DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mars Sunrise Jumper

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-21
DROPS Design: Mynstur ai-385
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-150-150-150-150 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 02, hveiti
100-100-100-100-100-100 g litur 34, bleikur marmari
50-50-50-100-100-100 g litur 32, blush
50-50-50-50-50-50 g litur 33, bleikur sandur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
* 8 umferðir í litnum bleikur marmari,
4 umferðir í litnum hveiti,
4 umferðir í litnum natur,
4 umferðir í litnum bleikur sandur,
8 umferðir í litnum hveiti,
6 umferðir í litnum blush,
12 umferðir í litnum bleikur marmari,
4 umferðir í litnum natur,
4 umferðir í litnum hveiti,
4 umferðir í litnum blush,
4 umferðir í litnum bleikur marmari,
4 umferðir í litnum hveiti,
4 umferðir í litnum natur,
4 umferðir í litnum bleikur sandur,
8 umferðir í litnum hveiti,
4 umferðir í litnum blush *, endurtakið rendur á hæðina frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Þegar stykkið hefur verið saumað saman, prjónið kant í hálsmáli í hring í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 105-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú sléttprjón með RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 88-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið: Fellið af 6-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú miðju 20-22-24-26-28-30 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 62-64-66-68-70-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 12-9-7-6½-5-4 cm millibili alls 4-5-6-6-7-8 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-47-46-44-42-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón til loka máls.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-51-51-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 4-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4 og litinn natur, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 82 til 106 lykkjur í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Pascale Bontemps wrote:

Bonjour. Je voudrais faire ce modèle en Drops Paris. Pouvez-vous me conseiller sur le nombre de pelotes pour une taille S ? Merci de votre réponse

18.03.2024 - 01:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bontemps, utilisez notre convertisseur pour avoir la quantité requise pour chaque couleur. Bon tricot!

18.03.2024 - 09:35

country flag Marianne Köchel wrote:

Kann ich das Mode. Designe ai-385 mit der brushed Alpaka Silke wolle 2 fäden stricken.? Mit 1 Fach Faden würde Gr. M passen mit 2 fäden ist das zu groß . kann ich dann Gr. S stricken.? Ich würde mich sehr über eine genaue Antwort freuen, da ichAnfänger bin. Besten Dank im Voraus mit freundlichem Gruß Köchel M.

16.03.2024 - 15:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Köchel, Brushed Alpaca Silk gehört zu der selben Garngruppe wie Air, das bedeutet, diesen Pullover können Sie dann mit 1 Faden Brushed Alpaca Silk stricken, solange Ihre Maschenprobe stimmt. Wenn Sie mit 2 Fäden stricken möchten, dann sollen Sie die gesamte Anleitung nach jeder eigenen Maschenprobe umrechnen oder ein ähnliches Modell, mit Ihrer Maschenprobe herausfinden; Viel Spaß beim Stricken!

18.03.2024 - 08:49

country flag Corina Avram wrote:

Hello! this is a beautiful sweater and I'd like to give it a try to knit it. How much yarn would be needed with just one colour of Drops Air (Size S or M)? Thanks. Corina

24.01.2024 - 17:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, since this jumper was worked with stripes, we don't have the required amount of yarn without stripes, you can add all colors together, you might require less yarn, take inspiration from similar jumpers (check chart to compare) worked with one color Air to help you. Your DROPS store will also be able to help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

25.01.2024 - 08:43

country flag Johanna wrote:

Hej, det står i kommentarerna att man ska minska på bakstycket och i nästa kommentar står det att man inte ska minska på bakstycket. Vilket är det? Ska man minska på samma sätt som på framstycket - eller inte? Och kan ni isf ändra era svar här ovan om ni har svarat fel? Tusen tack!

20.12.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Hej Johanna. Du ska sticka framstycket på samma sätt som bakstycket tills arbetet mäter 46-48-49-51-52-54 cm, dvs du minskar efter resåren och du maskar av till ärmhål på samma sätt på framstycket och bakstycket. Mvh DROPS Design

21.12.2023 - 13:27

country flag Truus wrote:

47-47-46-44-42-39 cm meet, brei dan de mouwkop heen en weer gebreid vanaf midden onder de mouw voor 4-4-5-6-7-10 cm. Kant af. Brei de andere mouw op dezelfde manier. hoe werkt dat

18.12.2023 - 13:18

country flag Susanna Bailey wrote:

I am about to start your Mars sunrise jumper. The sizing does not give the actual measurements so I am not sure where I sit on the chart. Please help. Thank you

09.11.2023 - 09:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bailey, you will find all finished measurements in chart at the bottom of the pattern, should your tension match (= 17 stitches in width and 22 rows in height in stocking stitch = 10 x10 cm), then your finished measurements will match the chart. Read more here. Happy knitting!

09.11.2023 - 15:48

country flag UnniBjørke wrote:

Skal det ikke felles på framstykket etter vrangborden?

27.04.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Hej, jo forstykket strikkes på samme måde som bagstykket til arbejdet måler 46-48-49-51-52-54 cm :)

28.04.2023 - 11:15

country flag ElinornHodel Forsgren wrote:

Hei,jeg forstår ikke hva det menes med å strikke fram og tilbake på ermet hvor splitten skal være øverst på Mars Sunrise Jumper Kan du forklare

03.10.2022 - 16:06

DROPS Design answered:

Hei Elinorn, Ermet er strikket rundt fram til ermetoppen, som er strikket ferdig fram og tilbake (snu etter hver rad). Dette gjør det lettere å få ermet til å passe ermehullet når det sys på. God fornøyelse! God fornøyelse!

04.10.2022 - 06:58

country flag Annette wrote:

Jeg tror at opskriften er forkert Forstykket , der står man skal strikke lige op til 48 cm , skal der ikke lukkes til ærmgab som på bagstykket?? På trøjen lukkes til ærmgab på fodstykkerne

15.05.2022 - 23:05

DROPS Design answered:

Hei Annette. Ingen feil, det står i oppskriften at du skal strikke som bakstykket dvs at når arbeidet måler 33-34-35-36-37-38 cm, felles det av til ermehull i hver side: Fell av 6-7-9-10-12-17 masker på begynnelsen av hver av de 2 neste pinnene = 76-80-84-90-96-100 masker. OG når arbeidet måler 46-48-49-51-52-54 cm, settes de midterste 20-22-24-26-28-30 maskene på en tråd til hals. Hver skulder strikkes ferdig for seg. mvh DROPS Design

16.05.2022 - 11:51

country flag Merrilyn wrote:

Hi I’m knitting the sleeve of the mars sunrise jumper, I don’t understand “work the sleeve cap back and forth from mid-under the sleeve.

09.05.2022 - 03:34

DROPS Design answered:

Hi Merrilyn, Instead of continuing in the round at the top of the sleeve, when you have finished the last round, turn and work back from the wrong side to the start of the round, turn and work from the right side, etc. to the finished length. Happy knitting!

09.05.2022 - 06:52