DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Team Winter

Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-23
DROPS Design: Mynstur ai-273
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-700 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600-650-700-750 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 15.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 15. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 14. og 15. hver lykkja slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (prjónamerki situr í þessari lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, prjónið fram- og bakstykki í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir í sokkaprjóna eftir þörf. Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 60-60-60-64-64-64 lykkjur með 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist ca 10 cm í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 64-64-64-68-68-68 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á þessari umferð = miðja að aftan. Látið merkiþráðinn sitja í stykkinu hér, svo hægt sé að mæla héðan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna – prjónamerkin eru sett í lykkjurnar frá byrjun á umferð þannig: Setjið 1. prjónamerki í 12.-12.-12.-13.-13.-13. lykkju, setjið 2. prjónamerki í 22.-22.-22.-23.-23.-23. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 44.-44.-44.-47.-47.-47. lykkju og setjið 4. prjónamerki í 54.-54.-54.-57.-57.-57. lykkju. Nú eru 9 lykkjur á hvorri ermi og 21-21-21-23-23-23 lykkjur á framstykki og bakstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umferð alls 6-8-11-14-19-23 sinnum og síðan er aukið út í 4. hverri umferð alls 5-5-4-3-1-0 sinnum = 152-168-184-204-228-252 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 23-26-27-29-30-33 cm frá merkiþræðinum.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki hér. Prjónið fyrstu 22-24-26-29-32-35 lykkjurnar (= hálft bakstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 43-47-51-57-63-69 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 21-23-25-28-31-34 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 100-108-116-128-140-152 lykkjur. Nú er stykkið mælt héðan!
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stroffið mælist ca 4 cm í öllum stærðum. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Fellið laust af.

ERMI:
Setjið til baka 33-37-41-45-51-57 lykkjur frá þræði í annarri hlið á hringprjóna 9. Prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-48-52-58-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, byrjið úrtöku undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku með 6½-6-5-4-4-3 cm millibili alls 4-4-4-5-7-9 sinnum = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-33-33-32-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 1 umferð sléttprjón þar til ermin mælist 39 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 26-28-28-30-32-32 lykkjur.
Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.12.2020
Leiðrétting: Mál á berustykki og fram-og bakstykki + teikning með máli hefur verið uppfært.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Elena wrote:

Hi! i just wanted to ask, on the yoke instructions when it says to work until piece measures (19 cm for size S) do we work just knitting or is it the reglan increase?

21.12.2020 - 17:04

DROPS Design answered:

Hi Elena, This includes the raglan increases. If you haven't reached this length when y the increases are finished, continue working without further increases to the correct length. Happy knitting!

22.12.2020 - 06:55

country flag Lina wrote:

Hi. I am knitting M size sweater and yoke piece is too long or missing stiches. Yoke piece should be increased 8 times every second row (16 rows) and 5x every 4th row (20 row) = 36 rows in total. However, tension should be 28 rows for 20cm. Have I understood the instructions correctly? Can I knit increasing every second row untill I reach 168 stitches?

20.12.2020 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Lina, thanks for your feedback, measurements under yoke, body and sleeves have been updated. Happy knitting!

22.12.2020 - 14:42

country flag Annette wrote:

Hallo, ist es richtig, dass nur 21 cm (bei Größe L) nach den Raglanzunahmen erreicht werden sollen? Wenn man die Maschenprobe beachtet (14 Reihen für 10cm) und alle Raglanzunahmen nach Anleitung strickt, kommt man mindestens auf 39 bzw. 40 Reihen und somit auf mehr als 21 cm bei Größe L. Danke für die Hilfe. Viele Grüße.

20.12.2020 - 12:27

DROPS Design answered:

Liebe Annette, Danke für den Hinweis, in L sollten Sie bis die Arbeit (Passe) 27 cm misst (beim Rumpfteil ist es 52 cm vom Schulter / bei den Ärmeln ca 33 cm) - Korrektur erfolt. Viel Spaß beim stricken!

22.12.2020 - 14:44

country flag FRECHET Frédérique wrote:

Bonjour Je voudrais faire ce modèle en taille XS. Serait-il possible d'avoir les explications correspondantes, ou, à défaut, m'indiquer comment je pourrais faire les calculs? Cordialement Frédérique Fréchet

05.12.2020 - 20:52

DROPS Design answered:

Bonjour Frederique, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!

06.12.2020 - 13:01

country flag Kris wrote:

Goedemorgen, ik zou deze trui graag in kobaltblauw maken maar ik zie geen alternatief garen. Drops Karisma en Drops kid silk zijn er bijvoorbeeld wel in het kobalt blauw. Kan ik daar eventueel iets mee? Groetjes Kris

04.12.2020 - 07:49

DROPS Design answered:

Dag Kris,

Dat is inderdaad een uitdaging omdat er niet veel garens zijn met kobalt blauw. Misschien zou je 2 draden DROPS Karisma en 1 draad DROPS Kid Silk kunnen nemen. Je hebt dan wel een zwaarder resultaat omdat Karisma geen blowgaren is. Het hangt er ook een beetje af hoe je uitkomt met je stekenverhouding, dus even een proeflapje maken. In dit overzicht kun je zien hoe je verschillende garens kunt combineren.

04.12.2020 - 12:28

country flag Wendy wrote:

Het "onzichtbaar" meerderen lukt me niet. Ik krijg toch iedere keer grote gaten. Gedraaid recht in de volgende pen lukt me niet. Is het bij deze trui ook mogelijk om op een andere manier te meerderen?

29.11.2020 - 21:58

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Wat ook mogelijk is, is dat je de draad tussen 2 steken op de naald zet en dan deze gedraaid breien, zoals uitgelegd in deze video.

30.11.2020 - 19:48

country flag Wendy wrote:

Ik ben begonnen met de halsrand waarbij ik 4 moet meerderen. Ik was begonnen met 60 steken. Maar als ik na iedere 15 steken 1 meerder dan heb ik toch 63 steken? 15 + 1 + 15 + 1 + 15 + 1 + 15

25.11.2020 - 21:56

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Je breit in de rondte dus tussen de eerste en laatste 15 steken komt ook nog een meerdering.

26.11.2020 - 09:23

country flag Wendy wrote:

Ik heb de 10 cm van de hals gebreid, hoe ga ik over naar de 9 mm naalden en welke maat (40 - 60 of 80) heb ik hier voor nodig? Ik ben maat S aan het maken.

22.11.2020 - 14:30

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Je gaat over naar een ander naalddikte door vanaf de eerste steek met de andere naald te breien. De oude naald gaat er dus gaandeweg de tour uit. Je kunt beginnen met dezelfde lengte als waar je de hals mee hebt gebreid of een maat groter en dan laat je er halverwege de toer een een stuk van de breinaald uit steken. Je kan dus vaak beter met een te lange dan met een te korte rondbreinaald breien.

22.11.2020 - 18:12

country flag Mónica wrote:

Hello, I accidentally casted on 58 stitches instead of 60 and just knitted away. I realised once I began the yoke section, so I now have 62 stitches instead of 64 to divide. Is there any way to divide the back, front and sleeves without altering the pattern too much? Or should I just start from scratch again? Thank you!

16.11.2020 - 16:56

DROPS Design answered:

Dear Monica, you can start again from the beginning - or then just increase 6sts instead of just 4 to get a total of 64 sts to start yoke - make sure also that neck won't be too tight with 58 sts. Happy knitting!

17.11.2020 - 08:44

country flag Wendy Broek wrote:

Ik wil graag starten met dit patroon. Moet ik echt beginnen met de rondbreinaald 7 (80 cm)? Ik hou namelijk heel veel ruimte over na het opzetten van de steken.

14.11.2020 - 19:38

DROPS Design answered:

Dag Wendy,

Voor de hals kun je de naalden zonder knop gebruiken, voor de boordsteek onderaan kun je rondbreindaald 80 cm gebruiken.

De magic loop is ook altijd handig om te weten bij rondbreien. Dan zit je niet zo vast aan een bepaald draadlengte.

15.11.2020 - 18:24