DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

New Fern

Prjónað sjal úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í vinkil í garðaprjóni og gatamynstri.

DROPS 226-26
DROPS Design: Mynstur bm-088
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 47 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið að hlið = ca 150 cm.

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 38, ólífa

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 - 80 cm.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 39 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er prjónað frá annarri skammhliðinni og út. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið á stykki og aukið er út mitt í sjali.

SJAL:
Fitjið upp 134 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á næstu umferð – umferð sem byrjar við prjónamerki er prjónuð frá réttu.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu lykkju slétt áður en prjónamerki er sett í þessa lykkju (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 135 lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 134 lykkjur.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
Endurtakið umferð 3 og 4. þ.e.a.s. í umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur og fækkað er um 1 lykkju og í umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju. Lykkjufjöldinn kemur til með að vera sá sami.
Nú eru prjónaðar 20 umferðir garðaprjón, prjónið mynstur þannig:
Prjónið mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – ef ekki er pláss til að prjóna bæði úrtöku og uppslátt (í 3. og 9. umferð í A.1) eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir þessar lykkjur, JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram og úrtaka eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Haldið áfram til skiptis með 20 umferðir garðaprjón og A.1 þar til aukið hefur verið út 80 sinnum hvoru megin við prjónamerki = 134 lykkjur í umferð (160 umferðir).
Haldið nú áfram með mynstur (= til skiptis 20 umferðir garðaprjón og A.1) og útaukningu og úrtöku eins og áður, JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð frá réttu er fellt af til skiptis 2 lykkjur og 3 lykkjur. Nú hafa verið prjónaðar alls 7 mynstureiningar með A.1 á hæðina, prjónið garðaprjón til loka máls (affellingin í byrjun á hverri umferð frá réttu heldur áfram eins og áður). Þegar 9 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af.
Klippið þráðinn frá og festið.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)

symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Suzanne Ozorak wrote:

Started this pattern but by the 30th row- it dors not serm right….the shape is wrong. I would really like to make it…

01.03.2024 - 19:52

country flag Vivian wrote:

Hallo liebes Team, wird das Tuch ohne Randmaschen gestrickt? Also werden z.B am Anfang immer die äußersten beiden Maschen zusammengestrickt und somit eine abgekettet? Oder wie muss ich die Anleitung verstehen?

26.12.2023 - 12:29

DROPS Design answered:

Liebe Vivian, es wird keine extra Randmaschen gestrickt, die gesamte Maschenanzahl ist inkl. die 1. und die letzte Masche. So bei den Hinreihen stricken Sie die 2 letzten Maschen zusammen und bei den Rückreihen stricken Sie die 2 ersten Maschen zusammen. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 08:33

country flag Claudine Azoulay wrote:

Bonjour, Ce châle peut-il se tricoter avec des aiguilles droites? Merci.

02.11.2023 - 18:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Azoulay, tout à fait, on utilise ici une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pourrez donc tricoter sur aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées, pensez à bien conserver la bonne tension. Retrouvez plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!

03.11.2023 - 06:29

country flag Patricia wrote:

Am Ende der Anleitung heißt es "Wenn insgesamt 7 Rapporte A.1 in der Höhe gestrickt wurden, Krausrippen bis zum fertigen Maß stricken (das Abketten am Anfang jeder Hin-Reihe wie zuvor weiterarbeiten)." Bedeutet das, dass ich die Mittelmasche nicht mehr stricken muss?

03.09.2023 - 00:34

DROPS Design answered:

Liebe Patricia, A.1 stricken Sie insgesamt 7 Mal in der Höhe, dann stricken Sie alle Maschen kraus rechts (Krausrippen, kein Lochmuster mehr), dh einschließlich die Mittelmasche. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2023 - 08:25

country flag Carole Montaigne wrote:

Bonjour J’en suis aux 20 premiers rangs et j’attaque le diagramme. Je me pose la question de maille envers sur l’envers, pour moi il s’agit d’un point de Jersey alors qu’il s’agit d’un ouvrage au point mousse. Merci pour votre réponse

22.08.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Montaigne, tout à fait, les rangs avant/après le rang ajouré se tricotent en jersey ; la dernière photo montre un détail du châle et devrait vous permettre de voir ce point ajouré de plus près (vous devez avoir 1 côte mousse = 1 rang endroit sur l'envers aux rangs 6 et 12. Bon tricot!

23.08.2023 - 07:54

country flag Maria wrote:

Non riesco a capire come il mio lavoro possa diventare lo scialle della foto. Quando la parte sinistra finirà le maglie come bisogna procedere? e il lato destro del diritto è rettangolare e non ha la forma allungata di uno scialle. Sto per arrivare ai 160 ferri ma, nonostante le istruzioni, non saprò come andare avanti

13.04.2023 - 21:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria, per modellare lo scialle, a 160 ferri inizierà gli intrecci come indicato. Buon lavoro!

15.04.2023 - 10:20

country flag Kirsi wrote:

Hej, Efter at have strikket 20 pinde retstrik og én gang mønster A1 skal man fortsætte med skiftevis 20 pinde retstrik og mønster A1. Når jeg her strikker retstrik, skal jeg strikke pinde 1. og 2., eller skal de 20 pinde strikkes med pinde 3 og pinde 4, det vil se 10 gange pind 3 og ti gange pind 4 ?

11.01.2023 - 09:04

DROPS Design answered:

Hej Kirsi, du fortsætter med 20 pinde (10 af hver pind 3 og 4) :)

17.01.2023 - 08:44

country flag Sylvie Fréchette wrote:

Dans le diagramme A1, modèle drops 226-26, je ne comprends pas comment se feront les augmentations puisqu il me semble que ça s’annule (2 mailles ensemble puis 1jeté) .Merci de répondre à ma question!

13.12.2022 - 16:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fréchette, les augmentations ne se font effectivement pas dans le diagramme A.1, mais lorsque vous tricotez le rang 3, en faisant 1 jeté de chaque côté de la maille centrale, et vous diminuerez en même temps au rang 3 puis au rang 4, vous allez conserver ainsi ces 134 mailles pendant 160 rangs et vous continuerez comme avant en rabattant au début de chaque rang sur l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 9 mailles. Bon tricot!

14.12.2022 - 07:48

country flag Marisa wrote:

Non sono molto chiare le istruzioni dopo l'esecuzione dei primi 20 ferri, quando si deve iniziare a lavorare lo schema A1 Grazie se vorrete essere più precisi

07.12.2022 - 16:51

DROPS Design answered:

Buonasera Marisa, in quale punto di A.1 trova difficoltà? Buon lavoro!

11.12.2022 - 22:02

country flag Gemma wrote:

Aan welje kantvanhet telpatroon moet ik beginnen? Alvast bedankt.

20.11.2022 - 14:35

DROPS Design answered:

Dag Gemma,

Je begint rechts onder in het telpatroon en je breit naar links. De teruggaande naald zijn de hokjes daarboven en dan lees je weer terug (omdat je heen en weer breit) van links naar rechts. Zo werk je het telpatroon in de hoogte af.

20.11.2022 - 16:52