DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Luminous Sand

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-37
DROPS Design: Mynstur fa-486
Garnflokkur A + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 912, súkkulaði
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-175-175-200-225 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með gatamynstri (A.2) og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 41) = 1,4.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca hverja og aðra hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-108-117-117-126-126 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Prjónið nú allar 2 lykkjur brugðið saman til 1 lykkja brugðið = 72-72-78-78-84-84 lykkjur (= lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm.
Nú eru prjónaðar kúlur hér, nákvæmlega þar sem brotið er uppá tvöfaldan kant í hálsmáli:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur + 2 uppslættir í eina lykkju), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 120-120-130-130-140-140 lykkjur.
UMFERÐ 2 og 3: * Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 5 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 4: * Prjónið fyrstu/næstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur + 1 lykkja brugðið) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 72-72-78-78-84-84 lykkjur.
UMFERÐ 5: * Prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
Haldið áfram hringinn með stroffi (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 11 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman tvöfaldan og við frágang þá verður hann ca 5 cm.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 72-72-76-80-84-84 lykkjur (þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur í M og aukið er út um 2 lykkjur í XXL. Í stærð S, L, XL og XXXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út).
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig:
Fyrsta prjónamerki: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi).
Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 10 lykkjur (= hægri ermi), setjið 2. prjónamerki hér.
Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 26-26-28-30-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki hér.
Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 10 lykkjur (= vinstri ermi), setjið 4. prjónamerki hér.
Nú eru 26-26-28-30-32-32 lykkjur eftir í umferð eftir 4. prjónamerki (= bakstykki).

Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3 yfir næstu 2 lykkjur, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 20-20-22-24-26-26 lykkjur, A.3 yfir næstu 2 lykkjur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-18-20-20-20-22 sinnum (aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – svarti uppslátturinn er útaukning fyrir laskalínu og endurtakið mynstur á hæðina) = 200-216-236-240-244-260 lykkjur.
Nú er útaukning í stærð S, M og L lokið.
Í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út þannig:
Haldið áfram hringinn eins og áður, en nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) 2-4-4 sinnum = 248-260-276 lykkjur.

Allar stærðir:
Haldið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 42-46-50-50-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-50-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (= bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 128-136-148-160-180-188 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Færið umferðina til þannig að umferðin byrji 1 lykkju á eftir prjónamerki í annarri hliðinni (þ.e.a.s. á milli 4.-4.-4.-4.-6.-6. og 5.-5.-5.-5.-7.-7. lykkju sem fitjaðar voru upp í hlið.
Haldið áfram hringinn með mynstur A.2 – passið uppá að byrja í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið passi yfir mynstur frá berustykki.
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 13 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af að síðasta umferð sé umferð án uppsláttar.
Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 15 cm með klauf í hvorri hlið að loka máli).
Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við prjónamerkin og prjónað er áfram fram og til baka yfir hvort stykki.

FRAMSTYKKI:
Prjónið fram og til baka með mynstri yfir miðju 54-58-64-70-80-84 lykkjur og GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 5 ystu lykkjur í hvorri hlið. Þegar framstykkið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-64-70-80-84 lykkjur og aukið jafnframt út um 39-41-45-49-53-57 lykkjur jafnt yfir, 5 lykkjur garðaprjón = 103-109-119-129-143-151 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Nú er prjónað stroff þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (þannig að stroffið byrjar og endar alveg eins) og 5 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið bakstykki á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Setjið 42-46-50-50-50-54 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 48-52-56-56-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= mitt undir ermi og það eru 3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið mynstur þannig: 1 lykkja slétt, A.2 eins og áður yfir næstu 46-50-54-54-58-62 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt.
Haldið áfram hringinn svona. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku svona með ca 3-2½-2-2-1-1 cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 36-38-40-40-42-42 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-31-25-30-28-27 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú er eftir ca 10 cm stroff að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-68-68 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki – uppábrotið á að vera nákvæmlega þar sem kúlurnar eru. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = snúin lykkja slétt frá réttu, snúin lykkja brugðið frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Isabella wrote:

In de beschrijving van de noppen blijkt een fout te zitten. Dat is blijkbaar al een paar keer aangegeven. Waarom wordt dit niet aangepast? Ik denk dat Marlies op 3-4-2023 de juiste oplossing al heeft gegeven. Daar kom je helaas pas achter als je naald 2 van de noppen wilt gaan breien.

06.01.2024 - 14:09

country flag Castelli wrote:

Bonjour Je commence le pull ref:232-37, je ne peux pas réaliser le tour 4. Avant le tour 1 on parle de nopes. OK ça, je sais faire. Hors dans les tours 1 , 2 et 3 ce ne sont pas des nopes. Tour 4, tricoter ensemble les 6 premières mailles , impossible à réaliser. pouvez vous m'expliquez le point svp? D'avance merci.

03.04.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Castelli, pour tricoter ces nopes, suivez bien les tours 1 à 4, au 1er tour, on va augmenter en tricotant plusieurs fois la même maille (chaque nope sera espacée de 3 mailles), vous tricotez ensuite les tours 2 et 3 ocmme indiqué (on tricote ici toutes les mailles des tours, pas seulement celles des nopes) et, au 4ème tour, on diminue les mailles augmentées au 1er tour pour former les nopes. Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 5 mailles ensemble à l'endroit, procédez de la même façon mais avec les 6 mailles de chaque nope. Bon tricot!

11.04.2023 - 11:06

country flag Marlies wrote:

In de beschrijving van dit patroon zit een fout, denk ik. Bij naald 1 bolletjes in de boordt moet staan: NAALD 1: * 1 recht, maar laat de steek niet van de naald af glijden, maak 1 omslag, 1 recht in dezelfde steek, 1 omslag, 1 recht in dezelfde steek (= 3 steken + 2 omslagen in 1 steek), 1 averecht, 1 gedraaid recht, 1 averecht , 1 gedraaid recht, 1 averecht*, brei van *-* tot het einde van de naald = 120-120-130-130-140-140 steken.

03.04.2023 - 09:12

country flag Maria Karlsson wrote:

Jag förstår inte denna beskrivning. Den är för mig väldigt otydlig. Jag har stickat havskanten och första möstervarvet på oket, men hur gör jag på varv 2 och tre.? Det står bara”” ”fortsätt så runt”. Hurdå fortsätt SÅ ? Förstår inte diagrammet, då det inte stämmer överens med matskandaler och det inte står något om vad man gör i mellanrummet mellan diagrammen. Dessutom står det fel i teckenbeskrivningen. Det står samma sak på 2 tecken.

21.03.2023 - 17:19

DROPS Design answered:

Hei Maria. Diagramteksten er oppdatert, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Når du har strikket 1. omgang slik det står i oppskriften og etter diagrammene, fortsetter du på samme måte når du skal starte på 2. omgang. Når du følger forklaringen er det beskrever hva du skal strikke mellom diagrammene. I f.eks str. S har du 72 masker etter halskanten, så strikker du 1 m rett + A.1 (2 m) + A.2 (4 m) + A.3 (2 m) + 2 m rett + A.1 (2 m) + A.2 (20 m) + A.3 (2 m) + 1 m rett = 36 masker, så gjentas alt dette 1 gang til = 36+36= 72 masker. mvh DROPS Design

27.03.2023 - 10:23

country flag Doris Soehe wrote:

Ich stricke dieses Modell in Gr. S und verstehe nicht was gemeint ist mit " das Muster in der Höhe wiederholen". Ich habe das Diagramm einmal fertig, es fehlen mir aber noch 4 Raglanzunahmen bis ich auf 200 Maschen komme. Im welcher Weise (in welchem Musterverlauf) soll ich weiter stricken nach Ende des Diagramms. Neu beginnen ab Reihe 1 des Diagramms oder die Fortsetzung selbst ausrechnen nach Reihe 24 Danke für Ihre Antwort.

18.01.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Soehe, jetzt stricken Sie das Lochmuster wie zuvor mit (1 Runde mit Lochmuster, 1 Runde rechts, 1 Runde mit Lochumster, 3 Runden rechts) und gleichzeitig nehmen Sie wie zuvor in jeder 2. Runde zu. dh ab der 13. Reihe im A.2/A.3 wiederholen, bis die Zunahmenanzahl erreicht wird. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2023 - 16:51

country flag Heidi Poelmans wrote:

Ik kom niet uit met de noppen... Ik heb 72 steken maar kom nooit tot 120 steken. Niet zoals beschreven in patroon en niet als ik bijhorend filmpje volg. Doe ik zelf iets fout...

16.10.2022 - 12:54

DROPS Design answered:

Dag Heidi,

Het lijkt inderdaad of het aantal steken niet klopt na de eerste naald. Maar als je het patroon volgt kom je, als het goed is, na naald 4 weer uit op 72 steken. Ik zal het even doorgeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en eventueel aan te passen.

26.10.2022 - 09:42

country flag Joyce Clews wrote:

When I try to print this pattern it only prints up to Diagram section/header and wont print the charts etc. This is happening with all the patterns I’ve tried to download? I tired turning it into a PDF and downloading but I then get the first page greyed out and “Accept terms and conditions” over the pattern. Also it only downloads up to the Diagram section and no charts

01.08.2022 - 09:10

country flag Conny wrote:

Cuddly hideaway

15.01.2022 - 11:11