DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunshine Impressions

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-31
DROPS Design: Mynstur ml-067
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-250-250-300-300-350 g litur 14, vanillugulur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3 og A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 11.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (frá réttu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-3 (frá röngu):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3-4 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8½-8½-9-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkju r færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-76-80-80-84-84 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 5 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm, í síðustu umferð eru auknar út 9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 85-85-89-89-93-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki í hálsi til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Teljið 18-18-18-1818-18 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 25-25-25-25-25-25 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 18-18-18-18-18-18 lykkjur eftir á framstykki og eftir 4. prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er nú prjónað í A.1 yfir lykkjur á vinstra framstykki, A.2 yfir lykkjur á bakstykki og A.3 yfir lykkjur á hægra framstykki (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð).
Lykkjur á axlarsæti/ermi eru prjónaðar í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3.
Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu þannig að lykkjurnar liggi fallega.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 133-133-145-145-157-157 lykkjur (útaukningar lykkjur eru prjónaðar inn í mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
ATH: Lykkjum er ekki aukið út í stærð XXXL, farðu áfram í útaukning á berustykki í þessari stærð.
STÆRÐ S-M-L-XL-XXL:
Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum og haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur eins og áður (A.4 sýnir 1 mynstureiningu á hæðina), passið uppá að A.4 passi yfir lykkjur frá A.1 til A.3.
JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 og 3.
Athugið að nú er einungis aukið út á ermum, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-4-5-4-3 sinnum = 153-149-165-161-169 lykkjur.
Stykkið mælist ca 14-12-15-13-13 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 22-20-24-22-22-16 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.4 á fram- og bakstykki og í sléttprjóni á ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 9-12-12-15-16-19 sinnum = 225-245-261-281-297-309 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 26-28-30-33-34-34 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli.

Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 39-42-44-47-50-53 lykkjurnar (= vinstra framstykki), setjið næstu 40-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 lykkjur undir ermi, prjónið 67-73-77-83-95 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 40-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 39-42-44-47-50-53 lykkjur (= hægra framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 153-165-177-189-205-221 lykkjur.
Haldið áfram með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og mynstri eins og áður, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 18-18-17-16-16-18 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju = 152-164-176-188-204-220 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 40-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 6. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-10 nýjum lykkjum undir ermi = 44-48-54-58-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt ámilli nýrra lykkja undir ermi. Það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 5-4-2½-2-2-2 cm millibili alls 5-6-9-10-11-11 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 28-27-26-24-24-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = útaukning fyrir axlarsæti

symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Aida Isakovic wrote:

Hej! Jeg har et spørgsmål ang diagram A 4? Jeg forstår ikke helt rigtig, hvornår skal man strikke det? Mvh Aida

05.02.2024 - 18:59

DROPS Design answered:

Hei Aida. Under ERMEØKNING og når A.1, A.2 og A.3 er strikket ferdig i høyden, fortsetter mønsteret oppover som før, A.4 viser 1 rapport av mønsteret. Men pass på at A.4 stemmer over maskene fra A.1 til A.3. Under BÆRESTYKKEØKNING og når det skal økes masker på forstykkene, bakstykket og på begge ermene, skal de økte maskene strikkes fortløpende inn i A.4 på bolen og glattstrikk på ermene. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 10:15

country flag Hilma wrote:

Hej! Stämmer det att det bara går åt 200 g garn (dvs 4 nystan á 50g) till en kofta i strl S?

28.04.2023 - 18:55

DROPS Design answered:

Hei Hilma. Det stemmer. DROPS Melody er et mykt og lett garn som har en løpelengde på ca 140 meter. Men sjekk målskisse på jakken, og mål på deg selv. Ønsker du en lengre lengde, både erme og bolen, er det jo kjekt å kjøpe et ekstra garnnøste. mvh DROPS Design

02.05.2023 - 09:34

country flag Susan wrote:

Hello, have just started this pattern. I have a question regarding the collar/1st buttonhole. I have cast on long tail method, and purled the second row and worked the next row garter and rib. Does the button hole decrease occur on the next row (row 4)?, as in the 'BUTTONHOLES' section, it says to do the first buttonhole decrease when the rib measures 3-4 cm. If the latter is the case, and I follow on with the 'NECK EDGE' section, I knit a further 4cm for the increase? Very confused...

22.04.2022 - 15:51

DROPS Design answered:

Dear Susan, the decreases for the buttonholes are worked as explained in the BUTTONHOLES section, that is, you work the first one when the work measures 3-4 cm from the cast-on edge (that is, including the rows before starting the rib). In the text, they are simply reminding you not to forget to work the buttonhole. Happy knitting!

23.04.2022 - 17:08

country flag Ginet Tremblay wrote:

Bonjour, je débute le col en montant le nombre de mailles demandé. Il est écrit « Tricoter 1 rang envers sur l’envers « . Est-ce que cela signifie que je commence mon ouvrage comme si c’était l’envers ? Merci!

10.03.2022 - 22:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, lorsque vous avez monté les mailles, tricotez 1 rang en mailles envers, c'est l'envers de l'ouvrage, tournez et tricotez maintenant sur l'endroit, autrement dit, vous aurez 1 rang jersey juste avant les côtes (vu sur l'endroit). Bon tricot!

11.03.2022 - 09:50

country flag Roksana wrote:

Hi! I am working on the sleeves now. I made a new stitch from every 4 stitches under under the armpits, and that worked ok but I have loose stitches that creates holes on both sides of those 4 newly added stitches. What have I done wrong?

17.01.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Hi Roksana, To avoid holes in loose stitches you can work these stitches twisted (work in the back loop). Happy knitting!

18.01.2022 - 08:14

country flag Kathrin wrote:

Bin gerade mit der Strickjacke fertig geworden. Trotz Maschenprobe stimmen die Maßangaben nicht wirklich. Die Jacke ist mit am Ausschnitt viel zu weit, im Rücken zu kurz und in den Ärmeln auch. Sehr schade, ist mir mit eurem Anleitungen noch nie passiert.

16.09.2021 - 15:40

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, stimmt Ihre Maschenprobe nicht nur in der Breite sondern auch in der Höhe? Wenn Sie nicht genau 14 Maschen noch 16 Reihen glattrechts = 10 cm haben, dann werden die fertigen Maßen nicht mit der Skizze stimmen - wenn Sie z.B. mehr als 16 Reihen haben, dann werden die Saddelschulter bzw der Rückenteil zu breit, deshalb ist es in solchen Modellen sehr wichtig die Maschenprobe auch in der Höhe zu bekommen. Hier lesen Sie noch mehr.

17.09.2021 - 07:36

country flag Debora wrote:

Buongiorno, vorrei un chiarimento sulle misure finali del golf. Ho lavorato fino alla divisione degli scalfi =26 cm. Poi ho diviso e continuato x 18 cm sul corpo prima di fare 6 cm di bordo. Il totale fa 50 non 54 come da schema finale... Forse sono compresi nel totale anche i 4 cm del bordo collo? Comunque non mi tornano i conti nemmeno con le asole, vengono 5 e non 6,sto lavorando la TG S Grazie mille

03.07.2021 - 12:00

DROPS Design answered:

Buonasera Debora, se guarda lo schema delle misure, può vedere che il collo non è compreso nei 54 cm. Per le asole, ha lavorato la prima sul collo? Buon lavoro!

04.07.2021 - 20:54

country flag Irene wrote:

Er det mulig å bytte garnet til å strikke med air og kid silk ?

28.05.2021 - 07:58

DROPS Design answered:

Hej Irene, Ja det kan du gøre, garn fra garngruppe A+C = D :)

28.05.2021 - 13:38

country flag Regina wrote:

KAARROKKEEN LISÄYKSET: Kun olen tehnyt ensimmäiset lisäykset, niin teenkö seuraavalla oikealla kerroksella siten, että lisäys, 2 s oikein, lisäys? ja sitten seur oikealla krs:lla lisäys, 4 s o, lisäys?? Ohje on epäselvä. VAI lisätäänkö aina silmukat vierekkäin. LISÄKSI: eikö hihoihin tule lainkaan pitsineuletta. Kuvasta ei saa selvää kuvion osalta.

15.05.2021 - 15:11

country flag Nicole wrote:

For the saddle shoulder part, does the number of stitches stay the same when worked? or do we increase for the shoulder part too? On the wrong side do we increase? Do we increase on the same stitch we increased on for the right side? Also what do you mean by "I.e. increase on EVERY row, and increase differently from right and wrong side, so that stitches are placed nicely." Does it mean we always increase next to the markers placed?

09.05.2021 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Nicole, the pattern tells you that first you set up the yoke, then increase to shape the saddle shoulder. Yes, the increases are done in the same stitch, only done differently from the right and wrong side, so each increase would lean the same way afterwards. It always heps to make sense of the patterns to read them through, sometimes even several time, and make notes, so you can understand even when a couple of things happen at once. Happy Knitting!

09.05.2021 - 22:15