DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Harlequin Ruffles Top

Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og pífu. Stærð S – XXXL.

DROPS 231-46
DROPS Design: Mynstur e-334
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 18, natur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

HEKLFESTA:
24 stuðlar á breidd og 13 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju.

ÚRTAKA:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum, neðan frá og upp og er saumaður saman í lokin. Pífukantur er heklaður fram og til baka meðfram opi á ermum.

BAKSTYKKI:
Heklið 118-124-132-144-160-174 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru (frá röngu) = 115-121-129-141-157-171 stuðlar.
Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið síðan mynstur frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 2-5-9-6-14-12 stuðlum, A.1, A.2 alls 4-4-4-5-5-6 sinnum, A.3 og 1 stuðull í hvern af síðustu 2-5-9-6-14-12 stuðlum.
Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið A.1a, A.2a og A.3a á hæðina.

Þegar stykkið mælist 10 cm, heklið 2 ystu stuðlana í hvorri hlið saman – sjá ÚRTAKA (= 1 lykkja færri í hvorri hlið). Fækkið lykkjum svona með 10-7-12-12-7-7 cm millibili alls 2-3-2-2-3-3 sinnum = 111-115-125-137-151-165 lykkjur.
Mynstrið er heklað þannig:
1 stuðull í hvern af næstu 0-2-7-4-11-9 stuðlum, A.1a, A.2a og A.3a eins og áður og 1 stuðull í hvern af síðustu 0-2-7-4-11-9 stuðlum.

Heklið þar til stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm, endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina.
Mynstrið er síðan heklað frá réttu (stillið af umferð sem byrjað er á við mynstur):
Heklið 1 stuðul í/um hverja af fyrstu 10-12-17-14-21-19 lykkjum, A.1x, A.2 alls 4-4-4-5-5-6 sinnum, A.3x og 1 stuðul í hverja af síðustu 10-12-17-14-21-19 lykkjum.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, klippið þráðinn frá.

Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Hoppið yfir fyrstu 3-4-6-9-13-16 lykkjur fyrir handveg, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu lykkju, 1 stuðull í/um hverja af næstu 6-7-10-4-7-2 lykkjum, A.3x, A.2 og A.1x eins og áður og 1 stuðull í/um hverja af næstu 7-8-11-5-8-3 lykkjum = 105-107-113-119-125-133 lykkjur.
Þ.e.a.s. ekki er lengur heklað yfir ystu 3-4-6-9-13-16 lykkjur í hvorri hlið (handvegur).
Haldið svona áfram með mynstur.
Heklið þar til stykkið mælist ca 37-38-39-41-42-44 cm, endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina.
Heklið síðan stykkið með 1 stuðul í/um hverja lykkju.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, heklið hálsmál þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 31-31-34-36-39-42 lykkjum, heklið 2 næstu stuðla saman, 1 stuðull í næsta stuðul, snúið = 33-33-36-38-41-44 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina öxlina þannig:
Hoppið yfir miðju 37-39-39-41-41-43 lykkjur fyrir hálsmál, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu lykkju, heklið 2 næstu stuðla saman, 1 stuðull í hverja af síðustu 31-31-34-36-39-42 lykkjum = 33-33-36-38-41-44 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið .

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 41-42-43-45-46-48 cm. Í næstu umferð við hálsmál er heklað þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 35-35-38-41-44-48 lykkjum, heklið 2 næstu stuðla saman, 1 stuðull í næsta stuðul, snúið = 37-37-40-43-46-50 stuðlar. Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 34-34-37-40-43-47 stuðlum = 36-36-39-42-45-49 lykkjur.
Haldið svona áfram og fækkið um 1 lykkju innan við 1 stuðul í hverri umferð alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 33-33-36-38-41-44 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið.

Heklið hina öxlina þannig:
Hoppið yfir miðju 29-31-31-31-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, 1 stuðul í sömu lykkju, heklið 2 næstu stuðla saman, 1 stuðull í hverja af síðustu 35-35-38-41-44-48 lykkjum = 37-37-40-43-46-50 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 34-34-37-40-43-47 lykkjum, heklið 2 næstu stuðla saman, 1 stuðull, snúið = 36-36-39-42-45-50 lykkjur.
Haldið svona áfram og fækkið um 1 lykkju innan við 1 stuðul í hverri umferð alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 33-33-36-38-41-44 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmálið á toppnum þannig:
Byrjið við axlasauminn.
Heklið 1 keðjulykkju um lykkjuna efst á öxl frá réttu, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju um/í næstu lykkju *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Endið kantinn með 1 fastalykkju um sömu lykkju eins og fyrstu keðjulykkju.

KANTUR ERMI:
Heklið pífukant fram og til baka meðfram hvorum handvegi þannig:
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu umferð eftir að hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg á bakstykki, * heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu opinu fyrir handveg niður að síðustu umferð þar sem hoppað var yfir lykkjur fyrir handveg á framstykki (passið uppá að kanturinn dragi ekki handveginn saman, heklið e.t.v. 1 loftlykkju fleiri á milli hverra fastalykkja). Heklið síðan A.4 fram og til baka yfir þessar lykkjur.
Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.
Heklið hinn kant á ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = stuðull um lofltykkju/lofltykkjuboga fyrir neðan

symbols = loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
symbols = fastalykkja
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Harlequin ruffles top

La Malle à Créations, France

Harlequin Ruffles Top

NeedlesWLove, Portugal

Harlequin Ruffles Top

NeedlesWLove, Portugal

Harlequin Ruffles Top

NeedlesWLove, Portugal

Harlequin Ruffles Top

@needleswlove, Portugal

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Fiona wrote:

Trying to follow the diagrams, I just started the back section. I'm on the third row of the diagrams and I'm trying to figure out how everyone made up for the chains and chain spaces? I'm losing 4 stitches in diagram A.1 row 3. How do I make it line up correctly?

01.01.2024 - 05:08

DROPS Design answered:

Dear Fiona, you can place markers between each diagram to make sure you always get the correct number of stitches in each diagram and keep tracking that way. Happy crocheting!

02.01.2024 - 11:52

country flag Maria Engström wrote:

Gjorde efter mönstret storlek M med garnet och nålen som rekommenderas. Men för att man ska kunna ha denna i storlek M så får man inte ha några bröst. Min dotter på 11 år fick tröjan och den passade henne perfekt. Hon är 140 cm lång och inga bröst. Hon kan inte ens ha XS-storlekar från affären för de är för stora. Så virka minst två storlekar större än vad du brukar ha.

31.10.2023 - 13:06

country flag Asun wrote:

Muchas gracias por este bonito patrón. Estoy realizando la parte de la espalda y tengo una duda… después de haber disminuido 3 puntos en las sisas, debo seguir disminuyendo tres puntos en cada vuelta o solamente de disminuye una vez? Lo pregunto porque después de esta indicación pone “continuar con este patrón”. Gracias por vuestro trabajo.

23.03.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Hola Asun, solo se saltan 3 puntos para la sisa a cada lado en total. Así que solo disminuyes para las sisas en la primera fila pero el resto del patrón se continúa igual.

26.03.2023 - 22:03

country flag Elisabeth RENGSHAUSEN wrote:

Comment faire une bride avec maille en l'air

03.03.2023 - 18:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rengshausen, je ne suis pas bien sûre de comprendre ce que vous entendez par là, est-ce que nos vidéos et leçons listées à la fin des explications peuvent vous aider? Ou bien à quelle partie des explications faites-vous référence? Merci de bien vouloir nous donner plus de précisions pour que nous puissions vous aider.

06.03.2023 - 09:01

country flag Elisabeth RENGSHAUSEN wrote:

Comment faire une bride avec jeté

03.03.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rengshausen, cette leçon et cette vidéo montrent toutes deux comment crocheter une bride (on commence par faire 1 jeté sur le crochet puis on continue la bride comme expliqué). Bon crochet!

06.03.2023 - 09:00

country flag Mariangela Sena wrote:

Ciao, Dove dice:Diminuire in questo modo ogni 10-7-12-12-7-7 cm per un totale di 2-3-2-2-3-3 volte = 111-115-125-137-151-165 maglie, intende che nel ferro che sto lavorando devo diminuire di 2 maglie all inizio e due alla fine e poi ogni 10 cm in altezza devo rifare le diminuzioni?

21.08.2022 - 15:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Mariangela, esatto, deve procedere in questo modo con le diminuzioni alle altezze e ripetizioni indicate per la sua taglia. Buon lavoro!

24.08.2022 - 15:19

country flag Ana wrote:

Olá! A tradução desta receita diz incorretamente que o mesmo é feito de cima baixo, quando o mesmo é feito de baixo para cima. Grata!

27.06.2022 - 03:43

country flag Odette Buelens wrote:

Versta het verschil niet tussen A1, A1a, enz. Moet elke tekening van het patroon maar 1x gehaakt worden, en dan verder naar boven ? Heb 9 stokjes gehaakt op de twee volledige rijen stokjes bij het begin v/h werk, en wat dan ? hoe gaat het dan verder ? volgens mij komt het telpatroon ook niet overeen met de geschreven instructies.

27.05.2022 - 21:11

DROPS Design answered:

Dag Odette,

De patronen lijken inderdaad veel op elkaar. Er zitten echter wel kleine verschillen in, bijvoorbeeld waar de ruitjes gepositioneerd zijn. Op het achterpand haak je eerst A.1 in de breedte, dan herhaal je A.2 4-4-4-5-5-6 keer in de breedte en tot slot A.3. Dit patroon haak je in de hoogte.

28.05.2022 - 18:35

country flag Anna wrote:

I think this is an error in the pattern: "1 treble crochet in/around each of the first 10-12-17-14-21-19 stitches, A.1x, A.2 4-4-4-5-5-6 times, A.3x and 1 treble crochet in each of the last 10-12-17-14-21-19 stitches. " and the numbers should actually be 0-2-7, etc.

23.05.2022 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Anna, pattern is right, you are now working the last 10 sts in A.1 = A.1x and work the first 10 sts as trebles instead of as in the diagram, and at the end of the row, you work A.3x = the 9 first stitches, working the last 10 sts as trebles. ie pattern starts and ends now with half a repeat. Happy crocheting!

24.05.2022 - 08:32

country flag Lilian wrote:

This looks Gorgeous might give it a try!

04.05.2022 - 04:30