Við byrjum á ermum!Nú erum við búin með framstykki og bakstykki, þá erum við tilbúin til að byrja á ermum! Ef þú ert í einhverjum vandræðum þá getur þú farið neðst í uppskriftina, þar erum við búin að setja inn lista með kennslumyndböndum. Er eitthvað sem þú ert enn óviss um? Settu inn spurningu í athugasemdar dálkinn hér að neðan, þá getur einhver af fagmönnum okkar aðstoðað þig. UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:ERMI: ERMI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Nú byrjum við!Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með milligrár Air eða grár Nepal (litur a). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 26-28-28-30-30-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING (ermi). Aukið svona út með 2½-3½-3½-4-5-5½ cm alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-26-30-34-38-42 cm, fellið af 2-2-2-4-4-4 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 1-1-1-2-2-2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 36-38-40-40-40-42 lykkjur. ![]() Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-14-15-16-17-18 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir laskalínu hafa verið gerðar til loka eru 10-10-10-8-6-6 lykkjur í umferð, fellið af. Prjónið hina ermina alveg eins. ![]() Tilbúið!Nú er ermin tilbúin. Ertu þá klár í frágang á peysunni og byrja á andlitinu á jólasveininum? Smelltu á Næst fyrir neðan þá sérðu næstu skref í mynstrinu. Ekki gleyma að senda okkur myndir af peysunni þinni! Sendu okkur myndir af árangrinum til #dropsfan galleriet. Smelltu hér til að senda okkur linkinn þinn! Vantar þig aðstoð?Hér er listi yfir leiðbeiningar til aðstoðar sem þú getur nýtt þegar til að prjóna ermarnar:
|