DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Full Moon Romance

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með puffermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-14
DROPS Design: Mynstur ai-351
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350-400-450-450-500 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 6,5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjónaðar eru til skiptist ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman

ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 2 lykkjur þannig:
Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Fækkið um 1 lykkju þannig:
Fækkið lykkju í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður – fyrst er prjónað fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.
Síðan er stykkið sett saman með því að sauma öll stykkin saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm.
Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur.
Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 0-0-0-2-4-6 sinnum og 1 lykkju í annarri hverri umferð 6-8-9-8-7-7 sinnum (= 6-8-9-12-15-19 lykkjur færri í hvorri hlið) = 59-61-63-66-68-70 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið miðju 13-13-13-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA-2 (á hægri öxl er lykkjum fækkað í byrjun umferðar og á vinstri öxl er lykkjum fækkað í lok umferðar).
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 8 sinnum í öllum stærðum = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-99-107-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka í 7 cm.
Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-16-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 79-85-91-100-110-120 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 71-77-81-90-98-108 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á framstykki = 59-61-63-66-68-70 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-27-27-30-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er fækkað um 1 lykkju = 15-16-17-17-18-19 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 16-16-18-18-20-20 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 31-31-35-35-39-39 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt).
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í öllum stærðum, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 45-45-51-51-57-57 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt).
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-3-2-2 lykkjur 3-5-4-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 2-2-4-3-6-9 sinnum og 3-2-2-2-2-2 lykkjur 2-1-1-5-3-2 sinnum og 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni = 87-91-97-99-105-107 lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Prjónið nú hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi þar sem fitjaðar voru upp 4-4-5-5-6-6 lykkjur í hvorri hlið á ermakúpu.
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með ca 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-14-16-16-18-18 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-28-28-27-25-23 cm.
Prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-9-9-10-10-11 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-45-47-47-49-49 lykkjur og fækkið jafnframt um 15 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8-9-9-10-10-11 lykkjur = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 15 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Ermin mælist alls ca 55-55-56-56-56-56 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkantinn á ermum og innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = Ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Full Moon Romance

Aleksandra, Poland

Full Moon Romance

Berit Skorpen, Norway

Full Moon Romance

Iulia, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Marit Myrå wrote:

Det står at ermet skal strikkes til det er 29 cm, så en omgang med felling , deretter vrangbord 15 cm. Da skal ermet være 55 cm langt. Det stemmer ikke, blir jo mye kortere

03.11.2023 - 05:22

DROPS Design answered:

Hei Marit, Det har du rett i. Ermet måler ca 44 cm. God fornøyelse!

03.11.2023 - 06:51

country flag Sara wrote:

Hi, I am having issues at the sleeve start. For the small size, it said to cast on 16 then after the 2 stockinette rows and the first yarn over row, there should be 31 stitches total. I am not getting 31, I’m getting 23. Am I doing something wrong?

14.11.2022 - 20:32

DROPS Design answered:

Hi Sara, On the third row you work 1 edge stitch then 1 yarn over, knit 1 until there is 1 stitch left, work 1 yarn over and 1 edge stitch. This increases the number of stitches by 15 (15 yarn overs), leaving you with 31 stitches. Happy knitting!

15.11.2022 - 07:03

country flag Maria wrote:

Olen ompelemassa pääntie reunusta ( resori on siis valmis, ja nyt pitäisi ommella se kaksinkerroin). Ohjeessa sanotaan:"On tärkeää, että saumasta tulee joustava" Missään ei kuitenkaan kerrota/ näytetä miten ommellaan sellainen joustava sauma. Tai edes miten ylipäätään ommellaan tällainen sauma...Jos se on niin tärkeä luulisi ,että siihen löytyy joku ohjevideo, mutta en ole löytänyt mitään..

05.11.2022 - 19:58

DROPS Design answered:

Hei, saumasta tulee joustava, kun ompelet sen löyhin pistoin. Älä myöskään ompele liian tiheään. Tarkista ompelun aikana, että sauma ei kiristä.

14.11.2022 - 17:57

country flag Valeria wrote:

Ho bisogno di un aiuto. Sto lavorando una taglia L. Quando si iniziano le dimizioni per gli scalfi c'è scritto di diminuire 2 maglie ogni 0 ferri. Questo vuol dire che devo saltare il passaggio e passare direttamnete alla diminuzione di 1 maglia ogni 2 ferri per 9 volte, o che devo comunque eseguire i ferri indicati (4 in tutto) ma senza diminuzioni? Grazie mille

15.10.2022 - 00:21

DROPS Design answered:

Buonasera Valeria, deve saltare il passaggio e continuare con le diminuzioni successive. Buon lavoro!

15.10.2022 - 12:44

country flag Marja wrote:

Steekverhouding met naalden 4 of 5,5?

11.05.2022 - 15:19

DROPS Design answered:

Dag Marja,

De stekenverhouding is met naald nr 5.5. (De boord wordt met naald 4 mm gebreid.)

14.05.2022 - 10:00

country flag Noemi wrote:

Buongiorno, vorrei sapere se è possibile realizzare questo modello utilizzando il filato DROPS Melody. Grazie!

04.11.2021 - 14:27

DROPS Design answered:

Buonasera Noemi, Melody è un filato diverso rispetto a quello richiesto nel modello, appartiene al gruppo filati D, Air al gruppo filati C. In ogni caso provi a lavorare un campione e veda se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!

04.11.2021 - 23:29

country flag Julia wrote:

Hi, i am having troubles with instructions for sleeves for size m: AT THE SAME TIME cast on stitches for the sleeve cap at the end of each row on each side as follows: 3 stitches 5 times, 1 stitch 2 times etc, what does a time mean? Knit row, add 3, purl add 3, 5 times, or simply add at the end? I can only get 91 in the end if i K 1row, add 3, P 1row add 3, 5 times, so 30 stiches in total. Then, add 1 and so on. Thank you!

12.10.2021 - 18:12

DROPS Design answered:

Dear Julia, in the 2nd size work as follows: *cast on 3 sts at the end of next row from RS, cast on 3 sts at the end of next row from WS*, work from *-* a total of 5 times, then *cast on 1 st at the end of next row from RS, cast on 1 st at the end of next row from WS*, work from *-* a total of 2 times etc... you will cast on on each side: 3 sts x 5 + 1 st x 2 + 2 sts x 1 + 4 sts x 1 = 23 sts cast on + 45 sts + 23 sts cast on = 91 sts. Hope this will help, happy knitting!

13.10.2021 - 07:50

country flag Jette Sandholm wrote:

De huller der bliver øverst på ærmet, har de en funktion eller er de bare til pynt? Syntes det er mærkeligt, at de er der, hvor ærmet skal sys på blusen.

08.10.2021 - 16:52

DROPS Design answered:

Hei Jette. På denne modellen er mønstret slik at det blir søte små hull øverts på ermet. Om du ikke ønsker hull, kan du strikke kastene vridd på neste pinne. mvh DROPS Design

11.10.2021 - 09:49

country flag Ingrid wrote:

I would name this sophisticate or simply elegance

17.08.2021 - 10:03

country flag Sonja Boel Pedersen wrote:

Flot model

05.08.2021 - 21:11