Avalanche Sweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-8 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJUR (á við um stroff neðst á fram- og bakstykki): Prjónaðar eru 3 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjurnar eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón). UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri að aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf í hvorri hlið. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-140-146-150-156-166 lykkjur með DROPS Nord á stuttan hringprjón 2,5 og stuttan hringprjón 3 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 3 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður JAFNFRAMT því sem ca 4. hver lykkja frá stroffi er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 34-36-36-38-40-42 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 170-176-182-188-196-208 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun þá er haldið áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-4-6-2-3-4 cm frá prjónamerki er aukið út um 38-40-42-40-40-42 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 208-216-224-228-236-250 lykkjur. Útaukningu fyrir áferðamynstur er nú lokið í stærð S, M og L. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 4-6-8 cm frá prjónamerki, aukið út um 36-36-38 lykkjur jafnt yfir = 264-272-288 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 208-216-224-264-272-288 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 4-5-7-5-7-9 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað A.1 alls 26-27-28-33-34-36 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út 40-48-56-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 248-264-280-312-328-344 lykkjur. Ör-2: Aukið út 40-48-56-38-50-48 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-350-378-392 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 10-11-13-11-13-15 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú er A.2 prjónað alls 24-26-28-25-27-28 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar komið er að umferð merktri með ör-3 í mynsturteikningu eru 384-416-448-500-540-560 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og aukið jafnframt út 12-4-6-0-6-18 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með ör-3 = 396-420-454-500-546-578 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 21-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir fyrstu 59-65-69-75-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-7-7-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 65-71-76-82-90-99 lykkjur á hálfu bakstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir næstu 118-130-138-150-164-180 lykkjur og aukið jafnframt út 12-12-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 130-142-152-164-180-198 lykkjur á framstykki), setjið næstu 80-80-89-100-109-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir síðustu 59-65-69-75-82-90 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-7-7-8-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 65-71-76-82-90-99 lykkjur á hálfu bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 276-300-324-348-384-420 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina á stykkinu – mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið A.3 alls 23-25-27-29-32-35 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu (23-25-27-29-32-35 lykkjur færri) = 253-275-297-319-352-385 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað sléttprjón hringinn jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 254-276-296-318-354-384 lykkjur í fyrstu umferð. Þegar stykkið mælist 14-15-15-15-15-15 cm frá skiptingu, skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Setjið fyrstu 127-138-148-159-177-192 lykkjur á hringprjón 2,5 (framstykki). Látið þær 127-138-148-159-177-192 lykkjur sem eftir eru hvíla á hringprjóni 3. Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-49-53-58-64-71 lykkjur jafnt yfir = 173-187-201-217-241-263 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af – e.t.v. með ítalskri affellingu. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Setjið 127-138-148-159-177-192 lykkjur sem hvíla yfir á hringprjón 2,5 og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Byrjið mitt undir annarri erminni, prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4-4-5-5-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið 80-80-89-100-109-109 lykkjur af þræði á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð í A.3 yfir þessar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 8-8-9-10-11-11 lykkjur jafnt yfir, prjónið að lokum upp 1 lykkju í hverja af síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjur mitt undir ermi = 96-96-108-120-132-132 lykkjur. Ermin er núna prjónuð í hring. Setjið 1 merkiþráði í byrjun á umferð mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi – látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.3 alls 8-8-9-10-11-11 sinnum í kringum ermi. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, hefur fækkað um 1 lykkju í hverri mynstureiningu (8-8-9-10-11-11 lykkjur færri). Prjónið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-0-3-7-10-10 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-8-8-8-8 sinnum = 72-76-77-80-85-85 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-26-29-30-31-31 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-110-116-116 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (36)
Breuil wrote:
Bonjour.\r\nJe tricote le modele \"Avalanche\r\n Sweater\" , et je ne comprends pas ou placer les augmentations dans le diagramme A1.\r\nPourriez vous s\'il vous plaît, m\'éclairer sur ce point ?\r\nMerci d\'avance.\r\nCordialement.
02.05.2024 - 13:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Breuil, les augmentations pendant le diagramme A.1 (flèches -1 et -2) doivent être placées à intervalles réguliers aux rangs marqués par les flèches; cette leçon explique comment calculer où augmenter (ou diminuer) en fonction du nombre de mailles. Bon tricot!
02.05.2024 - 15:36Seidy wrote:
Hut menar ni att man ska sticka diagrammet A2 och B2 när man stickar fram o tillbaka. Börjar med 388 m och ska sticka 26 rapporter a 14 m + 14 kantmaskor = 378 m Ska jag sticka först A2 och fortsätta med B2 (rapport 10 m) och hur stickar jag de aviga varven ? Tacksam för snabbt och lätt förstående svar
28.01.2024 - 22:45DROPS Design answered:
Hei Seidy. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men hvilken str. strikker du og hva mener du med "+ 14 kantmaskor". I oppskriften ser jeg kun 3 kantmasker. Skriv gjerne nøyaktig hvor du er i oppskriften. mvh DROPS Design
05.02.2024 - 12:46Joëlle SABINE wrote:
Bonjour, pensez-vous que je puisse tricoter le sweater avalanche avec le fil alpaca au lieu de nord. Merci pour votre aide
26.12.2023 - 21:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Sabine, tout à fait, utilisez notre convertisseur pour connaître la nouvelle quantité correspondante. Bon tricot!
02.01.2024 - 08:35Camilla Starke wrote:
Enligt mönstret stickas 15 cm + 8 från delning, dvs där ärmen börjar det blir 23 cm för hela bålen, kort. På bilden ser det ut som 15 cm + 8 från där mönstret slutar, kan det vara så det ska vara?
13.10.2023 - 09:16DROPS Design answered:
Hej Camilla, Hvilken størrelse strikker du? Du finder målene i de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften :)
18.10.2023 - 10:31Camilla Starke wrote:
Jag kan inte hitta diagram A2?
26.09.2023 - 22:21DROPS Design answered:
Hej Camilla, diagrammet ligger under diagramtexten nederst i mönstret :)
27.09.2023 - 07:48Maria Cristina wrote:
Complimenti, il modello è molto bello. È possibile lavorarlo con il vs. filato alpaca ? Forse con tale filato può perdere definizione e compattezza? Grazie Saluti
16.09.2023 - 23:11DROPS Design answered:
Buonasera Maria Cristina, il filato Nord contiene una parte di merino e una parte di poliammide che gli permettono di mantenere la struttura del capo. Buon lavoro!
17.09.2023 - 22:42Savita Khurana wrote:
Beautiful design with little lace work, looking elegant and stylish.
07.08.2023 - 02:46Åsa Abrahamsson wrote:
Stars from heaven
06.08.2023 - 20:19Marita Løken wrote:
Frost sweater
06.08.2023 - 09:58Izabela wrote:
Christmas morning
06.08.2023 - 09:27