DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 37-11
DROPS Design: Mynstur z-044-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300 g litur 2925, appelsínugulur
50-100-100-100-100 g litur 506, dökk grár
50-50-50-50-50 g litur 2923, gulur
50-50-50-50-50 g litur 3620, rauður

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 164 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 27,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 27. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð til skiptis ca 26. og 27. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja = mitt undir ermi). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg (skipti yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Hálsmálið er prjónað í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 164-172-184-192-200 lykkjur á hringprjón 2,5 með dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-3-0-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 170-176-187-192-204 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 85-88-93-96-102 lykkjur (prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir handveg).
Nú er prjónað áfram í sléttprjóni eftir mynsturteikningu A.1 eða A.2 í mismunandi stærðum þannig:
STÆRÐ: 3/4 – 7/8 – 11/12 ára:
Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 umferðina hringinn (= 10-11-12 mynstureiningar). Þegar mynstureining hefur verið prjónuð til loka, prjónið sléttprjón með appelsínugulur.
STÆRÐ: 5/6 – 9/10 ára:
Prjónið mynsturteikningu A.2 umferðina hringinn (= 11-12 mynstureiningar). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið sléttprjón með appelsínugulur.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið þar til stykkið mælist 25-29-32-35-39 cm (eða mátið flíkina og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-8-8 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki). Nú eru 79-82-85-88-94 lykkjur á framstykki og 79-82-86-88-94 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:
Fitjið upp 44-48-48-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með dökk grár. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem mögulega er aukið út/lykkjum fækkað jafnt yfir í umferð til 48-48-51-51-51 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (notað þegar auka á út lykkjum).

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið sléttprjón eftir mynsturteikningu A.1 eða A.2, JAFNFRAMT á að auka út hvoru megin við prjónamerki (útauknar lykkjur eru prjónaðar í appelsínugulur – þegar löng hopp eru í mynstri, er mikilvægt að passa uppá að þræðirnir verði ekki of stífir).
STÆRÐ 3/4 – 5/6 ára: Prjónið mynsturteikningu A.2 (= 3-3 mynstureiningar). Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka, prjónið með appelsínugulur.
STÆRÐ 7/8 – 9/10 – 11/12 ára. Prjónið mynsturteikningu A.1 (= 3-3-3- mynstureiningar). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið með appelsínugulur.
ALLAR STÆRÐIR:
Þegar ermin mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 4-4-5-5½-4½ cm millibili alls 5-6-6-6-8 sinnum = 58-60-63-63-67 lykkjur. Þegar ermin mælist alls 25-30-34-38-42 cm fellið af miðju 6-6-8-8-8 lykkjurnar undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 52-54-55-55-59 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið ermer á sama hringprjón og fram- og bakstykki – í hvorri hlið þar sem lykkjur voru felldar af á fram- og bakstykki = 262-272-281-286-306 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón með appelsínugulur og mögulega aukið út/fækkið lykkjum jafnt yfir í umferð, þannig að það verða 256-272-272-288-304 lykkjur í umferð.
Prjónið 0-0-0-0-4 umferðir með sléttprjóni og appelsínugulur.
Nú er prjónað áfram hringinn í sléttprjóni eftir mynsturteikningu A.3, veldu mynsturteikningu eftir stærð (= 16-17-17-18-19 mynstureiningar). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, eru 96-102-102-108-114 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 13-13-14-15-16 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Prjónið 1 umferð sléttprjón með gulur og fækkið um 8-10-6-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð = 88-92-96-96-100 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 2,5 og haldið áfram með gulur.
Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Ef óskað er eftir er hægt að gera augu á drekana, notið rauður og saumið lykkjuspor.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
ERMI:.. Þegar ermin mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með 4-4-5-5½-4½ cm millibili alls 5-6-6-6-8 sinnum = 58-60-63-63-67 lykkjur.

Mynstur

symbols = dökk grár
symbols = appelsínugulur
symbols = gulur
symbols = rauður
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman með appelsínugulur

diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Lone wrote:

Hei der er en feil i diagrammet på dragen. På biledet ses der, om man forstørre biledet, at den har røde øyne. Dette kommer ikke frem i diagrammet. Og da mister dragen sin effekt. Stor jobb at måtte brodere på efter endt job

23.08.2023 - 16:16

country flag Marion wrote:

Ik ben de trui in maat 122/128 aan het breien. Bij de mouwen moet ik totaal elke 6 cm 6x meerderen. De eerste keer na 7 cm. Dan kom ik uit op 37 cm. Maar, ik moet bij 34 cm minderen voor het armsgaten. Zie ik iets over het hoofd?

23.02.2022 - 15:55

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Zo te zien zit er een foutje in en moet het meerderen 6 keer om de 5 cm gedaan worden in plaats van om de 6 cm. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling ter controle. Hopelijk kun je eerst zo verder.

26.02.2022 - 14:00

country flag Inger wrote:

Hej, Frågorna gäller ärmar för storlek 7/8 år: Fråga1: Ska man ignorera de ökade maskorna vid efterföljande varv i diagram A1? Fråga 2: För storlek 7/8 år - Är siffrorna "Upprepa ökningen med 4-4-6-5½-4½ cm mellanrum" omkastade tro - kanske ska vara 4-4-4,5-5-5-6 istället?

11.09.2021 - 15:00

DROPS Design answered:

Hej Inger. De ökade maskorna stickar du i orange och du stickar mönstret på ärmen vidare som tidigare (räknar inte med de ökade maskorna). Det ser ut som det blivit något fel vid antal cm mellan ökningar i de större storlekarna. Öka med 5 cm mellanrum i din storlek så blir det lagom. Vi ska se över detta och göra en rättelse, tack för info! Mvh DROPS Design

14.09.2021 - 09:07

country flag König wrote:

Hallo bin frau König stricke den Kinderpullover 37-11 komme mit der passe nicht zurecht .Habe die Ärmel angebracht wie beschrieben in der Anleitung habe 304 Maschen auf der Nadel wenn das Diagramm zu ende ist soll ich noch 114 Maschen auf der Nadel haben ,wie komme ich dahin von 304 Maschen ? Muss dazu sagen stricke einen Pullover das erste mal in runden . Liebe Grüße Frau König

03.08.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau König, wenn sie A.3 stricken, ist A.3 am Anfang 16 Maschen und A.3 wird 19 Mal wiederholt (= 19 x 16 M = 304). Im Diagram sollen Sie wie gezeigt abnehmen - siehe letztes Symbol im Diagram und wenn A.3 fertig ist, sind es nur noch 6 Maschen übrig in jedem A.3 (= 19 Rapporter x 6 Maschen = 114 Maschen). Viel Spaß beim stricken!

04.08.2021 - 07:19

country flag Ritva Tarkki wrote:

Oranssikirjava lanka 2925 oli väriltään paljon tummempaa kuin kuvan paidassa. Ja koska tätä lankaa tulee paljon, lopputulos on aivan eri näköinen. Drops Alpaca lanka on ohutta, mutta ihan pehmeää ja hyvän tuntuista.

21.07.2021 - 05:36

country flag Tonia wrote:

Kann man diesen Pullover auch in Drops Lima oder Karisma stricken?

05.03.2021 - 13:38

DROPS Design answered:

Liebe Tonia, Lima und Karisma gehören beide zur Garngruppe B, dieses Modell wird mit DROPS Alpaca = Garngruppe A gestrickt - benutzen Sie unseren Garnumrechner um die unterschiedlichen Möglichkeiten zu sehen. Viel Spaß beim stricken!

05.03.2021 - 14:50

country flag Annet Van Santen wrote:

Ik mis een groot gedeelte van de teltekening, alleen de vlammen zijn beschikbaar

09.01.2021 - 09:05

DROPS Design answered:

Dag Annet,

Als het goed is staan alle telpatronen erop: A.1, A.2 en A.3. (Misschien dat de site tijdelijk niet goed laadde bij jou?)

09.01.2021 - 09:15

country flag María Dolores Porcel Bavarro wrote:

Quisiera saber cómo puedo comprar la lana de este jerseis y las ajugas corespondientes

29.11.2020 - 19:23

DROPS Design answered:

Hola Maria. Las lanas y las agujas las puedes comprar en las tiendas especializadas de DROPS. Aquí tienes la lista completa: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=23&cid=23

30.11.2020 - 22:50

country flag Lilly wrote:

This is a very hot jumper!

16.10.2020 - 23:35