DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shout for Winter

Prjónuð peysa með laskalínu og fölsku klukkuprjóni úr 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-28
DROPS Design: Mynstur ai-272
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-700 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 630: 5-6-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 65 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 5,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja saman og 5. og 6. hver lykkja saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

FALSKT KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, * prjónið lyftu lykkjunni og uppsláttinn frá fyrri umferð brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*.
Endurtakið umferð 1 og 2.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við hverja lykkju með prjónamerki í, útauknar lykkjur á framstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í falskt klukkuprjón og útauknar lykkjur á ermum og bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið út þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 11 cm frá uppfitjunarkanti (munið eftir að öll mál eru gerð á bakstykki)fellið síðan af fyrir næstu 4-5-5-5-5-5 hnappagötum með ca 10-8½-9-9-9½-10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir í sokkaprjóna eftir þörf. Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum. Vegna mynsturs á framstykki þá kemur stykkið til með að vera styttra að framan en að aftan, öll mál eru gerð á bakstykki á meðan stykkið er prjónað.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 65-65-65-69-69-69 lykkjur með 2 þráðum Air á hringprjón 7. Prjónið stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stroffið mælist ca 10 cm í öllum stærðum – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið JAFNFRAMT út 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 75-75-75-81-81-81 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 11-11-11-13-13-13 lykkjur FALSKT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= vinstra framstykki), 1 lykkja sléttprjón og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið 9 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið 21-21-21-23-23-23 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), 1 lykkja sléttprjón og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið 9 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju. Prjónið 11-11-11-13-13-13 lykkjur falskt klukkuprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Setjið merkiþráð í stykkið mitt að aftan, látið merkiþráðinn sitja hér – hann er notaður til að mæla frá síðar! Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

Haldið svona áfram með mynstur og í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 6-8-11-14-19-23 sinnum og síðan í annarri hverri umferð frá réttu 5-5-4-3-1-0 sinnum = 163-179-195-217-241-265 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 23-26-27-29-30-31 cm í prjónstefnu mælt frá merkiþræði sem settur var í mitt að aftan – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki hér. Prjónið fyrstu 27-29-31-35-38-41 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 43-47-51-57-63-69 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 33-37-41-45-51-57 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 7 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 27-29-31-35-38-41 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 111-119-127-141-153-165 lykkjur.
Haldið áfram að prjóna 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, falskt klukkuprjón yfir framstykki, sléttprjón yfir nýjar lykkjur undir ermum og á bakstykki.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá ðxl og niður (mælt á bakstykki) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stroffið mælist ca 4 cm í öllum stærðum. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður, stykkið er ca 8-9-9-10-10-10 cm styttra að framan. Fellið laust af.

ERMI:
Setjið til baka 33-37-41-45-51-57 lykkjur frá þræði í annarri hlið á hringprjóna 9. Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-48-52-58-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, byrjið úrtöku undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan! Endurtakið úrtöku með 6½-6-5-4-4-3 cm millibili alls 4-4-4-5-7-9 sinnum = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-33-33-32-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 1 umferð sléttprjón þar til ermin mælist 39 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 26-28-28-30-32-32 lykkjur.
Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.12.2020
Leiðrétting: Mál á berustykki og fram- og bakstykki + mál á teikningu hefur verið uppfært.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2021
Leiðrétting: Fjöldi hnappagata og staðsetning hefur verið leiðrétt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Crys wrote:

Bonjour Concernant le devant et dos il est écrit "Tricoter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 48-50-52-54-56-58 cm depuis l'épaule" Je ne saisis pas bien à partir de quelle hauteur mesurer. Depuis la fin du col à l'arrière ? Ou ? Merci d avance de votre aide

25.04.2024 - 15:16

DROPS Design answered:

Bonjour Crys, posez la veste à plat comme dans le schéma, et mesurez à partir de l'épaule, à côté de l'encolure jusqu'aux mailles sur l'aiguille. Bon tricot!

25.04.2024 - 16:14

country flag Crys wrote:

Bonjour Je ne comprends pas les fausses côtes anglaises. L explication ne correspond pas à ce qui est montré dans la vidéo. Et comment faire avec les mailles que l on ajoute Merci d avance pour votre aide

06.04.2024 - 19:19

DROPS Design answered:

Bonjour Crys, effectivement, il existe plusieurs façons de les tricoter, ici on a 1 maille point mousse entre chaque maille en côtes anglaises alors que dans la vidéo on va tricoter 1 maille jersey envers entre chaque maille en côtes anglaises, suivez attentivement les explications écrites, et tricotez à l'endroit tous les rangs la maille entre celle en côtes anglaises (alternativement glissée à l'envers avec son jeté sur l'endroit et tricotée ensemble à l'envers avec son jeté sur l'envers). Bon tricot!

08.04.2024 - 07:58

country flag Sarah wrote:

Den falske patent er forkert i opskriften på pind 1... Det bør være: FALSK PATENT (frem og tilbage): 1.PIND (= retsiden): * 1 maske vrang, slå om, tag 1 maske løs af pinden som om den skulle strikkes vrang *, strik fra *-* til der er 1 maske tilbage, afslut med 1 maske vrang. 2.PIND (= vrangen): 1 maske ret, * strik den løse maske og omslaget fra forrige pind vrang sammen, 1 maske ret *, strik fra *-*. Gentag 1.og 2.pind.

08.02.2024 - 17:48

country flag Sally wrote:

What size is the model wearing in the photo? Thank you!

03.01.2024 - 06:01

DROPS Design answered:

Dear Sally, most of the time our models are wearing either a size S or a size M; but as our bodies are all different, the best way to find your own size is to measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the ones in the chart (in cm - convert here). Read more here. Happy knitting!

03.01.2024 - 08:39

country flag Iwona wrote:

''Dalej przerabiać tak samo, w tym samym czasie, w następnym rzędzie na prawej stronie robótki zacząć dodawanie oczek na REGLAN – patrz powyżej. Powtarzać dodawanie oczek w sumie 6-8-11-14-19-23 razy w każdym rzędzie na prawej stronie robótki i 5-5-4-3-1-0 razy co 2 rzędy na prawej stronie robótki (= co 4 rzędy) = 163-179-195-217-241-265 oczek. '' Nie rozumiem gdzie mają być dodane te oczka.

20.03.2023 - 17:53

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, na reglan dodajesz 1 oczko z każdej strony 4 oczek z markerem (to będą 4 linie reglanu), czyli jest dodanych 8 oczek w każdym rzędzie, w którym wg opisu dodajesz oczka. W tym modelu oczka na reglan są dodawane zawsze na prawej stronie robótki: najpierw co 2 rzędy, a następnie co 4 rzędy. Pozdrawiamy!

21.03.2023 - 08:32

country flag Lena Davidian wrote:

Hello, I would love to make this jacket but it suggests using circular needles. Can you please tell me how to adapt the pattern to straight needles? Thank you, lena

10.01.2022 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davidian, only sleeves are worked here in the round, you will find how to adapt a pattern into straight needles here. Happy knitting!

11.01.2022 - 09:09

country flag Else Lindberg-Nielsen wrote:

Når jeg klikker på rettelser til opskriften, står der blot, at rettelsen er foretaget online, men ikkehvad rettelsen går ud på. Hvordan får jeg svar på det?\r\nVenlig hilsen, Else Lindberg .

01.03.2021 - 16:43

DROPS Design answered:

Hei Else. Jo, det står hva rettelsene går ut på og når det ble oppdatert (det er rettet i selve oppskriften og hva det er rettet står under rettelseknappen.: Opdateret online: 22.12.2020. Rettelse: Målene på bærestykket og ryg-& forstykke + måleskitse er opdateret. Opdateret online: 05.02.2021 Antal knaphuller og placeringen af dem er rettet. mvh DROPS design

03.03.2021 - 13:41

country flag Tania wrote:

Bonjour, Au moment de la division des différentes parties, il est indiqué de tricoter les 27 premières mailles (taille S) correspondant au devant gauche. Ces mailles incluant les 5 mailles bordures, on se retrouve avec un nombre pair pour les mailles en fausses côtes anglaises (22m.) alors que nous devons toujours finir par une maille endroit les fausses côtes donc avoir un nombre pair de mailles. Comment faire ? Faut-il ajouter une maille pour avoir un nombre pair ? Merci d'avance.

02.02.2021 - 00:20

DROPS Design answered:

Bonjour Tania, vous tricotez les 22 mailles du devant en côtes anglaises, mais vous pouvez, si vous le souhaitez, terminer ces mailles par la 1ère maille des fausses côtes anglaises, autrement dit, tricotez la 1ère des mailles montées sous la 1ère manche et la dernière des mailles montées sous la 2ème manche comme la 1ère des mailles des fausses côtes anglaises. Bon tricot!

02.02.2021 - 10:37

country flag Mary wrote:

Could you help me with buttonhole placement? I see only 5buttons on the picture and when I reach the measurement to start the rib on the bottom I will have only 5 buttons as the front wil be about 8cm smaller than the back could you tell me where I am going wrong. I am doing the small size and I did a swatch and my tension is OK? Thank you

19.01.2021 - 13:30

country flag Tania wrote:

Bonjour, Pour les augmentations est-ce donc : - rang endroit = augmentations Raglan (+8 mailles) - rang envers = rien Répété 6 fois. Puis : - rang endroit = augmentations Raglan (+8 mailles) - rang envers = rien - rang endroit = rien - rang envers = rien Répété 5 fois. Puis on tricote normalement (sans augmenter) jusqu'à atteindre les 23 cm. Merci pour votre réponse !

17.01.2021 - 15:09

DROPS Design answered:

Bonjour Tania, tout à fait, ceci correspond aux augmentations du raglan en taille S. Bon tricot!

18.01.2021 - 09:56