

Hallo, ich habe leider dasselbe Problem wie Pam vor mir. Ich habe 16 Reihen im Muster gestrickt. Nun gibt es das Problem, dass zur nächsten Reihe, erneut Reihe 1, keine Kontinuität besteht. Reihe 1 hat auf einmal zwei linke Maschen am Rand. Das funktioniert so aber praktisch nicht. Viele Grüße, Sabine

09.07.2023 - 12:28

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, das Muster sollen Sie wie zuvor eweitern, dh die nächste 2 Zunahmen stricken Sie links (so haben Sie 3 Links, 1 rechts, 3 Links), die nächste 2 Zunahmen stricken Sie rechts (für das Lochmuster), die nächsten 3 links, die nächste rechts, die nächste 3 links usw so wird das Muster so erweitern. Viel Spâß beim stricken!

27.07.2023 - 09:47

country flag Marieke wrote:

Ik heb zojuist de steken voor de mouwen op de hulpdraad gezet. Ik brei maat L. Klopt het dat de de twee tricot steken met daar tussen de markeerdraad beide bij t voorpand horen inclusief nog 3 steken na de twee tricot steken? Voor mij gevoel zou je de splitsing maken tussen de twee tricot steken? Alvast bedankt voor t antwoord.

11.04.2023 - 22:00

country flag Pam wrote:

I'm sorry but your response is not helpful. The sides of the pattern do not seem to repeat. For example, in A2 row 17 does not look like row 1 or row 8 at the edges. Is it true that I have to build my own diagrams for 48 rows, or am I not seeing the repeat? I may have to abandon this sweater. Pam

18.01.2023 - 00:43

DROPS Design answered:

Dear Pam, you just have to enlarge the pattern as it was worked before, ie after the last increase in A.2 there is P1 on each side, ie you need now to *purl the next 2 increases, then K1, then P3, then K2 (for the lace pattern), then P3, K1 and continue again from * until all increases are done, and the pattern will continue with nice stripes as the middle stitches. Happy knitting!

18.01.2023 - 09:43

country flag Pam wrote:

Hi. I can't believe I'm the only one who ask to ask this but the diagrams only go up to row 16 of the yoke whereas there are (for XL) 64 rows of increases. Are we supposed to figure out the rest of the diagrams as it doesn't seem evident to me how that should be done. I am building an excel sheet but it's going to take quite the effort - am I missing something obvious? Thanks so much for the help. I love Drops designs and yarn. Pam

17.01.2023 - 00:22

DROPS Design answered:

Dear Pat, you just continue to increase as said for your size and at the same time work the new stitches so that the pattern will grow on each side and continue as before. Happy knitting!

17.01.2023 - 10:20

country flag Véronique wrote:

Bonjour, je tricote la taille l. Lorsque j'entame le point fantaisie, je n'arrive pas au nombre de mailles. Je suis des diagrammes et ça ne tombe pas juste. Merci de votre aide.

15.10.2022 - 19:11

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, en taille L, tricotez les 128 mailles ainsi: 5 m point mousse, A.1d (= 8m), A.1c (= 8 m), 2 m jersey (raglan), A.2 (=23 m), 2 m jersey (raglan), A.1a (=6 m), 2 fois A.1b (= 2x9= 18 m), A.1c (= 8 m), 2 m jersey (raglan), A.2 (23 m), 2 m jersey (raglan), A.1a (= 6 m), A.1e (10m), 5 m point mousse = 5+8+8+2+23+2+6+18+8+2+23+2+6+10+5=128 mailles. Suivez bien les bons diagrammes A.1d et A.1e pour la taille L. Bon tricot!

17.10.2022 - 09:31

country flag Solveig wrote:

Strikker str L og får ikke raglanøkingen til å stemme. I starten 22 m til forstykke og 30 m økning gir 52, men når det skal deles til bol og ermer skal str L ha 56 masker til forstykke? Og i starten 25 masker til erme +30×2 masker økning skulle gi 85 m, men skulle være 77 masker i følge oppskriften. Bakstykke 34 masker + 2x30 masker økt = 94 masker men skal i følge oppskriften være 102?? Er det noe galt eller misforstår jeg noe?

08.10.2022 - 18:15

DROPS Design answered:

Hei Solveig. Ingen feil eller misforståelse, du har økt riktig. På denne modellen vil man ved deligen "ta" litt av ermaskene til bolen og så lenge det blir symmetrisk (på begge sider) kan dette gjøres. mvh DROPS Design

17.10.2022 - 09:29

country flag Lisbeth Østerlund wrote:

Jeg strikker i str. 3X. Jeg kan ikke få 41 udtagninger til at passe med maskeantallet før og efter maskeantallet Er det en fejl eller er der noget jeg ikke har set?

10.08.2022 - 09:52

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, du har 145 masker, tager 8 masker ud 41 gange = 328. Det bliver ialt 473 masker. God fornøjelse!

11.08.2022 - 09:27