DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Excursion

Prjónuð peysa með belti úr DROPS Snow eða Wish. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum i áferðamynstri og einföldum sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-20
DROPS Design: Mynstur ee-703
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
850-950-1000-1100-1250-1350 g litur 23, moldvarpa

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
650-700-750-800-950-1000 g litur 15, malva

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 630: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Mynsturteikning A.1 er randarmynstur á bakstykki, framstykki og ermum.
Mynsturteikning A.2 og A.3 er kantur að framan á framstykkjum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 57 lykkjur), mínus kantlykkjum að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 55 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 13,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 13. og 14. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón/mynstur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti (séð frá réttu) saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (= gat).
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 16, 25, 34 og 43 cm.
M: 17, 26, 35 og 44 cm.
L: 18, 27, 36 og 45 cm.
XL: 16, 26, 36 og 46 cm.
XXL: 17, 27, 37 og 47 cm.
XXXL: 18, 28, 38 og 48 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp til loka máls. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 55-59-65-69-75-83 lykkjur á hringprjón 7 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN fyrir klauf – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni fyrir klauf. Prjónið alls 4 umferðir í stroffprjóni þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 13 cm, endar klaufin og fitjuð er upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (= kantlykkjur fyrir saum) = 57-61-67-71-77-85 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en nú eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 4 lykkjurnar í hvorri hlið (yfir klauf). Þegar þessar 4 lykkjur slétt hafa verið prjónað til loka, haldið áfram A.1 eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist ca 28-28-29-29-30-30 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, en passið uppá að fækka lykkjum í einingu í sléttprjóni í A.1 = 53-57-63-67-73-81 lykkjur. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist ca 32-32-33-33-34-34 cm = 49-53-59-63-69-77 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, en passið uppá að aukið sé út í einingu í sléttprjóni í A.1 = 51-55-61-65-71-79 lykkjur.
Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 42-42-44-44-46-46 cm = 53-57-63-67-73-81 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af 4-5-6-7-9-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á tveimur næstu umferð = 45-47-51-53-55-57 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 9-9-11-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 17-18-19-20-21-22 lykkjur eftir á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar bakstykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-36-38-40-44-48 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 7 með Snow.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið A.2 (= 6 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið fyrir klauf. Prjónið alls 4 umferðir stroff svona.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.2 yfir fyrstu 6 lykkjurnar (= kantur að framan), prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 13 cm, endar klaufin í hlið og fitjuð er upp 1 ný lykkja í lok umferðar í hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 35-37-39-41-45-49 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en nú eru prjónaðar 4 umferðir í garðaprjóni yfir ystu 4 lykkjurnar í hlið (yfir klauf). Þegar þessar 4 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar til loka, haldið áfram með mynstur eins og áður með A.2 yfir kant að framan, A.1 þar til 1 lykkja er eftir í hlið og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist ca 28-28-29-29-30-30 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 33-35-37-39-43-47 lykkjur. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 32-32-33-33-34-34 cm = 31-33-35-37-41-45 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í umferð – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 32-34-36-38-42-46 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 42-42-44-44-46-46 cm = 33-35-37-39-43-47 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af 4-5-6-7-9-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 29-30-31-32-34-35 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Fellið af 17-18-19-20-21-22 lykkjur á öxl og prjónið eins og áður yfir þær 12-12-12-12-13-13 lykkjur sem eftirr eru (= kragi). Prjónið kragann til loka eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI KRAGI:
Byrjið frá réttu og prjónið stuttar umferðir yfir 12-12-12-12-13-13 kragalykkjur þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka eins og áður yfir ystu 8-8-8-8-9-9 lykkjur, 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm innst þar sem hann er stystur. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í stykkinu í snúningunum, er mikilvægt að herða aðeins á þræði þegar snúið er við mitt í stykkinu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu yfir allar lykkjur. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-36-38-40-44-48 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 7 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá hlið): 3 kantlykkjur í garðaprjóni fyrir klauf, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með A.3 (= 6 lykkjur). Prjónið alls 4 umferðir stroff svona.
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið) og endið með A.3 yfir síðustu 6 lykkjurnar (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 13 cm, endar klaufin í hlið og fitjuð er upp 1 ný lykkja í lok umferðar í hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 35-37-39-41-45-49 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en nú eru prjónaðar 4 umferðir í garðaprjóni yfir ystu 4 lykkjurnar í hlið (yfir klauf). Þegar þessar 4 umferðir í garðaprjóni hafa verið prjónaðar til loka, haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið, A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir við miðju að framan og A.3 yfir kant að framan.
Þegar stykkið mælist ca 28-28-29-29-30-30 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 33-35-37-39-43-47 lykkjur. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 32-32-33-33-34-34 cm = 31-33-35-37-41-45 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í umferð = 32-34-36-38-42-46 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 42-42-44-44-46-46 cm = 33-35-37-39-43-47 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af 4-5-6-7-9-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 29-30-31-32-34-35 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Fellið af 17-18-19-20-21-22 lykkjur á öxl og prjónið eins og áður yfir þær 12-12-12-12-13-13 lykkjur sem eftirr eru (= kragi). Prjónið kragann til loka eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KRAGI:
Byrjið frá röngu og prjónið stuttar umferðir yfir 12-12-12-12-13-13 kragalykkjur þannig: * Prjónið 2 umferðir fram og til baka eins og áður yfir ystu 8-8-8-8-9-9 lykkjur, 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm innst þar sem hann er stystur. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í stykkinu í snúningunum, er mikilvægt að herða aðeins á þræði þegar snúið er við mitt í stykkinu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp.
Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 30-29-28-28-26-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar ermin mælist 50-49-48-48-46-43 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Þessi prjónamerki merkja hvar botninn á handveg byrjar. Ermakúpan sem á að prjónast, er mæld frá þessum prjónamerkjum.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ½-1-2-3-5-7 cm frá prjónamerkjum. Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón fram og til baka þar sem felldar eru af 5 lykkjur í byrjun á hverri einni af þessum 4 umferðum. Fellið af þær 24-26-28-30-32-34 lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53 cm í öllum stærðum ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BELTI:
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 8 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til beltið mælist ca 150 cm til 190 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handveg – sjá teikningu. Prjónamerkin sem voru sett í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að klauf í hvorri hlið.
Saumið kragann saman mitt að aftan innan við affellingarkantinn, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Lena Öberg wrote:

Hej! Jag undrar över färgen, står att det är Snow mix mullvad nr 23, finns ingen färg som heter mullvad, är det färgen bark ? Jag undrar också om ni tycker det är lämpligt att sticka koftan i Drops Alpacka garnet, man måste ju använda 4 trådar då. Vänliga hälsningar Lena Öberg

26.03.2024 - 11:09

DROPS Design answered:

Hej Lena. Ja det är färg nr 23 bark koftan är stickad i. Du kan sticka denna i 4 trådar alpaca utan problem. Om du tycker det är mycket att sticka den med 4 trådar så kan du välja 2 trådar av ett garn i garngrupp C, som t.ex. DROPS Nepal. Mvh DROPS Design

27.03.2024 - 14:07

country flag Emelie wrote:

Fråga från en nybörjare: När det står ”när arbetet mäter…” osv ska man då mäta med maskorna man har på stickan också, eller ska man mäta arbetet under stickan?

05.10.2022 - 02:19

DROPS Design answered:

Hei Emilie. Mål med maskene på pinne også. mvh DROPS Design

09.10.2022 - 13:35

country flag Maureen Schilling wrote:

Mag ik vragen of je dit vest ook kan breien van een combi tussen katoen en acryl? En hoeveel heb ik daar dan van nodig voor maat 42/44? Ik kan niet tegen wol dat jeukt. En welke zou u dan adviseren? Liefst 1 die mooi blijft want het word een heel project aangezien ik fybromyailgi heb. En zit er toevallig 1 in de uitverkoop ?

01.02.2021 - 10:05

DROPS Design answered:

Dag Maureen,

Zolang je garen hebt met dezelfde stekenverhouding (maak altijd even een proeflapje) kun je gewoon het patroon volgen. Wij hebben geen garens met acryl in het assortiment. Wel garens met katoen en merino; deze beide garens zijn geschikt als je allergisch bent voor wol of als het kriebelt. Om op een garendikte van categorie E te komen, kun je bijvoorbeeld 2 draden van categorie C nemen. Zie hier voor meer info over het vervangen van garens.

06.02.2021 - 12:21

country flag Wilma wrote:

Is al bekend hoeveel Eskimo-garen hiervoor nodig is? Ik heb nog een partijtje liggen en als het genoeg is, wacht ik op dit patroon.

21.08.2020 - 17:26

country flag Kerstin Kjellander wrote:

Enkel med fina detaljer! 👍🏻

10.08.2020 - 09:26

country flag Pia wrote:

Hyggelig!

07.06.2020 - 18:20