DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunshine Impressions Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-32
DROPS Design: Mynstur ml-066
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-250-250-300-300-350 g litur 14, vanillugulur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 11,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkju r færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.
Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 68-68-72-72-76-76 lykkjur á hringprjón 5 með Melody.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff hringinn í 4 cm, í síðustu umferð eru auknar út 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 74-74-78-78-82-82 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 24-24-26-26-28-28 lykkjurnar í umferð (= ca miðja að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki í hálsi til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki á undan fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð).
Annað prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 25-25-25-25-25-25 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 25-25-25-25-25-25 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er nú prjónað í A.1 yfir lykkjur á framstykki og bakstykki (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð) og sléttprjón yfir lykkjur á axlarsæti/ermi.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 122-122-134-134-146-146 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.
ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
ATH! Ekki er aukið út í stærð XXXL, farðu áfram í útaukning á berustykki í þessari stærð.
STÆRÐ S-M-L-XL-XXL:
Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum og haldið áfram með mynstur alveg eins og áður á fram- og bakstykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur alveg eins (A.2 sýnir 1 mynstureiningu á mynstri), passið uppá að A.2 passi yfir lykkjur frá A.1.
JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-4-5-4-3 sinnum = 142-138-154-150-158 lykkjur.
Stykkið mælist ca 14-12-15-13-13 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 22-20-24-22-22-16 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 á fram- og bakstykki og í sléttprjóni á ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-12-12-15-16-19 sinnum = 214-234-250-270-286-298 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 26-28-30-33-34-34 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 40-44-48-52-54-54 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 67-73-77-83-89-95 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 40-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 67-73-77-83-89-95 lykkjur (= bakstykki). Klippið þráðinn frá.
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 142-154-166-178-194-210 lykkjur.
Haldið áfram með A.2 eins og áður, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-18-17-16-16-18 cm frá skiptingu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 144-156-168-180-196-212 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 40-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 6. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-10 nýjum lykkjum undir ermi = 44-48-54-58-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt ámilli nýrra lykkja undir ermi. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 5-4-2½-2-2-2 cm millibili alls 5-6-9-10-11-11 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 28-27-26-24-24-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Sylvie Bérard wrote:

J’ai terminé les 12 augmentations à tous les tours ( small) et l’épaule ne mesure pas les 8 cm mais seulement 6. Donc je continue sans augmenter pour 2 cm avant de faire les augmentations des manches?

21.02.2024 - 23:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bérard, votre tension doit être un peu juste en hauteur (vous devriez avoir 16 rangs = 10 cm), tricotez jusqu'à la hauteur indiquée - sans augmenter ou bien ajoutez des tours sans augmenter entre les tours d'augmentations pour les espacer à intervalles plus réguliers et éviter 2 cm sans augmenter. Bon tricot!

22.02.2024 - 09:14

country flag France Poulin wrote:

Hello I am the size medium. I have 46 stitches on hold for my sleeve. I now want to knit my sleeve. I picked up 8 stitches under the arm of my sweater because the space was very large. - now I have 54 stitches. how many rows do I knit with 54 stitches? - when and how do I reduce? Thanks very much

04.04.2022 - 05:49

DROPS Design answered:

Hi France, The correct number of stitches for the sleeve is 44 + 4 = 48. You need to decrease 6 stitches (if you don't want an extra wide sleeve). It is probably best to decrease a couple of stitches over the next 6 rounds, so you don't get a marked decrease line (every 2nd round). Happy knitting!

04.04.2022 - 06:55

country flag France Poulin wrote:

I just finished my 12 rounds of increase (done at 2 rounds). For a total of 234 stitches. Medium size I knit it says: the piece measures approx. 28 cm from the collar marker. My question is,: The 28 cm is measured after making the collar in rib for a length of 4 cm? thank you so much PS. I don't see in the pattern where he talks about this marker

27.03.2022 - 07:40

DROPS Design answered:

Dear France, the 28 cm are measured from the marker after the neck edge (the first 4 cm are not counted with the 28 cm). Happy knitting!

27.03.2022 - 23:28

country flag France Poulin wrote:

Ok for increase 4 stitches each 2 row for the sleeves Total 138 stitches After do I still have to increase on each side of the marker total 8 stitches on 1 row? After I have to increase : 12 times each 2 row for a total of 234 stitches. Please confirm if it exactly please. Thanks

21.03.2022 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Poulin, after you have incrase for sleeve, there are 138 sts on the needle, now increase for yoke: 8 sts a total of 12 times = 8*12= 96 sts. So that y ou have: 138+96=234 sts. Happy knitting!

21.03.2022 - 16:07

country flag France Poulin wrote:

I forgot pattern said Increase 4-(5)-5-4-3 in total each second row total will be 142-(138)-154-150-158 Me I'm medium my information it's on the ( ) -Please can you send me the right number of row I need to increase ? - How many stitches on each row I need to increase - And the total of stitches after theses increase . Thanks

21.03.2022 - 14:55

DROPS Design answered:

See correction - (or click F5 to refresh the page) - in M you will increase for sleeve a total of 4 times on every other round, there will be 138 stitches when all increases are done. Happy knitting!

21.03.2022 - 15:36

country flag France Poulin wrote:

Hello is it here the mistake? I do the Medium The pattern said increase 5 times total will be 142

21.03.2022 - 14:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Poulin, there was a mistake and it has been edited, you are suppose to increaes on every 2nd round a total of 5 times in size S and 4 times in size M. = 142 sts in S and 138 sts in M. Happy knitting!

21.03.2022 - 15:35

country flag France Poulin wrote:

I did the medium size I will resume my calcul Start with 68 stitches Increase neck now. 74s Inc front + back. 122s now Inc sleeve 20. 142 now Last increase sleeve8. 150 now Next increase total need to be 234-150now 84 to increase ( 12 x 8 stitches =96stitches. Where is my incomprension? Thanks

21.03.2022 - 05:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Poulin, there was a mistake under the number of increases for sleeve, you are supposed to increase 4 times only, ie you will have 122 sts + 4 sts x 4 = 138 sts. Correction has been done, thanks for noticing. Happy knitting!

21.03.2022 - 09:24

country flag France Poulin wrote:

When you start the grafique the first 12 row arrive on the row between the second design. On the grafique you still have to increase for 4 more rows. But the increase shoulder it's on 10 rows. How can I match the pattern ? The grafique increase for 16 rows Thanks

21.03.2022 - 01:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Poulin, work A.1 as shown in diagram for your size, ie if you have to increase 12 times for saddle-shoulders (size S and M), work only the first 12 increases; but A.1 shows how to repeat diagram A.2 in width and height. Happy knitting!

21.03.2022 - 09:07

country flag France Poulin wrote:

When it will be time to separate the sleeves from the front and back?

20.03.2022 - 19:23

DROPS Design answered:

Dear France, at the end of the chapter "ALL SIZES /YOKE INCREASES, starting with "Now divide piece for body and sleeves as follows: " tells you when and how to separate body and sleeves (just before the chapter "BODY". Happy knitting!

21.03.2022 - 00:26

country flag France Poulin wrote:

Hello on page 6 graph A1 at the top of the graph it has 57 stitches and at the bottom of the graph 25 stitches I do not understand? At the top of the sweater after the ribs there must be 25 stitches in front and 25 stitches in the back of the sweater. Could there be an error in the graph? Thanks very much

20.03.2022 - 07:14

DROPS Design answered:

Dear France, the graph is read from the bottom up. You start with 25 stitches and end up with 57 or whichever stitches, depending on the sizes. Happy knitting!

20.03.2022 - 19:16