DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Awaits

Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er heklað með laskalínu ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 0 mánaða – 6 ára.

DROPS Baby & Children 38-13
DROPS Design: Mynstur e-015-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200 (250-250-250) g litur 55, kirsuber
50-50-50-50 (50-50-50) g litur 02, bleikur

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 8 áferðamynsturs umferðir eða 12 stuðlaumferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS TALA, Blóm (rauð) NR 617: 3 stykki í allar stærðir.
FYLGIHLUTIR: Ca 1,5 metrar silkiborði (ca 25 mm á breidd).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð.
Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Umferðin endar með 1 stuðli í fyrstu loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ:
* 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð).

ÚTAUKNING:
Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring.

BERUSTYKKI:
Heklið 67-71-75-79 (79-83-87) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með litnum kirsuber Safran.
Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 66-70-74-78 (78-82-86) fastalykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið):
Hoppið yfir 9-10-11-12 (12-13-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 18-20-22-24 (24-26-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 9-10-11-12 (12-13-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR!
Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 78-82-86-90 (90-94-98) stuðlar.
Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu).
Í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverja laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana).
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5 (6-7-8) sinnum = 142-146-166-170 (186-206-226) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður. Stykkið á nú að mælast ca 6-6-8-8 (9-10-11) cm.
Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 19-20-23-24 (26-29-32) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45-49) fastalykkjur fyrir ermi, heklið 6-8-6-10 (10-8-6) loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 38-40-46-48 (52-58-64) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45-49) fastalykkjur fyrir ermi, heklið 6-8-6-10 (10-8-6) loftlykkjur undir ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 19-20-23-24 (26-29-32) fastalykkjum (= vinstra bakstykki).
Stykkið er síðan heklað áfram í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Tengið stykkið saman mitt að aftan með réttuna út og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 88-96-104-116 (124-132-140) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 44-48-52-58 (62-66-70) lykkjur á fram- og bakstykki. Það á síðar að auka út lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki. Haldið áfram hringinn með ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ.
Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 1½-2-3-3 (3-3½-4) cm millibili alls 6-7-7-8 (9-9-8) sinnum = 112-124-132-148 (160-168-172) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 13-19-21-25 (28-31-33) cm frá skiptingu (endið eftir 1 umferð með stuðlum, útaukningu á nú að vera lokið), heklið 1 umferð með fastalykkjum JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-0-2 (2-0-2) fastalykkjur jafnt yfir = 120-126-132-150 (162-168-174) fastalykkjur.
Klippið þráðinn frá.
Skiptið yfir í litinn bleikur og heklið 1 umferð með fastalykkjum með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig:
UMFERÐ 1: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 40-42-44-50 (54-56-58) loftlykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli), * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* þar til 1 loftlykkjubogi er eftir, heklið 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 20-21-22-25 (27-28-29) stuðlahópar með 1 stuðli á milli hverra stuðlahópa.
UMFERÐ 3-4: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahópi, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla um loftlykkjuboga mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 5: Heklið eins og umferð 3-4, en um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahópi eru heklaðir 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar (í stað 3 stuðla + 2 loftlykkja + 3 stuðla). Endurtakið umferð 5 þar til kanturinn mælist ca 6 cm í öllum stærðum (e.t.v. að óskaðri lengd). Heklið síðan síðustu umferð alveg eins, en með 5 stuðlum + 2 loftlykkjum + 5 stuðlum um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahópi.

JÖFNUN Á HÁLSMÁLI:
Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjur í hvert “horn” í hálsi, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki mitt að framan.
Heklið með heklunál 3,5 með litnum kirsuber þannig:
Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-4-5-5 (5-6-6) lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju til baka mitt að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með prjónamerki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni.

TÖLUKANTUR AÐ AFTAN:
Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan með litnum kirsuber þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið.
Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið í kringum hálsmál með litnum bleikur frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið.

SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI:
Heklið með bleikur frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja og ein af 6-8-6-10 (10-8-6) lykkjum mitt undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum op á ermi þannig: * hoppið yfir ca 2 lykkjur, í næstu lykkju eru heklaðir 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Klippið þráðinn frá og festið.
Endurtakið neðst í kringum hina ermina.

FRÁGANGUR:
Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð, ca 2 cm undir handveg á kjól, með byrjun frá miðju að framan. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Carol Bronson wrote:

Is this available in a knitting pattern? Carol

22.04.2024 - 22:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bronson, this dress is only available as a crochet pattern, but you will find all our knitted dresses here - in size 0-4 years . Happy crocheting!

23.04.2024 - 08:04

country flag Patricia Hubert wrote:

This is a question: In the pattern of Spring Awaits and in the Yoke section. 1st line: At the end of the line you have size 3.5 mm and cerise. What does cerise mean?

06.04.2024 - 16:27

DROPS Design answered:

Dear Patricia, if you want to make sure you will get an answer, please select "question" from the roll down menue. As for your question, "cerise" is one of the color the pattern is made with. (It is the main color, the darker pink shade). Happy Crafting!

07.04.2024 - 18:24

country flag Asbjørg Haraldsen wrote:

Øvre del (bærestykke) blir forskjellig fra nedre del (bol) ettersom øvre del hekles frem og tilbake, mens nedre del hekles rundt. Dette vises ikke på bildet her. Takknemlig for svar da jeg ble veldig usikker på mitt resultat.

01.03.2024 - 15:52

DROPS Design answered:

Hei Asbjørg. Hva tenker du hva blir forskjell? Strukturen? Husk HEKLEINFO, slik at startmasken(e) blir en loddrett strek nedover. Husk å hekle i begge maskebuene når det hekles fastmasker og staver. mvh DROPS Design

11.03.2024 - 07:28

country flag Yaz wrote:

Muchas gracias por este y otros patrones! Son trabajos hermosos! Tengo una duda: cuando dice “FILAS DE TEXTURA […] en cada fila de puntos bajos por el lado revés trabajar 2 puntos de cadeneta sobre los 2 puntos de cadeneta desde la fila anterior = línea del raglán). “ los 2 puntos trabajados por el revés son cadenetas o puntos bajos? Agradecida desde ya!

28.02.2024 - 01:27

DROPS Design answered:

Hola Yaz, el patrón de textura es: 1 fila de puntos bajos, 1 fila de puntos altos. Como se explica en el texto, en las filas de puntos altos, en los puntos con marcapuntos trabajas: 2 puntos altos, 2 cadenetas, 2 puntos altos. Cuando trabajes la fila de puntos bajos, trabajas 1 punto bajo en cada punto alto y, sobre estas 2 cadenetas de la fila de puntos altos, trabajas 2 cadenetas.

29.02.2024 - 22:55

country flag Mina wrote:

Hej igen I skal lige kontrollere hvordan I formulere jeres forklaringer i hækleinfo også. Sammenlign gerne med jeres engelske version, som er let læselig og lettere at forstå. Mvh Mina

18.10.2023 - 11:19

country flag Mina wrote:

Hej Jeg vil lige informere jer at der er fejl i jeres danske oversættelse. STRUKTURRÆKKER: * 1 række/omgang fastmasker, 1 række/omgang stangmasker *, hækl fra *-* (1 række/omgang fastmasker + 1 række/omgang stangmasker = 1 strukturrække).. TEXTURED ROWS/ROUNDS: * 1 row/round of double crochets, 1 row/round of treble crochets *, work from *-* (These 2 rows = 1 textured row). Det skaber forvirring når man hækler som begynder. Håber I retter fejlen Mvh Mina

18.10.2023 - 10:13

country flag Ruth wrote:

I am having trouble matching the stitch count. I count stitches every row and still do not come up with 226 stitches at the end of repeat # 8. I have 216 stitches and the pattern says I should have 226. Suggestions?

04.08.2023 - 17:40

DROPS Design answered:

Dear Ruth, the stitch count should be correct. You have 98 treble crochets before you start increasing. Then, you increase 16 stitches on every row from the right side 8 times. So, in total, you increase 128 stitches. 128 stitches + 98 stitches = 226 stitches. Happy crochetting!

06.08.2023 - 19:34

country flag Becky wrote:

I need some help with the body section of the dress. i am starting to do rounds of the body section and i was hoping for some sort of video explanation of the increases.

27.04.2023 - 22:58

DROPS Design answered:

Dear Becky, at the very beginning of body part you have inserted 2 markers: 1 on each side; you will now increase on each side of these both markers: work until 1 stitch remain before marker, work 2 sts in next stitch, marker, work 1 sts in next stitch and repeat to next marker. Happy crocheting!

28.04.2023 - 10:16

country flag Kelly wrote:

Can this pattern be crocheted with acrylic?

16.01.2023 - 04:13

DROPS Design answered:

Hi Kelly, Our yarns are spun t a standard thickness, so all yarns in the same yarn group can be used for this pattern. Drops Safran is from yarn group A, so you need to find an acrylic yarn from the same group. Happy crocheting!

16.01.2023 - 06:43

country flag Sissel wrote:

Hei. Når man kommer dit at man hekler bolen, rundt og rundt. Og følger hekleinfoen. Etter noen omganger vises det tydelig at selve \"sømmen\" skrår skjevt ut mot høyre. Det blir jo slik fordi maskene i neste omgang alltid hekles bittelitt til høyre for tilsvarende maske i forrige omgang. Dette blir ikke pent, så tar imot tips hvis noen vet hvordan man får linja for omgang-skift til å strekke seg nitti grader på første heklede omgang. Eller må sømmen bli skjev?

13.10.2021 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Sissel. Det blir en bitteliten helning mot høyre. Du kan evnt bare hekle fastmasker rundt og rundt, men da påse at du hele tiden har det maskeantallen du skal ha (fort gjort å minske). Evnt hekle rundt, men når luftmasken hekles så snus arbeidet, slik at du hekler frem og tilbake. En omgang fra retten, neste fra vrangen og du fester omgangen med kjedemasken og snur samtidig som luftmasken hekles. Prøv på en liten prøvelapp først og se om du syns det blir bedre. mvh DROPS Design

18.10.2021 - 14:32