DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sugar Cane Set

Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi og vesti úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni, með kaðli og tilfærslum á lykkjum. Stærð S til XXXL.

DROPS 225-13
DROPS Design: Mynstur z-949
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
Eyrnaband: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 - 58/60 cm
Vesti: S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250 g litur 302, kamel
250-250-250 g litur 2020, ljós nugat

EYRNABAND:

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 till 58/60 cm
Hæð ca: 12 - 13 - 14 cm

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 302, kamel
50-50-50 g litur 2020, ljós nugat

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 4.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 40 umferðir á hæð með klukkuprjóni (20 sýnilegar umferðir taldar í sléttri lykkju) og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VESTI:

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL
Mál: Breidd: Ca 42-45-48 cm. Lengd: Ca 48-50-52 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250 g litur 302, kamel
200-200-250 g litur 2020, ljós nugat

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 60 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina í hálsmáli – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni (18 sýnilegar umferðir taldar í sléttri lykkju) og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband):
Til að eyrnabandið sitji fallega á höfðinu, verður að prjóna ca 6-7 cm styttra en ummál höfuðs.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJA:
Þegar telja á lykkjurnar er uppslátturinn ekki talin sem eigin lykkja.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er notið við frágang á eyrnabandi.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift – þetta á við um í hverri umferð, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og prjónið kantlykkju.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið kantlykkju, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING (á við um vesti):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 3 lykkjur í eina lykkju þannig:
Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjóni sömu lykju slétt einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í klukkuprjóni – takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir útaukningu (þ.e.a.s. frá röngu), koma sléttu lykkjurnar til með að prjónast slétt án þess að prjóna þær saman með uppslætti, þar sem uppslátturinn hefur ekki verið gerður.

ÚRTAKA (á við um vesti):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Lykkjum ef fækkað á eftir fyrstu lykkju með prjónamerki í þannig:
Prjónið 8 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki í eins og áður, lyftið næstu lykkju + uppsláttur (= 1 klukkuprjónslykkja) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og steypið síðan lyftu lykkjunni + uppslætti yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum á undan annarri lykkju með prjónamerki í þannig:
Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur + uppsláttur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Stuttu endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndist kaðall fyrir miðju framan á eyrnabandi.

EYRNABAND:
Fitjið upp 19-21-23 lykkjur aðeins laust á prjón 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan.
Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjónast slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð.
Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið eins og útskýrt er að ofan. Sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar eyrnabandið mælist ca 49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Stykkið er nú
Stykkið er núna ferningur, brjótið ferninginn saman á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.1.
Nú eiga löngu hliðarnar að eyrnabandinu að leggjast inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.2. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.3.
Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig:
Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.4 (þ.e.a.s. yfir enda á stykki), saumið með þéttu varpspori með 1 lykkju í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið.
Klippið þráðinn og festið enda. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á stykki.

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru stykkin sett saman á öxlum. Að lokum er prjónaður hár, tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-94-100 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir).
Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjónast slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð:
Prjónið kantlykkju, * prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með kantlykkju. Nú eru 59-63-67 lykkjur í umferð. Sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA.
Haldið áfram fram og til baka með 2. og 3. umferð í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 46-48-50 cm, fellið af miðju 19 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsi eru felldar af 2 lykkjur = 18-20-22 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið klukkuprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52 cm er fellt af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn dragist ekki saman, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 88-94-100 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca (= 2 þræðir).
Síðan í stykkinu á að lyfta 1 kantlykkju í hvorri hlið af prjóni eins og prjóna eigi slétt í byrjun á umferð og prjóna slétt í lok umferðar – þetta á við í hverri umferð:
Prjónið kantlykkju, * prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með kantlykkju. Nú eru 59-63-67 lykkjur í umferð.
Haldið áfram fram og til baka með 2. og 3. umferð í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI.
Þegar stykkið mælist 17-19-21 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í 6.-8.-10. lykkju inn frá hvorri hlið (= 1 lykkja brugðið í klukkuprjónsmynstri). Í næstu umferð frá réttu, byrjar tilfærsla á lykkjum. Lykkjum er fækkað og aukið út þannig: Prjónið fyrstu 6-8-10 lykkjur eins og áður, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju – sjá ÚTAUKNING, prjónið næstu 8 lykkjur eins og áður, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir á undan næstu lykkju, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 8 lykkjur eins og áður, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju – munið eftir ÚTAUKNING, prjónið síðustu 6-8-10 lykkjur eins og áður. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur og fækkað um 4 lykkjur í umferð. Fækkið lykkjum og aukið svona út í 14. hverri umferð (þ.e.a.s. í 7. sýnilegri klukkuprjónslykkju á hæðina) alls 7 sinnum.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46 cm. Setjið nú miðju 11 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum = 18-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið klukkuprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52 cm er fellt af með sléttum lykkjum, en til til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

HÁR KRAGI:
Byrjið ca mitt að aftan og prjónið upp 26 lykkjur fram að lykkjum á þræði mitt að framan, prjónið lykkjur af þræði í klukkuprjóni eins og áður, prjónið upp 27 lykkjur fram að miðju að aftan = 64 lykkjur. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, en stillið af að klukkuprjónslykkjurnar af þræði haldi áfram upp yfir hálsmál í mynstri eins og áður.
Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 24 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman, fellið uppsláttinn af slétt eins og eigin lykkja. Kanturinn í hálsi er annað hvort brettur út eða inn eins og á myndinni.
Ef bretta á kant í hálsmáli inn, er hægt að sauma hann niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sugar Cane Set

Sherkaan, France

Sugar Cane Headband

Angela, United Kingdom

Sugar Cane Set

Wollnellie

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Pirjo wrote:

Miksi en saa vinoiksi noita raitoja, kuten kuvassa? Keskeltä ei vähene silmukat.

28.11.2023 - 05:25

DROPS Design answered:

Etukappaleen lisäykset ja kavennukset aloitetaan, kun työn pituus on 17-19-21 cm. Kunhan neulot ohjeen mukaisesti, työhön muodostuu vinoraitoja. Eli sinun tulee neuloa näin: Neulo ensimmäiset 6-8-10 silmukkaa kuten aiemmin, lisää seuraavaan silmukkaan 2 silmukkaa (lue LISÄYSVINKKI), neulo seuraavat 8 silmukkaa kuten aiemmin, kavenna 2 silmukkaa (lue KAVENNUSVINKKI), neulo kunnes seuraavaa merkkiä edeltää 11 silmukkaa, kavenna 2 silmukkaa (muista KAVENNUSVINKKI), neulo seuraavat 8 silmukkaa kuten aiemmin, lisää seuraavaan silmukkaan 2 silmukkaa (muista LISÄYSVINKKI), neulo loput 6-8-10 silmukkaa kuten aiemmin.

04.12.2023 - 17:29

country flag Camilla wrote:

Hur gör man omslagsstygn, ska göras i monteringen av pannbandet?

11.01.2023 - 13:54

DROPS Design answered:

Hej Camille, vi har en video som viser hvordan man monterer pandebåndet. Du finder videoen nederst i opskriften :)

12.01.2023 - 15:20

country flag Ursel wrote:

Gibt es eine Erklärung, wie man das Stirnband verdreht, um die Optik an der Vorderseite zu bekommen? Vielen Dank!

24.11.2022 - 21:23

DROPS Design answered:

Liebe Ursel, ja genau, dieses Video zeigt, wie man so ein Stirnband fertig stellt. Viel Spaß beim stricken!

25.11.2022 - 08:34

country flag Gabi wrote:

Ein sehr schöner Pullunder. Wo kann ich denn die Maßtabelle/Maßskizze finden?

27.09.2022 - 05:49

DROPS Design answered:

Liebe Gabi, Maßskizze gibt es für den Pullunder keine, aber Maßen finden Sie oben bei dem Kopfzeilen. Viel Spaß beim stricken!

27.09.2022 - 09:18

country flag Mathilde wrote:

Bonjour!\r\nTout d’abord j’adore votre site qui est merveilleusement bien fait :)\r\nJe me demandais: pour la grosseur des aiguilles, quand vous indiquez par exemple no 4, est-ce que cela signifie que ce sont des aiguilles de 4mm ? \r\nMerci !\r\nMathilde

02.03.2022 - 15:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mathilde, tout à fait, les explications en français reprennent le système métrique - si vous voulez la conversion des aiguilles en taille US, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et choisissez "English (US/inch)". Bon tricot!

02.03.2022 - 17:39

country flag Ellis wrote:

U geeft aan dat er 2 mogelijke alpacagarens te gebruiken zijn (2draden drops alpaca A of 1 draad alpaca B) het aantal bollen voor draad uit B categorie staat er niet bij maar beter lijkt me om ook het aantal meters aan te geven zodat er evt. ook voor ander garen gekozen kan worden wat dan makkelijker om te rekenen is. dag,👋

15.02.2022 - 18:29

country flag Anna wrote:

Beim Stirnband steht der Stricktipp "es 6-7cm enger als der KU" zu stricken. Ist dies in den Größen schon berücksichtigt? Oder messe ich KU, ziehe 6cm ab und wähle dann meine Größe? Danke

10.02.2022 - 06:10

DROPS Design answered:

Liebe Anna, dies ist schon berücksichtigt, z.B. in die 1. Größe strickt man bis die Arbeit 49 cm misst (+6 cm ) = ca 54-56 cm Kopfumfang. Viel Spaß beim stricken!

10.02.2022 - 09:25

country flag Sabine wrote:

Jeg er i tvivl om starten på vest opskriften: "strik 2 masker ret sammen (= 1 maske taget ind), slå om, tag 1 maske løs af pinden som om den skulle strikkes vrang *... Der er nu 59-63-67 masker på pinden." Hvorfor vil vi gerne tage masker ind på den allerførste pind? og hvis jeg strikker to sammen og slå om så bliver der vel ikke færre masker?

18.01.2022 - 11:46

DROPS Design answered:

Hei Sabine. Jo, patentstrikk er veldig tøyelig og da er det viktig at oppleggskanten ikke strammer. Så da legger man opp mange masker for så å minske maskeantallet før man starter på patentstrikk. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 14:10

country flag JUNGHWA CHO wrote:

"Work the first 6 stitches as before, increase 2 stitches in the next stitch, work the next 8 stitches, decrease 2 stitches work until there are 11 stitches left before the next marker, decrease 2 stitches, work the next 8 stitches, increase 2 stitches in the next stitch, work the last 6 stitches. " Should I have to increase 2 stitches after the first 6 stitches each time? Are the other parts the same? When I tried it, it didn't look the same as the clothes on the screen.

17.12.2021 - 19:55

DROPS Design answered:

Dear Junghwa, yes, you increase 2 stitches after the first 6 stitches each time you work this way, that is, every 14th row. Happy knitting!

19.12.2021 - 20:44

country flag Lena Lilja-From wrote:

Önskar en bra förklaring hur jag gör "förskjutningen"

02.12.2021 - 10:01

DROPS Design answered:

Hej Lena. Vilken del av förskjutningen är det du har problem med? Du sätter en markör det antal maskor in som uppges för din storlek på varje sida. Sedan ökar du maskor på utsidan av markörerna och minskar på insidan enligt beskrivningen. Mvh DROPS Design

02.12.2021 - 10:55